Morgunblaðið - 03.12.1989, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 03.12.1989, Qupperneq 12
m o 12 C n jmmm MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1989 Þekkir þú ,Sögu Islands? aga íslands er einstaklega fróðlegt og aðgengilegt ritverk. Saga lands og þjóðar birtist lesandanum Ijóslifandi í skýru máli og my.ndum sem bækurnar prýða. Ritinu var hleypt af stokkunutn að tilhlutan Þjóðhátíðarnefndar 1974 og höfundar þess eru allir kunnir frœðimenn. Saga íslands er afar yfirgripsmikið verk. Þar eru meðal annars gerð skil: jarðsögu landsins, fornminjum, landnámi, stjórnskipun og stjórnmálum, lögum, trúarlifi og kirkjusókn, bókmenntum, listum ogfrœðaiðkan, atvinnuvegum og daglegu lífi tnatina og störfum, matarœði, klœðnaði, skemmtunum auk margs annars. - Saga íslands er ritverk sem á erindi við alla íslendinga. Fjórða bindi. Saga 14. og 15. aldar sem hingað til hefur verið að mestu ókunn almenningi. Hið íslenzka bókmenntafélag Þingholtsstrceti 3, pöntunarsími 21960 ■ HIMINNINN yfír Novgorod er ný bók sem ísafold hefur gefið út eftir Régine Deforges, sem er kunnust fyrir bækur sínar um Stúlkuna á bláa hjólinu. JBókin er 336 blaðsíður og unnin í ísafoldar- pentsmiðju hf. ■ BILL COSBYer höfundur bók- arinnar Astin og hjónabandið, sem Fjölvi gefur út. Þetta er önnur bók Cosbys sem kemur út á íslenzku og öllu gamni hans fylgir alvara. Fjölvaútgáfan gefur einnig út bók- ina Hlustað að handan , sem er skrifuð af franska miðlinum Bell- ine. í bókinni segir hann frá sam- tölum sínum yfir laíidamæri lífs og dauða við son sinn, sem fórst í bílslysi. Hjá Vasaútgáfunni kemur nú út þriðja bókin eftir indverska spekinginn Ratnacharaka. Þessi bók heitir Hathayoga Heilsufræð- in og fjallar um ræktun líkamans. Þýðandi er Anna María Þóris- dóttir. ■ HJA ALMENNA Bókafélng- inu er komin út bókin Orrustuskip- ið Bismarck en fyrr á árinu fannst flak þessa mikla skips. Sigling orr- ustuskipsins Bismarcks frá Póllandi norður fyrir ísland og síðan suðúr vestan við landið til síns endanlega lokastaðar er einn af áhrifamestu viðburðum síðari heimsstyrjaldar . og raunar sjóhernaðarins fyrr og síðar. Af 2200 manna áhöfn kom- ust 115 menn lífs af úr viðureign- inni. Um 40 árum seinna tók einn þeirra, von Mullenheim - Rechberg barón, foringi á skipinu, sér fyrir hendur að rita sögu þessarar stór- brotnu siglingar. FARKLUBBUR FÉLAGSISL FERÐASKRIFSTOFA í SAMVINNU VID FIUGLEIDIR HiFUR DREGIÐ ÚT FYRSTU LUKKUFERDIR FARKLÚBBSINS. Fullkomið greiðslukort og meira til Myndin var tekin er sex af sjö heppnum vinningshöfum lukkuferða fengu miða sína afhenta. Frá vinstri: ÁsmundurÓlason, Reykjavík, EinarGunnarsson, Keflavík, GeirSigurjónsson, Hafnarfirði, Robert Christie, Reykjavík, Jóhanna Finnbogadóttir, Reykjavik og Þorgerður Sigurðardóttir, Borgarnesi. Á myndina vantarTómas Böðvarsson, Akureyri. Dregið var úr nöfnum allra FARKORT- OG GULLKORTHAFA VISA ÍSLANDS og bauðst sjö korthöfum að kaupa helgarferð með Flugleiðum fyrir tvo ó aóeins kr. 30,- (gisting innifalin). Eftirtaldir áfangastaðir Flugleiða buðust: LONDON, KAUPMANNA- HÖFN, LUXEMBORG OG GLASGOW Næstu Lukkuferðir Farklúbbsins verða dregnar út í vor og þá verður dregið um sólarlandaferðir á aðeins kr. 30,- Kannið hvort ferð í næsta Visa banka eða sparisjóð eftir Farkorti sé ekki ferð sem borgar sig. ö'íES® of? Hvernig er hægt að gleðja starfsfólkið, fjölskylduna og vinina um jólin? Hvað með þá sem eiga bókstaflega allt? Hvaða frumlegu leið er hægt að fara í ár? Svarið er: Gjafakort Hótels Sögu! Gefandi ræður upphæð gjafakortsins sjálfur og í jólapakkanum getur þá t.d. verið: - Dýrindis málsverður með öllu tilheyrandi í Grillinu eða Skrúði. - Gisting á Hótel Sögu með allri þeirri þjónustu sem boðið er upp á - heilsuræktinni, gufunni, nuddpottinum o.s.frv. Gjafakortið er bráðsniðug jólagjöf sem kemur skemmtilega á óvart. Hafðu samband við Hótel Sögu í síma 2 99 00. ■lofargóðu!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.