Morgunblaðið - 01.12.1989, Page 30

Morgunblaðið - 01.12.1989, Page 30
\30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1989 Minning: Jón Einarsson frá Beijanesi Fæddur 13. júní 1895 Dáinn 27. nóvember 1989 Þegar við heyrðum hvað hafði komið fyrir Jón langafa brá okkur öllum mjög mikið. Og erfitt var fyrir okkur að sætta okkur við að njóta ekki návistar hans lengur. í gegnum huga manns fiugu ótal minningar og allar voru þær góðar. Alltaf þeg- ar við hittum hann þá hrutu orð af vörum hans sem komu manni til að brosa eða hlæja. Afi var mikill hand- verksmaður og eigum við eftir hann ýmsa fagra muni. Eiginlega alltaf þegar við komum í heimsókn, nú fram á síðustu ár, þá var hann á verkstæðinu að smíða og ef við æt- luðum að fá að koma inn, þá þurfti maður alitaf að fara í skóna eða að sópa sér leið inn á verkstæðið, því að alitaf var einhver hætta á að sag bærist um húsið. Sérstaklega munum við eftir þegar hann var heima hjá okkur þá vaknaði hann alltaf snemma á morgnana til þess að fara á verkstæðið þar sem hann undi sér best og þegar líða tók að kveidi var hann sóttur í mat. Alltaf- fannst okk- ur skrítið að sjá hve vel hann hreins- aði af beinunum og disknum. Og ef svið voru í matinn þá var hver ein- asta ögn hreinsuð af þeim. En skond- ið var það að afi borðaði ekki svín og kjúkling og þegar plata átti ofan í hann bayonne-skinku þá komst hann að því um leið og það eina sem sást á disknum hans voru fijálsar kartöflur, eins og hann kallaði þær ailtaf. Hann langafi hefur skilið eftir stórt tómarúm í hjörtum okkar sem seint verður fyllt. Það er margt sem við gætum skrifað um því að hann er einn sá besti maður sem við höfum kynnst á okkar lífsleið. Við vitum að þegar álftimar koma á næsta vori í stíflulónið þá mun minningin um hann koma ljóslifandi upp í hug- ann vegna þess að alltaf fylgdist hann af miklum áhuga með varpinu og afdrifum unganna. Þess vegna er gott að eiga minningu í svona fögrum fugli um hann afa okkar. Við þökkum elsku langafa okkar fyrir allt. Elísa Guðlaug, Asgeir og Asta María. Vinur minn, Jón Einarsson frá Beijanesi í Vestmannaeyjum, er lát- inn. Hann kom ungur til Eyja, með foreldnim sínum og ungri bróður- dóttur. Pjölskyldan átti rætur að rekja austur í Meðalland, en kom nú frá Fossi í Mýrdal. Strax var tekið til við að reisa sér hús og lágu þar fyrst saman leiðir fjölskyldna, sem áttu eftir að deila vináttu og vanda um langa ævi. Svo kom Ólöf til sögunnar með glaðværð sína og glæsileika og börn- in hvert af öðru og enn tengdust vinabönd í leik og starfi. Seinna bættist við sólargeisli í iífi þeirra Óiafar, sem var alinn upp í umvefj- andi kærleika afa og ömmu. Það var ekkert verið að flytja þó þrengdist um sinn, bara lyft þaki. Jón fór fljótlega að vinna hjá vax- andi fyrirtæki í útgerð og vinnslu, Gunnari Ólafssyni og Co. Hann var fjölhæfur smiður sem annaðist víð- hald báta og húsa hjá fyrirtækinu. Þegar árin færðust yfir sneri hann sér að smíði nytjahluta, sem báru listfengi hans vitni. Þessara hluta nutu margir, því kærleikur hans var gjafmildur. vafinn því ástríki sem hann átti skil- ið. Einstakri heilsu, bæði andlegri og líkamlegri, hélt hann öll sín nærri 95 ár. Ég þakka með trega hjónunum Ólöfu Firðfinnsdóttur og Jóni Einars- syni langa samleið. Magga Guðjóns „Veistu, ef þú vin átt, þanns þú vel trúir, og vili þú af hónum gótt geta, geði skaltu blanda við þann ok gjöfum skipta, fara at finna oft.“ (Úr Hávamálum) Það er undarleg tilfinning að kveðja afa sinn í síðasta skipti, und- arlegt að hugsa til þess að ekki skuli vera tækifæri til að tala við hann einu sinni enn og spyija hann út í hluti sem enginn annar vissi deili á. Því þannig var því farið með afa, alltaf gat ég sest hjá honum og spurt hann spjörunum úr um löngu liðna atburði, fjarlægja staði og gegna menn. Af nógu var að taka, alltaf leysti afi greiðlega úr spurningum mínum og iðulega spann svarið af sér aðra spurningu. í samræðum okkar kenndi engrar óþolinmæði, alltaf var nægur tími. Eitt var það sem einkenndi afa og það var hve mikið _ hann gerði grín að sjálfum sér. Á því mátti glöggt kenna að hógværð, lítillæti og nægjusemi voru honum eðlisborin. „Verið þið ekki að hafa svona mikið fyrir mér“ var viðkvæðið þegar átti að gera eitthvað fyrir hann. Við hjónaleysin kynntumst þessu vel þeg- ar hann var hjá okkur nokkrar helg- ar í sumar. En um leið og lítið mátti hafa fyrir honum var hann þakklátur fyrir það sem fyrir hann var gert. Því var gott að vera með honum og hugsa um hann. Guðjón Bjarki, sonur okkar, og afi voru miklir mátar. Þegar þeir hittust voru það ætíð fagnaðarfundir og við engan hefur bamið skrafað jafnmikið og við langafa sinn sem alltaf hafði eitthvað til máianna að ieggja. Það'var augljóst þegar þeir tveir voru saman, fyrsti og fimmti ættliður, að hvor fann sig í hinum. Þeir hittust stundarkom, en þau kynni vara að eilífu. Nú, þegar afi er allur, togast í manni tvennskonar tilfinningar, söknuður og gleði. Söknuður, vegna þess að nú er horfíð síðasta tæki- færið til að njóta samvista með afa, en um leið gleði vegna þess að ég veit að þessi ferð var langþráð og kærkomin. Með afa er genginn maður hvers lífsgildi ég vildi óska að allir hefðu tii að bera; hagur maður sem skilur eftir sig fjölda fallegra muna, greið- vikinn maður sem ætíð var boðinn og búinn að aðstoða á hveija lund og elskandi maður sem ekki vísaði neinum þeim á bug sem til hans leit- aði. Við óskum afa góðrar ferðar í þeirri vissu að á leiðarenda bíði amma og taki á móti honum. Óli Jón, Gerður og Guðjón Bjarki. Hann afi minn, Jón Einarsson frá Beijanesi, Vestmannaeyjum, er dá- inn. Það er erfitt fyrir barnið í sál- inni að trúa því að hann sé farinn og við eigum aldrei eftir að vera saman aftur, annaðhvort til að spjalla eða þá bara að þegja saman. Því 1 óteljandi eru stundimar sem við átt- um, allar góðar. Ég var hálft í hvoru farin að trúa því að hann yrði alltaf hjá mér, ég fæddist hjá honum og hann og amma ólu mig upp. í fjörutíu og fimm ár hef ég verið þeirrar hamingju aðnjót- andi að kynnast þolinmæði, gíað- værð, heiðarleika og umfram allt, njóta elsku og umhyggju einstaks manns. Því einstakur var hann og nú þegar hann er farinn, 94 ára gamall, er erfitt að sætta sig við það. Hann var svo hress og andlega heill fram á síðasta dag, að maður var farinn að trúa því að hann yrði hér alltaf, alveg eins og Heimaklett- ur er alltaf á sínum stað. Hann er orðinn þreyttur og vildi fá hvíldina, hann sagði oft að amma væri farin að bíða eftir sér, og hún hefur ábyggilega tekið á móti honum hinu- megin. Núna streyma ótal minningar fram í hugann, allar svo góðar, Ég man þegar hann hossaði mér iítilli á hné sér og raulaði. Hann sagði mér sögur, kenndi mér að stauta á bók, fór með mig í gönguferðir niður á bryggju, við tókum upp kartöflur og rófur og hann skar utanaf glænýrri rófu handa mér. Ég var að sniglast í kringum hann úti á verkstæði og í garðinum og hef sennilega oftar verið fyrir en ekki. En aldrei fékk ég eitt styggðaryrði frá honum. Ég man líka eftir jólalyktinni af eplunum og appelsínunum, sem aðeins voru til í desember. Þá faldi hann alltaf einn ávöxt á morgnana og ég leitaði en rann oftast fljótt á lyktina. Ég veit varla hvort okkar varð glaðara, ég með eplið eða appelsínuna eða hann við það að horfa á mig borða. Svo var það klessti bijóstsykurinn sem hafði bráðnað í hita niður á Tanga og hann kom með heim tii að gefa mér og systur minni, Ruth Höllu. Við gleymum aldrei bragðinu og hve dátt hann skemmti sér við að horfa á okkur háma í okkur sæl- gætið. Hann smíðaði líka tréskauta handa mér og vinkonum mínum, for- láta gripi, því ekki voru til peningar fyrir alvöru skautum. Hann smíðaði líka handa mér skíðasleða og maga- sieða og stulturnar mínar voru þær bestu í bænum. Ég man líka eftir öllum Þorláksmessukvöldunum þeg- ar við fórum niður í bæ til að skoða í búðarglugga svo amma fengi nú frið við jólaundirbúninginn. Ég fór líka alltaf til hans á Þorláksmessu eftir að þau fiuttu til Reykjavíkur í gosinu og við áttum saman góða stund. Það verður tómlegt Þorláks- messukvöldið næsta. Ég vildi segja svo margt, margt fleira því sjóðurinn er ótæmandi. En dýrmætust af öllu er minningin um einn þann besta mann sem ég hef nokkru sinni þekkt. Ég á honum svo ótal margt að þakka, alla ástina, umhyggjuna og þolinmæðina, alla þá gleði og birtu sem hann alltaf veitti mér og mínum. Börnin mín voru svo lánsöm að þekkja langafa sinn alla tíð, heilbrigðan andlega og líkamlega. Þau eiga margar góðar minningar um glettni hans og fróð- leik og marga góða smíðisgripina eiga þau eftir hann, því hann var mjög hagur í höndunum. Hafi elsku afi minn hjartans þakk- ir fyrir allt og allt. Ólöf Jóna Það er ávallt sárt er dauðann ber að garði, en sagt er að Guð kalli fólk til sín þegar það hefur lokið hlut- verki sínu hér á jörð og eitt er víst að við fáa á þetta betur við en okkar elskulega frænda, Jón Einarsson frá Beijanesi í Vestmannaeyjum, eða Jón frænda eins og við kölluðum hann. Frændi bjó í Beijanesi í Vest- mannaeyjum mest alla ævi sína en 4 Morgunverðarfundur í A-sal Hótels Sögu miðvikudaginn 6. desember 1989, kl. 8-9.30. Fyrirmynd að dreifisamningum Á fundinum verður lögð fram og kynnt fyrirmynd að dreifísamninum fyrir inn- og útflytjendur. Þar er miðað við algengar aðstæður íslenskra fyrirtækja, en jafnframt höfð hliðsjón af reglum innan EB. Höfundurinn, Þórður S. Gunnarsson, hæstaréttar- lögmaður, kynnir samningsformið og svarar fyrir- spurnum. Þátttökugjald kr. 1.000 (morgunverður innifalinn). Þátttöku þarf að tilkynna Verslunarráðinu í síma 83088 eða FÍS í síma 678910 fyrir fundardag. VERSLUNARRAÐ ÍSLANDS FELAG ISLENSKRA STÓRKAUPMANNA Hann var mikill gæfumaður, um- imnMmtiTOispnmsr Jólagjafirnr sem hitta beint í mark Dartpflur 3 stk. frá kr. 195,- Dartspjöld, verð frá kr. 490,- Dartspjöld, keppnis, Bristle, kr. 2.590,- Borðtenniskúlur Borðtennisspaðar Borðtennisborð, verð frá kr. 10.380,- Stgr. 9.861,- Borðtennisborð á hjólum, verð frá kr. 15.870,- Stgr. 15.076, Borðtennisborð á hjólum með neti, verð frá kr. 19.900,- Stgr, 18.905,- Sendum í póstkröfu Kreditkortaþjónusta

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.