Morgunblaðið - 15.12.1989, Blaðsíða 13
essemm
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1989
ANDAÐAR BÆKUR
lifandi efni
Skáldverk eftir Svövu Jakobsdóttur, Birgi Sigurðsson
og Guðberg Bergsson - Heimsbókmenntir á fslensku
- Stefán Jónsson lýsir lífsgleði á tréfæti - Einstæðar
æviminningar tveggja kvenna - Saga síldarævintýr-
anna miklu - Ljóðabækur - Sígildar barnabækur
Svava Jakobsdóttir
liNDIR ELDFJALLI
Nýtt sagnasafn Svövu Jakobsdóttur
sætir tíðindum í íslenskum
bókmenntaheimi. Yrkisefnin eru
margvísleg og gædd miklum
meistaratökum. Sögurnar búa yfir
fágætri spennu hins óvænta og
ósagða. Yfirbragð þeirra er ýmist
leikandi létt og innilegt eða þrungið
dulúð og alvöru. En undir stilltu
yfirborði meitlaðrar frásagnarlistar
leynist eldur margræðninnar.
Jónína Michaelsdóttir
EINS MANNS KONA
Minningar Tove Engilberts
Ung að árum fluttist Tove til Islands
ásamt manni sínum, listmálaranum
Jóni Engilberts. Af einlægni og
mannviti lýsir hún ástum og sambúð
íslensks listmálara og auðmannsdótt-
ur frá Kaupmannahöfn. Saga Tove
er áhrifamikil lýsing á tilfinningaríku
samlífi tveggja elskenda og vina sem
aldrei varð hversdagsleika og vana
að bráð. Einstök bók -
um einstaka konu.
Doris Lessing
SUMARIÐ FYRIR MYRKUR
f tvo áratugi hefur Kate Brown sinnt
hlutverki móður og eiginkonu, en þá
rennur upp sumar óvæntra ævintýra.
Kate segir skilið við gamalgróið
hlutverk, gömlu fötin sín og frúar-
greiðsluna og leggur af stað í leit að
frelsi. En hvar er frelsið að finna?
Doris Lessing segir áhrifamikla sögu
um nútímakonu á tímamótum.
Helga Guðmundsdóttir þýddi.
Gylfi Gröndal
DÚFA TÖFRAMANNSINS
Endurminningar Hrefnu Benediktsson
Líf Hrefnu, yngstu dóttur Einars
Benediktssonar skálds, er ævintýri
líkast og líkist fremur skáldsögu en
veruleika. Hér varpar hún nýju ljósi
á föður sinn, hið stórbrotna skáld og
framkvæmdamann. Hún lýsir honum
á hispurslausan og áhrifaríkan hátt,
ágæti hans og yfirburðum, veikleika
og vanmætti. Stórbrotin og spenn-
andi saga um örlög sem seint munu
gleymast.
Birgir Sigurðsson
FRÁ HIMNI OG JÖRÐU
Birgir Sigurðsson er löngu þjóðkunn-
ur fyrir áhrifamikil og snjöll leikrit. í
þessu sagnasafni slær hann á allt aðra
strengi. Hláturinn dillar í hverju
atviki - þetta eru skemmtisögur í
orðsins fyllstu merkingu. En skáld-
skapur Birgis er margslunginn og
undiraldan þung og þrungin alvöru.
Sögumar gerast bæði á himni og
jörðu. Víst er að á hvorugum staðn-
um mun lesandanum leiðast
Gabriel García Márquez
HERSHÖFÐINGINN í
VÖLU NDARHÚSI SÍNU
Nýtt meistaraverk frá hendi Nóbels-
skáldsins frá Kólumbíu. Hér segir
hann sögu frelsishetjunnar, Símons
Bolívar, og dregur upp magnaða
mynd af þeim vemleika sem liggur
að baki sögunni um byltingarhetjuna.
Hann afhjúpar dýrðina sem sagan
sveipar frelsishetjur á hverri tíð -
vekur spumingar um eðli valdsins og
afleiðingar þess fyrir einstaklinga og
þjóðir. Guðbergur Bergsson þýddi.
Christoph Ransmayr
HINSTI HEIMUR
Rómverska skáldið Óvíd er dæmdur
til útlegðar á hjara veraldar. Vinur
skáldsins heldur af stað til að fregna
um afdrif útlagans. Stórbrotið skáld-
verk sem hlaut slíkt lof þegar það
kom út í Þýskalandi haustið 1988, að
helst minnir á undirtektimar sem
Ilmurinn hlaut á sínum tíma. Bókin
kemur nú út á öllum helstu þjóðtung-
um Evrópu. Kristján Ámason þýddi.
Shusaku Endo
HNEYKSLI
Rithöfundur nokkur hefur iðulega
sést á ferli í hverfi klámsýninga og
vændishúsa í Tókíó. Sjálfur kannast
hann ekki við neitt. Getur verið að
hann eigi sér tvífara? Hneyksli er f
senn sálfræðileg spennusaga og
djúpvitur skáldskapur. Sagan varð á
örskömmum tíma metsölubók í
Japan og hefur notið ómældrar
athygli á Vesturlöndum. Úlfur
Hjörvar þýddi.
FORLAGIÐ
ÆGISGÓTU 10, SÍMI 91-25188