Morgunblaðið - 09.01.1990, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1990
I
Bretland:
Leysibyssa flotans veldur deilum
Varnarmálayfirvöld 1 Bretlandi telja að fjölmiðlaumfjöll-
unin dragi úr áhrífamætti vopnsins.
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
SPÆNSKUR blaðamaður upp-
lýsti í síðustu viku, að leysibyssa
væri á að minnsta kosti einni af
freigátum brezka flotans. Brezk
*ú>\°
Bjóðum flestar vörur
okkar á 5-50%
afslætti næstu
daga.
• CASPARI
VÖRUR
• BLÓMA-
SKREYTINGAR
• MESSINGVÖRUR
• KERTI
• KERTASTJAKAR
• SERVÍETTUR
og margt fleira.
Hafnarstræti 15
Sími 21330
blöð birtu upplýsingar um byss-
una um helgina. Varnarmálayfir-
völd í Bretlandi telja að íjölmiðla-
umijöllunin dragi úr áhrifamætti
vopnsins.
Brezkum blöðum hafði verið
kunnugt um það í heilt ár að leysi-
byssur væru á freigátum flotans.
En þau höfðu farið að tilmælum
vamarmálayfirvalda um að segja
ekki fréttir af þeim. Spænski blaða-
maðurinn var um borð í freigátunni
Coventry í nóvember sl., þar sem
hún var við æfingar í Miðjarðar-
hafinu á vegum NATO. Þá gleymd-
ist að hylja byssuna, þegar haldið
var til hafnar, og náði blaðamaður-
inn mynd af henni.
Leysibyssan er notuð gegn flug-
vélum til að blinda f lugmanninn um
stund og koma í veg fyrir að hann
geti beint vopnum sínum að skip-
inu. Brezk yfirvöld neita því, að
byssan geti skaðað sjón flugmann-
anna.
Byssan var á freigátum á Persa-
flóa og brezkir flotaforingjar telja
hana nauðsynlegan varnarbúnað
skipa sinna. Þeir segja líka að um-
fjöllun fjölmiðla um byssuna komi
í veg fyrir að hún geti haft áhrif.
Það er einfalt að setja síur eða
skerma á f lugvélar til að skýla þeim
fyrir leysigeislanum.
Talsmenn Verkamannaflokksins
hafa mótmælt því, að flotinn hafi
tekið í notkun leysibyssur. Þeir
segja þær auka á vígbúnaðarkapp-
hlaupið. Þeir benda einnig á, að
Bandaríkin og Sovétríkin hafi gert
með sér samkomulag, sem hafi
gengið í gildi um áramótin, um
bann við notkun leysigeisla, sem
gætu skaðað flugmenn. En sam-
komulagið var gert, eftir að banda-
rískir flugmenn sögðust hafa orðið
fyrir leysigeislum, þegar þeir voru
að fylgjast með æfingum sovézka
flotans á Svartahafi.
Reuter
Áhöfn geimferjunnra Kólumbíu gengur brosmild til ferjunnar í gær-
morgun. Fjórum stundum síðar varð áhöfnin að ganga frá borði þar
eð vont veður kom í veg fyrir geimskot.
Geimskoti Kólumbíu frestað
Canaveralhöfða. Reuter.
GEIMFÖR geimfeijunnar Kól-
umbíu var frestað í gær um sól-
arhring vegna veðurs, að sögn
talsmanns bandarísku geim-
ferðastofnunarinnar.
Ráðgert er að Kólumbía verði
10 daga á braut um jörðu og verð-
ur mikilvægasta viðfangsefni
áhafnarinnar að bjarga gervitungli
á stærð við strætisvagn. Vegna
bilunar hefur það sigið af braut
sinni og nálgast gufuhvolfið.
Mundi það hrapa til jarðar ef ekki
yrði reynt að bjarga því.
Allt var klárt fyrir geimskot í
gær og hafði fimm manna áhöfn
Kólumbíu setið í sætum sínum í
fjórar klukkustundir er ákveðið var
að fresta skoti vegna svartra óveð-
ursskýja yfir skotstaðnum og í
nágrenni hans. Reynt verður að
skjóta Kólumbíu á loft í dag. Upp-
haf lega var ráðgert að skjóta henni
á loft fyrir þremur vikum og má
ferðin ekki tefjast frekar ef takast
á að bjarga hinum bilaða gervi-
tungli.
Franski kommúnistaflokkurinn:
Marchais sætir opinskárri gagn-
rýni samflokksmanna sinna
París. Reuter.
FRANSKI kommúnistaleiðtoginn Georges Marchais sætir nú opin-
skárri gagnrýni samflokksmanna sinna og hefúr slíkt ekki gerst áður
á 17 ára valdaferli hans. Hann er meðal annar sakaður um að hafa
verið í vinfengi við fyrrum alræðisherra í Rúmeníu, Nikcolae Ceauses-
cu, sem tekinn var af lífi á jóladag.
Gengi kommúnistaflokksins hef-
ur hríðfallið frá því að Marchais tók
við flokksforystunni 1972. Nú eru
uppi kröfur um að hann segi af sér
og koma þær meðal annars frá
kommúnískum borgarstjórum sem
verið hafa driffjaðrir sjálfrar
flokksvélarinnar. Jacques Isabet,
borgarstjóri í kjördæminu Pantin í
París, krafðist afsagnar Marchais á
laugardag og sama dag héldu and-
stæðingar leiðtogans opinberan
Sföustu innritunardagar
TJÚTT
Su&ur-An»er>sk»r
Kennsla
hefst 8. janúar
Sértimarí
fáttiog
rokki
0fynru ngtfóik
QQo
V
2
vJÚ'
oQ
pvV
o
^6V\S&S'
&atnk
REYKJAVI
Kennslustoöir:
KR, Frostaskjóli,
laugardaga fyrir
ollo oldurshópo,
Templorohöllin,
Sundlougoveg 34.
^mfs
n .. ’standard-
Þjalluiilm
keppnisilansa tp merkjapml O.Í.
Innrilun i sima 611997 frá kl. 10-19
fund í höfuðborginni til að ráða
ráðum sínum.
„Ég vil að hann fari frá,“ sagði
Isabet í ræðu sem hann hélt þegar
afhjúpað var nýtt nafn á götu í
kjördæmi hans — „Rue Timisoara"
eftir rúmensku borginni þar sem
öryggislögregla Ceausescus strá-
felldi almenna. borgara sem voru
að mótmæla alræðisstjóm hans.
Pantin er eitt af síðustu vígjum
kommúnistaflokksins í norðurhluta
Parísar, á „rauða beltinu" sem kall-
að var, þar sem flokkurinn var eitt
sinn hvað sterkastur.
Umbótasinnar innan flokksins
segja að forystan haldi sig enn við
sömmu kreddurnar og fyrir opnun-
arstefnu Gorbatsjovs og hampa
fregnum um að Marchais hafi varið
sumarleyfi sínu við Svartahafið í
boði stjómar Ceausescus áður en
tengslunum við hana var slitið
1984.
Mótstöðumennirnir sem hingað
til hafa forðast að ganga fram fyr-
ir skjöldu hittust á opinberum fundi
í París á laugardag til þess að koma
sér saman um aðgerðir gegn leið-
Georges Marchais
toganum. Sumir huldu andlit sitt
fyrir fréttamönnum af ótta við
hefndarráðstafanir af hálfu flokks-
forystunnar. Eftir að fundinum lauk
gagnrýndu nokkrir úr miðstjórn
flokksins forystusveitina: „Það er
kominn tími til að forystan birti
réttar tölur um félagafjöldann,"
sagði miðstjómarmaðurinn Claude
Poperen við fréttamenn. „Hættum
að halda fram tölunni 600.000 þar
sem við vitum að það hálfa er nær
sanni.“
Á laugardag fordæmdi miðnefnd
kommúnistaf lokksins' árásir á
flokkinn og sakaði sósíalistaflokk-
inn og Francois Mitterrand forseta
um að standa fyrir andróðursher-
ferð gegn kommúnistum.
1. leikvika - 6.desember 1989
Vinningsröðin: X11-22X-X22-212
831.258- kr.
0 voru með 12 rétta - og fær hver: 0- kr. á röð
5 voru með 11 rétta - og fær hver: 49.875- kr. á röð
Tvöfaldur pottur -
um næstu helgi!!