Morgunblaðið - 09.01.1990, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1990
13
alltaf séð spaugilegu hliðarnar á
tilverunni.
Við Sveinbjörn áttum sameigin-
legan afkomanda í lítilli dótturdótt-
ur minni og langafabarni hans,
Bryndísi Sveinbjörnsdóttur. Var
hún okkur báðum hjartfólgin og
sagði Sveinbjörn við mig að hann
hefði mörgum börnum kynnst en
fáum eins og Bryndísi.
Þegar við horfum upp í heið-
skíran himininn og sjáum stjörnurn-
ar blika þá fyllumst við sælukennd
vegna þeirrar fegurðar, sem fyrir
augun ber. Ég vildi gjaman líkja
stjömum himins við besta fólkið
sem við hittum á lífsleiðinni og
Sveinbjörn Helgason er ein þessara
stjarna í mínu lífi, slík var fegurð
sálar hans og hreinlyndi að mínu
mati, þótt ekki væru persónuleg
kynni okkar mikil. Þeim mun betur
þekkti ég hann af afspurn sem frá-
bærlega traustan og trúan sam-
starfsmann föður míns, Tryggva
Ófeigssonar, útgerðarmanns og for-
stjóra Júpítersfélagsins, sem gerði
Úranus út. Sveinbjörn brást aldrei
trausti hans, heldur skaraði fram
úr um áreiðanleika og stundvísi:
„Aldrei kom Sveinbjörn of seint til
skips.“
Virðing föður míns fyrir Svein-
birni Helgasyni átti sér traustan
grann í aðdáun á hæfni hans. Svein-
björn sagðist eitt sinn hafa lýst
hneykslan sinni á vinnulagi manna,
sem voru að dæla ólseigri olíu af
tönkum í Úranusi og voru búnir að
brenna yfir tvo mótora því álagið
var svo alltof mikið þegar olían var
ekki hituð.
„Þetta eru sérfræðingar," hafði
faðir minn sagt og gert fínt grín
að og Sveinbjörn svaraði: „Ég vil
enga helv... sérfræðinga, það
gengur allt saman á afturfótunum
þá.“ Faðir minn hafði þá hringt í
fyrirtækið og sagt: „Hann Svein-
bjöm vill enga sérfræðinga og olían
verður tilbúin í fyrramálið um há-
degið."
Svo samviskusamur var Svein-
bjöm að hann fór oft óbeðinn um
borð til að dytta að einu og öðru.
Vegna ljúflyndis síns og glaðværðar
var hann vinsæll, bæði hjá sam-
starfsmönnum sínum um borð sem
og vinnuveitendum.
Sveinbjörn bar hitann og þung-
ann af því að fara með skipin þrjú,
Neptúnus, Marz og Úranus, til
Spánar til niðurrifs. Um Neptúnus
sagði hann: „Ég var mánuð að und-
irbúa Neptúnus, sem var búinn að
liggja í á þriðja ár, allt kolfast í
vélinni af raka. Ég bjó til ljósanet
alveg, setti peru inn í hvern mótor.
Þetta var voða víravirki og ég lof-
aði því að standa. Þetta var eina
ráðið, enda klikkaði- ekki nokkur
skapaður hlutur.“ Úranus dró svo
Marzinn út. Um Úranus sagði hann:
„Ég held _að þeir hafi ekki ætlað
að bræða Úranus upp, því hann var
nýkominn af fiskiríi og í staka lagi.
Þeir spurðu mikið um hann og skoð-
uðu hann og ég spurði þá hvort ég
ætti að blása út af honum, af katlin-
um. Nei, nei, nei, nei, var svarið."
í janúarbyijun 1960 var óttast
um að Úranus hefði farist á leið
af Nýfundnalandsmiðum, þar hafði-
gert aftakaveður. Heyrðist ekkert
í skipinu í vikutíma. Allt fór samt
vel en loftskeytatækin höfðu orðið
óvirk er sjór braut glugga í stýris-
húsinu og gekk aftur í loftskeyta-
klefann.
Sumarið 1964 varð Sveinbjöm
fyrir því slysi um borð að ventill í
vél þeyttist á neðanvert andlit hans
og hann kjálkabrotnaði og maskað-
ist á honum hakan. Þurfti að gera
á honum barkaskurð vegna þess
að svo mikið blæddi ofan í hann.
Þetta slys olli því að hann fékk
seinna asma.
Eftir að í land kom fór Svein-
björn að vinna hjá Vélsmiðju Hafn-
arfjarðar og síðar um tíma hjá Jósa-
fat Hinrikssyni. Eftir að hann missti
konuna leigði hann íbúð hjá vini
sínum og fyrrum skipsfélaga, Jens
Hinrikssynij sem hafði komið 1.
vélstjóri á Úranus nýjan. A Hrafn-
istu fór hann 1986 en var síðasta
árið sem hann lifði á Vífilsstöðum.
Blessuð sé minning mæts manns,
megum við eignast sem flesta slíka.
Dóttur hans og fjölskyldunni allri
sendi ég einlægar samúðarkveðjur.
Rannveig Tryggvadóttir
SLEPPTU EKKI
HENDINNI
AF HEPPNINNI!
Hvergi í heiminum er jafnhátt vinningshlutfall og hjá Happdrætti Háskólans,
því 70% af veltunni renna beint til vinningshafa! Þar með er vinningsvonin hvergi jafnmikil
og hjá Happdrættinu. í ár eru yfir 2000 milljónir króna í pottinum. í raun gæti annar hver íslendingur
hlotið vinning því að vinningarnir eru 135.000 talsins. Mest getur þú unnið 45 milljónir á eitt
númer — allt skattfrjálst. Með trompmiða er hægt að vinna 10 milljónir króna í hverjum
mánuði og 25 milljónir í desember.
Tryggðu þér happamiða strax - þú mátt bara til!
HAPPDRÆTTI
HÁSKÖLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
Miðaverð:500 kr.
ARGUS/SlA