Morgunblaðið - 15.12.1989, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 15.12.1989, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1989 Tvær hljómsnældur Bókmenntir Sigurður Haukur Guðjónsson Lesari: Heiðdís Norðfjörð. Tónlist: Gunnar Gunnarsson. Myndskreyting: Bjarni Jónsson. Upptaka: Björn Sigmundsson. Utgefandi: Hörpuútgáfan. Kannske er það fyrst þá, er við röltum inní kvöldhúm ævinnar með spurnina: Hvað gafst mér fegurst líf?, að okkur verður ljóst, hvers sá fer á mis, sem ekki hefir setið á rúmstokki barns og glímt þar við gátur lífsins með því. Önn og erill dagsins hefir kannske fært þér ver- aldarauð gildan, mikinn, en hann er þó þeirrar náttúru, að hann léttist og endar í hismi einu sem golan feyk- ir frá þér, þá þú, að leiðarlokum, situr og skoðar gullin þín dýrust. Þá eru það aðeins gjafir þínar til lífsins, ' fræ þín á vorvelli þess, sem nokkru máli skipta, þær gjafir sem eru born- ar í hjörtum móti morgnum nýrra daga. Til að hjálpa þér að eignast sann- ar stundir réttir Hörpuútgáfan þér hönd og segir: Eg skal leiða þig af _stað. Og útgáfan sendir þér tvær hljóðsnældur með ævintýrum fyrir börn, svo undurfögrum, að þau munu vekja þér þrá, til þess að kynnast töfraheimi ævintýranna betur. Þetta eru ekki hol „ævintýri" skemmtana- iðnaðarins, heldur spekimál slípuð og fáguð af hjartslætti kynslóðanna, lesin á hrífandi hátt af Heiðdísi Norð- fjörð. Fyrri snældan nefnist Sögur fyrir svefninn. Sjö ævintýr, áskorun til bama um að leggja sig fram um að ná taktstigi við grógeisla lífsins í faðmi sköpunarinnar, sýna kærleik manni og dýri. Launin eru sátt við bijóst sitt, hamingjan. Lesarinn skýr- ir það sem hann álítur ungum tor- melt, og vaggar barninu síðan inn í draumheim á bænavæng, þar sem þakklætið fyrir lífið er undirtónninn. Hins sakna eg, að aðeins í tvígang er sagt, hvar þessar perlur, ævintýr- in, eru slípuð og aldrei, hver snaraði þeim á svo undur fagurt mál. Síðari snældan eru Jólasögur. Sög- urnar eru allar tengdar hinni helgu nótt, lofsöngvar trúaðra sálna. Und- ur, aldahvörf speglast í hugum barna, þar sem kærleikur hefir enn ekki verið rekinn á dyr. Þessi snælda er flestum predikunum, er eg hefi heyrt, fegri. En, sem á hinni fyrri snældunni, sakna eg, hvaðan eru þessar sögur komnar? Hver samdi þær? Hver snaraði þeim á íslenzku? Eg skora á útgáfuna að bæta hér um, með greinargerð, því að spá mín er, að margan muni fýsa að vita. Þessar snældur verða spilaðar á mörgum heimilum, ekki einu sinni, heldur aftur og aftur til gleði og þroska ungum börnum. Ungum börn- Bókmenntir Jóhanna Kristjónsdóttir Herbjörg Wassmo: Þögla herbergið Hannes Sigfússon íslenskaði Útg. Mál og menning 1989 Hér er á ferð önnur þriggja bóka Herbjargar Wassmo unrstúlkukornið Þóru sem elst upp á lítilli eyju undan Noregsströnd. Hún býr við ástleysi móðurinnar, illvilja umhverfisins vegna uppruna síns og kynferðislega áreitni stjúpföðurins. Þegar fyrstu bók lauk hafði stjúpföðurnum verið stungið inn fyrir íkveikju. Því er að vænta að stúlkan litla geti jafnað sig. Eða hvað. Háskinn og öryggisleysi margra ára verður þó varla þurrkað út. Aug- Heiðdís Norðfjörð um, sagði eg, ævintýrin sönnu eru aldrei fyrir þau ein. Eg, gamlinginn, naut þeirra vissulega líka, finnst vorið leika um mig eftir. Öll tæknivinna frábærlega vel gerð. Hafi útgáfan þökk fyrir, og mætt- um við fá meira að heyra. ljóslega er þeim mæðgum léttara um hjartað, enda hefur stjúpfaðirinn lamið konu sína eins og harðfisk. En beiskja og þyngsli konunnar verða ekki upprætt og angist telp- unnar og sektarkennd veldur ókyrrð í sálinni. Sektarkenndin kemur sömuleiðis í veg fyrir að þær mæðg- ur nái nokkurn tíma saman. Samt rofar til smám saman og það er líkt og Þóra upplifi óveðurs- nóttina á eynni þegar náttúruöflin svona allt að því ganga af vitinu. Hún er í bráðri lífshættu um hríð og nándin við þann háska verður henni hreinsun, endurlausn að mínum dómi. Risaskötunni tekst ekki að ljósta hana. Samt er grunnt á skelfingunni — þegar hún tekur að sér heimili frænku sinnar ímyndar hún sér eina stund að maður hennar Inni í háskanum Grallaraspóar og- gott fólk Bókmenntir Sigurður Haukur Guðjónsson Höfúndur: Guðjón Sveinsson. Myndir og hönnun: Pétur Belir- ens. Prentun: Prentverk Odds Björns- sonar. Útgefandi: Bókaforlag Odds Björnssonar. Þetta eru 6 hrífandi sögur. Það tengir þær ailar, hve undurhlýtt höfundi er til bárna, þrá hans sterk að styðja þau í klifinu upp þrosk- ans, fjall, og því réttir hann þeim aðeins þau gull, er hann telur feg- urst. Það annað er sameiginlegt með þeim öllum, hve fundvís hann er á tilburði okkar við að sýnast menn, alvara og glettni haldast í hendur. Nú svo skulum við ekki gleyma stíinum leikandi léttum, málið er kjarnyrt og fagurt, hvetjum sem er holi lesning. Já, hvetjum sem er, því að grunur minn er, að fleirum gaml- ingjum en mér, þyki þetta frábær bók, þekki sjálf sig í myndum henn- ar. Fyrst segir af ungum dreng, Kidda, sem komið hefir verið í sveit. Honum er það mjög í mun að ná hylli drengjanna á bænum. Hann leggur sig allan fram, flaggar þekk- ing er hann veit mesta, kynnum af stjörnuhetjum kvikmynda. Það' end- ist honum skammt, en þá áskotnast honum 100 krónur, og fyrr en varir Herbjörg Wassmo sé ógnvaldurinn uppvakinn. Þóra herðir sig upp og kemst að heintan og í skóla, ekki þó fyrr en stjúpfaðir hennar hefur svívirt hana enn á ný með afdrifaríkum afleiðing- um. Það veit hún ekki þá. Breyting- in sem verður á henni er undurhæg. Loks hefur hún að eigin dómi eign- ast einhvern tilverurétt og finnur að hún ræður við nýja félaga og þetta umhverfi sem er í fyrstu svo fram- andlegt. Þegat’ hún verður þess vísari að hún er ófrísk eftir stjúpann hryn- ur heimurinn nýi, en þó ekki nema til hálfs og með einhveijum ráðum skal hún krafsa sig út úr vandanum. Sú mynd sem höfundur hóf með „Húsið með blindu veröndinni" skýr- ist og meitlast í „Þögla herbergið". Skilningur hennar á viðbrögðum og reynslu stúlkunnar er ótvíræður. Sektarbyrðin er móður og dóttur óbærileg, móðirin hefur að vísu látið svínbeygja sig fyrir löngu og hún á sér varla viðreisnar von. En það er töggur í Þóru og hún mun sennilega komast af. Þýðing Hannesar Sigfússonar er til sóma í orðsins bestu merkingu. Hann nær stíl og stemmningu frum- textans svo að unun er að lesa hann. Ég heiti ísbjörg Ég er lj' Ég heiti ísbjörg • Ég er ljón. Ung stúlka situr í fangelsi fyrir morð á ástmanni sínum. Á tólf stundum rekur hún örlög sín fyrir lögfræðingi. í ritdómi í Morgunblaðinu segir: „Vigdís reynir á þanþol allra skilningarvita okkar í sögu ísbjargar og skilur lesandann eftir í miskunnarlausri óvissu. í óvissu sem er full af grimmd og fegurð.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.