Morgunblaðið - 15.12.1989, Side 23
spyr höfundur: Er vináttu hægt að
kaupa? Hugnr drengsins verður ólg-
andi haf, öldurnar loforð við móður;
skyldan að gera aðeins það sem rétt
er; gamall blindur maður; kvölin að
vera einn, vinlaus. Um sviðið fer
Guðlaug gamla með kýr sínar og
hænsn, svona eins og prófblað. Þetta
er lengsta sagan, bráðvel gerð og
fyndin.
„Siggi var úti“ er næst. Siggi,
strákur í sveit, og heimalningurinn
Gunni, 5 árum yngri, eru orðnir
hundleiðir á rausinu í Guðlaugu
gömlu um heim sem versnandi fer.
Þeir ætla að reka slyðruorðið af
æskufólkinu í eitt skipti fyrir öll.
Halda til seladráps. Ekki fer allt sem
ætlazt er til, og svo reynist hér. Illa
er komið fyrir þeim sem ekki hlær
við lestur þessarar sögu.
Þá er það „Blöðrusláttur". Hér
er það gamansemin ein sem ærslast
um sviðið, og enn fær Guðlaug
gamla að kenna á því.
„Þegar kappar jólastríðsins voru
handteknir" er dæmisaga um það,
hvernig stríðsleikur getur endað í
öðru tvennu, háska eða óvitaskap,
og höfundur leiðir okkur að því
síðara, múgsefjunargjörningnum.
„Bænin hans Nonna“ er um töku-
barnið á bænum Harðbak. Lítill
snáði bindur tryggð við gamlan
dráttarhest. Með bæn bjargar dreng-
urinn lífi vinar síns. Hver lagði við
eyra?
„Bið að heilsa Guðbjörgu" rekur
svo lestina. Bráðsmellin lýsing á
átökum Rauðkolls og Glóbjartar. Og
eins og í sögunum hans Guðjóns,
öllum, þá er það góða sem hefir sig-
ur.
Það er gaman að eiga þess kost
að rétta barni svo frábærar sögur.
Þær eru í sparifötum ritleikni, kímni,
góðvilja, gera því lífið bjartara,
betra.
Myndir Péturs eru frábærar,
virkileg bókarprýði, geisla af fjöri.
Prentun og frágangur allur til fyrir-
myndar.
Hafið þökk fyrir frábæra bók.
Mættum við fá meira að heyra.
■ BÓKASAFN KÓPAVOGS- í
Bókasafni Kópavogs verða sýndar
13 myndir Gunnars R. Bjarnason-
ar tii áramóta. Myndirnar eru mál-
aðar með olíupastellitum á pappír.
Gunnar tók við starfi yfirleikmynd-
arateiknara Þjóðleikhússins árið
1988. Hann var leiktjaldasmiður
hjá Þjóðleikhúsinu 1958-’74 en
starfaði á eigin vinnustofu
1974-’88. Gunnar lærði leiktjalda-
málun í Þjóðleikhúsinu 1953-’56 og
sótti jafnframt námskeið í Mynd-
lista- og handíðaskólanum en hélt
til Svíþjóðar árið 1957 og stundaði
þar nám við Konstfackskolan.
■ GALLERÍ EINN EINN- í
Galleríi einum einum á Skólavörð-
ustíg 4a verður
í dag, föstu-
daginn 15. des-
ember, opnuð
sýning á mál-
verkum, teikn-
ingum, grafík,
höggmyndum
og listmunum
eftir Halldór
Ásgeirsson,
Huldu Hákon,
Árna Ingólfsson og Birgi Andrés-
son. Sýningunni lýkur 23. desem-
ber.
■ MIKLA HOLTSHREPPUR-
Aðventukvöld fyrir sóknir Söðuls-
holtsprestakalls var haldið í Lauga-
gerðisskóla laugardaginn 9. des-
ember síðastliðinn.
Dagskráin hófst með ávarpi séra
Hreins Hákonarsonar sóknarprests.
Þá flutti nemendahljómsveit Tón-
listarskólans í Borgarnesi nokkur
lög undir stjóm Bjöms Leifssonar
skólastjóra Tónlistarskólans.
Danfríður Skarphéðinsdóttir al-
þingismaður fiutti hugvekju og
Guðrún Erlendsdóttir frá Akranesi
söng einsöng við undirleik FVíðu
Lárusdóttur. Fermingarböm fluttu
aðventutexta, ritningarlestur og
bæn með aðstoð sóknarprests. Þá
lék Hafliði Gíslason kennari á gítar
og ungir nemendur sungu með.
Dagskránni lauk með því að Elías
Davíðsson tónlistarkennari í Ól-
afsvík lék á steinaspil.
Gallerí einn einn.
MORGUNBLADID FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1989,,
18
NOTTIN LANGA
,,Bubbi hejur skilað frá sér
athyglisverðri hljómplötu,
sem óhœtt er að telja í hópi
hans bestu. ‘ ‘ — Ásgeir Sverris-
son, Morgunbl.
,,Dœmið gengur upp ... og
kveður við nýjan tón í
íslenskri tónlist. ‘ ‘ — Sigurður
Þór Salvarsson, DV
,,Nóttin Langa verður
sennilega að teljast með
forvitnilegri tilraunum
Bubba. ‘ f — Heimir Már Péturs-
sön, Þjóðviljinn
ERASURE - WILDi
Vince Clarke, (tyrrum meölimur
Depeche Mode og Yazoo), og
Andy Bell eru vinsælasti popp-
dúett Bretlands. Fjóröa plata
þeirra Wild! fór beint í efsta sæti
breiöskífulistans. Meistaralegar
Iagasmíöar og tilfinningaríkur
söngur sameinast í taktfastri,
melódískri og aðlaðandi popptón-
list sem vísar veginn til næsta
áratugar. Inniheldur m.a. smellina
Drama! og You Surround Me.
THE BEATMASTERS -
PIXIES - DOOLITTLE
Hvað er nýtt og ferskt að gerast í
rokkinu? Spuröu félagana. Pixies
er málið. Tvímælalaust ein öflug-
asta og ferskasta rokksveit sem
komið hefur fram á þessum ára-
tug. Ef þér líkar Chuck Berry og
Rolling Stones en villt eitthvað
nýtt, kynntu þér þá Pixies. Doo-
little er ein mest selda rokkplata
þessa árs á íslandi.
1989 er ár danstónlistar. The
Beatmasters eru þar fremstir í
flokki með eina mögnuðustu
dansskífu ársins. Þetta er platan
sem inniheldur m.a. Hiphouse
smellina Hey Dj og Warm Love.
Ómissandi í safniö hjá ryþma-.
þrælum landsins. Kynntu þér
The Beatmasters með því
að hringja í popplínuna 99-
1003!
Í HLJÓMPLÖTU-
VERSUIN GEISLA ER
AD FINNA MESTA
ÚRVAL BÆJARINS AF
RLÚS, SÍGILDU
ROKKI, HEIMSTÚN-
LIST, ÞUNGAROKKI,
OG NÝBYLGJÚ...
LÍTTU VID OG
FINNDU DRAUMA-
SKÍFUNA. ALLTAF
HEITT AKÖNN-
BUBBI - NOTTIN LANGA
YFIR 10.000 EINTÖK SELD
BUBBIÁ FYRSTU
PLATINUM PLÖTU ÁRSINS
NÓTTIN LANGA ERIFYRSTA
SÍETIDV LISTANS
HÁFLÓÐ ERIEFSTA SÆTI
ÍSLENSKA LISTANS
BUBBI - EINFALDLEGA
OKKAR VINSÆLASTI
TÓNLISTARMAÐUR
UNNI
VORUM A0 TAKA UPP
ELDHEITA SENDINGU AF
DANSTÓNLIST FRA
BANDARÍKJUNUHI!
í DESEMBER BJOÐUM VID
10% KYNNINGARAFSLÁTT
AF ÖLLUM PLÖTUM
Í VERSLUN 0KKAR
SNORRABRAUT 29
(VIÐ LAUGAVEG)
SiMI 626029
SENDUM SAMOÆGURS Í PÓSTKRÖFU