Morgunblaðið - 01.12.1989, Side 40

Morgunblaðið - 01.12.1989, Side 40
Kringlan 5 Sími 692500 SJOVA jALMENNAR EINKAREIKNINGUR Þ/NN í LANDSBANKANUM m _________________JL FOSTUDAGUR 1. DESEMBER 1989 VERÐ I LAUSASOLU 90 KR. Ný skattlagning áformuð til að vega upp lækkun virðisaukaskatts í 24,5%: Tekjuskatturinn verður hækkaður imi 2% í 39,74% Tekjuskattur á orkufyrirtæki og „mengunarskattur“ á allar bifreiðir RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið að hækka tekjuskatt um tvö pró- sentustig. Hlutur ríkisins af stað- gTeiðslu opinberra gjaida verður því 32,8% í stað 30,8% hlutfalls, sem nú gildir. Hlutur sveitarfé- laga af staðgreiðslunni er nú að jafnaði 6,94% af tekjum manna, þannig að heildarskattlagningin verður 39,74% af tekjum. Þegar staðgreiðsla skatta tók gildi í ársbyrjun 1988 var þetta hlutfall 35,2%. Raunhækkun skatthlut- fallsins á tveimur árum verður því 12,8%. Ríkisstjórnin náði í gær sam- komulagi um að virðisaukaskattur taki gildi um áramót í einu þrepi. Skatthlutfallið verður 24,5% í stað 26%, sem gert háfði verið ráð fyrir. Það er 0,5% lægra en núverandi söluskattur. Allar undanþágur frá skattinum sem kynntar höfðu verið haldast óbreyttar. Endurgreiðslur af skatti á algengum innlendum matvælum, mjólk, kjöti og fersku grænmeti, munu jafngilda því að þau beri 14% skatt í stað 13%, sem áður var gert ráð fyrir. Talið er að tekjutapið af þessari breytingu verði um 1.900 milljónir króna. Forsætisráðherra segir að á næsta ári verði kannað hvort breyta megi virðisaukaskattinum til að lækka enn matvælaverð. Annars vegar verði kannað að taka upp tveggja þrepa skatt, hins vegar kannaður undanþágulaus virðisaukaskattur í einu þrepi, sem yrði miklu lægri en nú væri gert ráð fyrir. Auk hækkunar tekjuskattsins er gripið til þess ráðs að leggja á fleiri nýja skatta til þess að vega upp tapið. Skattahækkanirnar eiga alls að færa 2.000 milljónir króna í ríkis- sjóð og gera því 100 milljónum betur en að vega upp áætlað tekj- utap af lækkun virðisaukaskattsins. Hækkun tekjuskattsins er talin gefa af sér 2.800 milljónir. Helmingi þeirrar upphæðar verður varið til þess að hækka persónuafslátt og barnabætur, þannig að 1.400 millj- ónir verða eftir í ríkissjóði. Fjár- málaráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið að skattbyrði ein- staklinga með tekjur á bilinu 50-80 þúsund yrði ýmist minni eða sú sama og áður við þessar breytingar og sama gilti um hjón með tvö börn og tekjur allt að 150-60 þúsund. Hins vegar ykist skattbyrði á tekjur vel yfir 200 þúsund. Fjármálaráðherra sagði að þessi DAGAR TIL JÓLA -mm Ég- v. J 0 j iVl 01 f'U111)1 (1010/ IvAA Meoglyju i augum Jólasveinar í búðargluggum eru jafnan fyrr á ferðinni en Stekkjarstaur og bræður hans. Þó þeir séu ekki íkja Iíflegir, vekja þeir engu að síður athygli ungu kynslóðarinnar, sem hlakkar æ meira til jólahátíðarinnar og lítur með glýju í augum á dýrðina. Háskólinn: Nemendur gefa kennurum einkunnir í lok námskeiða breyting á virðisaukaskattinum lækkaði öll matvæli um 2% og og innlendu matvælin, þar sem skatt- urinn væri sérstaklega niðurgreidd- ur um 8-9%. Reiknað væri með að framfærsluvísitalan lækkaði um 0,5-1% við þetta, auk þess sem virð- isaukaskattur í stað söluskatts hefði í vegna uppbyggingar sinnar í för með sér um 1% lækkun vísitölunnar til viðbótar. Þá á að skattleggja orkufyrirtæki til jafns við önnur og á sá skattur að skila 250 milljónum. Loks verður Kjarvalsmynd á yfir milljón Olíumálverk eftir Jóhannes S. Kjai-val, úr Gálgahrauni, seldist á 1045 þúsund krónur á uppboði Gallerí Borgar á Hótel Sögu í gær- kvöldi. Næsthæsta verð, tæpar 400 þúsund krónur, fékkst fyrir málverk eftir Júlíönu Sveinsdóttur. lagður „mengunarskattur" á allar bifreiðir í landinu, sem á að gefa af sér um 350 miiljónir króna. Bif- reiðir verða skattlagðar eftir þyngd, en talið er að um 2.000 króna nýr skattur leggist að meðaltali á hverja bifreið. Tíu þúsund sviðahausar á haugana YFIRDÝRALÆKNIR stöðvaði dreifingu og sölu á sviðahausum frá öllum frystiklefúm Sláturfé- lags Suðurlands þegar niðurstöð- ur rannsókna Hollustuverndar ríkisins gáfú til kynna að þessar afúrðir væru að hluta mengaðar salmonella. Sláturfélag Suður- lands hefúr ákveðið að henda öll- um dilkasviðum af svæðum þar sem salmonella hefur greinst. Um er að ræða um 10.000 sviðahausa. Á félagssvæði SS var sauðfjár- slátrun síðastliðið haust aðgreind frá annarri slátrun á bæjum þar sem grunur lék á um sýkingu. Til örygg- is var öllum innmat og hausum af umræddu sauðfé hent. Kjöti var hald- ið aðgreindu uns fyrir lá niöurstaða sem sýndi að ekkert af kjötinu var sýkt. Slátrun þessi var í samráði við yfirdýralækni og undir eftirliti hér- aðsdýralæknis. Hollustuvernd ríkisins hefur í sam- vinnu við heilbrigðiseftirlitið á Suð- ur-, Suðvesturlandi og höfuðborgar- svæðinu gert ráðstafanir til að sett verði tímabundin sölu-, dreifingar- og vinnslustöðvun á sviðahausa frá Sláturfélagi Suðurlands. HÁSKÓLARÁÐ samþykkti í gær samhljóða nýjar reglur um sam- ræmt mat nemenda á gæðum kennslu í skólanum. Framvegis munu nemendur í öllum námskeiðum fá eyðublað í hendur í lok námskeiðs- ins og gefa ýmsum þáttum kennslunnar einkunn. Upplýsingarnar verða tölvuunnar og meðal annars hafðar til hliðsjónar við stöðuveit- ingar í háskolanum. „Þetta er tvímælalaust mikil breytingtil hins betra,“ sagði Sigur- jón Þ. Árnason, fulltrúi Vöku, fé- lags lýðræðissinnaðra stúdenta, í Háskólaráði, en hann hefur meðal annarra unnið að undirbúningi málsins. „Við og við hefur verið gerð könnun á kennslu í Iok hvers námskeiðs, en það hefur allt verið mjög óskipulagt. Stundum hafa kennarar sett svona kannanir fyrii' sjálfir og menn hafa ekki þorað að svara hreinskilnislega. Núna verður þetta hins vegar gert í hveiju ein- asta námskeiði og hjá hveijum ein- asta kennara, án þess að könnunin fari um hendur kennaranna sjálfra. Það er líka mjög mikilvægt að Háskólaráð skuli setja formlegar reglur um tilhögunina. Háskólaráð er æðsta vald í málefnum skólans og menn geta því ekki hummað niðurstöðurnar fram af sér, eins og stundum hefur brugðið við.“ Gert er ráð fyrir að kennslumála- nefnd háskólans vinni úr evðublöð- unum, sem stúdentar fylla út. Þau eru þannig gerð að nemendur merkja í litla reiti með tölum og gefa þannig einstökum liðum kennslunnar einkunn, frá -2 upp í +2. Svo dæmi séu tekin, eiga nem- endur að gefa einkunn fyrir skipu- lag námskeiðsins, viðmót kennara, undirbúning og áhuga og hvernig 'nann komi efninu til skila. Loks á að gefa bæði kennslunni í heild og námskeiðinu í heild einkunn. Blöðin eru byggð á erlendum fyrirmynd- um, en þessi háttur er hafður á í flestum erlendum háskólum. Blöðin eru sett í tölvuskanna, sem les tölurnar af þeim og sparar þannig mikla vinnu. Bjarni Ár- mannsson tölvunarfræðinemi hefur séð um þann þátt undirbúningsins sem snýr að tölvuvinnslunni. Miðað er við að þeir sem skipu- leggja námskeið og fjalla um ráð- stöfun kennslu til einstakra kenn- ara hafi aðgang að niðurstöðunum og þær geti bæði haft áhrif á mannaráðningar og á það hvaða kennsla er falin hveijum kennara. Einnig ber dómnefndum um kenn- arastöður að kynna sér þær. Full- trúar kennara og stúdenta fá niður- stöðurnar í hendur og geta rætt þær sín á milli, en þær verða ekki birtar opinberlega.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.