Morgunblaðið - 15.12.1989, Page 76

Morgunblaðið - 15.12.1989, Page 76
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 1989 76 ©1988 Univeftal Press Syndicale ,, þö óettir cé> \cifOu varlega. \y\eb hlöftrur. pú acttir ídtá. Laekm'nn líta oL paer." ... aðsjáekkigalla hans. TM Rf.-g U.S. Pal OU.—all righls reserved c '989 Los Angeles Times Syndicate Með morgimkaffinu Meðhjálparinn hefur gleymt að taka rakspegil- inn ... . Björgum því sem bjargað verður Ágæti Velvakandi. í gamla daga riðu menn til þings, eins og það var kallað, og luku málum sínum oftast nær á stuttum tíma, gráir fyrir járnum og hinir vígalegustu hvar sem á þá var litið. Þarna voru dómar upp kveðnir — oft fyrir litlar sakir, jafnvel smá ýsuband kostaði hengingu, meðan valdhafarnir kýldu vömb sína og rúðu almenning svo mjög að fólk dó úr vaneldi milli bæja árið um kring. Ekki meira um það, vegna þess að nú er hraunklungrið við Almannagjá eigi lengur haft að fótaskinni, enda flest mál nú krufin til mergjar í hjarta Reykjavíkur — varla þó undir beru lofti, heldur innan fjögurra veggja — tugthús mætti það heita eftir 2 til 3 ár, ef svo heldur fram sem horfir. Fólkið sem þarna vinnur ber sam- an ráð sín til heilla landi og lýð á svipaðan hátt og gerðist fyrir langa- löngu austur í Þingvallasveit, nema launin munu vera nú eilítið hærri en þá var. TVær leiðir til inngöngu eru tengdar þessari byggingu, sem hér um ræðir, og hafa bakdyrnar stundum verið notaðar, þegar mikið hefur legið á. Auðvitað erum við öll þess meðvitandi að þjóðarskútan okkar er hriplek. En það verður ekki barið í þá bresti með skattyrð- um af neinu tagi — jafnvel persónu- legum árásum á saklaust fólk, held- ur verður að gera rækilega við þessa dæmalausu fleytu, svo hún geti haft borð fýrir báru, þegar vetur herðir tök sín og „brimskafl- arnir hrynja að dökkum fjöru- sandi“. Misheppnaðar langlokur í kjánalegu ræðuformi innan þessa gliðnaða musteris leysa engan vanda, heldur þveröfugt. Væri ekki heldur ráð að snúa saman bökum og reyna með einhveijum hætti að bjarga því sem bjargað verður áður en þurfamönnum fjölgar til muna, frá því sem orðið er, á kostnað þeirra sem betur mega sín. Sjálfskaparvíti, segir einhver. Vissulega er það satt — en börnin læra ekki málið af sjálfu sér, heldur þarf að kenna þeim slíka list — og hvað er þá eðlilegra en að ráða- menn þjóðarinnar gangi á undan með góðu fordæmi? En það er nú bara ekki svo gott, því blessaðir þingfulltrúarnir okkar hækka kaup- ið sitt fyrstir allra á hveiju hausti. Um leið og þeir koma inn í þessa „Galíleu" sína við Austurvöll, til þess að rífast eins og hundar um einhveijar vammir og skammir, sem Kæri Velvakandi. Það hefur ekki farið framhjá neinum þessar gífurlegu breytingar á stjórnmálaástandinu í Austur- Evrópu, þar sem almenningur er að rísa upp gegn áratuga kúgun. Einnig í Bretlandi eru þúsundir stuðningsmanna íhaldsflokksins að rísa upg gegn miðstýringu. En hérna á íslandi er almenningur enn kúgaður af miðstýringu og er hrein- lega að gefast upp á meðan stjórn- málamennirnir geta ekki einu sinni komið sér saman um EFTA og EB, en lifa jafnframt góðu lífi í glans og fíneríi. Og svo þegar þreyttur eru komnar undir græna torfu fyrir tuttugu árum síðan eða meir — hvað höfðingjarnir hafast að hinir meina þeim leyfist það. Opin bók liggur hérna á borðinu mér til vinstri handar. Þar eru skrá- sett 54 ljóð, hvert öðru betra og heitir eitt þeirra „Hjá sandkassan- um“. Það fjallar um börn að leik, sem flytja hinn lausa jarðveg til og frá dag eftir dag, og keppast við eftir bestu getu, en hvorki rekur né gengur. Síðustu hendingarnar úr þessu ágæta ljóði hljóða svo: Þá stækkuðu blessuð bömin og byggðu sér nýjan alvöruheim. En sterkir og voldugir stjórnmálaflokkar við störfunum tóku af þeim. Valtýr Guðmundsson almenningur kemur heim til sín á kvöldin þarf hann að horfa á Ríkis- sjónvarpið og Stöð 2 að keppa um að sýna verstu ofbeldismyndir. Er verið að gera íslensku þjóðina að aumingjum? Eigum við ekki að taka ráð þjóðskálds vors þegar hann sagði: „Eigum við ekki að lyfta okkur á hærra plan?“ Ég mæli ein- dregið með því. íslenskur almenn- ingur verður að líta upp til himins og knýja fram aðgerðir til þess að bjarga landi og þjóð. Hrópið „ís- landi allt“ er enn við hæfi í dag. Vilhjálmur Alfreðsson Knýjum fram aðgerðir Víkverji skrifar Víkveija brá illilega í brún þegar hann gekk út á Hallærisplan einn daginn og fékk skyndilega stór- an þýzkan fjárhund, öðru nafni scháfer-hund, bókstaflega í fangið. Hundurinn ætlaði líklega að vera vinalegur, setti framlappimar á bringu Víkveija og másaði framan í hann. Víkveiji er dýravinur og hefur alltaf haft mikið uppáhald á hundum, en hann kann samt illa við að stórir þýzkir fjárhundar, sem ná mönnum að öxlum þegar þeir reisa sig upp á afturlappimar, gangi lausir í Mið- bænum. Aukinheldur skildi hvutti eftir sig svört loppuför á skyrtu- bijósti skrifara, sem ekki vom til mikillar prýði. Eigandi skepnunnar stóð spölkom frá og spjallaði við kunningja sína. Hann baðst ekki einu sinni afsökunar þegar Víkveiji ráð- lagði honum að hafa taumhald á hundi sínum. Því er hér með beint til hundaeigenda að þeir fari að lög- um og reglum og hafi hunda sína í bandi innanbæjar. Á útjöðrum borg- arlandsins em víðir vellir, þar sem leyfilegt er að láta þá hlaupa lausa. IMorgunblaðinu síðastliðinn föstu- dag birtist grein frá stjóm félags- ins Minjar og saga, sem skipuð er öndvegisfólki er berst fyrir góðum málstað. Orðanotkun i greininni stakk hins vegar í augu. Þar segir orðrétt: „Þingmenn ættu því að hugsa stórt, er 50 ára afmæli lýðveld- isins nálgast, og gefa því nýtt Þjóð- minjasafn í gullbrúðkaupsgjöf...“ Þama hefði náttúmlega átt að standa fimmtugsaimæUsgjöf. Eða hveijum giftist lýðveldið eiginlega, ef það á að fara að halda upp á gullbrúðkaup- ið? Víkveiji hélt að því hefði einmitt verið öfugt farið; íslenzka fjallkonan hefði endanlega staðfest skilnað sinn við danska kónginn árið 1944. xxx Skrifari hugðist enda þennan pist- il á nokkmm orðum um virðis- aukaskatt, en sannast sagna vefst það fyrir honum hvort hann á að segja að enn sé ekki búið að hnýta alla hnúta eða leysa varðandi þennan margumtalaða skatt. Vandamálin virðast enn hrannast upp á skatta- hvolfinu, stór og smá, og þó svo að stjómmálamenn og embættismenn séu einhveiju nær en áður um það hvað gerist um áramót þá á almenn- ingur, blessaður skattborgarinn, langt í land. Mörg dæmi eiga ömgg- lega eftir að koma upp þegar virðis- aukaskatturinn skellur á og þá er ekki víst að allt verði eins slétt og fellt og um hefur verið talað. Lítið dæmi. Framsækið íþróttafé- lag hugðist kaupa snjótroðara til að nota á skíðasvæði sínu og var búið að gera grófa kostnaðaráætlun um hvemig standa mætti að greiðslum á tækinu. Glöggur maður í hópnum benti þá á að söluskattur á tæki sem þetta hefði verið endurgreiddur, en virðisaukaskatturinn legðist hins veg- ar á af fullum þunga. Þetta munar viðkomandi íþróttafélag um hálfa aðra milljón króna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.