Morgunblaðið - 01.12.1989, Page 31

Morgunblaðið - 01.12.1989, Page 31
MORGTJNBLAÐIÐ TÖSTUDAGUR' Y. DESEMBER ‘1989 ... flutti til Reykjavíkur í gosinu, en þótt hann væri fluttur frá Eyjum fylgdist hann alltaf vel með því sem þar var að gerast. Jón frændi smíðaði mikið í frístundum sínum og var með verkstæði í Betjanesi og það var hrein upplifun að koma þangað fyrir litla frænda og sjaldan fór maður tómhentur út. Það var sama hvernig spýtu frændi fékk; úr henni varð listaverk sem hann gaf vinum og ættingjum. Það eru ekki mörg ár síðan frændi hætti smíðum. Frændi var mjög hjálpsamur mað- ur og neitaði aldrei um aðstoð ef hann gat mögulega komið því við. Sem dæmi um það langar okkur að minnast á að árið 1962 byggðum við hús í Vestmannaeyjum og var þá gott að eiga góðan frænda að sem kom oft og fylgdist vel með. Þá var engin steypustöð komin í Eyjum, bara hrærivélar og lét frændi sig ekki muna um að setja hvern einasta sementspoka sem í húsið fór í hræri- vélina. Frændi var alltaf hress og var mjög skemmtilegt að spjalla við hann og verður nú söknuður að geta það ekki lengur. Þá vildi frændi allt- af fylgjast með sínum nánustu. Aldr- ei heyrði maður frænda kveinka sér heldur var svarið að hann hefði það nógu gott. Af ofangreindu sést að vandfundinn er betri frændi. Við undirritaðir sendum skyld- mennum Jóns frænda okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Þór og Atli Svanhildur Þorsteins- dóttir - Minning Fædd 16. nóvember 1916 Dáin 22. nóvember 1989 Einhvern dag Ég vissi fullvel. að ég ætti einhvern dag leið um þennan veg; en aldrei datt mér í hug að „einhvem dag“ yrði nú. (Japanskt ljóð í þýðingu Helga Hálfdanarsonar.) Þetta ljóð kom upp í huga mér, þegar ég fékk þær sorgarfréttir að Svanhildur Þorsteinsdóttir væri ekki lengur á meðal okkar. Amma Bebba, eins og við barna- börnin kölluðum hana, var ekki móðir föður míns eða móður. Þegar ég var 5 ára gömul varð hún amma mín og síðan hef ég verið eitt af barnabörnunum. Amma var ekki stór kona vexti, en stærra hjarta og stærri sál efa ég að margir hafi haft. GóðviJdin og hjartahlýjan streymdi frá henni. Hún var okkur barnabörnunum mik- il amma, með nægan tíma, mikla ástúð og hlýju. Þó við séum jafn mismunandi og við erum mörg, þá lét hún okkur aldrei finna annað en við værum jafningjar, öll með af- burða hæfileika hvert á sínu sviði. Maður varð betri maður við að kynn- ast henni. Árið 1986 bjó ég í nokkra mánuði í Norðurbrúninni hjá afa og ömmu. Þá áttum við saman góðar stundir og að þeim mun ég búa um aldur og ævi. Þessar línur eru lítill þakklætis- vottur til ömmu Bebbu nú þegar leiðir okkar skilja að sinni. Hafi hún þökk fyrir allt sem hún var mér og systkinum mínum. Mandý Svanhildur Þorsteinsdóttir er horfin sjónum okkar, en minning hennar lifir. Hún var sannkölluð dóttir Reykjavíkur og gæti vel hafa verið ein af fyrirmyndum Tómasar Guðmundssonar, þegar hann orti til borgarinnar við sundin blá. Þar ætla ég, að hún hafi ávallt unað sér bezt, ekki sízt á góðviðrisdögum, þegar sólin speglaðist í tjörninni og mannlífið blómstraði við Laugaveg- inn og á Lækjartorgi. Svanhildur var dóttir hjðnanna Þorsteins Jósefs Sigurðssonar prent- ara og síðar kaupmanns í Reykjavík og konu hans, Þórönnu Rebekku Símonardóttur. Stóðu að henni góð- ar ættir og má m.a. rekja þær til Vigfúsar sýslumanns Þórarinssonar að Hlíðarenda í Fijótshlíð og konu hans, Rannveigar dóttur Bjarna landlæknis Pálssonar. í flestu hefur Svanhildur Þor- steinsdóttir verið gæfumanneskja um dagana. Hún eignaðist 1943 góðan og viljasterkan lífsförunaut, Karl Lúðvíksson lyfjafræðing, ætt- aðan austan af Neskaupstað. Alltaf fannst mér þau hjónin uppfylla hvort annað einkar vel, því að hún var hin góða húsmóðir, sem umvafði börn sín hlýju, en lijá honum erdugnaður- inn og atorkan þeir eðlisþættir, sem menn hafa veitt mesta athygli. Mik- illí efnalegri velgengni hefur hann átt að fagna, en ég veit þó vel, að einnig hann hefur verið börnum sínum og barnabörnum góður og umhyggjusamur faðir og afi. Og af stóru hjarta hefur hann vissulega rétt mörgum manninum hjálpar- hönd. Þeim Svanhildi og Karli varð fjögurra barna auðið. Þau eru Lúðvík, f. 1943, flugmaður, hann fórst 1975, Anna Þóra, f. 1946, myndlistarkennari, Sigurður, f. 1951, viðskiptafræðingur, og Ingi- björg, f. 1958, félagsráðgjafi. Barnabörnin eru orðin 11. Svanhildur var falleg kona, og eitthvað óvenjublíðlynt og listrænt yfir öllu hennar svipmóti. Og þannig var hún í reynd. Hún hafði að mér fannst afar næmt auga fyrir sólar- geislunum í lífi okkar og umhverfi og stemmning augnabliksins gat verið henni allt. Alltaf hefur verið ánægjulegt að koma á heimili þeirra hjónanna, sem ber smekkvísi Svan- hildar vitni. Hún las mikið góðar, þroskandi bækur jafnt á íslenzku sem á erlendum tungumálum og umgekkst þannig hina miklu anda bókmennta og fræða. Áhuga hafði hún og á dulspeki og var hann eflaust sprottinn af vitund hennar um, að yfirborð hlutanna er ekki allt og að dýptir heimsins eru marg- ar og miklar. Nú þegar fótatak Svanhildar heyrist ekki lengur í húsinu við Norðurbrún vottum við Karli, börn- um, tengdabörnum og barnabörnum okkar innilegustu samúð. Blessuð sé minning hennar. Sigurður Gizurarson Notaðu TAB-LET í þvott- inn og þú hefur meiri tlma fyrir þig. BURSTAGERÐINf SMIÐSBÚÐ 10, GARÐABÆ SÍMI 41630 & 41930 Jóna Guðjóns- dóttir - Kveðjuorð Fædd 2. ágúst 1899 Dáin 24. nóvember 1989 Trúðu á tvennt í heimi, tign sem æðsta ber, Guð í alheimsgeimi, Guð í sjálfum þér. Eg vil minnast minnar ástkæru vinkonu Jónu Guðjónsdóttur, hún var minn trausti stofn. Það var gott að koma í Sigtún til þeirra Jónu og Þórunnar og þiggja góð ráð hjá þeim mín fyrstu ár í verkalýðshreyfing- unni, fyrst sem trúnaðarmaður og varaformaður og síðan sem formað- ur. Jóna fæddist 2. ágúst 1899, hún varð því 90 ára í sumar. Það var bjart yfir þeim degi þegar við komum til hennar. Jóna gekk í Verka- kvennafélagið Framsókn 1917. Hún starfaði sem varaformaður með Jó- hönnu Egilsdóttur alla hennar for- mennskutíð. Jóhanna lét af for- mennsku 1962 og tók Jóna þá við formannsstarfinu. Gagnkvæm vin- átta þeirra og traust var einstakt fram á síðasta dag Jóhönnu. Höfðu þær daglegt símsamband. Brennandi áhugi þeirra á velfarnaði verkalýðs- hreyfingarinnar var alltaf sá sami. Frumheijum okkar í verkalýðshreyf- ingunni verður seint fullþakkað. Þessar konur voru aðal íslenskrar verkalýðshreyfingar. Við á skrifstofu félagsins söknum hennar og munum minnast hennar sem góðs vinar. Félagskonur í Verkakvennafélag- inu Framsókn kveðja hinn látna for- ingja sinn. Þar sem góðir menn fara eru Guðs vegir. Ragna Bergmann Ut í kuldann Skáta'júöin býður mjög gott úrval af frábærum fatnaði fyrir vetrarferðirnar. Hlýlegar jólagjafir fyrir alla. Allt viðurkennd vöru merki. Við aðstoðum við val á réttum fatnaði fyrir þig og þína. Skátabúöin — skarar framúr SKATABUÐIN Snorrabraut 60 sími 12045

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.