Morgunblaðið - 09.01.1990, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. JANÚAR 1990
Minninff: ^
SigríðurL. Jóhanns-
dóttirfrá Siglufírði
Fædd 24. apríl 1893
Dáin 26. desember 1989
Lára fæddist i Árgerði, Svarfað-
ardal, en ólst upp á Sauðanesi á
Upsaströnd. Foreldrar hennar voru
hjónin Þóra Baldvinsdóttir og Jó-
hann Gunnlaugsson.
Hún giftist Jóhanni Bjarnasyni
og bjuggu þau á Siglufirði þar til
. Jóhann lést. Eina dóttur áttu þau,
Láru Jóhönnu, starfandi skrifstofu-
stúlku í Reykjavík.
Mínar fyrstu minningar frá
bemskudögum eru tengdar Láru og
hennar heimili. í þá daga áttum við
heima hvor á móti annarri á Grund-
argötunni og var það gott nýbýli.
Lára litla, eins og ég kallaði hana
alltaf til aðgreiningar frá móður
hennar, Láru stóru, og ég urðum
fljótt vinkonur. Þegar ég bjó á Siglu-
nesi kom aldrei annað til greina en
að ég byggi hjá Lárunum þegar ég
dvaldi í bænum. Þessar heimsóknir
eru mér mjög minnisstæðar, ekki
síst sú hlýja sem mætti mér ætíð.
Lára var forstöðukona Gesta- og
Jksjómannaheimilisins á Siglufirði um
árabil. Naut hún trausts og virðing-
ar í starfi sínu.
Hún starfaði í Stúkunni Framsókn
og var heiðursfélagi í Stórstúku ís-
lands.
Árið 1956, eftirlát Jóhanns, fluttu
þær mæðgur til Reykjavíkur. Þar
starfaði Lára í ísborg í Austurstræti
meðan aldur og heilsa leyfði. Þar
sem annars staðar naut hún trausts
og vinsælda.
Margar minningar á ég og fjöl-
skylda mín frá þessum árum. Fyrir
utan hvað hún lét sér annt um vel-
ferð fjölskyldu minnar, verður mér
hugsað til margra ánægjustunda
sem við áttum hjá hvor annat*n.
Lára var einstök í garð dætra minna
og minnast þær í dag ótal atburða
svo og ótakmarkaðs áhuga hennar
á því sem þær tóku sér fyrir hendur.
Síðustu áratugina þegar heilsu
tók mjög að hraka átti hún öruggt
skjól á heimili þejrra mæðgna og
annaðist Lára dóttir hennar hana
af einstakri ást og umhyggju þar til
yfir lauk. Lára hélt fullum andlegum
styrk og reisn. Hún lést á annan dag
jóla á Vífilsstöðum.
Nú að leiðarlokum sendum við
þér, Lára mín, okkar dýpstu samúð-
arkveðjur. Löngum og farsælum
ævidegi er lokið.
Guðrún I. Oddsdóttir
Kynslóðir koma,
kynslóðir fara,
allar sömu ævigöng.
Oft verður manni hugsað um þess-
ar ljóðlínur og þá ekki hvað síst
þegar góðir vinir og samferðamenn,
sem náð hafa háum aldri eru að
kveðja eftir langan og farsælan
ævidag. Og þetta verður líka oft til
þess að maður fer í alvöru að hugsa
um mannsævina og hve ólík hún
getur verið frá vöggu til grafar og
hve lærdómsríkt getur verið að
minnast góðra samferðamanna og
hve ríka ástæðu við höfum oft til
að vera þeim þakklát fyrir þær minn-
ingar sem við geymum um liðnar
samverustundir, þegar komið er að
leiðarlokum. Því þótt við séum að
nafninu til samferða á lífsleiðinni
þá á hvert okkar sína ákveðnu
lífsreynslu, sem við höfum gott af
að kynnast og getur orðið okkur
lærdómsefni þegar stundir líða.
Þannig varð mér hugsað nú eftir
jólin þegar ég frétti um andlát frú
Láru Jóhannsdóttur frá Siglufirði
sem lést á Vífilsstaðaspítala á annan
dag jóla sl. að loknum löngum og
MOTTll osteppa
20-50%
Gram
Tepp*
afslánur
farsælum ævidegi en eftir þráláta
vanheilsu hin síðari ár. Hér í
Reykjavík hafði hún átt heima rúma
3 síðustu áratugina.
Sigríður Lára, eins og hún hét
fullu nafni, var íædd 24. apríl 1893,
að Árgerði í Svarfaðardal og voru
foreldrar hennar þau hjónin Jóhann
Gunnlaugsson, skipstjóri, ættaður
úr Svarfaðardal og Þóra Baldvins-
dóttir frá Böggvistöðum. Lára flutt-
ist innan fermingar með foreldrum
sínum að Sauðanesi á Upsaströnd
og var elst 5 systkina er náðu full-
tíðaaldri og er hið síðasta þeirra að
kveðja. Vor foreldrar systkinanna
alkunn merkishjón og kunn við Eyja-
§örð og víðar fyrir dugnað og mynd-
arskap. Var Jóhann lengi meðal
þekktustu hákarlaformanna við
Eyjafjörð á sinni tíð, og var heimili
þeirra að Sauðanesi einskonar út-
vörður á ströndinni við vestanverðan
Eyjafjörð. Þótti mörgum gott að leita
þar hælis er leið áttu þar um strönd-
ina.
Oft minntist frú Lára æskuheimil-
isins að Sauðanesi og fegurð Eyja-
fjarðar leið henni ekki úr minni.
Frá Eyjafírði lá leið Láru til Siglu-
fjarðar eða á árunum eftir 1920.
Þar vann hún við verslunarstörf eða
síldarsöltun, eftir atvikum, því að
þetta var á þeim árum sem Siglu-
fjörður var sem óðast að byggjast
og helst var von um góða sumar-
vinnu. Nokkru síðar fluttu foreldrar
hennar til Siglufjarðar og áttu þar
heima sín síðustu ár. Þangað flutt-
ust einnig bræður frú Láru sem
reyndust þar dugandi sjómenn og
skipstjórar og skiluðu merkilegu
ævistarfí.
í Siglufirði giftist Lára 7. júní
1924 Jóhanni Bjarnasyni, ættuðum
úr Skagafirði. Hann stundaði lengst
af verslunarstörf í Siglufirði og önn-
ur störf er til féllu. Var Jóhann hið
mesta ljúfmenni og vinsæll af öllum
er kynntust honum. Hann lést í Si-
glufirði 1953. Þau ólu upp eina fóst-
urdóttur, systurdóttur Jóhanns,
Láru Jóhönnu, sem kom til þeirra
nokkurra vikna gömul og þau gengu
algjörlega í foreldra stað.
l’HÆTTIÐ
AÐ
BOGRA
VIÐ
ÞRIFIN!
N ú fást vagnar með nýrri vindu
par sem moppan er undin með
einu handtaki án pess að taka
purfi hana af skaftinu. Moppan fer
atveg inn í horn og auðveldlega
undir húsgögn. Einnig er hún
tilvalin í veggjahreingerningar.
Þetta pýðir auðveldari og betri prif.
Auðveldara,
fljótlegra og
hagkvæmara!
Nýbýlavegi 18
Sími 641988
Eftir lát Jóhanns bjuggu þær
mæðgur saman í Siglufírði og síðar
hér í Reykjavík og er það lofsverður
kafli út af fyrir sig hvernig yngri
Lára hefur reynst móður sinni alla
tíð og það best þegar hún hefur
þurft mest á að halda. Það hefur
verið lærdómsríkt að kynnast því
góða sambandi sem þar hefur jafnan
verið milli móður og dóttur. Ég tel
það fullkomlega vafasamt að nú til
dags fyrirfinnist önnur eins um-
hyggja og nærgætni sem eldri Lára
naut hjá þessari elskulegu dóttur
sinni. Og þó að sumum finnist hér
kannski fast að orði kveðið er hér
ekki um neitt oflof að ræða, sem
allir geta staðfest sem til þekkja.
Lára Jóhannsdóttir var vel gefin
kona og hélt sínu andlega þreki til
dauðadags, þótt líkamlegt þrek
hennar færi hrörnandi hin síðari ár.
Henni féll sjaldan verk úr hendi.
Meðan hún var húsmóðir í Siglufírði
brá hún sér í síld milli húsverkanna
eins og siður var þar margra hús-
mæðra, því á þeim árum byggðist
afkoma margra heimila á því að
hjónin ynnu bæði úti yfir síldar-
tímann við þau störf sem beint eða
óbeint tengdust síldarvertíðinni.
Lára tók mikinn þátt í félagslífi
bindindismanna í Siglufírði. Það var
henni verulegt hugsjónamál. Hún
var mjög virkur meðlimur í St. Fram-
sókn alla tíð. Meðan stúkan rak Sjó-
manna- og gestaheimili Siglufjarðar
veitti Lára heimilinu forstöðu og sá
um daglegan rekstur þess í ágætri
samvinnu við starfsfólk og stjórn
heimilisins og ávann sér virðingu og
þakklæti sjómanna og verkafólks
sem starfsins áttu að njóta og naut
þar hinnar bestu fyrirgreiðslu.
Frú Lára var hinn ágætasti starfs-
kraftur fyrir sakir lipurðar og stjórn-
semi, og fyrir það hve ábyggileg hún
var í öllum greinum og vann sér
fljótt traust og virðingu allra er leit-
uðu til heimilisins. Hún bar jafnan
velferð þess fyrir brjósti og vann þar
oftast meira en henni bar skylda til.
Þegar svo síldveiðarnar brugðust að
mestu ár eftir ár fyrir Norðurlandi
og fólk hætti að koma norður í at-
vinnuleit, lagðist starfsemi sjó-
mannaheimilisins að mestu niður en
fékk þó síðar nýtt hlutverk, og varð
í allmörg ár eins konar félagsheim-
ili Siglufjarðar meðan húsið gat uppi
staðið. Þótti sjálfsagt að frú Lára
væri hinn fasti og öryggi starfskraft-
ur.
Eftir að þær mæðgur fluttu hing-
að suður 1956 tók Lára minni þátt
í félagslífi en áður en hugsaði um
heimili þeirra mæðgna en vann einn-
ig nokkuð við veitingastörf eftir því
sem henni hentaði, því að hún kom
sér alls staðar vel sökum skyldu-
rækni og trúmennsku; hún var ekki
eitt í dag og annað á morgun og
húsbændur hennar fundu fljótt að
hvert það starf sem henni var falið
var í góðum höndum. Hún kaus að
vinna störf sín í kyrrþey og vildi
jafnan sem minnst láta á sér bera
og ekki taka að sér meiri störf en
hún gæti rækt að fullu.
Síðustu árin í lífi hennar voru að
ýmsu leyti henni erfið ár sökum
vaxandi vanheilsu en hún bar þær
byrðar með þolinmæði, og þó líkams-
þrekið dvínaði smám saman hélt hún
skýrri hugsun og andlegu lífsþreki
til hinstu stundar og hún var svo
gæfusöm að fá að njóta vakandi
umhyggju dóttur sinnar og þeirrar
læknishjálpar og hjúkrunar á Vífils-
staðaspítaía sem unnt var að veita.
Fyrir þetta allt var hún innilega
þakklát svo og fjölmörgum vinum
sínum fýrir langa samfylgd, vináttu
og tryggð og þeim sem hugsuðu til
hennar og fylgdust með líðan henn-
ar.
Á öruggu trúartrausti hafði hún
byggt líf sitt. í skjóli jólahelginnar
fékk hún að kveðja og sofna sinn
síðasta blund, laus við þreytu og
þjáningar þessa jarðlífs í von um
endurfundi horfinna ástvina sinna
og umvafin þakklæti margra sam-
ferðamanna frá liðnum ævidegi.
Og öll viljum við að lokum samein-
ast henni í þessari bæn:
Láttu mig Drottinn lofa þig,
með lofi þínu hvíla mig.
Ljósið í þínu ljósi sjá,
lofa þig strax sem vakna má.
(H.P.
Guð blessi minningu góðrar konu.
Óskar J. Þorláksson