Morgunblaðið - 01.12.1989, Page 34

Morgunblaðið - 01.12.1989, Page 34
34 MORGUIýBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1989 Hinrik Erlings- son - Minning ekki betri og ódýrari lausn. Vonduð islensk framleiðsla - með góða reynslu FURU HÚSIÐ Grensásvegi 16 108 Reykjavlk Slmi 687080 Fæddur 23. september 1962 Dáinn 23. nóvember 1989 Snemma á unglingsárum mínum kynntist ég þrem bræðrum sem flust höfðu vestan úr Reykhólasveit ásamt fjölskyldu sinni og sest að í heimahverfi mínu í Reykjavík. Skapferli þeirra og útlit fór vel saman, þeir voru bjarteygðir og ljósir yfirlitum. Meðal jafnaldra urðu þeir brátt vinsælir sökum glað- værðar og drenglyndis. Seinna fluttu þeir í annað hverfi þar sem næstu árin var oft þétt setinn bekkurinn í herbergi þeirra bræðra og margt rætt og skrafað. Hinrik Erlingsson var yngstur þeirra. Eg minnist margra sam- ræðna okkar. Þrátt fyrir glaðbeitt fas leitaði hugur hans svara við krefjandi spurningum sem leita á unga hugsandi menn. I seinni tíð eftir að unglingsárum sleppti og kunningjarnir höfðu stofnað fjölskyldur sem margar riðl- uðust fljótt eins og títt er, hittumst við sjaldnar. En við þau tækifæri tókum við upp þráðinn og ræddum áhugamál okkar eða önnur mál er stóðu okkur nærri. Honum var tíðrætt um uppeldi sonar síns og þær óskir sem hann átti honum til handa. Ekki minnist ég þess að Hinrik hafi nokkru sinni amast yfir stöðu sinni sem einstæður faðir enda verðmætamat hans ólíkt því almenna. Með þessum fátæku línum kveð ég Hinrik og þakka þær stundir sem við áttum saman. Ég bið foreldrum hans og systkinum huggunar í harmi og Erlingi litla stuðnings þar sem hann heldur nú af stað þung- stígur en nestaður fagurri minningu góðs drengs. Asgeir Reynisson Hverfulleiki lífsins birtist mér napur á fimmtudaginn í síðustu viku, þegar 27 ára gamall bróður- sonur minn, Hinrik Erlingsson, varð fyrir hörmulegu slysi og var'liðið lík stundu síðar. Eftir stendur hyl- djúpt sár í hjörtum okkar, sem unn- um honum. En eins og svo oft áð- ur, þégar svona þungt er höggvið, hrannast minningarnar upp, ljúfar minningar sem við geymum í huga okkar og græða hjartasárin. Hinrik var sonur hjónanna Erl- ings Bjarna Magnússonar og Ás- dísar Helgu Höskuldsdóttur, sá fjórði í röðinni af sjö börnum þeirra. Þótt börnin væru mörg, var alltaf pláss fyrir fleiri, því hjá þeim voru oft langdvölum bæði skyld og óskyld börn og únglingar. Kærleiks- faðmur foreldranna var stór og allt- af allir velkomnir. í þessari sam- heldnu fjölskyldu við ástríkf for- eldra var Hinrik uppalinn. Þau stofnuðu nýbýlið Melbæ í Reyk- hólasveit og bjuggu þar til ársins 1975, að ijölskyldan fluttist til Reykjavíkur, og nú síðustu árin hefur hún búið í Breiðási 10 í Garðabæ. Hinrik var heitbundinn Sigríði Sigmundsdóttur, og eignuðust þau einn son, Erling Bjarna, sem nú er 8 ára gamall. Þegar Erlingur var u.þ.b. eins árs gamall slitu þau sam- vistum og fylgdi hann þá móður sinni næsta árið. En að ósk Hinriks fékk hann síðan litla drenginn til sín, þegar hann var 2ja ára gam- all, .og með góðri aðstoð foreldra sinna og systkina gat hann haft hann hjá sér. Hinrik festi kaup á íbúð í Hraunbæjarhverfi og bjó þar um tíma með soninn, ásamt Hös- kuldi bróður sínum, en þeir voru mjög samrýndir. Vegna drengsins litla þótti samt ekki henta vel að jólaskraui adveniuskreYling^r búa áfram í Hraunbænum. Hann var búinn að kynnast því að vera í skóla í Garðabæ og vildi helst vera þar; enda þá stutt til ömmu og afa. Ibúðin í Hraunbæ var því seld og önnur keypt á Sléttahrauni 29 í Hafnarfirði. Var aðeins vika liðin síðan þeir þremenningarnir höfðu búið sér þar nýtt heimili, er reiðarslagið dundi yfir, Þótt sorgin sé sár hjá foreldrum og systkinum, verður hún þung- bærust fyrir elsku litla drenginn, sem svo ungur verður að sjá á bak föður sínum, sem unni honum svo heitt og allt hans líf snérist um. Alltaf hélst gott samband við móður Erlings litla, sem búsett er úti á landi og hefur hann oft fengið að dvelja hjá henni um tíma, eftir ósk- um og aðstæðum. Eftir að skólagöngu lauk vann Hinrik ýmis störf, en nú síðast hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur þar sem hið hörmulega slys átti sér stað. Eftir stöndum við agndofa og vanmáttug. Við þökkum hlýja brostið hans og alla vináttu. Ég minnist þess, þegar hann var lítið barn, hve fast hann tók um hálsinn á frænku, ef hann vildi fá mig til að gera eitthvað, svo sem að kaupa gott í poka, fara í bíltúr eða því um líkt. Blíðlyndið og glaðværðina, sem einkenndi hann sem barn, varð- veitti hann allt til hinsta dags. «■ Við föðursystkin Hinriks og fjöl- skyldur okkar biðjum algóðan Guð að gefa foreldrum hans og systkin- um styrk til að bera þessa þungu sorg og síðast en ekki síst að halda sinni almáttugu verndarhendi yfir Erlingi litla og leiða hann um ókom- in ár. Guð blessi minningu Hinriks frænda míns. Hann verður lagður til hinstu hvíldar í Fossvogskirkju- garði í dag. Megi hann hvíla í friði. Dísa frænka MIISTAHG UlUMHUMt FATAUMAN SÉHVERSLUN UEÐ VONDUO HaFOARFOT MAX-húsinu Skeifunnl 15, S: 685 222 Hinn 23. nóvember iést vinur minn, af slysförum, Hinrik Erlings- son, aðeins 27 ára gamall, sem ég var búinn að eiga vinskap við all lengi. Ég get ekki lýst tilfinningum mínum um þennan hörmulega at- burð. Hann ól upp son sinn Erling af miklum dugnaði. Þeir feðgar voru mjög samdrýndir í einu sem öllu. í fyrstu bjó Hinrik í foreldrahúsum ásamt syni sínum en síðast festi hann kaup á íbúð í Hraunbæ. Hann var dugandi maður í vinnu serh og á öðrum sviðum. Hinrik var mikill íjölskyldumaður. I blóma lífsins kveður þessi ljúfi maður okkur. Blessuð sé minning hans. Ég votta fjölskyldu hans og syni, Erlingi, mína dýpstu samúð. Eðvarð Benediktsson Í dag verður til moldar borinn Hinrik Erlingsson sonur Helgu Hös- kuldsdóttur og Erlings Magnússon- ar að Breiðási 10, Garðabæ. Þann 23. nóvember fékk ég þær fréttir að Hinni einsog hann var ávallt kallaður væri látinn og hefði látist í hörmulegu slysi. Þessi frétt kom yfir mig sem reiðarslag ásamt öllum sem þekktu hann. Þeir deyja ungir sem guðirn- ir elska. Hann Hinni var ávallt reiðubúinn að rétta mér og öðrum hjálparhönd sama hvernig ástatt var, hann snéri sér strax að verki og var ekki ánægður fyrr en því verki var lokið. Hinni var alveg sérstakur persónuleiki og má sjá það á syni hans, Erlingi Bjarna, sem hann ól upp og fór það vel úr hendi. Hinni var alltaf hress, kom manni alltaf á óvart með uppátækj- um sínum t.d. þegar hann kom á vinnustað minn og Ellenar systur sinnar og fór ekki út nema við værum með bros á vör. Nú kveð ég góðan vin. Elsku Erlingur Bjarni, Guð varðveiti þig í þessari miklu sorg. Elsku Helga, Erlingur og systkini, ég þakka ykk- ur fyrir hlýlegar móttökur og votta ykkur mína dýpstu samúð. Þótt vinir fækki veröld í og við mér baki snúi, ég vinalaus ei verð af því, ég veit á hvern ég trúi. (Sálmur SB). Guðmunda J. Sigurðardóttir Á fæðingarheimili Reykjavíkur að kvöldlagi fimpitudaginn 23. nóv- ember 1989. Ég var nýbúin að leggja fjögurra daga gamla dóttur mína til svefns eftir að hafa sinnt þörfum hennar. Lífið virtist dásamlegt og móður- tilfinningin heltók hug minn og hjarta. Grámi hversdagsins og skammdegiskuldinn var fjarri, beinlínis ekki til, aðeins sólskin, hamingja og ótal bjartar framtíðar- vonir til handa ijölskyldu minni og nýfæddri dóttur. Skyndilega var eins og grimmar krumlur örlaganna sópuðu burt öllu því dásamlega sem lífið gat gefið, er mér barst fregnin af láti Hinriks bróður míns í hræðilegu vinnuslysi fyrr um daginn. Fyrst brotnaði ég niður og flóð- gáttir tára opnuðust, mér varð hugsað til móður og föður og systk- ina minna, sérstaklega móður minnar, en milli hennar og Hinna bróður var ekki eingöngu samband móður og sonar heldur voru þau einnig miklir félagar. Ég hugsaði um það eitt að kom- ast í faðm fjölskyldunnar og deila með þeim sorginni sem þrúgaði til- veruna og hveija hugsun. Er ég var komin þangað sem ég vildi vera, hafði hitt pabba og mömmu og systkini mín, íundið þétt faðmlag þeirra og innileika væntumþykjunn- ar komst ég loks í ró. Sóttu þá á ótal hugsanir um Hinna bróður og hver samverustund með honum, hver annarri skemmti- legri, varð ljóslifandi fyrir sjónum mmer. Hann var mjög skemmtileg- ur félagi. Ef eitthvert hitamál úr hinu daglega lífi bar á góma, og mönnum orðið heitt í hamsi, gat hann komið með einhveija svo skondna athugasemd, að hitinn í umræðunum rauk út í veður og vind, og menn hlógu dátt að.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.