Morgunblaðið - 09.01.1990, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANUAR 1990
15
Morgunblaðið/Bjami
Tíu dagar til þorra
Undirbúningur stendur sem hæst hjá matreiðslumeisturum iandsins
undir þorra, en hann hefst föstudaginn 19. janúar n.k. Á myndinni að
ofan er Jóhannes Stefánsson matreiðslumeistari að athuga súrinn í búri
veitingahússins Múlakaffi. Sælkerar landsins eru eflaust famir að hlakka
til, því á þorra bjóða veitingastaðir upp á gamlan íslenzkan mat, súran
innmat, blóðmör, lifrarpylsu, lundabagga,.hrútspunga og fleira góðgæti
og svið og hangikjöt er í boði fyrir þá sem ekki hafa vanist súrsuðum
mat. Þorrablótin þykja ómissandi enda hafa þau færst í vöxt á undanföm-
um árum, og er þá gjaman boðið upp á tár af íslensku brennivíni með
þorramatnum.
Skýrsla nefiidar félagsmálaráðherra;
Fjárhagsstaða sveitarfélaga
almennt versnað síðan 1986
LÖGÐ var fram á ríkisstjórnarfúndi á fostudag skýrsla neftidar sem
félagsmálaráðherra skipaði til að kanna orsakir versnandi fjárhags-
stöðu sveitarfélaga og gera tillögur til úrbóta. Kemur þar fram að 12
sveitarfélög þurfa að mati ráðuneytisins að beita hörðum aðhaldsað-
gerðum og fá fjárlvagslega aðstoð til að komast úr ijarhagsörðugleikum
sinum.
Skýrsla þessi, sem að sögn Hún-
boga Þorsteinssonar, skrifstofustjóra
í félagsmálaráðuneytinu og for-
manns nefndarinnar er sú fyrsta
sinnar tegundar, nær til áranna
1986- 1988. í fyrstu var farið yfir
fjárhag nánast allra sveitarfélaga á
landinu, en síðan vom tekin út 28
sveitarfelög til nánari athugunar.
Af þessum 28 era 12 talin eiga við
mjög mikla fjárhagserfiðleika að
etja.
í grófum dráttum er- niðurstaða
skýrslunnar sú að fjárhagsstaða
sveitarfélaga hefur almennt versnað
frá árinu 1986. Era þar margþættar
orsakir að baki: Tekjur jöfnunarsjóðs
sveitarfélaga hafa verið skertar, mis-
munandi tekjumöguleikar sveitarfé-
laga koma niður á sumum þeirra,
erfiðleikar í atvinnurekstri, of miklar
fjárfestingar miðað við tekjur og
stofnun þjónustuútgjalda án þess að
tekjur séu fyrir hendi.
Ymsar tillögur e_ru gerðar til úr-
bóta í skýrslunni: Áhersla er lögð á
að lögum um tekjustofna sveitarfé-
laga og verkaskiptingu ríkis og sveit-
arfélaga sé fylgt eftir, jöfnunarsjóður
verði ekki skertur, hert verði skil á
ársreikningum sveitarfélaga og gerð
fjárhagsáætlana, lánasjóði sveitarfé-
taga verði einnig gert að lána til
skuldbreytinga en ekki bara til fram-
kvæmda og farið verði varlega í
ábyrgðir og þátttöku í atvinnu-
rekstri. Varðandi verst settu sveitar-
félögin er lagður til verulegur sam-
dráttur í framkvæmdum og fjárfest-
ingum.
Þyrla náði í slasaðan skipverja
Ríkisstjórnin telur að rétta megi
stöðu sveitarfélaganna með þeim
aðgerðum sem lagðar eru til. Ekki
er talin ástæða til að taka f leiri sveit-
arfélög í svokallaða gjörgæslu ríkis-
ins, frekar en þegar er orðið, þau
verst settu ættu að ná sér á strik
með ströngum aðhaldsaðgerðum og
með aðstoð iána- og jöfnunarsjóðs
sveitarfélaga.
Auk Húnboga sátu í nefndinni
Páll Guðjónsson bæjarstjóri og Þórð-
ur Skúlason sveitarstjóri, tilnefndir
af Sambandi íslenskra sveitarfélaga,
Kristófer Oliversson, skipulagsfræð-
ingur tilnefndur af Byggðastofnun
og Sveinbjörn Óskarsson deildar-
stjóri, tilnefndur af fjármálaráð-
herra.
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar
náði i slasaðan skipverja um borð
í danska eftirlitsskipið Beskytt-
eren á sunnudagskvöld. Maður-
inn hafði slasast á hendi og var
hann fluttur á Borgarspítalann í
Reykjavík.
Eftirlitsskipið Beskytteren var
statt á Dohrnbanka þegar slysið
varð, en ekki fengust upplýsingar
um það í gær hvernig maðurinn
slasaðist. Þyrla um borð í Beskytt-
eren var biluð og var því óskað
aðstoðar Landhelgisgæslunnar.
Þyrlan og eftirlitsskipið mættust
út af Breiðafirði, þar sem skip-
veijinn var hífður upp í þyrluna.
Hún lenti við Borgarspítalann rétt
fyrir klukkan 20 á sunnudagskvöld.
Skrifstofutækninám
Betra verð - einn um tölvu
Tölvuskóli íslands
S: 67 14 66
KOTASÆLA
fitulítil og freistandi
Þessi fitulitla og kalkríka afurð býr yfir óþrjótandi fjölbreytni:
Hún er afbragð ein sér, frábær ofan á brauðið með t.d.
kryddjurtum, gæðir súpuna rjómabragði og gefur sósunni
á grænmetissalatið fyllingu og ferskleika.
KOTASÆLA — fitulítil og freistandi
Macintosh - Kennarabraut
Skemmtileg og fræðandi námskeið í tveimur áföngum,
sérstaklega ætluð kennurum á öllum skólastigum, hefjast í
janúar. Kvöld- og helgartímar.
Menntun sem metin er til stiga hjá námsmatsnefhd og hægt
er að sækja um styrk í endurmenntunársjóði.
Lögð er áhersla á notkun Macintoshtölvunnar við
námsefnisgerð, nemendabókhald og verkefnagerð.
Tölvu- og verkfræ&iþjónustan Hringdu og fáöu
Grensásvegi 16 • Sími 68 80 90 námsskrá senda
Snjólítið á skíða-
stöðum í Olpunum
Hefur ekki enn komið niður
á skíðaferðum frá Islandi
SNJÓR hefur verið takmarkaður á flestum af stóru skíðastöðunum
í Ölpunum í vetur. Lítillega snjóaði í Frakklandi og Austurríki um
jólin, en siðan þá hefur snjórinn bráðnað jafiit og þétt. Ekkert hefur
snjóað í V-Þýskalandi, Sviss og flestum skíðastöðum á Italíu.
Fullbókað var á nær alla skíða-
staði í Ölpunum milli jóla og nýárs,
en snjórinn lét sig vanta þriðja árið
í röð. Margir héldu heim áður en
fríið var búið. Hópur Islendinga
lenti í þeirri aðstöðu að horfa upp
í grænar skíðabrekkurnar í Aust-
urríki. Að undanförnu hefur nokkuð
verið um að skíðaferðir, einkum til
Sviss og Ítalíu, hafi verið felldar
niður frá öðrum Evrópulöndum.
Þetta snjóleysi hefur enn ekki
komið við íslensku ferðaskrifstof-
urnar, sem bjóða upp á skíðaferðir.
íslenskir skíðaáhugamenn fara
yfirleitt ekki í þessar ferðir fyrr en
í lok janúar, en þá getur snjór þak-
ið skíðasvæðin í Ölpunum.
Sigrún Sigurðardóttir hjá Sam-
vinnuferðum/Landsýn sagði að al-
mennur samdráttur í þjóðfélaginu
hafi dregið úr skíðaferðum eins og
öðrum ferðum. „Þá horfa þeir sem
hafa hug á að fara í skíðaferð til
Alpanna á ódýrari ferðir en áður.
Við bjóðum upp á pakkaferðir, t.d.
til Saalbach, og eru þær hlutfalls-
lega ódýrari en í fyrra.“
Guðrún Sigurgeirsdóttir hjá Úr-
vali, sem býður t.d. upp á ferðir til
Badgastein, tók í sama streng og
sagði að þar sem verð á flugi væri
hagstæðara í ár, væri hægt að bjóða
upp á svipað verð og sl. vetur.
Úrval býður t.d. upp á tveggja
vikna pakka til Badgastein: Flug
til Salzburg, akstur og gisting í
tveggja manna herbergi með hálfu
fæði á 55.800 kr. Samvinnuferð-
ir/Landsýn býður t.d. upp á ferð
til Saalbach: Flug til Salzburg, akst-
ur og gisting í tvær vikur með
morgunverði á kr. 59.800. Á báðum
þessum stöðum er verð á skíðapöss-
um um tólf þúsund kr. í fjórtán
daga. Þess má geta að verðmismun-
ur er á milli staða í Austurríki, eða
eftir því hvemig aðstöðu er boðið
upp á.
Mikil aukning hefur orðið á að
skíðamenn fari á eigin vegum í
skíðaferðir. „Það er að aukast að
fólk, sem hefur áður farið til Aust-
urríkis í skíðaferð, fari á eigin veg-
um. Þetta fólk þekkir þá vel til lítilia
hótela og vill fara á sama stað ár
eftir ár. Pantar þá hótelherbergi
ári áður, eða um leið og það heldur
heim á leið úr skíðaferðinni," sagði
Sigrún Sigurðardóttir hjá Sam-
vinnuferðum/Landsýn. „Um leið
tekur fólkið áhættu, því að það er
ekki öruggt með snjó á svæðinu að
ári. Við bjóðum aftur á móti upp á
betri tryggingu í þessu sambandi.
Við getum fært fólk auðveldlega á
milli staða, eða eftir því hvar snjór
er hverju sinni.“
Morgunblaðið fékk þær upplýs-
ingar hjá skíðaáhugamanni, sem
hefur skipulagt ferðir sínar sjálfur
ár eftir ár, að tveggja vikna ferð
kosti hann 65 þús. kr. í ár. Inni í
þessu verði eru flug, bílaleigubíll,
hótel með hálfu fæði og skíðapassi.
Þessi skíðamaður flýgur héðan til
Lúxemborgar og ekur þaðan til
Austurríkis.
V estmannaeyjar:
Kviknaði
í jóla-
skreytingu
Vestmannaeyjum.
Á þrettándanum kviknaði í
jólaskreytingu á sjúkrahúsinu í
Eyjum. Starfsfólki sjúkrahúss-
ins tókst með snarræði að kæfa
eldinn áður en hann náði að
valda tjóni.
Grímur
AUK/SlA k9d1-387