Morgunblaðið - 09.01.1990, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANUAR 1990
7
Hegningarhúsið við Skólavörðustíg:
Urbætur gerðar að til-
mælum heilbrigðisráðs
Dómsmálaráðuneytið hefur orðið við tilmælum heilbrigðisráðs um
úrbætur á húsakynnum hegningarhússins við Skólavörðustíg. Talið
er að úrbætur þessar kosti a.m.k. nokkur hundruð þúsunda króna.
Varanleg viðgerð á húsinu er hins vegar talin kosta tugi milljóna
króna, en engar áætlanir eru um hvenær hún verður framkvæmd.
Á fundi heilbrigðisráðs
Reykjavíkur í desember var lögð
fram skýrsla heilbrigðiseftirlitsins
um hegningarhúsið við Skólavörðu-
stíg. Heiibrigðisráð samþykkti að
veita dómsmálaráðuneytinu loka-
frest til 1. janúar sl. til að lagfæra
gat á gólfi í einum klefa og raka-
skemmdir í öðrum. Þá var sam-
þykkt að frá og með áramótum
yrðu ekki f leiri en tveir fangar vist-
aðir í þeim klefum, sem áður hýstu
þrjá. Frestur var gefinn til 1. febrú-
ar til að bæta viðhald hússins, sér-
staklega með tilliti til gólfdúka,
málningar og rakaskemmda. Loks
var veittur frestur til 1. mars til
að bæta verulega loftræstingu á
gangi fýrir framan fangaklefa.
Þorsteinn A. Jónsson, deildar-
stjóri í dómsmálaráðuneytinu, sagði
í samtali við Morgunblaðið að ráðu-
neytið hefði þegar orðið við tilmæl-
um um viðgerðir á fangaklefunum
tveimur. Þá hefði einnig verið orðið
við því frá áramótum að tveir fang-
ar væru vistaðir í klefum sem hýstu
þijá áður. „Það olli okkur að vísu
vandræðum, því fangelsin hafa ver-
ið yfirfull," sagði Þorsteinn. „Nú
er verið að vinna að öðrum úrbót-
um, en það er ekki hægt að lofa
því að þeim verði lokið fyrir 1.
febrúar og 1. mars. Við getum ekki
tæmt húsið, heldur verðum að taka
hluta af því fyrir í einu og það tef-
ur verkið.“
Þorsteinn sagði að kostnaður við
þessar úrbætur næmi að minnsta
kosti hundruðum þúsunda króna.
Kostnaður við úrbætur á loftræst-
ingu væri enn óljós, en það væri
sjálfsagt stærsti hluti heildarkostn-
aðar við úrbæturnar. „Við höfum
alltaf sinnt viðhaldi á hegningar-
húsinu, en varanleg viðgerð kostar
án efa tugi milljóna. Til þess að hún
geti farið fram þarf að tæma húsið
og þar með finna annan stað fyrir
fangana. Það liggur ekki fyrir nú
hvenær ráðist verður í viðgerðina,
en á þessu ári er alla vega ekki
ætlað fé til þess,“ sagði Þorsteinn
A. Jónsson.
• •
Ollumsagt
upp hjá
Bílaborg
BÍLABORG hf. hefúr sagt upp
öllu starfsfólki fyrirtækisins,
40-50 manns. Kristinn Breiðfjörð
stjórnarformaður segir að upp-
sagnirnar séu öryggisráðstöfún
þannig að sfjórnendur fyrirtæk-
isins hafi ekki bundnar hendur
við endurskipulagningu. Flestir
starfsmennirnir eru með þriggja
mánaða uppsagnarfrest.
Bílaborg fékk greiðslustöðvun til
tveggja mánaða með úrskurði 4.
desember síðastliðinn. Liður í end-
urskipulagningu er sala á húsi fé-
lagsins og segir Kristinn að unnið
sé að því máli. Kristinn kveðst von-
ast til að hægt verði að selja húsið
í þessum mánuði og ljúka endur-
skipulagningu á fjárhag fyrirtækis-
ins á gneiðslustöðvunartímanum.
Stjórn Amarflugs M. boðar til hluthafafundar þriðjudaginn
9. janúar 1990 á Hótel Sögu, Súlnasal, kl. 20.30.
Fundarefni: Staða Arnarflugs hf.
Hluthafar eru hvatjjr til að fjölmenna.
_______________________________________Stjórn Arnarflugs hf.
Vegna fjölda áskorana!
Sýningin, sem slo svo eftirminnilega í gegn, í BROADWAY sl. haust,
er nú flutt á etri hæðina í Hollywood og hefst 19. og 20. janúar.
Stórsöwaram:
Ellý Vilhjálms, Þorvaldur Halldórsson,
Hjördís Geirsdóttir, og Trausti Jónsson
syngja frábær, sívinsæl lög síðustu
ára við texta Jóns Sigurðssonar, s.s.
„Ég vil fara“, „ Vorkvöld við flóann",
„Einsi ka!di“, „Upp undir Eiríksjökli",
„Nína og Geiri"o.fl., o.fl.
Leiðsðgumaður: Bjarni Dagur Jónsson.
Að lokinni sýningu leikur illjómsveiti Jons SÍgurðSSOnar fyrir dansi á efri hæð.
OÉ LÚNLÍ BLÚ BOJS
leika fyrir dansi á neðri hæðinni frá og með næstu helgi 12.0013. janúar.
Borðapantanir og miðasala er daglega í Hollywood, sími 83715, kl. 13-16.
TTfiiiZEo <a7
KRINGLUNNI
SKOLAVORÐUSTIG KRINGLUNNI
KRINGLUNNI
SISLEY