Morgunblaðið - 01.12.1989, Side 37

Morgunblaðið - 01.12.1989, Side 37
4 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1989 37 Iþrúmr FOLK ■ RAY Wilkins, fyrrum fyrirliði enska landsliðsins og leikmaður Glasgow Rangers. gerði í vikunni tveggja ára samning við QPR. Wilkins, sem er 32 FráBob - ára, byijaði knatt- Hennessy spyrnuferil sinn hjá / Englandi Chelsea fór síðan til Manchester _ Un- ited og þaðan fór hann til ítaliu 1984 þar sem hann lék með AC Mílanó. Síðan fór hann til Paris St. Germain í Frakklandi áður en hann snéri heim til Bretlands og lék með Glasgow Rangers í Skot- landi. Wilkins mun leika sinn fyrsta leik með QPR gegn Crystal Palace á morgun, laugardag. B ANDY Thorn er farinn til Crystal Palace, en gengið var frá kaupunum við Newcastle 5 gær. Palace greiddi 550.000 pund fyrir varnarmanninn og samið var um að félagið borgaði 50.000 pund að auki, þegar hann hefur leikið 50 leiki og annað eins eftir 100 leiki. Ekki er víst að hann verði með gegn QPR á morgun. B SVÍAR hafa samið um sex vin- áttulandsleiki fyrir HM. Þeir fara í 10 daga æfingaferð til Saudi- Arabíu og leika gegn heimamönn- um 14. og 17. febrúar. 21. febrúar leika þeir gegn Belgum í Brussel, úti gegn Alsír 11. apríl og heima gegn Wales tveimur vikum síðar. Eftir leik gegn Finnum 27. maí verður 22 manna hópur valinn. ■ ENGLENDINGAR leika lands- leik gegn Túnis 2. júní. Ef Eng- lendingar verða ánægðir með dvöl sína í Túnis, verða þeir þar í æf- ingabúðum í viku áður en þeir halda á HM á Ítalíu. England mun einn- ig leika landsleiki gegn Júgóslavíu, Uruguay, írlandi og Tékkósló- vakíu - fyrir HM. DOMARAHORNIÐ Framkvæmd Ídómarahorninu hefur áður verið rætt um vítaköst og auka- köst, en til eru fleiri köst og nefn- ast þau: Frumkast, innkast, útk- ast og dómarakast. Grundvallaratriði við töku kasta er að boltinn verður að vera í hendi kastarans, og ieikmenn rétt staðsettir. Ekki má rétta bolt- ann til samhetja og það er éin- göngu kastarinn, sem má snerta boltann. Kasti telst lokið, þegar boltinn er farinn úr hendi kastarans, nema í útkasti, en því telst lokið þegar markvörður hefur leikið boltanum yfir markbögann, og dómarakasti telst lokið þegar bolt- inn hefur náð hæstu stöðu eftir að dómari er búinn að henda hon- um upp í loftið. Leikmenn geta skorað beint úr öllum köstum sem þeir fram- kvæma. Frumkast er tekið þegar leikur hefst, í byijun seinni hálfleiks og eftir að skorað hefur verið mark. Innkast er tekið þegar boltinn fer út yfir hliðarlínu og yfir marklínu utan marks og varnar- maður hefur snert hann síðast. Rétt er að taka fram að „Hom- kast“ er ekki til í handbolta Útkast er tekið þegar boltinn fer aftur fyrir markið, þ.e. yfir marklínu utan marks. Ef leik- menn fara inn á markteig til að hindra markmann við töku út- kasts skal þeim vísað af leikvelli í 2 mínútur, og það án undan- genginnar áminningar. Dómarakast skal dæma ef leik- menn beggja liða bijóta af sér samtfmis, ef boltinn snertir loft eða fasta hluti yfir leikvangi og ef leikur er stöðvaður án þess að reglur hafi verið brotnar og hvor- ugt liðið er með boltann. kasta Öll þessi köst skal að öilu jöfnu framkvæma án flautumerkis dómara. Leikmenn skulu vera í 3ja metra fjarlægð er kast er'tekið, nema þeir 2 leikmenn sem eru við dómarakast, og skulu dómarar ieiðrétta stöðuna ef svo er ekki. Ef leikmenn hiýða ekki eiga dóm- arar að áminna þá og við endur- tekningu að vísa þeim af ieikvelli í 2 mínútur. Þessi stutta samantekt, sem flestir er til handbolta þekkja hafa á hreinu, er um hluti sem eru afar mikilvægir þegar menn em að dæma. Ef dómarar stýra þess- um grundvaliaratriðum ekki rétt, þá missa þeir fljótt tökin á ieikn- um. Kveðja, Kjartan Steiubach. Þorgils Óttar Mathiesen. Þorgils handknatt- leiksmaður ársins orgils Óttar Mathiesen, fyrir- liði landsliðsins, var kjörinn handknatleiksmaður ársins 1989 hjá HSÍ. Þorgils Óttar stjórnaði lið- inu til sigurs í b-keppninni í Frakk- landi, er landsleikjahæsti maður íslands og var valinn í heimsliðið í handknattleik í sumar. GETRAUNIR 1 X 2 Þrefaldur pottur Enginn seðill fannst með 12 leikjum réttum eftir síðustu leikviku og fyrsti vinningur þá, rúmlega hálf önnur milljón króna, rennur því allur í pottinn nú. Þetta var reyndar önnur helgin í röð sem enginn náði 12 réttum, þannig að potturinn er þrefaldur á morgun. Getspakur Islendingur gæti því nælt í væna fjárfúlgu, sem eflaust kæmi sér vel við undirbún- ing hinnar árlegu hátíðar ljóss og friðar sem óðfluga nálgast. Sjónvarpið sýnir leik Stuttgart og Köln í vestur-þýsku úrvalsdeild- inni í beinni útsendingu á morgun og hefst hann kl. 14.30. Sölukerfið lokar því kl. 14.25. Arnar Grétarsson. Spámaðurvikunnar: Arnar Grétarsson Framhetjinn ungi úr Breiða- bliki í Kópavogi, Arnar Grét- arsson, sem glímir við getrauna- seðil vikunnar, hefur gert tveggja ára samning við Glasgow Rangers í Skotlandi. Hann segist vera á hálfgerðum reynslusamningi; geta farið hvenær sem hann vilji ef honum sýnist svo. Hann er ekki enn kominn með atvinnuleyfi og má því ekki leika. „Ég hef lengi fylgst með ensku knattspyrnunni og Liverpool er mitt lið. Hér hjá Rangers segja allir að Liverpool sé með besta liðið á Bretlandseyj- um — þeir eru að reyna að líkjast þeim hérna,“ sagði Arnar. 1 1X 1X X2 1X 1 2 2 1 1 1X 1 2 Leikir 2. des. Stuttgart - Köln Aston Villa - Nott. For. Chelsea - Wimbledon C. Palace - QPR Derby - Charlton Everton - Coventry Luton - Tottenham Man. City - Liverpool Millwall - Southampton Norwich - Sheff. Wed. Leeds - Newcastle Sunderland - Swindon Að kaupa sér meistaratitla eftirStefán Ingólfsson Metnaður sumra íþróttafélaga gengur út í öfgar. Starfið miðast við sókn í meistaratitla. Þau lokka til sín íþróttamenn annarra félaga til að kaupa sér titla og frægð. Forystumenn kunna sér oft ekki hóf. Þeir sýna siðblindu { sókn til metorða. Tímabært er að setja ákveðnar reglur um félagaskipti og réttindi félaga. Togstreita í íþróttahreyfingunni togast á keppni að meistaratitlum og frægð og vinna við að skapa unglingum verkefni. Marglr talsmenn íþrótta- hreyfingarinnar halda því fram að þessir þættir verði ekki aðskildir. Vandinn sé að finna hinn gullna meðalveg. Þjálfun afreksíþrótta- manna er miklu dýrari en unglinga- starfið. Það kostar til dæmis jafn mikið að skapa verkefni fyrir 1.500 unglinga í körfuknattleik og halda úti landsliði. íþróttafélög sem eyða fé og tíma í sókn eftir titlum og frægð eru af þeim sökum líkleg til að láta það koma niður á unglinga- starfinu. Gömul og ung félög í Reykjavík starfa íþróttafélögin í borgarhverfum sem þau eru stund- um kennd við. Hverfin byggjast oft á fáum árum. í nýtt hverfi flyst - mikið af ungu fólki. Það á börn sem Stefán Ingólfsson. fylla skólana og sækja íþróttaæf- ingar. Fólkið eldist, bömum og unglingum fækkar. Um leið fækkar í unglingaflokkum íþróttafélag- anna. Metnaðarfyllstu íþróttafélög- unum reynist erfitt að manna keppnislið sín. Gömlu Reykjavíkur- félögin geta ekki reitt sig eingöngu á íþróttamenn sem hlotið hafa þjálf- un sína hjá þeim. Ef það gerðist mundu ófá þeirra falla í neðri deild- ir. Til þess að mæta leikmannafæð- inni sækja þau leikmenn til annarra félaga. Einkum unga og efnilega eða reynda leikmenn. í körfuknatt- leik eru keppnismenn einfaldlega fluttir til landsins. Undanfarin ár hefur færst í vöxt að íþróttafélög lokki til sín efnilega unglinga frá öðrum félögum. Þeim sem fylgjast með þykir oft beitt óvönduðum meðulum. Fullorðnir forráðamenn íþróttafélaga beita í laumi ýmsum aðferðum til að telja ungum drengj- um hughvarf. Foreldrar ungling- anna eða forsvarsmenn félaga þeirra eru sjaldan með í ráðum. Stóru knattspyrnufélögin í Reykjavík eru stórtækust þó önnur íþróttafélög séu ekki saklaus. Leikmenn keyptir Því sem áður var lýst svipar til atvinnufélaga. í atvinnumennsku eru miklir fjármunir. Oft hafa félög- in enga unglingastarfsemi. Kaup og sala leikmanna er eins og hver önnur viðskipti. Má í því sambandi nefna bandarísku körfuknattleiks- félögin. Vinnubrögð ýmissa íslenskra íþróttafélaga eru ekki óhliðstæð. Hér á landi er þó pukr- ast með málin enda skortir reglur. Erlendis eru greiddar fjárhæðir eft- ir því sem um semst á milli forráða- manna. Erlend íþróttafélög í ýms- um greinum telja sínu fé best varið með því að láta áhugamannafélögin bera kostnaðinp af að þjálfa unga leikmenn. Þeir bestu eru síðan keyptir. Þó að íslensku félögin beri sífellt víurnar í leikmenn annarra liða eru þau ekki reiðubúin að opna pyngjuna. íþróttafélög sem eltast við efnilega leikmenn í öðrum félög- um þegar þynnist í eigin röðum spara sér mikið fé. Því er haldið fram að íþróttafélag sem fær í sínar raðir þjálfaðan íþróttamann eigi að endurgreiða félaginu sem þjálfaði hann þjálfunarkostnaðinn. Það er rökrétt en dæmið er flóknara. í yngstu aldursflokkana mæta marg- ir drengir. Þeir hljóta allir sömu þjálfun. Þegar piltarnir stálpast koma mestu efnin fram. Þá fara „njósnarar“ félaganna á stjá. Þeir sækjast aðeins eftir allra bestu leik- mönnunum. Afburðamenn koma ekki fram á hveiju ári. Félög sem manna keppnislið sín með aðfengn- um mönnum eru þess vegna ekki að spara sér þjálfun eins leikmanns heldur margra tuga eða hundraða. Áhugaleysi gagnvart þjálfun yngri flokka getur gengið út í öfgar. Fyrir nokkrum árum var í byijunar- liði íslandsmeistaranna í körfu- knattleik einungis einn leikmaður sem hafði hlotið uppeldi hjá félag- inu. Eitt unglingalið félagsins lék þá í fimm liða úrslitakeppni. Enginn fullorðinn, hvorki þjálfari né liðs- stjóri, fylgdi þeim til keppninnar. Siðblinda Tímabært er að ræða siðfræði í íþróttum ekki síður en í stjórn- málum. Setja á forsvarsmönnum félaga siðareglur. Menn sýna oft mikla siðblindu. Taka má dæmi úr knattspyrnunni: Eitt af stóru Reykjavíkurfélögunum sóttist eftir að fá í sínar raðir ungan og efnileg- an leikmann frá minna félagi sem hafði fallið niður um deild. Þótti bera vel í veiði að gefa honum fyrir- heit um 1. deildarliðið. Allar þreif- ingar fóru fram á bak við tjöldin. Forsvarsmenn litla félagsins höfðu einungis af málinu ávæning. Ekki var heldur haft samband við þjálf- ara leikmannsins. Hann er þó einn af kunnustu og virtustu félögum í stóra félaginu. Varla er ofmælt að hann sé mesti afreksmaður þess í íþróttum um áratuga skeið. Þetta dæmi vekur til umhugsunar um hina siðferðilegu hlið. Forystumenn íþróttafélaga sem sýna eigin félög- um slíkt virðingarleysi í sókn sinni til titla og metorða skortir siðferðis- kennd. Þeir eru íþróttastarfi í landinu til vansa. Höfvndur er verkrnedingiir. ■ PIERRE Littbarski, sem hefur leikið nær samfellt með þýska lið- inu Köln síðan 1978 (var með franska liðinu Racing París í 16 mánuði), gerði í gær nýjan samning við Köln, er gildir til næstu fjög- urra ára. ■ TREVOR Francis lék fyrst með Birmingham City og nú hefur 3. deildar liðið sýnt áhuga á að fá hann aftur, en Francis var rekinn frá QPR sem þjálfari í vikunni, eins og greint hefur verið frá, og hann leikur ekki meira með liðinu. M JUVENTUS hefur áhuga á að klófesta fyrrum leikmann sinn, Michel Platini, til að taka við lið- inu. Platini hefur stjórnað franska landsliðinu um nokkurt skeið. Samningur hans við franska knatt- spyrnusambandið rann út fyrir skömmu, en vilji er fyrir því hjá sambandinu að hann haldi áfram og verði með landsliðið fram yfir Evrópukeppnina 1992. H HEARTS hefur lánað Ian Ferguson til Coventry í mánuð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.