Morgunblaðið - 15.12.1989, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1989
Lokabíndi í mikl-
um ritflokki
Hugur og hönd
Bókmenntir
Sigurjón Björnsson
Aldnir hafa orðið. Frásagnir og
fróðleikur. Erlingur Davíðsson
skráði. 18. bindi. Bókaútgáfan
Skjaldborg. Reykjavík 1989. 365
bls.
Þá er komið að lokabindi þessa
mikla bókaflokks. Alls urðu bindin
átján talsins. Það fyrsta kom út
haustið 1972 og síðan hefur útkoma
þeirra verið árviss viðburður á
haustdögum. í hverju bindi hafa
birst sjö ævi- og frásagnaþættir og
eru því þættirnir samkvæmt því
orðnir 126 talsins. Erlingur Davíðs-
son fyrrum ritstjóri á Akureyri hef-
ur skráð þættina og inngang að
þeim og ritstýrt bókaflokknum frá
upphafi vega.
Mér skilst að bókaflokkur þessi
hafi orðið einkar vinsæll, enda „ár-
viss kjarni" í bókaútgáfu Skjald-
borgar eins og útgefendur komast
að orði í aðfararorðum.
Enda þótt ritdæmendur hafi ekki
alltaf farið mjúkum höndum um
þessar bækur — og með sanni má
sitthvað að þeim finna — er engu
síður fullvíst að hér er um hið merk-
asta ritsafn að ræða. Þegar öllu er
til skila haldið er ljóst að hér hefur
verið dreginn á land óhemjumikill
fróðleikur af mörgu tagi, mann-
fræðilegur, lífsháttalegur, um at-
vinnusögu, kjör og aðbúð á fyrri
hluta aldar og aftur fyrir aldamót
og margt, margt fleira. Fjölmargir
hafa hér kveðið sér hljóðs og greint
frá lífsreynslu sinni, sem annars
hefði orðið þögn og gleymsku ofur-
seld.
Eins og ég mun einhvern tíma
áður hafa hreyft í umfjöllun um
þessar bækur, tel ég að þetta sé í
sjálfu sér hið æskilegasta form á
ævisöguritun. Lagnflestum mönn-
um duga 50-80 bls. til að gera skil-
merkilega grein fyrir æviferli
sínum. Og sé frásögnin vel hnitmið-
uð og markviss er það áreiðanlega
gagnlegri lestur en þessar miklu
langlokur sem tíðkast. Þar er einn-
ig — og ekki síður — oft sleppt því
sem helst mætti verða til skýringa
og skilnings á lífshlaupi sögu-
mannsins.
Ég er því ekki allskostar sáttur
við að skrif af því tagi, sem þessi
bókaflokkur býður fram falli niður
með öllu. Væri ekki ráð að Skjald-
borg byrjaði nýjan bókaflokk t.a.m.
með eitthvað breyttu fyrirkomu-
lagi?
Þetta átjánda bindi er eins og
gefur að skilja hliðstætt hinum
fyi-ri. Sjö eru viðmælendur: Guðný
Pétursdóttir hjúkrunarkona, Einar
Malmquist útgerðarmaður, Þor-
steinn Guðmundsson bóndi á
Skálpastöðum, Bjarni Jóhannesson
skipstjóri frá Flatey, Eiríkur
Björnsson bóndi á Amarfelli, Ketill
Þórisson bóndi í Baldursheimi og
Þórður Oddsson læknir í Reykjavík.
Flestir eru sögumenn komnir all-
nokkuð til aldurs. Sá elsti er fædd-
ur árið 1897 og sá yngsti 1923.
Misjafnir eru þessir þættir nokk-
uð eins og við er að búast. Flestir
eru þeir þó vel gerðir og sæmilega
útúrdúralausir. Sérstaklega var ég
hrifinn af þremur þeirra, þ.e. þætti
Eiríks Björnssonar, Þorsteins á
Skálpastöðum og Bjarna Jóhannes-
sonar. Þáttur Eiríks finns mér með
ágætum gerður.
I bókarlok kveður ritstjóri við-
mælendur sína og lesendur. I sam-
starfi við hina 126 viðmælendur
segir hann hafa eignast „marga
kunningja og jafnvel góða vini.
Minningarnar um þetta fólk, sam-
vinnan og frásagnir þess, eru mér
ómetanlegar og meðal dýmstu and-
legra fjársjóða ævi minnar. .
Ei-lendur Davíðsson mun vera
orðinn aldraður maður og því telur
hann sér þörf á að hvílast nokkuð.
Sá sem þetta ritar þakkar honum
að lokum ánægjulega samfylgd og
óskar honum góðra og notalegra
ellidaga.
________Myndlist______________
Bragi Ásgeirsson
Rit Heimilisiðnaðarfélags ís-
lands „Hugur og Hönd“, er nýlega
komið út, og er þetta tuttugasti
og fjórði árgangurinn, en ritið
kemur út einu sinni á ári.
Eins og margur má vita, er
heimilisiðnaður og alþýðulist upp-
spretta allra listrænna athafna í
menningarþjóðfélögum og er hér
ræktuð sú skapandi þörf, er fylgt
hefur manninum frá fyrstu þróun-
arstigum.
Enginn skyldi vanmeta heimilis-
iðnað né neitt, sem hugur og hönd
fæðir af sér, því slík framhvöt er
miklu meira en almenn dægra-
stytting og heimilisiðnaður á jafn-
an að vera á hæi’ra stigi en að
koðna niður í vanabundin vinnu-
brögð og verða að réttum og slétt-
um söluvarningi. Þessu tvennu
má ekki ragla saman, því að heim-
ilisiðnaður á háu stigi telst gild
list og frumhvati æðri lista og er
af allt öðram toga en t.d. fjölda-
framleiddur verksmiðjuvarningur.
Á seinni tímum hefur iðnhönnun
að vísu fleygt mjög fram, en ekki
þó í sama mæli og ódýram fjölda-
framleiddum varningi, sem enn
hefur vinninginn.
Gildi heimilisiðnaðarins, og þá
sér í lagi varðveisla eldri vinnu-
bragða, er ótvírætt, enda hafa
augu skapandi núlistamanna
beinst að þessum grunnatriðum
ekki síður en t.d. málunaraðferð-
um meistara miðalda.
í dag gera einstakir listamenn
margt í höndunum, sem þeir létu
sér áður nægja að kaupa í verslun-
um, t.d. búa þeir stundum sjálfir
til pappírinn, sem þeir vinna á og
með, þ.e. teikna á eða vinna í á
annan hátt, t.d. klippa, rífa, flétta
.o.s.frv., rífa liti og búa til liti úr
efnum náttúrannar. Granna sjálfir
léreftin, sem þeir mála á, gott ef
þeir vefa þau ekki líka (!), því
ekkert kemur manni á óvart nú
orðið í leit listamanna að náttúru-
efnum.
Fyrir snjallan núlistamann ætti
það að vera auðvelt verk að taka
til sjómannavettlinga eins og
ömmur okkar pijónuðu og búa til
núlistaverk úr þeim, og gengi
dæmið upp á meistaralegan hátt,
ætti hann jafnvel vísa heimsfrægð!
Það sem menn hafa orðið fræg-
astir fyrir í núlistum aldarinnar
er einmitt að lyfta því upp og
magna, sem þeir hafa haft næst
sér. Þegar allt er orðið svo skelfi-
lega vanabundið, kemur hinn
skapandi listamaður og stokkar
allt upp á nýtt og töfrar fram líf
í hversdagslegustu hluti. Þetta er
kjarni allrar mikillar listar, en ekki
að leita langt yfir skammt og telja
það alltaf betra, sem aðrir hafa
langt, langt í burtu.
Og til að nýta tækni nútímans
þurfa menn að"hafa traustar rætur
í fortíðinni — það varðar heims-
endi í bókstaflegum skilningi, að
hvorugu sé hafnað, fortíð sem
nútíð, því að hér er um samvaxin
Nýttu dýrmætan vmnutímann í jólaönnum til Ms og
njóttu vel. Eldhúsið okkar er opið til kl. 23:30
föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld
og til kl. 22 önnur kvöld.
Við sendum af öllum matseðlinum okkar til þín ásamt
meðlæti og drykkjarföngum að óskum.
Gerðusvovel!
Sérlaíjaóir
\ réttir lieint til
þínivinniina
SSKUR
.%■
Suöurlandsbraut 14 • Pöntunarsími 681344 - Geymdu númeríð!
\