Morgunblaðið - 01.12.1989, Page 33

Morgunblaðið - 01.12.1989, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR '1J DESEMBER 1989 33 Krislján Ulfarsson frá Fljótsdal - Minning Kristján Úlfarsson er allur. Það þarf ekki að koma þeim er til þekktu á óvart, því hann gekk ekki heill til skógar nokkur síðast- liðin ár, en það var hann ekkert að berá á torg, því í hvert sinn er spurt var um heilsu hans var alltaf sama svarið, „það er ekkert að mér“. Kristján fæddist og ólst upp í Fljótshlíðinni fögru, yngstur af stór- um systkinahóp frá Fljótsdal og átti stóran frændgarð um Rangár- þing, enda bar hann alltaf sterkar taugar til átthaganna. Ungur að árum fluttist Kristján suður, hann kvæntist Margréti Sigurðardóttur úr Hafnarfirði og reyndist hún hon- um hin styrka stoð í gegnum lífið. Þau hjónin eignuðust fjögur mann- vænieg börn, sem öll hafa stofnað eigin heimili. Þau eru: Kristrún, gift Viggó Magnússyni slökkviliðs- manni, þau búa í Reykjavík; Sigurð- ur, pípulagningameistari í Kópa- vogi, kvæntur Áslaugu Sverris- dóttur; Svanhvít, gift Guttormi Rafnkellssyni, þau búa á Horna- firði, og Leifur, pípulagningamaður, kvæntur Aðalheiði Bjarnadóttur og búa þau í Kópavogi. Barnabörnin er orðin tíu og tvö barnabarnabörn. Kristján’ hafði mikla ánægju af barnabörnunum, því hann var barn- góður með afbrigðum og mikill dýravinur var hann einnig. Kristján átti, eins og fleiri góðir menn, í glímu við Bakkus og veitti þar ýmsum betur og eins og fleiri, slapp - hann ekki heill frá þeirri glímu en þrátt fyrir vanheilsu, vann hann fram á síðsta dag, var nýkominn úr vinnu þegar kallið kom snögg- lega. Kristján hlaut í vöggugjöf list- ræna hæfileika, fyrst og fremst var það tónlistin sem átti hug hans all- an, þótt hann málaði líka á árum áður. Kristján spilaði fyrir dansi á harmoniku fyrr á árum, meðal ann- ars með þeim Dalselsbræðrum, sem voru þekktir harmonikuleikarar. Á seinni árum eignaðist Kristján rnjög fullkomið rafmagnsorgel og veitti það honum ómælda ánægju. Þau hjónin byijuðu búskap í Hafnarfirði en fluttust síðar í Kópa- vog og voru þau sambýlisfólk okkar hjónanna um árabil og höfum við jafnan rækt góðan kunningsskap síðan. Þau byggðu sér einbýlishús við Bjarnhólastíg og eignuðust þar einkar fallegt heimili, þar var gott að koma og gestrisni í fyrirrúmi. Kristján tók þá gjarnan fyrir okkur lag á orgelið eða nikkuna og var það ánægjulegt á að hlýða. Guðbjörg Hallgríms dóttir - Minning Fædd 14. janúar 1900 Dáin 25. nóvember 1989 í dag er til moldar borin frænka okkar, Guðbjörg Hallgrímsdóttir, til heimilis í Garðastræti 47, Rvk., en hún lést aðfaranótt 25. nóvember sl. á Hrafnistu í Reykjavík. Guð- björg var fædd á Sauðárkróki 14. janúar árið 1900. Hún var dóttir hjónanna Hallgríms Þorsteinssonar organista og Margrétar S. Björns- dóttur. Systkini hennar voru Jó- hanna, d. 1979, og Haraldur, d. 1979. Guðbjörg eða Bagga eins og hún var ávallt kölluð var ömmsystur okkar, sem þessar línur ritum, og langar okkur að minnast hennar með örfáum orðum, í þökk og virð- ingu fyrir allt það er hún var okkur. I um það bil 40 ár starfaði hún við afgreiðslu hjá Efnalaug Reykjavíkur, eða þar til hún hætti störfum sökum aldurs. Má segja að frá þeim degi hafi öll starfsorka hennar farið í það að gæta okkar bræðra, meðan foreldrar okkar voru að störfum utan heimilis. Hvern einasta dag var hún komin árla morguns og fór ekki fyrr en síðla kvölds. Meðan foreldrar hennar voru á lífi hélt hún heimili með þeim og bróður sínum, lengst af á Sólvallagötu 6 hér í borg, jafnhliða því aðstoðaði hún ávallt Jóhönnu systur sína við heimilisstörf og upp- eldi barna hennar. Eftir andlát móður sinnar 1970 flutti Bagga alfarið á heimili okkar og var þar æ síðan nema nú síðasta árið sem hún dvaldi á Hrafnistu í Reykjavík, vegna heilsubrests. Á þeim tíma sem hún bjó hjá okkur var hún ekki einungis hluti af fjölskyldunni heldur einnig besti vinur okkar bræðra. Hún var fastur. punktur í tilveru okkar, skjól og stoð, sem aldrei brást. Hún var allt- af tilbúin á allan hátt til þess að aðstoða okkur og vaka yfir velferð okkar. Oft hylmdi hún yfir prakk- arastrik okkar bræðra af næmum skilningi fyrir þörf æskunnar fyrir útrás í gleði og raun. Málshátturinn „sælla er að gefa en þiggja" átti vel við Böggu. Hún var alltaf í hlut- verki gefandans, gaf allt af sjálfri sér án þess að ætlast til umbunar eða þakklætis. Bagga giftist ekki og eignaðist ekki börn sjálf en betri og umhyggjusamari kona, þeim er hún tók undir verndarvæng sinn, verður vandfundin. Við bræður lítum á það sem ómetanlega reynslu að hafa fengið að alast upp í skjóli þessarar elskulegu gömlu konu og teljum okkar standa í ævarandi þakkarskuld við hana. Bagga frænka hefur nú lokið jarðvist sinni og hafið nýtt líf ann- ars staðar. Minningin um góða konu og ómetanlegan vin mun fylgja okkur um aldur-og ævi. Blessuð sé minning hennar. Einar, Hallgrímur, Guðjón og Atli. Kristján lagði gjörva hönd á margt um dagana, enda lék allt í höndutn hans, frá því að ég kynnt- ist honum vann hann á verkstæðinu hjá Fjöðrinni í Reykjavík. Hann var vel liðinn á vinnustað enda frá- munalega greiðvikinn og nutu þess margir. Kristján var mikill náttúruunn- andi í eðli sínu. Fyrr á árum ferðað- ist hann töluvert um landið, en síðustu ár hafa þau hjónin farið nokkrar sólarlandaferðir og það átti mjög vel við Kristján. Síðastlið- ið sumar fóru þau í sólina norður í land ásamt tveim systkinum hans og varð það honum til mikillar ánægju. Ég ætla mér ekki þá dul að reyna í fáum minningarorðum að lýsa persónunni Kristjáni Úlfarssyni, til þess var hann of margbrotinn per- sónuleiki. Við vorum hreint ekki alltaf sammála en Kristján hafði oft gaman af að vera á öndverðum meiði við viðmælanda sinn, það var eins og hann hefði af því nokkra baráttugleði, blandaða kímni, sem oft var stutt í. Að lokum vil ég þakka Kristjáni samfylgdina og óska honum góðrar ferðar á ókomnum leiðum. Aðstand- endum Kristjáns votta ég samúð mína. Ragna S. Gunnarsdóttir fi ‘ 1 J í ftZ"'* } l .f”•• -i-v -----1 1 .'"V 1 '■mNM Frá og með 1. desember 1989 tekur Millilandaafgreiðsla Flugleiða að BÍLDSHÖFÐA einnig við stórum og smáum sendingum fyrir INNANLANDSFRAKT. Afgreiðslur Innanlandsfraktar verða því tvær, að BÍLDSHÖFÐA 20 og á Reykjavíkurflugvelli. Að BÍLDSHÖFÐA 20 verður Innanlandsafgreiðslan opin 9.00-12.00 og 13.00-17.00 virka daga eins og Millilandaafgreiðslan. Símar 690435 og 82855. Afgreiðslan á Reykjavíkurflugvelli er opin 8.00-18.00 mánudaga til föstudaga og 8.00-12.00 laugardaga. Símar 690585 og 690586. NÝR OG BREYTTUR BÍLDSHÖFÐI - ÞJÓNUSTA FYRIR ÞIG GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA ó (Mm fieftÍHm/ FLUGLEIDIR m v TOSHIBA ORBYLGJUOFNAR / nýlegri notendakönnun Neytendasamtakanna á örbylgjuofnum áttu lang- flestir ofn af TOSHIBA gerö eda 21%. Könnunin leiddi í Ijós að þeir sem eiga TOSHIBA nota þá mikið, 89% þeirra eru mjög ánægðir með þá og enginn kvaðst óánægður! Kostir TOSHIBA örbylgjuofnanna eru ótvíræðir.: * Fást með tölvustýringu, hitablæstri, grillelementi, hitamæli og vigt. ★ Frítt námskeið í notkun ofnsins hjá Dröfn Farestveit hússtjórnarkennara. Öll námskeiðsgögn eru á íslensku og aðeins 10 eigendur á hverju nám- skeiði. * 50 uppskríftir og leiðbeiningar fylgja. ★ Aðild að uppskriftaklúbb TOSHIBA stendur þér til boða. Þú.færð sendan fjölda uppskrífta 3. hvern mánuð, sem allar eru aðhæfðar íslenskum áð- stæðum. ★ Allargerðir eru fáanlegar í hvítum eða brúnum lit. Þú getur nú valið um 15 gerðiraf TOSHIBA örbylgjuofnum. Einn þeirra hentar þérörugglega! Einar Farestveit & Co hf. Borgartúni 28 — S 16995 og 622900

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.