Morgunblaðið - 15.12.1989, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1989
63
börn, sautján barnabörn og barna-
barnabörnin eru orðin þrjú.
Ég get ímyndað mér að Sveinn
hefði sagt um mann sem stæði á
endalokum slíkrar ævi: Hann hefur
verið búinn með lífsgæðakvótann
þessi.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi
að verða heimagangur á heimili
Sveins og Siggu, minningarnar um
samverustundirnar lifa alltaf og þau
eru mörg heilræðin sem ég á frá
Sveini Zöega, ég kem alltaf til með
að minnast hans með hlýju og virð-
ingu.
Ég votta eftirlifandi ættingjum
mína dýpstu samúð.
Ragna Valdimarsdóttir
Afi minn, Sveinn Zoéga, er lát-
inn. Það er kominn tími til að
kveðja hann. í mínum huga er ekki
hægt að kveðja mann eins og hann.
Ég á erfitt með það og svo hygg
ég að sé með flesta þá sem honum
hafa kynnst á æviskeiði hans. Þó
er það huggun harmi gegn að hann
hefur verið leystur frá þeim erfiða
sjúkdómi sem hefur lnjáð hann
síðustu átta árin. En minningarnar
lifa og af þeim á ég margar, góðar
minningar sem ég mun njóta um
ókomin ár. Þó er það svo að við
hin sem yngri erum kynnumst ekki
þeim eldri fyrr en seint og lærum
af sögum þau ár sem eru okkur
hulin. Þær sögur er ég hef af afa
lýsa honum á líkan hátt og ég kynn-
ist honum í gegnum uppeldi mitt
og af samvistum við hann. Hann
lagði mikið kapp á að innræta mér
heiðarleika, kurteisi og drengskap.
Enda sem mikill Valsmaður var
hann mjög hrifinn af séra Friðrik
Friðrikssyni og hinum fjölmörgu
heilræðum hans. Það var líka stund-
um sem hann þurfti að minna mann
á að það væri aðalmálið að vera
með en ekki að vinna eftir tapleiki
okkar liðs. Þá hætti manni til að
kenna dómara leiksins eða ein-
hveijum öðrum ytri aðstæðum um
ófarirnar. Hann minnti mann á að
til hvers leiks bæri að ganga með
'það í huga að gera sitt besta og
koma drengilega fram. Nú ef leikur-
inn tapaðist væri það engum öðrum
að kenna en liðinu sjálfu, það þyrfti
að gera betur næst. Það er ekki
hægt að kenna öðrum um ófarir
manns sjálfs. Einnig var það í sam-
ræðum okkar hin síðari ár, er ég
var farinn að taka þátt í pólitísku
starfi, að hann ræddi oft nauðsyn
þess að vera heiðarlegur í því starfi.
I hans augum var þátttaka í pólitík
leið til að auka hag og velferð þjóð-
arinnar. í því starfí varð að hugsa
um hag hennar en ekki skamm-
vinnan einkagróða og persónuvin-
sældir sem keypt væri með al-
Kristín S. Steins-
dóttir — Minning
Fædd 6. febrúar 1913
Dáin 8. desember 1989
í dag fer fram útför frænku
minnar, Kristínar S. Steinsdóttur,
sem lést 8. desember sl.
Kristín fæddist 6. febrúar 1913
á Seyðisfirði, yngri dóttir hjónanna
Ingibjargar Andrésdóttur og Steins
Guðmundssonar. Ung fluttist hún
til Reykjavíkur og átti þar heimili
hjá eldri systur sinni, Pálínu Steins-
dóttur, og manni hennar, Karli
Bjarnasyni. Þar átti hún athvarf
þar til hún giftist Sverri Svendsen.
Þau eignuðust eina dóttur, Ernu,
sem dó ung, en áður átti Kristín
Steinu Haraldsdóttur Williams, sem
er búsett í Bandaríkjunum ásamt
eiginmanni sínum og tveimur son-
um. Mann sinn missti Kristín 1.
desember 1980.
Kristín var glæsileg kona og
glaðlynd, sem hafði gaman af því
að vera vel til höfð og snyrtileg og
átti hún fallegt heimili sem bar
vott um snyrtimennsku hennar í
hvívetna.
Kristín átti við langvarandi sjúk-
dóm að stríða og undanfarin ár
dvaldi hún á Hvítabandinu þar sem
hún naut góðrar umönnunar starfs-
fólks.
mannafé. Enda varð manni það ljóst
að hann hafði lítið álit á íslenskri
pólitík. Vonandi tekst okkur ein-
hvern daginn að breyta þvi á þann
veg sem hann hefði viljað.
Iðulega hef ég hin síðari ár sakn-
að þess að geta ekki leitað til hans
til að bera undir hann hugmyndir
mínar eða áætlanir. Því ég átti
ætíð von á góðum ráðleggingum frá
hans hendi. En lífinu ráðum við
ekki og fáum lítið að gert til að
breyta orðnum hlut. Nú eru það
minningarnar sem ég verð að leita
til og bera undir þær hvort afi hefði
viljað hafa þetta svona eða á annan
hátt. Það er mikil reynsla og þekk-
ing sem hann reyndi að miðla mér
þann tíma sem við áttum saman.
Hvort mér tekst að hagnýta mér
það er annað mál sem tíminn einn
getur leitt í ljós. En minningin mun
verða mér leiðarljós. Minning um
hlýjan, góðan afa sem gaf mér
mikið. Það vil ég þakka honum.
Þessum orðum er ekki hægt að
ljúka án þess að færa starfsfólki
öldrunardeildar Landspítalans í
Hátúni lOb þakkir. Það fólk hefur
sýnt það með umhyggju sinni og
alúð við sjúklinga sína hversu hæft
það er. Maður hefur það á tilfinn-
ingunni að það fólk sé ekki að vinna
til að afla fjár, heldur eingöngu til
að hugsa um sjúklinga, slík er alúð-
in og umhyggjan.
Sveinn Guðmundsson
Ég kveð frænku með þakklæti
og hlýju.
Blessuð sé minning hennar.
Kristín S. Jensdóttir
Auglýsing
Römerpottarnir
aftur fáanlegir á
íslandi
Hver man ekki eftir góðu steikinni
úr Römerpottinum hennar
mömmu? Nú eru þessir skemmti-
legu leirpottar aftur fáanlegir, sem
voru svo vinsælir hér áður fyrr,
að þeir voru til á nær hveiju heim-
ili.
Römerpottarnir voru notaðir af
Rómveijum til forna til að mat-
reiða í kjöt og grænmeti. Þessir
pottar ruddu sér síðan til rúms í
Þýskalandi á miðöldum og hafa
verið ákaflega vinsælir þar æ
síðan.
Fallega fornar skreytingar á
pottunum.
Leyndardómurinn við Römerpott-
inn er að hann er lagður í bleyti
áður en maturinn er settur í hann.
Leirinn dregur til sín vökva. Þessi
vökvi. myndar síðan gufu innan í
pottinum og er það hún, sem síðan
matreiðir kjötið á svo gómsætan
hátt.
Ef óskað er eftir bragðsterkri
skorpu á kjötið, er lokið tekið af
pottinum áður en matreiðslu er
lokið.
Pottarnir fást í 3 stærðum.
Minnsta gerðin er fyrir 2-4 og
kostar hún. 1.190,-.
Miðgerðin er fyrir 2-6 en hún
kostar 1.590,-.
Stærsta gerðin er fyrir 4-8 og
kostar hún 2.290,-.
Það eru fleiri kostir við Römerpott-
ana. Má þar nefna að ofninn er
hreinn að innan eftir að búið er
að matreiða í honum og hægt ér
að láta matinn standa lengi í pott-
inum og helst hann þá vel heitur.
Mjög góðar leiðbeiningar á
íslensku fylgja pottunum. Þá fylgja
meira en 20 uppskriftir, sem stað-
færðar eru af Dröfn H. Farestveit,
hússtjórnarkennara, svo engum á
nú að vera að vanbúnaði að fá
matinn eins og hann var hjá henni
mömmu.
Hér er ein af uppskriftunum:
Myntukryddað lambakjöt
Ca l*/4 kg lambsbógur
lA Itr. vatn
salt, mynta
4-5 msk. hveiti
50 gr. smjör eða smjörlíki,
edik, sykur.
Þessi réttur smakkast best ef not-
uð eru fersk myntublöð, en einnig
má nota þurrkuð myntublöð. Þekið
lambsbóginn með myntublöðum og
setjið hann í rakan Römerpottinn.
Steikið við 220° í ca 2 tíma. Jaf-
nið sósuna með smjörbollu (þ.e.
smjör og hveiti blandað saman og
sett í sjóðandi vökvann) og bragð-
bætið með fínklipptri myntu, ediki
og sykri. Berið fram með soðnum
eða bökuðum kartöflum.
Römerpottarnir fást meðal annars
hjá Hágkaup, Kringlunni og Akur-
eyri, og Einar Farestveit & Co
hf., Borgartúni 28, sém flytur þá
inn og veitir faglega ráðgjöf um
meðferð og matreiðslu í pottunum.
hljómplöf ur, kassettur, geisladiskar
hjá okkur færðu plöturnar á betra verði en
þú átt að venjast. Á tilboðsmarkaðinum eru
allar íslensku og erlendu hljómplöturnar
svo og kassettur og geisladiskar.
:|9ln93vnni>fn