Morgunblaðið - 15.12.1989, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1989
paöeru ura 14ir i n e8 "om hc
** Lgffl ég skriíPVnar hrameí" bðrnin
Ötó1* á Barálta
■im írá útlöndum
voru í skóla
Ir,stég ekkigeta
Hebu og íjölmíðíar
ogvið(aiviðhana
Skjaldborg
Hér er á ferö örlagasaga íslenskrar konu, Hebu Jónsdóttur, sem giftist einum
af núverandi sendiherrum íslenska lýðveldisins, Tómasi Á. Tómassyni.
Hjónabandsárin reyndust þrautaganga með stuttum og stopulum sólskins-
stundum. Heba segir frá íslensku untanríkisþjónustunni og þá sérstaklega
þeirri hlið sem almenningur ekki þekkir. Heba hefur fyrir löngu ákveðið að
segja sögu sína og telur að meö því aö segja sann-
leikann geri hún þjóðfélagslegt gagn. Hún
hlifir engum, heldur ekki sjálfri sér.
Áhrifamikil bók sem lætur eng-
an í friði.
— ~~~———________ ——
^9 ©•* hvergi smevlr^
s?gir Heba JónsdótHr um h • ™
Lýsir
írum
var
,Pað er alltof mii, a
gi Og láii troA> á L“I?.Það að konur
minn. Ég fékk ekknr, - • *'r trQ
óréltlæij
----— Bss®SSSKiS
-—V.WU* ,„,nn er ^ J 'ettiaeti stód í mörg ár
herra á fclandi og það yoru engjXfa'JW meðal JLp
—------------ ngln '°8 sem vemduðu réli
. ve'<JU
hV| þarna eru
Ármúla 23-108 Reykjavík
Símar: 6724 00
67 24 01
31599
| Skjaldborg
Gott smjör með fiski og kjöti.
Smjör með fiski
og kjöti
Heimilishorn
Bergljót Ingólfsdóttir
Smjör með fiski og kjöti
Það er gott að blanda kryddi
eða kryddjurtum í smjör sem hafa
á með fiski og kjöti, ekki síst ef
glóðarsteikt er. Smjörið þarf að
vera mjúkt þegar sett er saman
við það krydd, en gott er að setja
smjörið svo í álpappír, vefja utan
um svo úr verði pylsa. Þessu er
síðan stungið í frysti smástund
eða geymt í kæliskáp þar til það
harðnar og þá er hægt að skera
það í sneiðar.
Smjörsneið sæmilega þykk, sett
á sítrónusneið er t.d. ekki amalegt
viðbit með steiktum fiski.
En hér koma nokkrar tillögur:
Franskt smjör
200 g smjör
4 msk. brytjuð steinselja
2 msk. brytfaður graslaukur
4 msk. dill
Chilismjör
200 g smjör
5 msk. chilisósa
'!i tsk. paprikuduft
Herragarðssmjör
200 g smjör
’A græn paprika skorin í bita
'A rauð paprika skorin í bita
2 tsk. milt sinnep
2 msk. brytjuð steinselja
Sósa á salatið
Það er kunnara en frá þurfi
að segja' að gott grænmetissalat
verður enn betra með góðri sósu.
Til eru margar tilbúnar sósur
á flöskum og getur verið gott til
þeirra að grípa þegar þannig
stendur á.
En það er bæði gaman og oft-
ast ódýrara að búa til salatsósuna
heima. Með fylgja nokkrartillögur
ólíkrar gerðar, og það er hægt
að hafa salatið með einni sósunni
í dag og annarri á morgun.
Sinnepssósa
1 dl majones
1 dl sýrður ijómi
1 msk. sítrónusafi
1-2 msk. sinnep
2 msk. sykur
Majonesi og sýrðum ijóma
hrært saman, bragðbætt að
smekk með sítrónusafa, sinnepi
og sykri.
Frönsk salatsósa
3 msk. olía
1 msk. vínedik eða sítrónusafi
1 tsk. sinnep
2 tsk. sykur
salt og pipar eftir smekk
Þetta er hrist eða hrært saman.
Bragðbætt að smekk.
„Þúsund eyja sósa“
(Thousand Island)
2 dl majones
1 dl hrein jógúrt
2 msk. tómatsósa (venjuleg)
2 tsk. sítrónusafi
1 msk. sykur
nokkrir dropar „tabasco“ sósa
Majonesi og jógúrt blandað
saman, bragðbætt með tómats-
ósu, sítrónusafa, sykri og tabas-
co-sósu.
Kavíarsósa
1 dl majones
1 dl sýrður ijómi
2 msk. smátt brytjaður laukur
1 harðsoðið egg, brytjað smátt
1-2 msk. kavíar
Majonesi og ijóma blandað
saman, laukur og egg sett saman
við og að lokum er kavíar settur
út í.
Jógúrtsósa
2 dl hrein jógúrt
1 hvítlauksrif
1 msk. sykur
graslaukur
dill
Ollu blandað saman, hvítlauk-
urinn kreistur yfir, sykri blandað
saman við, bragðbætt að smekk.
■ SÝNING í BERGLIST-
Landslagsmyndir eftir Öldu
Sveinsdóttur eru sýndar í verslun-
inni Berglist Laugavegi 11 fram
að jólum. Alda hefúr lokið prófi frá
Myndlista- og handíðaskóla íslands.
Hún hefur haldið fjórar einkasýn-
ingar og tekið þátt í nokkrum sam-
sýningum.
■ KIRKJA AÐVENTISTA-
Ungmennafélag aðventista sér um
aðventukvöld í kirkju safnaðarins í
Ingólfsstræti 19 í kvöld, föstudags-
kvöld, og hefst dagskráin klukkan
20. Meðal annars verður flutt tón-
list, jólalög sungin og ljóð lesin.
■ MEXÍKANSKUR DAGUR-
Félag spænskunema og spænsku-
deildin í Háskóla íslands standa
fyrir mexíkönskum degi í Háskólan-
um í dag, föstudag. Lúís Comez,
lektor við Mexíkóháskóla, heldur
fyrirlestur um Mexíkó og honum
til aðstoðar verður Sigurður Hjart-
arson. Fyrirlesturinn verður í stofu
422 í Arnagarði og hefst klukkan
16. Mexíkönsk veisla hefst í Stúd-
entakjallaranum klukkan 19.30.