Morgunblaðið - 15.12.1989, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 15.12.1989, Blaðsíða 34
 MQSftU ERMtötfl- [198^ ; VERÐBREYTINGAR- STUÐULL FYRIRÁRIÐ 1989 Samkvæmt ákvæöum 26. gr. laga nr. 7514. september 1981 um tekjuskatt og eignarskatt hefur ríkisskattstjóri reiknað verðbreytingarstuðul fyrir árið 1989 og nemur hann 1,2224 miðað við 1,0000 á árinu 1988. ----------------------:----f .. Reykjavík 27. nóvember 1989 RSK RÍKISSKATTSTJÓRI GOMSÆTT OGGOTT (ÓMSÆTT OG GOTT er afar áhuga- I verð og holl lesning öllum þeim sem unna góðum mat og góðri heilsu. í bókinni er að finna gómsæta forrétti, aðalrétti og ábætisrétti og íylgir litmynd hverjum þeirra. Bókin er sett upp á þann hátt að raða má myndunum saman og sjá þannig fyrir sér girnilegan þrírétta matseðil... i ótal útgáfum. SETBERG Metsölublaó á hverjum degi! íslenska hljómsveitín og stjórnandinn Guðmundur Emilsson. íslenska hljómsveit- in í Langholtskirkju ÍSLENSKA hljómsveitin heldur sína aðra tónleika á níunda starfsári í Langholtskirkju laugardaginn 16. desember kl. 17. Á tónleikunum kemur fram 22 manna strengjasveit, sem leikur undir stjórn Guðmundar Emils- sonar. Á efnisskrá er verðlauna- verkið Poemi eftir Hafliða Hallgr- ímsson, þar sem Guðný Guð- mundsdóttir, konsejtmeistari Sin- fóníuhljómsveitar íslands, leikur einleik á fiðlu. Þar verður einnig flutt Fantasía fyrir stengjasveit eftir Ralph Vaughan-Williams, en þetta sígilda verk byggir á stefi enska endurreisnartónskáldsins Thomas Tallis. Þá flytur hljóm- sveitin Elegíu eftir ungt finnskt tönskáld, Jyrki Linjama, sem ný- verið hefur vakið athygli finnskra tónlistarunnenda, en Linjama þykir sérstaklega næmur á blæ- brigði strengjahljóðfæra. Þetta verk er óður tónskáldsins til fiðl- unnar. Örlagasaga Gísla Guðmundssonar: Vekur forvitni um það sem ósagt er - segir Þorsteinn Antonsson rithöfimdur ÖRLAGASAGA heitír bók, sem út kemur hjá bókaútgáfunni Tákni fyrir jólin. Form bókarinnar er nokkuð sérstætt. Hún er byggð á dagbókum og bréfum tveggja skólapilta í Lærða skólanum í Reykjavík og síðar Hafnarstúdenta, þeirra Gísla Guðmundssonar og Ólafs Davíðssonar, sem uppi voru á seinni hluta síðustu aldar. Eink- um er stuðzt við rit þess fyrrnefnda. Bókarhöfundur, Þorsteinn Antonsson, fyllir hins vegar í eyðurnar með frásögnum af bæjar- og skólalífi í Reykjavík og Kaupmannahöih. Niðurstaðan verður heildstæð mynd af lífi tveggja ungra 19. aldarmanna. „Það, sem rak mig til að skrifa bókina, var fyrst og fremst forvitni um efnið, sem ég rakst á af tilvilj- un. Eg var með þeim fyrstu, sem sáu pappíra Gísla Guðmundssonar þegar þeim var skilað úr einkaeigu til handritadeildar Landsbókasafns- ins,“ sagði Þorsteinn Antonsson í spjalli við Morgunblaðið. „Það, sem gerir dagbækur Gísla sérstakar, er að hann nær í mínum augum þeim árangri, sem flestir dagbókarskrif- arar sækjast eftir; að skrifa líflegar lýsingar á nánasta umhverfi sínu. Gísli reynir að vera trúr sjálfum sér í skrifum sínum og honum tekst það, en undir þeim aga að vekur forvitni um það, sem ósagt er.“ Þorsteinn segist hafa reynt að fylla í eyðurnar milli dagbókarbrota Gísla og hafa athugað hvað skrifað hafi verið um hann. „Þau stuttara- legu skrif, sem ég fann, enduðu öll á spurningarmerki. Einhvern veg- inn fórust Gísli og samtíðaratburðir á mis, þótt hann virtist hafa alla burði til að takast á við þá,“ sagði Þorsteinn. Gísli Guðmundsson fyrir- fór sér að lokum, en hélt dagbók allt fram á síðustu ævistundir og virðist hafa sýnt einstakt æðruleysi og rósemi. Þorsteinn segir að sér vitanlega nafi ekki verið mikið skrifað um Hafnarstúdenta. Til séu bréf þeirra og bók Bjöms Th. Björnssonar. Um sögulegar skáldsögur íslenzkar seg- ir Þorsteinn að yfirleitt séu þær skrifaðar af skáldlegum metnaði, án þess að endilega sé lagt mikið upp úr því að hafa staðreyndir á hreinu. „Ég reyndi að efna til sög- unnar með staðreyndum og ná- kvæmnislýsingum manna frá þess- um tíma og draga svo upp heillega mynd bæði af lífi þeirra fáu út- völdu, sem ég fjalla um, og um leið þeirri tíð, sem þeir lifðu á. Til þess að ná þeim árangri varð ég að efna til bókarinnar með mikilli heimilda- leit á öllum söfnum í Reykjavík og Kaupmannahöfn sem varðveita slík rit,“ sagði Þorsteinn. Hann segir verkið hafa tekið rúm þijú ár; hann Samkvæmt upplýsingum frá Guðmundi Vigni Jósefssyni gjald- heimtustjóra er þetta svipað inn- heimtuhlutfall og á síðasta ári. Allt árið í fyrra innheimtust um 11.000 milljónir króna hjá Gjaldheimtunni í Reykjavík af staðgreiðslusköttum. Um síðustu áramót voru eftirstöðv- ar vegna staðgreiðslu 1988 um 250 milljónir króna. Upphæðir eru með Þorsteinn Antonsson. hafi fengið rit Gísla í hendur í marz árið 1986. Verkið hafi verið honum eins konar leiðarhnoða, en hann hafi unnið önnur störf jafn- framt. Þorsteinn segir að lifandi stíll og persónulýsingar Gísla Guðmunds- sonar hafi orðið honum freisting að koma þessu efni til skila. Hann telur að það hafi Gísli ætlað sér, þrátt fyrir að hann hafi fyrir dauða sinn beðið Hannes Hafstein að brenna plögg sín. „Sem betur fer sá Hannes hvers virði þau voru,“ sagði Þorsteinn. áreiknuðum vöxtum. Innheimta á eftirágreiddum sköttum er heldur lakari í Reykjavík nú en á fyrri árum. Álagning utan staðgreiðslu á félög og einstaklinga var um 9.000 milljónir króna á ár- inu en um síðustu mánaðarmót höfðu innheimtst rúmar 5.000 millj- ónir eða 56%. Innheimta á sama tíma í fyrra nam um 57%. Gjaldheimtan í Reykjavík: Innheimta á stað- greiðslusköttum nemur 12 milljörðum INNHEIMTA á staðgreiðslusköttum þessa árs hjá Gjáldheimtu Reykjavíkur nemur nú um 12.000 milljónum króna. Um 400 milljón- ir af staðgreiðslufé eru í vanskilum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.