Morgunblaðið - 09.01.1990, Page 4

Morgunblaðið - 09.01.1990, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1990 Tugþúsundir í sektir fyrir ölvun og ólæti ELLEFU menn voru færðir fyr- ir dómara um helgina, í fram- haldi af gistingu í fangaklefum lögreglunnar vegna ölvunar og óspekta. Mönnunum var gert að greiða sektir, sem vorutá bilinu 5-16 þúsund krónur. Piltarnir þrír brutu rúðu bílstjóramegin í Skodanum, þar sem hann stóð í stæði við Pósthús- stræti. Þeim tókst að koma bílnum í gang með því að tengja saman víra í mælaborði. Hins vegar var stýrið læst og komust þeir því ekki nema lítinn hring og inn á Samkvæmt upplýsingum lög- reglunnar eru menn nú nær und- antekningalaust færðir strax fyrir dómara eftir næturgistingu vegna ölvunar og óspekta. Á það við þegar brot eru þess eðlis, að þau fara ekki tíl ríkissaksóknara og Austurvöll, Bíllinn skemmdist nokkuð við atganginn í piltunum, sem forðuðu sér á brott. Þeir náð- ust hins vegar skömmu síðar og játuðu verknaðinn. Piltarnir, sem allir eru 18 ára, gistu fanga- geymslur um nóttina. þaðan með ákæru í sakadóm. Aðfaranótt laugardags gistu 23 fangageymslur lögreglunnar og voru fimm þeirra leiddir fyrir dóm- ara á laugardag. 12 gistu fanga- geymslurnar aðfaranótt sunnu- dags og af þeim var helmingur leiddur fyrir dómara. Sektimar em misháar, en oftast á bilinu 5 til 16 þúsund krónur og borguðu mennimir á annað hundrað þús- und krónur í sektir samtals. Af þessum ellefu mönnum voru tveir, sem til sást þegar þeir reyndu að brjóta rúður og var þeim gert að greiða 10 þúsund krónur í sekt, hvomm fyrir sig. Tveir hindmðu lögregluna í störf- um, annar sló til lögreglumanns og hinn sló húfu af lögreglumanni og var sá fyrri sektaður um 12 þúsund krónur, en hinn fékk 10 þúsund króna sekt. Nokkrir voru sektaðir um 6 þúsund krónur fyrir að æsa til óláta. Stálu Skoda og skemmdu ÞRÍR unglingspiltar skemmdu Skoda-bifreið, sem þeir stálu og óku stuttan spöl í miðbæ Reykjavíkur. Skodinn fór ekki langt, þar sem lás hélt stýrinu föstu. VEÐURHORFUR í DAG, 9. JANÚAR. YFIRLIT í GÆR: Gert er ráð fyrir stormi á öllum miðum og djúp- um. Um 400 km suðvestur af Reykjanesi er 935 mb lægð sem hreyfist norðaustur og mun fara yfir Norðvesturland í nótt. Veður fer hlýnandi norðanlands og austan en kólnar aftur í nótt, fyrst suðvestanlands. SPÁ: Vestlæg átt, víða hvassviðri eða stormur fyrri hluta dags, en lægir nokkuð síðdegis, fyrst vestanlands. Éljagangur um vestan- vert landið, en úrkomulítiö austanlands. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Vestlægar áttir og hiti um eða rétt yfir frostmarki. Él víða um vestan- og norðanvert landið, en úrkomulítið á Suðausturlandi og á Austfjörðum. HORFUR Á FIMMTUDAG: Breytileg átt og vægt frost um land allt. Él allvíða vestanlands, en úrkomulítið um áustanvert landið. TAKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað / Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil flöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * 10° Hitastig: 10 gráður á Celsius = Þoka r= Þokumóða ’ , » Súld OO Mistur —Skafrenningur Þrumuveður m w T V' VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti vedur Akureyri 0 alskýjað Reykjavik 2 slydda Bergen 6 léttskýjað Helsinkí 2 rigning Kaupmannah. 4 rigning Narssarssuaq +11 snjókoma Nuuk +8 skafrenningur Oslq 2 léttskýjað Stokkhólmur 3 alskýjað Þórshöfn 6 skúr Algarve 14 léttskýjað Amsterdam 7 þokumóða Barcelona 12 mistur Berlín 1 þokumóða Chicago +1 heiðskfrt Feneyjar 1 þokumóða Frankfurt 0 þokumóða Glasgow 5 mistur Hamborg 4 rigning Las Palmas 19 skýjað London 9 skýjað Los Angeles 10 þokumóða Lúxemborg 0 hrímþoka Madríd 9 léttskýjað Malaga 12 skúr Mallorca 13 skýjað Montreal +1 skýjað New York 2 mistur Orlando 22 alskýjað París 5 þokumóða Róm 10 rigning Vín +9 snjókoma Washington 1 mistur Winnipeg +26 alskýjað ItZ 3 a i Morgunblaðið/Björn Blöndal Skiptinemamir frá Panama við komuna í Leifsstöð. Á myndinni eru í efri röð talið frá vinstri: Hallgrímur Hannesson, Þórunn Þorvaldsdóttir og Hallfríður Guðmundsdóttir. í fremri röð eru Ólafiir Júlíusson og Kolbrá Höskuldsdóttir. Komín heim fráPanama ÍSLENSKU skiptinemarnir fimm sem dvöldust síðastliðið ár í Panama komu heim í gærmorgun. Vegna hernaðaríhlutunar Bandaríkjamanna í landinu hefur verið fylgst meira með ferðum þeirra en ella síðustu vikur. Þau voru öll hress þegar þeim var innilega fagnað af ættingjum sínum og fúlltrúa AFS í Leifsstöð. Skiptnemarnir voru á ferðalagi í Panama, þegar Bandaríkjamenn gripu til vopna til að steypa stjórn Noriega einræðisherra og hafa í hendur í hári hans. Eyddu krakk- amir jólunum við óvenjulegar að- stæður á indíánaeyju í San Blas- klasanum undan Panamaströnd. Um hríð var áformað að sækja þau tafarlaust og koma þeim úr landinu af ótta við hemaðarátökin. Eftir að kyrrð komst á fengu nemarnir að fara aftur til fjölskyldna sinna í Panama. Þau vom síðan send áleiðis heim til íslands, þegar far- þegaflug frá Panama hófst á ný. Ættingjar fögnuðu ungmennun- um vel og innilega í flugstöð Leifs Eiríkssonar í gærmorgun. Ása Kolka starfsmaður AFS-skipti- nemasamtakanna hér færði hvetju þeirra nellikku. Krakkamir vofu hress og litu vel út. Nokkuð dró úr kátínu þegar uppgötvaðist að allur farangur þeirra hafði orðið eftir í New York og Miami, þar sem viðkoma var höfð. Fundahöld í Borgarfírði: Allar netalagnir frá syðri bakka Hvítár keyptar upp? NÚ STANDA yfír samingaumleit- anir milli netabænda við suður- bakka Hvítár i Borgarfirði og veiðifélaga þeirra bergvatnsáa sem renna til Hvítár um að kaupa upp allar laxalagnir árinnar. Áður hafði Veiðifélag Norðurár keypt upp þrjár lagnir af Feijukoti ofan gömlu Hvítárbrúarinnar. Lagn- irnar frá suðurbakkanum tilheyra ýmsum jörðum, en allur þorri lagnanna tilheyrir Hvítárvöllum, 10 til 12 lagnir, Þingnesi, 5 lagn- ir, og Hvanneyri, 4 til 5 lagnir. Sumarveiði þessara lagna nemur venjulega meira en hclmingi neta- veiðinnar. Sturla Guðbjarnarson stjórnar- maður í Veiðifélagi Grímsár staðfesti í samtali við Morgunblaðið að fundur hefði verið haldinn og í kjölfar hans hefðu tveir bændur, einn úr hvomm hópi, verið kjömir til að halda málinu áfram. Það eru fulltrúar veiðifélaga Grímsár og Þverár sem em fyrir bergvatnsbændum, en ef til heildar- samninga kemur, munu veiðifélög Flóku og Reykjadalsár koma inn í myndina. Sagði Sturla erfitt að meta stöðuna, en óhætt væri að segja að herslumuninn vantaði, eigendur iagna frá Hvanneyri, Þingnesi og Hvítárvöllum væm fúsir að semja, en það stæði enn á nokkrum neta- mönnum ofar við ána, sem hafa færri lögnum yfir að ráða. Ljóst væri að annað hvort yrði samið við alla eða engan. „Það er enn langt til vors og ómögulegt að segja hvað gerist, en við erum þó það bjartsýnir að við gefum nú út verðskrá fyrir sumarið og er verð einstakra daga birt með fyrirvara," sagði Sturla. Sjúkrabíll ók á lögreglubíl Sjúkrabíl var ekið aftan á lög- reglubíl á sunnudagskvöld og dælduðust báðir bílarnir nokkuð. Engin slys urðu á fólki. Lögreglubíllinn var fenginn til að aðstoða sjúkrabíl frá Keflavíkurflug- velli að komast leiðar sinnar og var lögreglubílnum ekið á undan til að greiða fyrir umferðinni. Þegar bílarn- ir komu að gatnamótum Hringbraut- ar og Njarðargötu var hægt á lög- reglubílnum, en það varð til þess að sjúkrabíllinn.skall aftan á honum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.