Morgunblaðið - 15.12.1989, Síða 2

Morgunblaðið - 15.12.1989, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1989 Félag sjálfstætt starfandi heimilislækna í Reykjavík hefiir verið stofnað: Fólk geti valið sér lækni óháð búsetu - segir í yfirlýsingu frá félaginu STOFNAÐ hefur verið félag sjálfstætt starfandi heimilislækna í Reykjavík. Er félagið samtök heimilislækna utan heilsugæslustöðva og hefur á stefnuskrá sinni að forða því að ríkisrekstur komi alfarið í stað einstaklingsframtaks í heilbrigðisþjónustu. I því felist að heimil- islæknar fái að starfa sjálfstætt og fólk fái að velja sér heimilislækni óháð búsetu innan höfúðborgarsvæðisins. í yfirlýsingu sem samþykkt var á stofnfundi félagsins á miðviku- dagskvöld, er skorað á Alþingi að vísa frá frumvarpi um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, þar Þrotabú íslandslax: Kröftir Lands- bankans180 milljónir kr. KRÖFUR Landsbankans í þrotabú Islandslax hf. eru rúm- lega 180 milljónir kr. Langmest- ur hluti krafiianna er tryggður með veði í fasteignum og fiski eða öðrum lausafjármunum fyr- irtækisins, að sögn Benedikts E. Guðbjartssonar lögfræðings Landsbankans. Kröfur Lands- bankans verða væntanlega af- hentar búsfjórum Islandslax í dag. Tæplega helmingur krafna Landsbankans er vegna afurðalána sem tryggð eru með veði í eldis- fiski. Vafi leikur á gildi tryggingar hluta þeirra vegna þess að skulda- bréfum vegna veðs í fiskinum var þinglýst hjá borgarfógetanum í Reykjavík eftir að íslandslax flutti varnarþing sitt til Grindavíkur, en þinglýsa á pappírum vegna sjálfs- vörsluveðs í lausafjármunum í réttu varnarþingi. Benedikt sagði að þarna væri um að ræða lítinn hluta afurðalánanna og ekki víst að þetta kæmi að sök fyrir bankann því hann hafði veð í öðrum eignum íslandslax. Verðmæti fisksins er talið vera um 180 milljónir kr. Landsbankinn er eini veðhafinn í honum. sem það feli í sér stóraukna og kostnaðarsama yfirbyggingu þeirr- ar þjónustu. Félagið mótmælir þeim fyrirætlunum að afnema heimild ráðherra til að gera samkomulag við aðra aðila en ríkið um rekstur heilbrigðisþjónustu og telur það aðför að fijálsum atvinnurekstri í landinu. Þá mótmælir félagið einnig um- mælum í greinargerð með frum- varpinu um heilbrigðisþjónustu, að heimilislæknar í Reykjavík hafi staðið í vegi fyrir nýju skipulagi. „Virðist höfundi frumvarpsins ókunnugt um að'sjálfstætt starf- andi heimilislæknar þjóna meiri- hluta Reykjvíkinga nú sem áður,“ segir í yfirlýsingunni. Fyrstu stjórn Félags sjálfstætt starfandi heimilislækna í Reykjavík skipa Ólafur F. Magnússon formað- ur, Björgvin Bjarnason ritari og Guðmundur Elíasson gjaldkeri. Morgunblaðið/Sverrir Einar Oddur Kristjánsson og Guðmundur J. Guðmundsson, formaður VMSÍ, hittust í gærmorgun á hótel Sögu, þar sem ljósmyndari Morgunblaðsins tók þessa mynd. Einar Oddur sagði að þeir hefðu bara hittst til að fá sér morgunkaffi. „Ég hef nú oftar drukkið með honum kvöldkaffi," sagði Einar þegar hann var spurður hvort þeir leggðu þetta vana sinn. Verðlagsmálin áfram til umræðu hjá ASI og VSI Fulltrúar Seðlabanka koma á fund sem er boðaður á mánudag Skagaströnd: Maður lést í eldsvoða Á FUNDI Alþýðusambands íslands, Vinnuveitendasambands íslands og Vinnumálasambands samvinnufélaganna í gær var áfram rætt um hvaða verðhækkanir kynnu að vera framundan. Fulltrúar Stéttasam- bands bænda komu á fúndinn. Viðbrögð þeirra voru mjög jákvæð og tjáðu þeir sig fúsa til að taka þátt í því að ná hér niður verðbólgu, að sögn Einars Odds Kristjánssonar, formanns VSÍ. Annar fundur hefúr verið boðaður á mánudaginn kemur og verður þá meðal annars rætt við fúlltrúa Seðlabankans um vaxtaþróun og fleira. MAÐUR á þrítugsaldri fórst í húsbruna á Skagaströnd í fyrri- nótt. Eldurinn kom upp á fjórða tíman- um. Maðurinn var einn í húsinu og var látinn þegar hanp fannst. Mikill eldur var í húsinu þegar slökkvilið kom á staðinn. Slökkvi- starf tók um það bil tvær stundir. Húsið er mikið brunnið. Menn frá RLR fóru í gær norður til að að- stoða lögreglu á staðnum við rann- sókn á eldsupptökum. Einar Oddur sagði að þetta hefði verið mjög ánægjulegur fundur. Verðlagsstjóri hefði einnig komið á fundinn og rætt þá þætti búvöru- verðs sem að hans embætti sneru. Einnig hefði verið rætt hvort þær gengisbreytingar sem gerðar hefðu verið ættu að einhveiju leyti eftir að koma fram í vöruverði og hvort hækkanir á opinberri þjónustu væru framundan. Einnig væru sérfræðing- ar samtakanna að skoða hver áhrif lækkun vaxta gæti haft á fjármagns- þörf ríkissjóðs og fleira. Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, sagði að aðilar ynnu eins hratt og þeir hefðu tök á, en fara þyrfti vandlega yfir horfumar í verðlags- málum, áður en hægt væri að taka til við aðra þætti samningamálanna. Meðal annars hefði komið fram á fundinum að áhrif gengislækkana virtust að mestu komin fram í verð- lagi. Öll kurl væru ekki komin til grafar varðandi hækkun búvöru á næsta ári. Stéttasamband bænda reiknaði með hækkun áburðarverðs og einnig hefði hluta launahækkunar bænda í haust verið frestað til næsta árs og ætti eftir að koma fram. Þá væri ljóst að óbreyttar niðurgreiðslur í krónutölu, eins og gert væri ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu, myndu leiða til hækkunar á búvöru umfram hækkun á verðlagi yrði ekki þar breyting á, auk þess sem það ætti eftir að útvega fé vegna þeirra verð- Iagsaðgerða sem gripið var til í des- ember. Rjúpnaveiði helmingi minni en á síðasta ári Má þakka fyrir að Læknagarður skuli ekki sprunginn í loft upp - segir forseti tannlæknadeildar HÍ ÖRN Bjartmars Pétursson, forsetl tannlæknadeildar Háskóla fs- lands, segir að alvarleg mistök hafi átt sér stað við hönnun húss lækna- og tannlæknadeildar, Læknagarð. Sumir hönnunargall- ar valdi beinlínis hættu, aðrir óþægindum og auknum kostnaði. Vinnueftirlit ríkisins viðurkenni húsið ekki sem vinnuhúsnæði og Eldvarna- og Rafmagnseftirlit hafi gert fjölda athugasemda. Þetta kemur fram í nýjasta tölu- blaði Vökublaðsins, sem lýðræðis- Verður Gullskip hf. tekið til gjaldþrotaskipta? Landsbankinn óskaði eftir því fyrir nokkru við skiptaráðandann í Reykjavík að Guliskip hf. verði tekið til gjaldþrotaskipta. Gullskip hf. var stofnað til að grafa eftir hollenska skipinu Het Wapen van Amster- dam sem strandaði á Skeiðarársandi á 17. öld. Ragnar Hall skiptaráðandi segir að ekki sé ljóst á þessari stundu hvenær úrskurður um gjaldþrot verði kveðinn upp þar sem mörg mál liggi fyrir hjá embættinu sem þarf að úr- skurða um. Morgunblaðinu er kunnugt um, að hluthafar Gullskips hf. hafa greitt allar aðrar skuldir en erlent lán í Landsbanka íslands, sem tekið var með ríkisábyrgð. Alþingi samþykkti á sínum tíma ríkisábyrgð að upphæð 50 milljónir króna, en Gullskip hf. notaði aldrei nema 12 milljónir króna, þar sem í ljós kom, að skipið var ekki fundið. Þessar 12 milljónir króna nema nú með verðtryggingu og vöxtum yfir 70 milljónum króna. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hefur að undanfömu verið unnið að því að finna aðra lausn á vandamálum Gullskips hf. en gjald- þrotaskipti. Ef Gullskip hf. verður tekið til gjaldþrotaskipta falla niður kröfur Ríkisábyrgðasjóðs á hendur félaginu. Leit hefur verið haldið áfram undanfarin ár á kostnað eig- enda Gullskips-hf. og er hugmyndin að halda henni áfram. sinnaðir stúdentar gefa út. Há- skólarektor segir að verið sé að rannsaka málið. í viðtali Vökublaðsins við Öm seg- ir hann meðal annars að gasleiðslur í Læknagarði liggi víða samhliða rafmagnsleiðslunum. „Það sér. það hver maður, hvaða hættu slíkt býður heim. Kannski má líkja þessu við að hafa kveikjuþráð um allt húsið, sem liggur að lokum í sjálfa púðurtunn- una, 1.300 lítra gaskúta. í raun má þakka fyrir að húsið skuli ekki þegar vera sprangið í loft upp.“ Örn segir að jafnframt sé frágangi á gaskútum ábótavant og hann ekki í samræmi við reglur. Þá séu gasleiðslumar steyptar fastar í veggi hússins, sem sé ólöglegt og kosti stórfé að lag- færa. Deildarforsetinn segir að þau mis- tök hafi jafnframt verið gerð, að þjappan, sem framleiði þrýstiloft til að blása upp í sjúklinga á tannlækna- deildinni og hreinsa tennur þeirra, hafi verið staðsett við hliðina á út- blástursopi „stinkskápa“, þar sem séu gerðar efnafræðitilraunir með hættuleg efni eins og eter og forma- lín. „Ef við hefðum ekki komið auga á þennan alvarlega galla værum við að blása baneitruðum lofttegundum upp í grandalausa sjúklinga. Ég vil ekki hugsa þá hugsun til enda hvað orðið hefði ef við hefðum ekki upp- götvað þetta strax,“ segir Örn. Hann segir að Háskólinn hafi greitt kostn- að við lagfæringar, en hyggist leggja fram skaðabótakröfu. Fleiri galla segir Örn vera á húsi lækna- og tannlæknadeildar, til að mynda hrynji óhreinindi úr hljóðein- angranarplötum í lofti. „Þessar plöt- ur munu vera bannaðar í fiskvinnslu- húsum af hreinlætisástæðum,“ segir hann. Þá nefnir hann gólfdúkinn á göngum hússins, sem sé úr einhvers konar bólu- eða tappaefni, sem sé svo óslétt að ekki sé hægt að aka viðkvæmum tækjum milli herbergja, þar sem þau þoli ekki titringinn. Því þurfi að bera tækin á milli. Öm segir að það verði að kalla einhvem til ábyrgðar fyrir mistökin. Sigmundur Guðbjamason, rektor Háskólans, sagði í samtali við Morg- unblaðið að verkfræðistofu þeirri, sem hefði haft eftirlit með byggingu hússins, hefði verið falið að gera úttekt á hönnunargöllunum, með til- liti til þess hveijum bæri að bera aukakostnað af lagfæringum á mis- tökunum. Sigmundur segir að þegar þeirri rannsókn verði lokið, sé skýr- ara hvað þurfi að gera og hveijum beri að borga brúsann. Læknagarður er hannaður af emb- ætti húsameistara ríkisins, en ýmsir undirverktakar hafa einnig komið nálægt hönnun lagnakerfis, loftræst- ingar og fleiri atriða, að sögn há- skólarektors. RJÚPNAVEIÐIN er um helmingi minni nú í haust en í fyrra, að sögn Sverris Scheving Thor- steinssonar, sem hefúr stundað veiðarnar undanfarin 45 ár. Hann segir því eðlilegt að verðið hækki, það hljóti að lúta lögmáli framboðs og eftirspurnar. í Morgunblaðinu í gær sagði Pétur Pétursson kaupmaður að hann og fleiri kaupmenn byðu ekki rjúpur vegna hins háa verðs, útsölu- verð væri 675 krónur, og gaf Pétur jafnframt í skyn að nóg væri af rjupunm. Sverrir hafnar því, þótt hann telji ekki útilokað að til sé eitthvað af ijúpu síðan í fyrra, en það er þá gömul ijúpa, segir hann, og því eðlilegt að hún sé seld á lægra verði en ný. Sverrir kveðst hafa kannað ræki- lega hjá veiðimönnum um land allt að undanförnu hvernig veiðin haf' gengið. Segir hann reynslu þeirra flestra vera á þá lund, að veiðin nú sé 40% til 70% minni en í fyrra. Hans eigin reynsla er á sömu lund. Fyrir skömmu fór hann við þriðja mann til ijúpna og fóru þeir um nánast allan sunnanverðan Vest- fjarðakjálkann. Veður var bjart og aðstæður góðar, en eftirtekjan náði ekki þremur ijúpum á mann á dag. „Ég hef aldrei áður fengið jafn lítið á jafn löngum tíma,“ segir Sverrir. Hann bendir einnig á að ekki se öll ijúpa á háu verði, þar sem í Morgunblaðinu í gær var auglýst að hún fengist á 430 krónur stykk- ið í Miklagarði. „Við verðum hins vegar að sætta okkur við að ijúpan er nú einu sinni ijúpa, hún er sveiflufugl og aldrei er hægt að ákveða verð á henni fyrirfram, það hlýtur að ráðast af því hve mikið veiðist á hveijum.tíma."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.