Morgunblaðið - 15.12.1989, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1989
55
%
»
»
»
Í
á jörð- unni, eða það sem er í himn-
unum, eftir að hafa samið frið með
blóðinu, úthelltu á krossi hans.“
Kól.l,19-20.
Jesús Kristur er friðþæging fyrir
syndir okkar. Friðþægingin felur í
sér, að Guð hefur gjört okkur synd-
urunum kleift að verða Guðs börn
þrátt fyrir allt það, sem skildi okk-
ur frá Guði. Við getum ekki skilið
leyndardóm friðþægingarinnar.
Kristur gerði synd alls heimsins að
sinni synd. Hann bar hana upp á
krossinn, þar sem Hann þjáðist
vegna hennar og tók á sig allar
afleiðingar þess, sem við mennirnir
höfðum af okkur brotið. í persónu
Jesú Krists mættist það, sem engin
leið er að sameina: Guð og hið illa.
Þetta olli fórnardauða Hans, en
varð um leið friðþæging fyrir synd-
ina. Guð hefur í Kristi sætt heiminn
við sig: Þetta er gjaldið sem greiða
varð til þess að við eignuðumst
aðgang að Guði. Syndin skapaði
gjá milli mannsins og Guðs, kross-
inn hefur brúað þá gjá. Krossinn
lýsir best kærleika Guðs, til okkar
mannanna. Það nægði ekki að Son-
ur Guðs tók á sig mannlegt hold,
„Hann var gjörður að synd vor
vegna“ á krossinum á Golgata,
okkar vegna, svo dýrt var gjaldið
sem greiða þurfti okkur til hjálp-
ræðis. Krossinn er skilyrðislaus
dómur Guðs yfir sérhverri tilraun
okkar mannanna til að frelsa okkur
sjálf. Engin trúarleg athöfn eða góð
verk af okkar hálfu geta gert okkur
verðug fyrirgefningar. Aðeins við
krossinn er hjálpræði að finna.
Austurlensk trúarbrögð eða dul-
speki bjarga manninum ekki, þau
leiða aðeins frá Guði en ekki til
Hans. Það er margur sem í dag
gerir sér enga grein fyrir þeim
grundvallarmun sem er á fagnaðar-
erindi kristindómsins og austur-
lenskum trúarbrögðum. En það má
fullyrða að það er engin leið að
samræma þetta tvennt. Reyndar
hafa menn reynt það en úr verður
skopstæling kristindómsins, og slíkt
er ekki hægt að samræma krossi
Krists. Hann dó til þess að frið-
þægja fyrir syndir okkar, af þeirri
einföldu ástæðu, að við gátum það
ekki sjálf. Hefðum við getað gert
það, hefði friðþægingardauði Krists
verið óþarfur. Það er lítilsvirðing
við Krist að halda því fram að við
hefðum getað frelsað okkur sjálf.
Við getum ekki komist af án Jesú
Krists. Páll postuli orðar það svo:
„Ef til er réttlæting fyrir lögmál,
þá hefur Kristur dáið til einskis."
Gal.2,21. Þótt boðskapur krossins
verði í margra augum, heimska eins
og var á dögum postulanna, þá
breytir það ekki gildi hans fyrir
Guði, og okkur verður hann til
hjálpræðis. Dauði Krists er gjaldið
sem greiða þurfti til þess að við
eignuðumst að nýju lífssamfélag við
Guð. Aðeins fyrir trúna á Jesú Krist
eignumst við lífið í Guði og Guðs-
barnaréttinn. Hér koma engin
greiðslukort til greina, við eigum
ekkert til að greiða með.
„Trú þú á Drottin Jesú, og þú
munt hólpinn verða.“ Ef við eigum
trúna á Jesú mun okkur ekki verða
vísað frá Guðsríkinu. Það mikilvæg-
asta fyrir okkur er að eiga fullvissu
þess, hvort trúin er í hjarta okkar
eða ekki. Ef hún er ekki til staðar
verður okkur vísað frá Guðsríki, og
eigum eftir það engan möguleika.
til að eignast borgararétt í því ríki,
ef við höfnum Kristi og hjálpræðis-
verki Hans í þessu lífi. Við eigum
aðeins þetta eina líf til þess að
undirbúa okkur fyrir það líf sem í
vændum er. Hlýðum kalli Kristi.
Mér er það ósegjanlega mikill
heiður að játa þá trú að ég vænti
endurkomu Jesú Krists. Hvenær
hún á sér stað veit ég ekki fremur
en aðrir menn, en Hann kemur.
Látum ekki vísa okkur frá.
Höfundur er verslunarmaður.
Þ.Þ0RGRÍMSS0N&C0
WpARMA
PLAST
ÁRMÚLA 16 OG 29, S. 38640
VerÖ frá 2.2bU
Hárblásari, 1200 w.
Verð frá 1.159*
Nuddtœki.
Verö frá 2.775
RONNING
Vöfflujám.
Verð frá 4.390*
Brauörist.
Verð frá 2.997
Miðað við staðgreiðslu
Við erum ekki bara hagstæóir... KRINGLAN ...viö erum betrt & 68 58 68
Heitar tilfinningar
og ævistarí...
... er viðfangsefni Ingólfs Guðbrandssonar í Lífsspegli sínum. Hann segir frá
dökkum og ljósum hliðum tilveru sinnar, fjallar um samferðafólk í viðskipta-
og menningarlífi og ræðir af fyllstu einlægni um einkalíf sitt, trú, ást og tilfinningar.
Ingólfur hefur valið sér óvenjulegar leiðir að settu marki í lífinu. Hann hefur ætíð
verið á milli tannanna á fólki en í Lífsspegli kemur hann þjóðinni meira á óvart
en nokkru sinni fyrr. Hreinskilið uppgjör hans gerir þessa ástríðufullu bók að
öðru og meiru en venjulegri ævisögu.
SÍÐUMÚLA 29
SlMI 6-88-300
HELGAÍELI