Morgunblaðið - 09.01.1990, Side 1
48 SIÐUR B
6. tbl. 78. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Suður-Afríka:
Mandela
látinn laus
innan ör-
fáiTa vikna?
Jóhannesarborg. Reuter, Daily Telegraph.
NELSON Mandela, leiðtogi
Afríska þjóðarráðsins (ANC),
sagðist í gær vongóður um að
hann yrði látinn laus úr fang-
elsi innan örfárra vikna, að sögn
eiginkonu hans, Winnie Mand-
ela.
Þetta er í fyrsta sinn sem slík
ummæli eru höfð eftir Mandela frá
því hann var handtekirín árið 1962
og dæmdur í lífstíðarfangelsi 1964
fyrir að hafa skipulagt uppreisn
gegn minnihlutastjórn hvítra
manna í Suður-Afríku. Sjö blökku-
mannaleiðtogar voru handteknir á
sama tíma og hann en þeir voru
látnir lausir í fyrra. Mandela er í
haldi í bóndabæ um 60 km frá
Höfðaborg.
Winnie Mandela sagði að eigin-
maður sinn hefði sagt sér að und-
irbúa heimkomu hans. Hún kvaðst
ekki vita gjörla hvenær hann yrði
látinn laus en sagði það ekki leng-
ur spurningu um mánuði, heldur
örfáar vikur.
Suður-afrískir embættismenn
segjast búast við því að Mandela
verði látinn laus í lok þessa mánað-
ar eða f ljótlega eftir að þing lands-
ins kemur saman á ný eftir jóla-
hlé 2. febrúar. Afríska þjóðarráðið
og ýmsir leiðtogar blökkumanna
hafa sagt að samningaviðræður
við stjómvöld komi ekki til greina
fyrr en Mandela verði látinn laus.
Chris Hani, yfirmaður skæruliða-
sveita Afríska þjóðarráðsins, sagði
í gær að búast mætti við hörðum
árásum skæruliðanna í Suður-
Afríku í ár.
NATO haftiar
afvopnunartil-
lögum Gysis
Reuter
Azerar hrópa til vina og skyldmenna yfir Arax-fljót, sem skilur íran og Sovétríkin. Tæpar sex milljón-
ir Azera búa í Sovétlýðveldinu Azerbajdzhan en 4 milljónir í samnefndu héraði í norðurhluta Irans.
Þeir krefjast þess að landamærin verði opnuð og hafa rifið niður landamæragirðingar og eyðilagt varð-
stöðvar á svæðinu.
Brussel. Reuter.
TALSMENN Átlantshafsbanda-
lagsins (NATO) höfhuðu í gær til-
löguin Gregors Gysis, leiðtoga
austur-þýska kommúnistaflokks-
ins, um að þýsku ríkin fækkuðu í
herliði sínu um helming á næstu
tveimur árum og allir erlendir
hermenn yrðu fluttir af þýskri
jörð fyrir aldamót.
Talsmennirnir sögðu að bandalag-
ið væri andvígt því að samið yrði um
afmörkuð afvopnunarsvæði. Þeir
sögðu að aðeins kæmi til greina að
fjalla um slíkar hugmyndir í Vínar-
viðræðunum um fækkun hefðbund-
inna vopna. Hans Klein, talsmaður
vestur-þýsku stjórnarinnar, tók til-
lögunni einnig fálega. „Ráðlegt væri
fyrir Gysi að einbeita sér að vanda-
málum Austur-Þýskalands frekar en
að vekja á sér athygli með tilkomum-
iklum hugmyndum í fjölmiðlum,"
sagði talsmaðurinn.
Upplausnin í Sovétríkjunum:
Götubardagar brjótast
út í Nagomo-Karabakh
Medvedev fordæmir kommúnista í Litháen - Vaxandi þjóðaólga í Azerbajdzhan og Georgíu
Moskvu. Reuter og dpa.
BARIST var með vélbyssum á
götum Stepanakert, höfuðstað
Nagorno-Karabakh, og brú var
sprengd í loft upp í héraðinu, að
því er sovéska sjónvarpið skýrði
frá í gær. Mótmæli Azera héldu
áfram við landamærin að íran og
hermenn voru sendir til Georgíu
vegna vaxandi þjóðaólgu. Nefnd
háttsettra sovéskra embættis-
manna kom til Litháens í gær til
viðræðna við kommúnista Sovét-
lýðveldisins, sem hafa ákveðið að
slíta öll tengsl við móðurflokkinn
i Moskvu. Oddviti nefndarinnar,
Vadím Medvedev, helsti hug-
myndafræðingur kommúnista-
flokksins, fordæmdi litháíska
Rúmenía:
Fylgismenn Nicolae
Ceausescus fyifr rétt
Búkarest. Reuter.
FYRSTU réttarhöldin hófúst í gær yfir þeim félögum í rúmensku
öryggissveitunum sem héldu áfram að berjast eftir að Nicolae Ceau-
sescu, fyrrum einræðisherra Rúmeniu, var steypt af stóli 22. desem-
ber. Þjóðarráðið, sem farið hefur með völdin í landinu frá bylting-
unni, lofaði samningaviðræðum við nýstofnaða stjórnmálaflokka
landsins um hvernig koma megi á lýðræði..
Reuter
Talsmaður Þjóðarráðsins, Aurel
Munteanu, sagði að sérstakur her-
réttur hefði hafið yfirheyrslur yfir
nokkrum liðsmönnum öryggissveit-
anna í bænum Sibiu. Einn þeirra
var dæmdur í níu ára fangelsi.
Á sunnudaginn var þeirra
minnst í Búkarest, sem féllu í
byltingunni gegn Ceaucescu.
Myndin sýnir minnisvarða um
hina látnu. Kveikt var á kertum
og brugðið upp táknrænum
borðum og spjöldum eins og
þeim, sem leggja kommúnisma
og nasisma að jöfim. Á krossin-
um stendur: Hyllum hetjur okk-
ar að eilífu.
Fleiri yrðu dregnir fyrir rétt síðar
í ýmsum borgum landsins. Enginn
þeirra verður dæmdur til dauða.
Munteanu sagði einnig að Þjóð-
arráðið væri reiðubúið að ræða við
fulltrúa nýstofnaðra flokka um
framkvæmd frjálsu kosninganna,
sem áformaðar eru í apríl. Fram-
bjóðendur allra flokka fengju að
koma fram í útvarpi og sjónvarpi
þegar kosningabaráttan hæfist.
Hann sagði að Þjóðarráðið myndi
standa við loforð sín um kosningar
í apríl. Hann lagði ríka áherslu á
að Þjóðarráðið hygði ekki á fram-
boð en hins vegar yrði lagður fram
listi yfir frambjóðendur úr öðrum
flokkum, sem ráðið styddi.
Sjá fréttir á bls. 18-19.
kommúnista og sagði þá stofna
umbótastefnu Míkhaíls Gorb-
atsjovs Sovétforseta í hættu.
Engar upplýsingar hafa fengist
um mannfall í bardögunum í Nag-
orno-Karabakh, héraði sem Azerar
vilja að sameinað verði Azerbajdzhan
á ný. Allir vegir til héraðsins eru
lokaðir og lestasamgöngur hafa legið
niðri mánuðum saman. Flytja þarf
öll aðföng loftleiðis og mikill skortur
er á ýmsum matvælum. „Ástandið
er mjög alvarlegt og gífurlegur ótti
ríkir á meðal íbúanna,“ sagði í sov-
éska sjónvarpinu.
Málgagn sovésku stjórnarinnar,
Ízvestía, skýrði frá því að hópar
Azera hefðu lent í átökum við verði
á landamærum Azerbajdzhans að
Tyrklandi og íran. Næstum allar
varðstöðvar á landamærunum að ír-
an, sem eru um 150 km, hafa verið
eyðilagðar frá því á nýársdag.
Hermenn voru sendir til Georgíu
í gær vegna óeirða sem brotist höfðu
út eftir að níu mánaða barn hafði
verið skotið til bana. Georgíumenn
sökuðu þjóðernissinna í fjallahérað-
inu Suður-Ossetíu um morðið. Oss-
etíumenn berjast fyrir auknu sjálf-
ræði og þess að tunga þeirra verði
opinbert mál héraðsins.
Georgíumenn hindra nú samgöngur
til héraðsins.
Míkhaíl Gorbatsjov kemur í sína
fyrstu heimsókn til Litháen á
fimmtudag, degi síðar en áformað
var í fyrstu. Um helgina var sam-
þykkt á fundi Sajudis, fjöldahreyf-
ingar sem berst fyrir aukinni sjálf-
stjórn, að taka á móti Gorbatsjov
með mótmælum og kröfum um fijálst
Litháen. Frelsisfylking Litháens, sem
vill tafarlausan og algjöran aðskiln-
að, áformar einnig mótmæli með
slagorðinu: „Farðu heim Gorbí!“