Morgunblaðið - 15.12.1989, Side 12

Morgunblaðið - 15.12.1989, Side 12
eset .aaaMaaaa ,ði auoAauTaöa aiaAjaviuoaoM MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1989 íslensk orgelsmíði ________Tónlist___________ Jón Ásgeirsson Ekki fer mikið fyrir hljóðfæra- smíði í sögu íslenskrar tónlistar og viðgerðir á þeim fáu hljóð- færum sem fyrr á tímum voru flutt til landsins, voru unnar af mönnum sem lítið kunnu fyrir sér um smíði hijóðfæra. Þegar innflutningur á „harmoníum- orgelum" hófst tóku ýmsir til við smíði slíkra hljóðfæra en pípu- orgel voru hins vegar mjög fá í landinu og það er ekki fyrr en á síðustu áratugum að slík orgel eru sett upp í kirkjum utan helstu þéttbýliskjama landsins. Það vantar að rita sögu hljóð- færasmíði á þessari öld, því þar í er ýmislegt að finna og margir merkir menn lagt hönd að verki, bæði til viðgerða og það sem ótrúlegra kann að virðast, við smíði nýrra hljóðfæra og jafnvel Ragnar Björnsson uppfinninga nýrra hljóðfærateg- unda. Þá er flökkusaga einstakra hljóðfæra sérkennileg, sem vel Barokktónleikar Robyn Koh semballeikari og Robin Canter óbóleikari stóðu fyrir sérstæðum tónleikum í Kristskirkju á föstudaginn var. Á efnisskránni voru verk eftir Handel, Couperin, Bach-feðgana og D. Scarlatti. Robyn Koh lék sónötu eftir C.P.E. Bach og þijár æfingar eftir D. Scarlatti. Koh hefur ágæta tækni er naut sín einkar vel í einsþátta sónötunum (æfingunum) eftir Scarlatti og alveg sérstaklega í c-moll-sónö- tunni (Kirkpatrick — 115), sem var glæsilega útfærð. Robin Canter er mikill óbóleik- ari. Því miður heyrði undirritaður ekki þá tónleika, þar sem hann sýndi leikni sína á nútíma-óbó, en á tónleikunum í Kristskirkju lék hann á barokk-óbó verk eftir Handel, Couperin og tvær g- moll-sónötur eftir þá Bach feðga. H-moll-sónatan sem þekkt er fyrir flautu og sembal og talin samin 1738 er til í eldri gerð, í blokk-flautu og telja sagnfræð- ingar, að sú gerð sé samin átta árum fyrr en flautusónatan. Nokkur munur er á þessum verk- um, einkum er varðar sólórödd- ina og hljómar þeim sem vanir eru flautugerðinni sem eitthvað vangert og hálfunnið. Canter er mikill óbóleikari en hann átti samt í erfiðleikum með sónötuna eftir Johann Sebastían, einkum í síðasta þættinum. Að leika á barokk-óbó er líklega meira til að sýna tónleikagestum söguna með lifandi dæmum en að leika tónverkin eins vel ög hægt er, því hljóðfærið er mjög erfitt hvað snertir tónstöðu og tæknileik, miðað við óbóin í dag. Þetta kom einkum fram í síðasta verkefninu og víða í fyrri verkunum á ein- staka tónum, sem trúlega er mjög erfitt að leika með öðrum hætti. Samleikur Kohs og Canters var á köflum góður, en samt er eins og Koh hafi tilhneigingu til að keyra verkin áfram, enda er hún sérlega kraftmikill hljóð- færaleikari. mætti hafa af nokkra lestrar- skemmtan, svo að þama er að hafa bæði efni til fróðleiks og gamans. I dag starfa nokkrir kunnandi menn um hljóðfærasmíði og einn þeirra er Ketill Siguijónsson. Um síðustu helgi var tekið í notkun tíu radda pípuorgel sem hann hefur hannað og smíðað. Orgelið er fallegasta smíð en Nýi tónlist- arskólinn festi kaup á þessum íslenska smíðisgrip og það var skólastjóri skólans, Ragnar Bjömsson, orgelleikari, sem vígði orgelið með nokkmm verk- um eftir J.S. Bach og umritun meistarans á a-moll konsertinum eftir Vivaldi. Fyrst á efnisskránni vora átta sálmforleikir, sem allir tengjast jólunum, þá tríósónatan í Es-dúr og síðast a-moll konsertinn eftir Vivaldi. Fyrir tónleikana fræddi orgelsmiðurinn, Ketill Siguijóns- son, áheyrendur lítillega um hljóðfærið, formgerð og radd- skipan, en af því sem áhugamað- ur getur dæmt af hljóman orgels- ins, er þetta gott hljóðfæri. Leikur Ragnars Bjömssonar var öraggur enda hefur hann leikið þessi verk oft, bæði á tón- leikum og við guðsþjónustur, þó í flestum tilfellum hafi hann þá leikið á stærri hljóðfæri. Sálm- forleikimir era ótrúlega fjöl- breytilegar tónsmíðar og þarna gat að heyra Nun kommt der Heiden Heiland, Gottes Sohn ist kommen og Herr Gott nun sei gepreiset, sem era aðventufor- leikir, Puer natus, Der Tag, Von Himmel hoch, Vom Himmel kam og In dulci jubilo, sem era jóla- forleikir og vora öll verkin fal- lega útfærð. Sálmforleikirnir, tríósónatan og a-moll konsertinn era leikur með raddskipan en ekki verk þar sem þruginn hljóm- ur orgelsins er nýttur til fulls og hefur Ragnar eflaust valið verkin með hliðsjón af gerð og hljómþoli orgelsins, sem naut sín einkar vel í tríósónötunni. Þó ekki færi mikið fyrir þess- um tónleikum í fjölmiðlum var þama um að ræða nokkurn við- burð, sem vel mætti huga að og styðja við til frekara framhalds. Skáldsaga eftir Þorvarð Helgason ÚT ER komin ný skáldsaga eftir Þorvarð Helgason, rithöfúnd, „Svíða sands augu“, en hún ber einnig undirtitilinn Eyðimerkur- gangan. Útgefandi er Fjölva- Vasaútgáfan. I kynningu útgefanda segir m.a.: „Skáldsaga Þorvarðar er sérkenni- leg samtenging tilveruhugmynda og táknræns merkingarmáls. Hún gerist ef til vill úti í eyðimerkur- sandinum undir brennandi hitabelt- issól, þar sem hrikalegir atburðir era á seyði í borgarastyijöld innan hins nýfijálsa ríkis. En ef til vill er þetta fyrst og fremst táknræn lýsing á eyðimerkurgöngu mann- kynsins. Söguhetjan veltir stöðugt fyrir sér við hinar ólíkustu aðstæður spurningunni — Er ég eða ekki, — en líka — Til hvers er ég eða ekki? En í táknrænu munstri sögunnar er þessi spurning einstaklingsins líka spurning heilla þjóða, þar sem svaladrykkur frelsisins verður gör- óttur og eftir ákafa hríð virðist sög- unni ljúka í vantrú og efa — lík söguhetjunnar finnst illa leikið í skurði við fjallveg í Suður-Ameríku, en er það söguhetjan eða vonir mannkynsins sem eru myrt?“ Þorvarður Helgason Bókin er 216 blaðsíður að stærð. Sigrid Valtingojer gerði kápumynd. Hún er prentuð í Prentstofu G. Benediktssonar og bundin í Amar- felli. Ljóðábók eftir Pjet- ur Hafstein Lárusson BÓKAÚTGÁFAN Iðunn helur gefið út nýja ljóðabók eftir Pjet- ur Hafstein Lárusson skáld, og nefnist hún Bláknöttur dansar. í kynningu Iðunnar segir: „Pjetur hefur áður sent frá sér nokkrar ljóðabækur. Hin nýja bók sýnir vax- andi vald hans á myndríkum ljóðstíl. Bókin skiptist í þrjá kafla. í hinum fyrsta era átján Reykjavíkurljóð, svipmyndir úr borginni. Þar skipt- ast á skýrar myndir kunnuglegs umhverfis annars vegar, með tilvís- un til almæltra tíðinda, og hins vegar einkalegar skynmyndir og hugsýnir. í öðrum hluta eru nokkur stutt ljóð, öguð og meitluð. í þriðja hluta bókarinnar era sex svip- myndir frá Café Norra Klara í Stokkhólmi. Höfundur hefur búið þar í borg síðustu ár. Pjetur Haf- stein nær sér vel niðri í þessum ljóð- Pjetur Hafstein Lárusson um. í hrjúfum gripum hans má heyra persónulegan tón og tjáning- arhátt. Hér er á ferðinni skáld sem kemur við lesandann." Krn- «9 taraa- fatnaðar T9erslunin EmblA ‘féáú#Aéi£<í Úrval af sœlgœti og konfekti. Allt i jólamatinn. Verslunin Strandgötu 28, símar 50844 - 50159. STRANDGATAN HAFNARFIRÐI Verslun og þjónusta. Verið velkomin. Miðbæjarsamtökin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.