Morgunblaðið - 15.12.1989, Blaðsíða 44
Atak gegn sifjaspellum:
Hefur skilað
góðum árangri
— segir Valgerður Magnúsdóttir sálfræðingur
FYRSTA skipulagða átakinu gegn sifjaspelli á Akureyri og nágrenni
* lýkur með símatíma á milli kl. 13 og 14 í dag. Að átakinu standa Val-
gerður Magnúsdóttir sálfræðingur og Brynja Óskarsdóttir félagsráð-
gjafi, en báðar starfa þær hjá Féiagsmálastofnun Akureyrar.
„Þetta hefur verið heilmikil
lífsreynsla fyrir okkur og ég tel að
átakið hafi skilað góðum árangri.
Við höfum orðið varar við mikla
umræðu um þessi mál hér í bænum
og nágrenninu," sagði Valgerður.
Atakið hófst á fimmtuðagskvöld
í fyrri viku með símatíma og einnig
var opinn sími á laugardag. í þess-
ari viku hefur þolendum sifjaspells
einnig verið boðið að hringja og er
síðasti símatíminn í dag. „Það hafa
ekki hringt margar konur, en þó
nokkrar í þessu markvissa átaki.
Þetta eru konur sem komnar eru
'1 mjög mislangt i sinni úivinnslu og
sumar hafa leitað sér aðstoðar annar
staðar áður, en aðrar ekk\,“ sagði
Valgerður.
Fyrirhugað var að bjóða þeim kon-
um sem það vildu að taka þátt í
starfi sjálfshjálparhópa, en enn hafa
ekki fundist nægilega margar konur
sem tilbúnar eru til að taka þátt í
slíkum hópi. Valgerður sagði þær
tilbúnar til að vinna einnig að þessum
málum með einstaklingum, sem þess
óska.
Þrátt fyrir að hinu skipulagða
átaki ljúki í dag, sagði Valgerður að
áfram yrði unnið að þessum málum
og áfram verður hægt að hringja í
þær í vinnusíma, auk þess sem um-
ræðunni verður haldið gangandi m.a.
hjá fagfólki.
Landsbankinn með
hæsta boð í Ytra-Holt
LANDSBANKINN bauð hæst í jörðiná Ytra-Holt við Dalvík á uppboði
sem haldið var í fyrradag og Stofnlánadeild landbúnaðarins bauð hæst
í stærsta refaskálann úr þrotabúi Pólarpels.
Landsbankinn bauð 16,5 milljónir
króna í Ytra-Holt og var það hæsta
boð sem fram kom á uppboðinu.
Byggðastofnun bauð 11 milljónir og
Dalvíkurbær 5 milljónir.
Stofnlánadeild landbúnaðarins
Ellefu tegundir
afjólakortum
Demantskort á Akureyri hafa
sent frá sér ellefu tegundir af jóla-
kortum. Á kortunum er myndir af
málverkum eftir Iðunni Ágústs-
dóttur, m.a. frá Kjarnaskógi og ljós-
■ ' myndir sem Pálmi Guðmundsson
hefur tekið af Akureyri. Jólakortin
fást í bókabúðum á Akureyri.
Fréttatilkynning
bauð 2 milljónir króna í stærsta refa-
skála þrotabúsins. Fjórir aðrir skálar
verða boðnir upp eftir áramót og
einnig stórt steypt hús í eigu þrota-
búsins. Uppboðshaldari tók sér
tveggja vikna frest til að skoða til-
boðin.
Sláti-un dýrannaer lokið36, en þau
voru 24.500 talssins. Alls unnu átta
manns við slátrunina og sagði Óskar
Sigurpálsson, einn þeirra, að vel
hefði gengið. Reiknað var með að
slátrunin tæki um þijár vikur og
yrði lokið um miðjan desember, en
ekki tók nema tvær vikur að slátra
dýrunum. Slátrun lauk síðastliðinn
mánudag, en þessa viku hefur verið
unnið við frágang ýmiskonar á bú-
inu. Mest var slátrað 2.235 dýrum á
einum degí og var þá unnið frá kl.
7 um morguninn til 21. um kvöldið.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
I slippnum
Sjálfstæðisflokkurinn:
Skoðana-
könnun við
val á fr am
bjóðendum
Skoðanakönnun verður við-
liöfð við val á frambjóðendum á
lista Sjáfstæðisflokksins fyrir
bæjarstjórnarkosningarnar á
næsta ári.
Knútur Karlsson, formaður full-
trúaráðs Sjálfstæðisflokksins,
sagði að ákveðið hefði verið að
hafa þennan háttinn á, en fyrir
síðustu bæjarstjórnarkosningar
var um prófkjör að ræða. Hann
sagði að flokksbundnir sjálfstæðis-
menn og þeir sem ganga í flokkinn
fyrir þann dag sem skoðanakönn-
unin yrði gerð hefðu heimild til
að taka þátt í könnuninni. Menn
yrðu beðnir um að skrifa 5-8 nöfn
á lista og hann myndi 9 manna
kjörnefnd síðan hafa til viðmiðun-
ar þegar hún stillti upp endanleg-
um lista. Reiknaði hann með að
skoðanakönnunin yrði gerð síðla
janúarmánaðar.
Jarðgangamenn komnir í jólaleyfi:
Göngin gegnum Ólafsfjarðar-
múla orðin 2.680 metra löng
GÖNGIN í gegnum Ólafsfjarðarmúla voru orðin 2680 metra löng í
gærkvöldi þegar jarðgangamenn hættu vinnu, en jólaleyfi þeirra
hefst í dag. Vinna við jarðgangagerðina liefst aftur eftir áramót,
sunnudagskvöldið 7. janúar.
Björn Harðarson staðarverk-
fræðingur Vegagerðarinnar sagði
að ef vel gengi væri rúmlega
tveggja mánaða vinna eftir þar til
lokið verður við að sprengja fyrir
göngunum. Göngin standa í 2.680
metrum og eftir eru 460 metrar
þar til komið verður í gegn, eða
um 130 sprengingar.
„Þetta hefur allt gengið eðlilega
fyrir sig og ekkert sérstakt komið
upp á sem komið hefur okkur á
óvart,“ sagði Björn. Síðustu viku
bergið þó verið afar laust í sér og
óstöðugt þannig að sprauta hefur
þurfti í það mikilli steypu. „Þetta
virðist vera að komast í lag, bergið
fer skánandi," sagði Björn. Að jafn-
aði er sprengt þrisvar á dag í
göngunum, en síðustu viku hefur
ekki verið sprengt nema einu sinni
eða tvisvar þar sem bergið hefur
verið slæmt. í haust var mikið
vatnsrennsli úr berginu, en það
hefur nú minnkað verulega.
í vetur vinna 28 menn við jarð-
gangagerðina, en þar af eru yfir-
leitt 8-9 í fríi í einu. Næsta vor
verður unnið af fullum krafti í
göngunum og þá verður einnig
byggður vegskáli Dalvíkurmegin,
um 90 metra langur, en í haust var
lokið við gerð vegskála Ólafsfjarð-
armegin og er hann um 160 metra
langur. Það eru Fjölnismenn á Ak-
ureyri sem byggja vegskálana.
Málverkasýn-
ing Hrings Jó-
hannessonar
Afangaskýrsla samstarfsneftidar um gervigrasvöll:
Orkukostnaður vegna upphitunar gervi-
grasvallar mun minni en talið var
ORKUKOSTNAÐUR vegna
hugsanlegs gervigrasvallar á
Akureyri er mun minni, en áætl-
að hafði verið. I áfangaskýrslu
samstarfsnefhdar um gervi-
grasvöll, sem skipuð var tveim-
ur fúlltrúum frá íþróttafélögun-
um KA og Þór, kemur fram að
heildarkostnaður vegna orku-
notkunar á einu ári nemur frá
>
Utgáfiitónleikar
Um þessar mundir kemur út á
hinum almenna markaði snælda
með , dægurlagahljómsveitinni
Lost. Af því tilefni verða haldnir
tónleikar í Borgarbíói á Akureyri
á morgun, laugardaginn 16. des-
ember og hefjast þeir kl. 16. Þá
mun hljómsveitin einnig halda tón-
leika í Reykjavík á milli jóla og
^ nýjárs.
Fréttatilkynning
3,9 til 8,6 milljónum króna, eftir
því hvort notuð yrði afgangs-
orka eða hitaveita. Áður hafði
verið talið að kostnaðurinn
næmi um 20 milljónum króna á
ári. í skýrslunni kemur fram að
þrír staðir voru athugaðir sér-
staklega með byggingu gervi-
grasvallar í huga; vestan Eikar-
lundar við Mjólkursamlagið, við
Verkmenntaskólann og austan
Sólborgar. Notkun vallarins var
áætluð um 2000 tímar á ári.
I skýrslunni segir, að um árabil
hafi það háð starfsemi íþróttafélag-
anna að æfingaaðstáða fyrir knatt-
spyrnuiðkendur utan sjálfs keppn-
istímabilsins er nánast engin, lítið
sé hægt að nota malarvelli félag-
anna framan af vori vegna frosts
og aurbleytu og aðstaðan á Sana-
velli sé ekki til frambúðar. Kostnað-
ur við upphitun gervigrasvallar hef-
ur fram að þessu verið talin svo
mikill að^ umræðan hefur ekki náð
lengra. I skýrslu samstarfnefndar
íþróttafélaganna tveggja um gervi-
grasvöll kemur hins vegar fram að
kostnaður við upphitun slíks vallar
er mun minni, en talið var.
Þrír staðir athugaðir
sérstaklega
í greinargerð frá Verkfræðiskrif-
stofu Sigurðar Thoroddsens á Ak-
ureyri kemur fram að heildarnotkun
á heitu vatni í snjóbræðslukerfi
hafi verið um 80-140 þúsund tonn
á ári, tímabilið október til maí.
Samkvæmt útreikningum um áætl-
aða orkunotkun kemur fram að
verði notuð afgangsorka næmi
heildarkostnaður um 3,9 milljónum
króna, þ.e. snjóbræðsla, dælur og
lýsing. Yrði hins vegar notuð hita-
veita næmi kostnaðurinn tæpum
8,6 milljónum króna.
Hvað varðar kostnað vegna
byggingar gervigrasvallar kemur
fram í greinargerð VST, að heildar-
kostnaður vegna byggingar slíks
vallar við Mjólkursamlagið yrði 115
milljónir króna, en 113 milljónir við
VMA og Sólborg. Inni í þessum
tölum er m.a. vallarhús, bílastæði,
frágangur umhverfis völlinn, teng-
ing við rafveitu, snjóbræðslukerfi
sem og að sjálfsögðu yfirlagið, eða
gervijjrasið. Gert er ráð fyrir að
völlurinn verði hitaður með af-
gangsorku sem afgreidd yrði við
spennistöð rafveitunnar við Kollu-
gerði. Ef aðeins yrði tengt við hita-
veitu yrði heildarkostnaður vallar-
ins við Mjólkursamlagið 105 miilj-
ónir, 99,5 við VMA og 104,6 við
Sólborg.
í skýrslunni eru nefndir kostir
og gallar áðurnefndar svæða, en
ekki tekin afstaða til þeirra. í loka-
orðum segir að óvissuþættirnir séu
margir, en til að hægt verði að taka
ákvörðun um byggingu gervigra-
svallar sé nauðsynlegt að afla frek-
ari upplýsinga og því telur nefndin
mikilvægt að ákvörðun þar um verði
tekin sem fyrst og veitt verði fjár-
magni í nauðsynlegar athuganir og
undirbúningsframkvæmdir.
SÝNING á verkum Hrings Jó-
hannessonar verður opnuð í
Myndlistarskólanum á Akureyri á
morgun, laugardag kl. 14. Sýning
á málverkum Hrings hefur stáSið
yfir í Listasafni ASÍ í Reykjavík
undanfarið og þegar sýningunni
lýkur á Akureyri verður hún sett
upp á Egilsstöðum. Að sýningu
Hrings standa Listasafn ASÍ,
Verkalýðsfélagið Eining og Akur-
eyrarbær.
Jafnframt sýningu á verkum
Hrings kemur út bók um listamann-
inn eftir Aðalstein Ingólfsson og
verður hún til sölu í Myndlistaskól-
anum meðan á sýningunni stendur.
Hringur Jóhannesson fæddist í
Haga í Aðaldal árið 1932. Ilann nam
við Handíða- og myndlistaskólann í
Reykjavík 1949-52. Hringur hefur
oft verið nefndur intimistinn í
íslenskri myndlist; myndheimur hans
á sér enga hliðstæðu. Hringur hefur
haldið tugi einkasýninga og tekið
þátt í fjölda samsýninga heima og
erlendis.
Sýningin hefst sem fyrr segir á
morgun kl. 14. og henni lýkur 26.
desember. Hún er opin virka daga
frá 16.-20. og umhelgar frá 14.-20,
en lokað er á aðfangadag og jóladag.
Úr fréttatilkynningu.