Morgunblaðið - 15.12.1989, Blaðsíða 70
70
- MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1989
fclk í
fréttum
Hataðasta kona Banda-
ríkjanna bak við lás o g slá
SÉRSTÆÐ SAKAMÁL
Leona Helmsley, sem nefnd
hefur verið „hataðasta kona
Bandaríkjanna“ hefur verið dæmd
í fjögurra ára fangelsi fyrir skatt-
svik. Margir Bandaríkjamenn
munu vafalítið líta á dóminn á sem
sérlega ánægjulega jólagjöf en
fjölmiðlar hafa jafnan fjallað ítar-
lega um alla framgöngu frú
Helmsley sem öðru fremur þykir
einkennast af andstyggilegheitum,
hroka, hófleysi og mannfyrirlitn-
ingu.
Leona Helmsley rekur hótel í
íílew York og hefur einnig vefið
umsvifamikil í alls kyns fasteigna-
braski ásamt eiginmanni sinum
Harry. Sögur af heimilishaldi
þeirra hjóna og lifnaðarháttum
hafa jafnan farið hátt í fjölmiðlum.
Þannig hafa vinnuhjú þeirra sagt
frá því er milljarðamæringarnir
yfirmenn þeirra sökuðu þau um
að stela matvælum og tóku upp
strangt eftirlit. Frú Helmsley
stundaði það einnig að dreifa
brauðmylsnu um stofugólfin til að
sannreyna að stofustúlkan stæði
sig í stykkinu. Ed Koch, fyrrum
borgarstjóri New York, sagði ein-
hveiju sinni að Leona Helmsley
væri „hin illa norn vestursins“ og
lögfræðingur hennar sagði í við-
tali við blaðamenn skömmu áður
Leona Helmsley efir að dómur
hafði fallið í máli hennar. Eigin-
maður hennar, Harry, var líkt
og sjá má niðurlútur mjög enda
mun eiginkona hans verja næstu
fjórum árum ævi sinnar innan
fangelsismúra.
Kærkomnar jólagjafir
Ferðatöskur,
skjalatöskur
og snyrtitöskur
f miklu úrvali
en réttarhöldin hófust að hún
væri „forhert skepna“. Milljóna-
mæringurinn Donald Trump hefur
sagt að hún sé „svartur blettur á
mannkyninu“ og „enn viðurstyggi-
legri en sögur þær sem af henni
hafa farið gefa til kynna“. Haft
er orði að einu hrósyrðin sem um
hana hafi fallið sé að finna í kynn-
ingarbæklingi Helmsley Palace-
hótelsins í New York þar sem seg-
ir að hún sé „drottning“ þess!
Frú Helmsley lýsti því einhvern
tíma yfir að einungis fátæklingar
greiddu skatta. Nú hefur komið á
daginn að hún og eiginmaðurinn
voru trú þessari heimspeki sinni.
Skattrannsóknarmenn komust að
því að ýmis konar rándýr munað-
arvarningur hafði verið færður
undir útgjaldalið í skattaskýrslum
þeirra fyrirtækja sem þau hjónin
reka og því talist frádráttabær.
Þá höfðu ferðalög þeirra til
karabíska hafsins, milljón dollara
dansgólf, einkasundlaugin, pelsar,
bijóstahaldarar, blóm, hljómtæki,
kjólar frúarinnar, 48.000 dollara
vekjaraklukka (!), sundföt og nær-
fatnaður úr silki einnig verið talin
sem frádráttarbær útgjöld. Höfðu
rannsóknarmennirnir á orði að
annarri eins ósvífni hefðu þeir
aldrei kynnst í starfi sínu.
IYú Helmsley, sem er 69. ára,
var dæmd í fjögurra ára fangelsi
sem fyrr segir og gert að greiða
rúmar sjö milljónir dollara í sekt.
Ákveðið var að fella niður ákæru
á hendur Harry, sem er áttræður,
sökum aldurs. Leona Helmsley
grét er dómurinn var kveðinn upp
og kvaðst aldrei á sinni löngu ævi
hafa orðið fyrir annari eins niður-
lægingu. Hróp voru gerð að þeim
er þau komu út úr dómshúsinu í
New York og öskraði trylltur lýð-
urinn m.a.: „Setjið Harry líka inn“.
Fjölmargir fyrrum starfsmenn
frúarinnar voru reiðubúnir til að
bera vitni gegn henni í málinu og
staðfestu þeir allir sögur þær sem
af henni hafa farið. Veijandi henn-
ar lagði áherslu á að þau hjónin
hefðu þegar tekið út sína refsingu
í formi morðhótana og hatursfullra
bréfa sem þeim hefði jafnan borist
í þúsundatali. Hefðu þau hjónin
ekki getað látið sjá sig á opin-
berum vettvangi árúm saman sök-
um og hefðu þau í raun verið fang-
ar á ríkmannlegu heimili sínu und-
anfarin þijú ár. Dómarinn taldi
. ekki ástæðu til að fallast á þessa
röksemdafærslu.
Morgunblaðið/Sverrir
LEIKSLOK
Alan Simonsen legg-
ur skóna á hilluna
Einn snjallasti knattspyrnumaður
Dana og raunar Evrópu, Alan
Simonsen, lagði skóna á hilluna fyrir
skömmu. Hann er 37 ára gamall og
lauk ferlinum með því að leiða Vejle
Boldklub til sigurs í dönsku bikar-
keppninni gegn B 1913. Lauk leikn-
um með stórsigri Vejle, 4-0, og átti
Simonsen stórleik.
Ferill Simonsens er orðinn æði
langur og lék kappinn með ýmsum
þekktum liðum og má þar nefna
spænska stórveldið Barcelona. Árið
1977 var hann kjörinn knattspyrnu-
maður Evrópu. íslendingar þekkja
vel til Alans, því hann lék sinn fyrsta
landsleik fyrir Danmörku gegn ís-
lendingum á Laugardalsvellinum 3.
júlí 1972. Simonsen, sem þá var
tvítugur, sýndi snilldartakta og skor-
aði tvö af mörkum Dana sem bur-
stuðu ísland, 5-2.
Alan Simonsen dregur „skot-
skóna “ af fótunum í síðasta sinn
eltir bikarsigurinn gegn B 1913.
Charlotte Pedersen
REYKVIKINGAR!
Ásgeir Hannes Eiriksson,
þingmaður Borgaraflokksins
og fulltrúi Reykvíkinga í
fjórveitinganefnd Alþingis,
verður á Café Hressó í Aust-
urstræti í dag, föstudaginn
15. desember, kl. 1 2.00-
14.00.
UPPREISN ÆRU
Fegurðar-
drottning
öðru sinni
Hin 19 ára gamla Charlotte Ped-
ersen gat verið ánægð á dögun-
um, er hún var kjörin ungfrú Dan-
mörk. Þar með fór hún til Hong
Kong til keppni um titilinn ungfrú
Heimur sem fulltrúi Dana. Ekki vann
hún til verðlauna í þeirri keppni, en
yfirlýst stefna hennar var að hún
myndi ánægð halda heim að keppni
lokinni ef hún hefði orðið landi og
þjóð til sóma.
En Charlotte hafði tvöfalda
ástæðu til að gleðjast yfir titli sínum
heima fyrir, því að fyrir tveimur
árum tók hún einnig þátt í keppninni
ungfrú Danmörk og sigraði! En örf-
áum dögum áður en haldið skyldi í
keppnina um ungfrú Heim var hún
svipt titlinum á þeim forsendum að
hún hefði áður tekið þátt í fegurðars-
amkeppni og það samræmdist ekki
reglum keppninnar. Það vakti á
sínum tíma umtal sem endaði með
því að reglunum var breytt, eins og
sjá má á þátttöku Charlotte nú.
Charlotte segist hafa verið niðurbrot-
in um árið þar eð hún hefði ekki
haft hugmynd um að þáverandi regl-
ur meinuðu henni að keppa. En nú
hefði hún fengið uppreisn æru.