Morgunblaðið - 15.12.1989, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1989
31
Bókargjöf
verðs, mælt í erlendri mynt, til þess
að afkoma hennar héldist óbreytt.
Eins og fyrr segir skilar bætt
fiskveiðistjórnun ekki árangri í
einni svipan. Gengishækkun sem
fylgdi hefðbundinni hagstjórn,
kæmi því fram smám saman. E.t.v.
næmi hún um 1 til 2% á ári að jafn-
aði, en með rykkjum og skrykkjum
vegna sviptinga á árferði. Breyting-
arnar á efnahagsumhverfi kæmu
því án þess að eftir þeim yrði tek-
ið. Einmitt þess vegna verður brejrtt
hagstjórn að vera meðvitaður fylgi-
fiskur umbóta í stjórn fiskveiða og
það strax í upphafi.
Einungis með því að taka upp
veiðigjald væri unnt að komast hjá
kollsteypum í hagkerfinu í kjölfar
viðreisnar í sjávarútvegi. Veiði-
gjaldið gæti samsvarað fjórðungi
af aflaverðmæti eftir að árangur
umbótanna hefði náðst. Þar er um
þvílíkar fjárhæðir að ræða að unnt
væri að lækka virðisaukaskatt um
allt að því helming.
Veiðigjald til viðreisnar
Komast verður úr þeirri kreppu
sem þjóðin er í. Þá er ekki verið
að tala um stundarerfiðleika sem
koma og fara, heldur þá misbresti
í hagstjórn sem lýsa sér í því að
nýjar atvinnugreinar eiga erfitt
uppdráttar, sbr. örlög-ullariðnaðar,
loðdýraræktar og laxeldis. Vandinn
á sér að vísu margar rætur, en ein
dýpsta meinsemdin felst í langvar-
andi ofnýtingu fiskistofnanna með
alltof stórum flota. Við henni verður
að snúast með . bættri fiskveiði-
stjórnun. Annar orsakavaldur
kreppunnar er á hinn bóginn sá
ægishjálmur sem sjávarútvegurinn
ber, þrátt fyrir allt, yfir aðra at-
vinnuvegi og gerir þeim ókleift að
þrífast í því umhverfi sem honum
nægir.
Fyrirsögn þessa kafla er „Veiði-
gjald til viðreisnar", en leggja má
út af heitinu viðsnúnu: Viðreisn til
veiðigjalds. Svo virðist sem umbæt-
ur í efnahagsstjórn verði á tíu ára
fresti. Þær hófust fyrir réttum
þremur áratugum þegar viðreisnar-
stjórnin svonefnda bylti grundvelli
gengisskráningar pg afnam um leið
innflutningshöft. Aratug síðar gekk
ísland í Fríverslunarsamtök Evr-
ópu, EFTA. Næsta skref var stigið
fyrir áratug, þegar komið var á
verðtryggingu fjárskuldbindinga og
síðar markaðsvöxtum. Nú, í lok
níunda áratugs aldarinnar, er biýn
þörf á fjórða átakinu: Varanlegu
aflakvótakerfi samhliða gjaidtöku
fyrír veiðileyfi.
Höfundur er prófessor við
raunvísindadeild Háskóians.
r >v
S^mora/
AUÐSTILLT
MORATEMP blöndunar-
tækin eru með auðveldri
einnar handar stillingu á
hitastigi og vatnsmagni.
MORA sænsk gæðavara
fyrir íslenskar aðstæður.
Fást í byggingavöruverslunum.
ríriaj
^ meiri ánægja^
eftirBjörg
Magnúsdóttur
Thoroddsen
Fyrir nokkru var mér gefin bók
eftir Matthías Johannessen, útgefin
af Almenna bókafélaginu, undir
nafninu:„Sól á heimsenda".
Óefað varð hún mér meira virði
þar sem hún var gefin mér undir
þeim kringumstæðum sem þeir
vissu sem gáfu.
Þar sem bækur eru ekki aðeins
skrifaðar fyrir gagnrýnendur, held-
ur okkur upp og ofan lesendur,
langar mig til að segja lítillega frá
henni.
Það streymirfrá henni sólræn
hlýja, er ef til vill skrifuð í sólarlönd-
um? Þú finnur að þú ert í góðum
félagsskap meðan þú lest.
Hún segir frá foreldrum sem
ferðast með drenginn sinn, sem mér
finnst ég sjá fyrir mér góðan og
fallegan. Honum þykir vænt um
dýrin og skilur ekki vonsku heims-
ins, sem faðir hans vill gjarna hlífa
honum við. Lofa saklausri barnssál-
inni að eiga sinn fagra heim, þar
til meiri þroski og snerpa sækja á
til að takast á við lífið. „Allt hefur
sinn tíma“, stendur þar.
Móðirin er úr sveit, hefur nærst
og þroskast af umhverfi sínu.
Kannski líkist drengurinn henni, því
„Þar sem bækur eru
ekki aðeins skrifaðar
fyrir gagnrýnendur,
heldur okkur upp og
ofan lesendur, langar
mig til að segja lítillega
frá henni.“
börnunum í sveitinni þykir vænt um
dýrin. Ef til vill er hún meira á
baksviðinu en hefur oft síðasta orð-
ið og verður því þá ekki breytt.
Bókin er skemmtileg og fróðleg.
Það er ævinlega kostur góðrar bók-
ar að miðla fróðleik í bland. Snjallt
ráð hjá höfundi var að láta föðurinn
taka valda kafla úr íslendingasög-
unum og lesa fyrir soninn, hann
veít sem er hve sterk áhrif það
hefur.
Faðirinn signir yfir drenginn sinn
sofandi, eins og móðir hans haf'ði
gert við hann og snart það mig
djúpt. Og sannar það hið forn-
kveðna, „Það ungur nemur, gamall
temur“.
Skyldu mæður hafa tíma til að
lesa bænir með börnunum sínum í
öllu tímahrakinu? Það er engu að
síður hægt að kenna þeim að spjara
sig þó hvorutveggja sé haft um
hönd. Bænin gefur þeim öryggi
undir svefninn.
Eg.get ekki neitað því að nafn
bókarinnar kom mér einkennilega
fyirir sjónir, en það skýrist í bókar-
lok.
Vissulega fann ég fyrir því að
eiga ekki „pennalipurð" blaða-
mannsins og myndi ekki geta gert
bókinni verðug skil, enda best að
lesa bókina sjálfa.
Höfundur er húsmóðir í
Reykjavík.
CORINIING
ffl
ZWILLING
J.A.HENCKELS
Kaffivélar. Verð frá kr. 2.935.-
Brauðristar. Verð frá kr. 2.486,-
Eldföst mót í settum.. Verð frá kr. 1.326.-
Eldföst mót, stök. Verð frá kr. 971.-
Stálpottar, 10 ára ábyrgð.
Verðfrá kr. 1.819,-
Steikarpönnur, 10 ára ábyrgð.
Verðfrá kr. 2.790,-
Hnífar, stakir. Verð frá kr. 608.-
Hnífasett. Verð frá kr. 2.860,-
HEPPILEGAR GJAFIR HJA ORMSSON!
• Það er alltaf skemmtilegt að gefa gjafir. Ekki síst ef þær sameina
notagildi og smekkvísi. Það er góður vitnisburður um þann sem gefur.
• (verslun okkar að Lágmúla 9 er úrval af glæsilegri gjafavöru til
heimilisins. Allt skínandi gæðamerki.
• Þar finnurðu áreiðanlega gjöf sem hæfir tilefninu.
Bræðurnir ORMSSON - hagsýni í heimilishaldi!
BRÆÐURNIR
PJORMSSONHF
Lágmúla 9, sími 38820