Morgunblaðið - 15.12.1989, Side 67
MORGUKBLADIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER, 1989
mannkærleika og menningar, sem
vildi stuðla að sáttum með reisn, og
þannig rak hann einnig embætti sitt.
Það er hveijum manni hollt að kynn-
ast við slíkan mannkostamann sem
Björgvin Bjarnason var.
Eftirlifandi eiginkona Björgvins
Bjarnasonar er Sigurbjörg Guð-
mundsdóttir, en þau gengu í hjóna-
band hinn 8. júlí 1944. Böm þeirra
eru þijú: Svanhildur Dýrleif, f. 25.
maí 1945, Anna Halla, f. 5 apríl
1947 og Bjami Guðmundur, f. 1.
febrúar 1951.
Við félagar í Lionsklúbbi Akra-
ness þökkum Björgvini Bjamasyni
samfylgdina og biðjum algóðan Guð
að lina sorg aðstandenda.
Lionsklúbbur Akraness
Björgvin Bjarnason, fyrrverandi
bæjarfógeti á Akranesi, lést 10. des-
ember sl. Hann fæddist í Vík í Mýrd-
al 12. júlí 1915. Foreldrar hans voru
Bjami Kjartansson, síðar forstj.
Áfengisverslunar ríkisins á Siglufirði
og kona hans, Svanhildur Einars-
dóttir. Björgvin varð stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri 1937
og lauk lögfræðiprófi frá Háskóla
íslands lýðveldisárið 1944.
Að námi loknu stundaði Björgvin
fyrst um sinn málflutningsstörf á
Siglufirði og var jafnframt kennari
við gagnfræðaskólann þar. Hann var
ráðinn bæjarstjóri á Sauðárkróki
1947 og gegndi því starfi uns hann
var skipaður sýslumaður Stranda-
sýslu í ársbyijun 1958. Því embætti
gegndi hann í 10 ár eða þar til hann
var skipaður sýslumaður í ísafjarð-
arsýslum og bæjarfógeti á ísafirði
síðla árs 1968. Hann var skipaður
bæjarfógeti á Akranesi frá október
1973 og gegndi því embætti þar til
hann lét af störfum fyrir aldurs sak-
ir á árinu 1985. Björgvin var sam-
viskusamur og vandvirkur embætt-
ismaður og gegndi embættum sínum
af einstakri trúmennsku.
Björgvin lét sig félagsmál varða.
Meðal annars var hann formaður
skólanefndar Hólmavíkurskóla með-
an hann starfaði á Ströndum. Hann
var kosinn í yfirkjörstjórn Vest-
flarðakjördæmis 1959 og í stjórn
Brunabótafélags íslands 1961. Hann
gegndi einnig trúnaðarstörfum inn-
an vébanda stéttar sinnar og var
m.a. formaður Dómarafélags íslands
1972-1973. Ég hef fyrir satt að
persónuleiki hans, trúmennska, sam-
viskusemi og vandvirkni hafi ekki
síður komið fram í þessum félags-
störfum hans en öðrum störfum.
Traustleiki og prúðmannlegt fas
einkenndi Björgvin öðru fremur hvar
sem hann fór. Hann var félagslyndur
og mannblendinn og kunni að gleðj-
ast með glöðum, taka í spil, renna
fyrir lax og silung o.m.fl. Hann hafði
yndi af góðri tónlist og var ágætur
söngmaður og tók fram eftir aldri
þátt í kórstarfí. Hann var víðlesinn
og kunni frá mörgu að segja, bæði
úr sögu lands og þjóðar og ekki síður
frá mönnum og málefnum fyiT og
nú og var oft lærdómsríkt að hlýða
á Björgvin segja frá.
Björgvin var góður félagi, vin-
gjamlegur og hlýr, vammlaus og
góður drengur. Nu sakna félagar
hans og frændur vinar í stað, en
hugga sig við þá vissu að dauðinn
var honum ávinningur að loknu
löngu og erfiðu veikindástríði, sem
hann bar af karlmennsku og æðm-
leysi, sem gjarnan einkennir þá, sem
lifað hafa vel, sáttir við guð og menn.
Eftirlifandi eiginkona Björgvins
er Sigurbjörg Guðmundsdóttir, hin
ágætasta kona. Hjónaband þeirra
einkenndist af aðdáunarverðri sam-
heldni og umhyggju hvors fyrir öðm.
Sigurbjörg helgaði heimilinu alla tíð
krafta sína og kom umhyggja henn-
ar fyrir eiginmanninum vel í ljós í
veikindum hans. Þau hjónin eignuð-
ust þijú börn, Svanhildi Dýrleifi,
búsetta á Sauðárkróki, Önnu Höllu,
starfsmann Pósts og síma í
Reykjavík og Bjama Guðmund, lög-
mann á Egilsstöðum, áður skatt-
stjóra Austurlandsumdæmis.
Um leið og við hjónin vottum Sig-
urbjörgu, börnum og barnabörnum
þeirra hjóna innilega samúð okkar,
þökkum við vináttu og tryggð frá
fyrstu kynnum. Fyrir hönd Sýslu-
mannafélags Islands votta ég að-
standendum samúð og minningu
hins látna heiðursmanns virðingu.
Blessuð sé minning Björgvins
Bjarnasonar.
Rúnar Guðjónsson
Allt að 12 mánaða greiðslukjör,
- fyrsta afborgun á næsta ári.
Leisurewise þrekhjólin fást á einstökum
afborgunarkjörum. Visa og Euro korthafar geta nýtt sér
raðgreiðslur og fengið Leisurewise þrekhjól á allt að 12
mánaða afborgunum. - Staðgreiðsluverð aðeins
kr. 19.800. Afborgunarverð kr. 20.800.
HÖFUM OPNAÐ GLÆSILEGA
SÉRVERSLUN MED ÞREKHJÓL
í HÚSI FRAMTÍÐAR,
FAXAFENI 10
Við bjóðum margar gerðir þrekhjóla á verði frá kr. 14.980.
Róðrarvélar frá kr. 7.800. Trimmgallar frá kr. 2.900.
Landsins bestu greiðslukjör!
Engin útborgun, eftirstöðvar til allt að 12 mánaða!
Opnunartilbod á þessum róðrarvélum í dag
og á morgun (meðan birgðir endast).
Aðeins kr. 14.900,- stgr.
1 T
Breska verslunarfélagið
Faxafeni 10 - Húsi Framtíðar
108 Reykjavík
Pöntunarsími:
91-82265
Leisurewise þrekhjólin
eru búin ótol kostum:
• Tölvu sem mælir m.a. hjartslátt,
vegalengd og kalóríubrennslu.
• Sætið er stillanlegt, stöðugt
og mjúkt.
• Átaksþyngdin er stillanleg.
• Ólar yfir ristar.
• Jöfn spyrna.
• Plastpúðar verja gólfið.
ÚTSÓLUSTADIR: Sportbúðin, Strandgötu 6, Akureyri / Kaupfélag Borgfirðinga, Borgamesi / BH búðin, Djúpavogi / Verslunin Blómsturvellir, Hellissandi / Vélsmiðjan Höfn, Homafirði / Kaup-
félag Eyfirðinga, Hrísey / Kaupfélag Þingeyinga, Húsavík / Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki / Sportbær, Selfossi / Sportvík, Dalvík/ Verslun Gests Fanndal, Siglufirði / Kaupfélag Rangæinga,
Hvolsvelli / Verslun Einars Guðfinnssonar, Bolungarvík / Verslunin Skógar, Egilsstöðum / Verslun Axel Ó., Vestmannaeyjum.