Morgunblaðið - 15.12.1989, Blaðsíða 80
Kringlan 5
Sími
692500
SJOVA
LMENNAR
m
EINKAREIKNINGUR Þ/NN
í LANDSBANKANUM gr
FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Lögreglan og Umferð-
arráð legga fram til-
lögu um ökuferilsskrá
Eins og menn þori ekki að taka á málinu
segir Böðvar Bragason, lögreglustjóri
LÖGREGLAN í Reykjavík og
Umferðarráð hafa lagt fram drög
að ökuferilsskrá. Það er skrá yfir
umferðarlagabrot ökumanna. Hér
er um að ræða tölvufærða ökufer-
ilsskrá á landsvísu til ad skrá
umferðarlagabrot á samræmdan
hátt.
Böðvar Bragason, lögreglustjóri í
Reykjavík, sagði í gær að það gengi
bæði seint og illa að koma ökuferils-
skrá í gagnið. „Það hefur lengi ver-
áhugamál lögreglunnar að skrá
sérstaklega viss umferðarlagabrot
og áminna ökumenn ef þeir verða
sekir fundnir um endurtekin brot.
Þrír dómsmálaráðherrar hafa sýnt
Margeir og
Jón L. unnu
Jiáðir í gær
JÓN L. Árnasson og Margeir Pét-
ursson unnu báðir skákir sínar í
8. og næst síðustu umferð opins
skákmóts á Mallorca sem lýkur í
dag. Þeir eiga möguleika á að
vinna sér rétt til þátttöku í for-
keppni Heimsbikarskákmóta
næsta árs en átta efstu menn
mótsins öðlast þennan rétt. Helgi
Ólafsson tapaði skák sinni í gær
og á ekki lengur möguleika á
sæti að þessu sinni.
Jón L. og Margeir eru nú í 13.-20
sæti á mótinu með 5 'A vinning, hálf-
um vinningu neðar en ellefu skák-
menn sem deila 2.-12. sætinu. Helgi
Olafsson er með 4 'A vinninga. Sovét-
JPfcaðurinn Boris Gelfand er efstur
með 7 vinninga.
Jón L. hefur unnið þijár síðustu
skákir sínar á mótinu, allar gegn
stórmeisturum, þeim Savon og Dol-
matov frá Sovétríkjunum og Kiril
Georgiev frá Búlgaríu. Margeir vann
í 8. umferð í gær þýska stórmeistar-
ann Grospeter en tapaði þar áður
fyrir Makaritsjef frá Sovétríkjunum.
Áður hafði hann m.a. unnið undra-
barnið Gata Kamskíj, sem er land-
flótta Sovétmaður í Bandaríkjunum.
Helgi Ólafsson tapaði í gær fyrir
Maju Tsjiburdanidze, heimsmeistara
kvenna, en hafði áður m.a. unnið
júgóslavneska stórmeistarann Glig-
oric.
DAGAR
TIL JÓLA
þessu máli áhuga, en samt ekki séð
sér fært að koma reglum um ökufer-
ilsskrá fram. Það er eins og menn
þori ekki að taka á þessu máli. Þetta
mál hefur tekið of langan tíma. Það
er betra að fá nei, heldur en að
halda svona áfram,“ sagði Böðvar.
Óli Þórðarson og Sigurður Helga-
son hjá Umferðarráði, ásamt Ómari
Smára Ármannssyni, lögreglu-
manni, hafa myndað starfsmanna-
hóp, sem hefur unnið tillögurnar um
ökuferilsskrá. Unnið hefur verið eft-
ir erlendri fyrirmynd. Aðallega hafa
þeir horft til hugmynda Norðmanna
og V-Þjóðveija.
Þeir sögðust strax hafa stefnt að
því að hafa reglurnar einfaldar. Þó
svo að þetta kerfi yrði tekið upp,
yrði áfram tekið hart á ofsaakstri
og ölvunarakstri.
Kerfið byggist upp á að öll um-
ferðarlagabrot einstaklings eru
skráð inn á tölvuskrá. Ef til dæmis
sami ökumaðurinn yrði fundinn sek-
ur um að bijóta þrisvar sinnum
umferðarlagareglur, yrði hann kall-
aður til viðtals. Ef það gengi ekki
og ökumaðurinn myndi aftur verða
sekur um umferðarlagabrot, yrði
hann kallaður í hæfnispróf og síðan
kæmi til þess að ökumaðurinn yrði
látinn gangast aftur undir ökupróf.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Jólaleyfi
frá Múlagöngum
Jarðgangamenn í Ólafsfjarðarmúla taka jólaleyfi í dag og hvíla sig
frá gangagerðinni til 7. janúar næstkomandi. Þeir eru komnir 2.680
metra inn í fjallið og eiga þá eftir 460 metra til að ná í gegn. Myndin
er tekin þegar verið er að koma sprengihleðslum fyrir í berginu, en
að jafnaði er sprengt þrisvar á dag.
Sjá Akureyrarsíðu á bls. 44.
Raufarhöfii:
400 þúsund í
stað 4 millj.
í tekjur af
loðnuvertíð
Raufarhöfn.
LOÐNUVERTÍÐ fór með seinna
móti í gang á Raufarhöfh. Haust-
vertíðin 1988 hófst með því að
Albert GK landaði 26. október,
síðan hófst ekki löndun fyrir al-
vöru fyrr en 18 nóvember og stóð
til 17. désember, eða með öðrum
orðum í einn mánuð, á því tíma-
bili voru 46 landanir og gáfii
25.162,833 eða til jafnaðar 547
tonn i löndunum.
Á yfirstandandi vertíð hófst lönd-
un 7. desember og kl. 18.00 13.
desember eru komin í land
2.284,544 tonn í 10 löndunum.
Fyrir svona lítið sveitarfélag hefur
þetta ákaflega mikla þýðingu eins
og sjá má af því að þessi eini mán-
uður á síðustu haustvertíð gefur
sveitarfélaginu um það bil 4 milljón-
ir í tekjur af landaðri loðnu, út-
fluttum loðnuafurðum og öðrum
gjöldum þeim rekstri tengdum. En
í dag eru þessar tekjur sveitarfélag-
anna kannski um 400 þús. kr. og
fjórir sólarhringar eftir til jafn-
lengdar á síðustu haustvertíð. En
þrátt fyrir þessa tregðu á loðnuveið-
um enn sem komið er, erum við
bjartsýn á að úr rætist áður en langt
um líður.
— Helgi
Loðnuleiðangurinn:
Höfum fundið hrygning-
argönguna við Kolbeinsey
- segir Sveinn Sveinbjörnsson, leiðangursstjóri á Bjarna Sæmundssyni
„VIÐ erum að lóna hérna inni á
eins konar isbug nokkrar mílur
til vesturs og norðvesturs frá
Kolbeinseynni og höfum fundið
töluvert af góðri loðnu. Hve mik-
ið veit ég ekki, því mælingum
er ólokið og ísinn hindrar okkur
líka, en það er óhætt að segja
að við höfum fundið hrygningar-
göngu. Þetta er tveggja ára
loðna, eðlileg að stærð og fitu,
eða um 50% þyngri en sú, sem
við fundum áður við Kolbeins-
eyna,“ sagði Sveinn Sveinbjörns-
son, Ieiðangurssljóri á Bjarna
Sæmundssyni, í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Sveinn sagði, að loðnan stæði
anzi djúpt, væri ekki veiðanleg
vegna þess. Það væri meira lag-
skiptuf sjór en tunglskin, sem ylli
því. Yfirborð sjávarins á þessum
slóðum væri jökulkalt, undir frost-
marki, en 25 metrum neðar væri
svo hlýsjávarlag, 5 gráðu heitt, og
næði það allt niður á 150 til 200
metra. Þar fyrir neðan væri svo
aftur kaldari sjór, sem hentaði loðn-
unni, en hlýsjórinn virtist halda
henni niðri. Þegar loðnan gengi
austur, breyttust aðstæður væntan-
lega til hins betra og því mætti
segja að mun bjartara væri yfir
veiðunum en áður. Hann sagði, að
leiðangrinum lyki í síðasta lagi þann
20. þessa mánaðar og lægju þá
nánari upplýsingar fyrir um hugs-
anlega stærð göngunnar.
Lítið var um að vera á loðnumið-
unum síðastliðna nótt. Tunglskin
var fram á morgun, en loks þykkn-
aði í lofti um klukkan 6.30. Það
reyndist ekki nægur tími fram að
birtingu til að veiði yrði að nokkru
marki. Beitir fór í gærmorgun til
Neskaupstaðar með 200 tonn, en
kvöldið áður fór Helga II til Siglu-
fjarðar með um 1.000 tonn. Heild-
araflinn er nú um 45.500 tonn.
Mestan afla hefur Helga II fengið,
3.600 tonn. Þrír bátar hafa náð
meiru en 2.000 tonnum. Það eru
Hilmir með 2.923, Skarðsvík með
2.909 og Bjarni Ólafsson 2.772
tonn.
Það er margt, sem ræður mögu-
legum afla. Sum skipanna eru búin
afar fullkomnum tækjum, sem gera
skipstjórum kleift að sjá á skjá í
brúnni hvernig loðnutorfan hegðar
sér í sjónum og hvemig nótin vinn-
ur. Dýpt nótarinnar er þó talin hafa
úrslitaáhrifin, meðan loðnan stend-
ur djúpt.
Fjármálaráðherra um stjórn Borgarspítala:
Kemur til greina að fresta
gildistöku laganna um ár
Málflutningur ráðherra byggður á
ósannindum, segir borgarstjóri
ÓLAFUR Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra segist telja að það
komi til greina að fresta í eitt ár
gildistöku ákvæða frumvarps um
heilsugæzlu, sem nú er í með-
förum Alþingis, að því er varði
stjórn heilbrigðisstofnana í
Reykjavík. Árið verði síðan notað
til að komast að samkomulagi um
málið. Borgaryfirvöld hafa and-
mælt þeirri ráðagerð frumvarps-
ins að ríkið yfirtaki stjórn Borg-
arspítalans, þar sem hann sé í
eigu Reykvíkinga.
Fjármálaráðherra segir að það sé
misskilningur að ríkið hafi verið að
sækjast eftir því að hafa rekstur og
yfirstjórn spítalanna með höndum.
Ónnur sveitarfélög hafi verið mjög
ánægð með þessa skipan mála, og
því skuli lög um stjórn sjúkrahúsa
taka gildi annars staðar en í
Reykjavík.
Davíð Oddsson borgarstjóri segir
að fjármálaráðherra fari með ósann-
indi; Borgarspítalinn hafi verið sett-
ur á föst fjárlög í óþökk borgaryfir-
valda árið 1986. Borgarstjóri segir
jafnframt að aldrei hafi verið samið
um stjórnir sjúkrahúsa í viðræðum
ríkis og sveitarfélaga um verka-
skipti. Það sé meginatriði í verka-
skiptingu ríkis og sveitarfélaga að
samið sé um hana og sjálfstæði
beggja aðila virt.
Sjá greln eftir borgarstjóra og
frásögn i miðopnu.