Morgunblaðið - 17.01.1990, Blaðsíða 44
SJOVAOoALMENNAR
MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1990
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
Símvirkj-
ar hindra
viðgerðir
FÉLAGAR í Félagi símvirkja
stóðu í gærkvöldi verkfallsvörð
við slitinn streng á Amamesi og
meinuðu viðgerðarmönnum frá
Pósti og síma aðgang, en stór
svæði á Arnarnesi og í Garðabæ
eru sambandslaus.
Óskar Ingimundarson, varafor-
maður Félags símsmiða, sagði að
varsla yrði við símastrenginn 24 tíma
sólarhringsins og komið yrði í veg
fyrir allar tilraunir til viðgerða. Taldi
hann ijóst að verkfallsverðir myndu
heimsækja fleiri staði í dag.
Ólafur Tómasson, póst- og síma-
málastjóri, sagði í gærkvöldi að
stofnunin hlyti að bregðast við að-
gerðum verkfallsvarða; stofnunin
væri ekki tilbúin að sitja undir slíkum
ólögiegum aðgerðum. „Þetta sýnir í
hvaða hættu þjóðfélagið er komið,
ef menn geta með ólögmætum að-
gerðum stöðvað fjarskipti," sagði
Ölafur.
Morgunblaðið/Sverrir
Verkfallsverðir Félags símvirkja við verkfallsvörslu á Arnarneshæð í gærkvöldi. Þeir halda á bil-
aða strengnum, en stór svæði á Arnarnesi og í Garðabæ eru símasambandslaus. Olafur Tómasson
póst- og símamálastjóri segist ætla að gefa samgönguráðherra, æðsta manni simamála, skýrslu um
málið í dag. Hann segir yfirvaldsins að sjá til þess að lögum sé framfylgt.
Hafíiarfjörður:
Hurð í íþrótta-
húsi sprengd
MIKIÐ lán var að ekki varð slys
í íþróttahúsi Víðistaðaskóla í
Hafiiarfirði um kl. 20 í gær-
kvöldi, þegar hurð að salnum var
sprengd upp með heimatilbúinni
sprengju. Fjöldi unglinga var á
íþróttaæfingu, en þeir höfðu sett
dýnu upp við hurðina að innan-
verðu, sem kom í veg fyrir að
brotin þeyttust inn í salinn og
slösuðu unglingana.
Að sögn lögreglunnar í Hafnar-
firði var um að ræða mjög öfluga
rörasprengju, sem var fest við gler-
ið að utanverðu, en í hurðinni var
10 mm plexígler, er splundraðist
og gekk langt inn í dýnuna.
Þrír piltar á fimmtánda ári voru
teknir til yfirheyrsiu grunaðir um
verknaðinn, en yfirheyrslum var
ekki lokið, er blaðið fór í prentun.
Piltarnir eru grunaðir um að vera
viðriðnir fleiri skemmdarverk af
svipuðu tagi, að sögn lögreglu.
Heilbrigðisráðherra kynnir sérfræðingum drög að reglugerð:
-Sj úklingar þurfí að nýju til-
vísun á sérfræðilæknishjálp
Sérfræðingar segja um brot á samningi við þá að ræða taki reglugerðin gildi
HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTIÐ hefúr kynnt sérfræðingum drög að
reglugerð, þar sem gert er ráð fyrir að sjúklingar þurfi tilvísun frá
heilsugæslu- eða heimilislækni við heimsókn til sérfræðings, eða vegna
rannsókna eða röntgengreiningar, ella greiði þeir hærra gjald. Sér-
fræðingar hafa tekið þessum hugmyndum illa og benda á að tilvís-
unarkerfí hafi verið fellt úr lögum á síðasta ári. Þá sé reglugerðin,
“^ðlist hún gildi, brot á samningi við sérfræðinga. Finnur Ingólfsson,
aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, neitaði í gærkvöldi að tjá sig um
reglugerðardrögin.
I drögunum eru taldar upp
greiðslur fyrir sérfræðilæknishjálp,
rannsóknir og röntgengreiningu
miðað við „að um sé að ræða form-
lega vísun frá heilsugæslu- eða
heimilislækni eða komu á slysa- eða
bráðamóttöku." Greiða skal 850
krónur fyrir hverja heimsókn til sér-
fræðings. Elli- og örorkulífeyris-
þegar greiði 300 krónur, þó aldrei
fyrir fleiri heimsóknir en tólf á ári.
Þeir, sem ekki hafa vísun, greiði 50%
af kostnaði, þó aldrei meira en 5.000
krónur í hvert skipti.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins eru sérfræðingar mjög mót-
fallnir þessum hugmyndum og segja
þær ekki samrýmast samþykkt Al-
Flensan fer
þjóða samtaka lækna um frelsi sjúkl-
inga til að velja sér lækna. Um háar
upphæðir geti orðið að ræða hjá
sjúklingum sem leita til sérfræðinga
án vísunar. Þannig kosti röntgegn-
mynd af lungum 3.000 krónur og
viðtal hjá lyflækni 1.600. Þá sé ekki
óalgengt að heimsókn á rannsóknar-
stofu kosti 5.000 krónur. Miðað við
að sjúklingurinn greiði 50% myndi
þetta kosta hann 4.800 krónur. Því
geti kostnaður sjúklinga skipt tugum
þúsunda eftir nokkur skipti.
Loks benda sérfræðingar á að
ekki sé skýrt hvað gildi um sjúklinga
sem ekki hafi heimilislækni, eða
hvort maður, sem verður bráðveikur
og leitar til sérfræðings án vísunar,
þurfi að greiða helming kostnaðar.
Samið var við sérfræðinga í árslok
1988 um að þeir gæfu eftir greiðslur
gegn því að tilvísunarkerfi yrði fellt
úr lögum, sem var gert í lok síðasta
árs. Sérfræðingar geta sagt samn-
ingnum upp fyrirvaralaust, verði
tilvísunarkerfi komið á. Það telja
þeir að verið sé að gera nú og orða-
lag í drögunum, þar sem talað er
um „vísun“ í stað „tilvísunar", sé
skollaleikur einn.
Finnur Ingólfsson, aðstoðarmaður
heilbrigðisráðherra, kvaðst í gær
ekkert vilja segja um málið, annað
en það, að fyrst Morgunblaðið væri
komið með drögin í hendur sýndi
það hversu vel mætti treysta sér-
fræðingum. Þegar hann var inntur
eftir því hvort um leyniplagg væri
að ræða svaraði hann: „Nei, nei,
þetta er ekkert leyniplagg. Þetta er
ekkert opinbert plagg heldur. Það
er verið að vinna að ákveðnum hlut-
um en þetta sýnir best hvers trausts
þeir eru verðir.“-
Leyfi fyrir 95
móttökudisk-
um síðasta ár
MUN fleiri sóttu um leyfi hjá
samgönguráðuneytinu til að
setja upp móttökudisk fyrir er-
lendar sjónvarpsstöðvar á síðasta
ári en til dæmis árið á undan. Á
síðasta ári sóttu 95 um slíkt leyfi
en 32 árið 1988.
Alls hafa 198 sótt um leyfi fyrir
móttökudiskum hér á landi frá upp-
háf i. Að sögn Jóhönnu Pétursdóttur
hjá samgönguráðuneytinu er bæði
um að ræða einstaklinga og hús-
félög. Allflestir sem sækja um fá
leyfi, en skilyrði fyrir því er að
upplýsingar um hvaða búnaður
verði notaður liggi fyrir, svo og
hvort ætlunin er að nota diskinn til
einkanota eða til dreifingar á sjón-
varpsefni. Ekki má dreifa efni til
fleiri en 36 íbúða.
Áður þurfti leyfi frá viðkomandi
sjónvarpsstöðvum að fylgja með
umsókninni. Svo er ekki lengur og
er það á ábyrgð notandans að afla
þeirra.
Óvenjuleg umsókn lögð fyrir ríkisstjórnina:
Þýsk kona vill byggja sum-
arbústað í Súgandafírði
sér hægt
FLENSAN sem greindist hér á
landi fyrir skömmu virðist fara
sér hægt samkvæmt upplýsing-
-^pjm borgarlæknis og hefiir hún
lítið gert vart við sig í grunnskól-
um borgarinnar.
Að sögn Skúla Johnsen borgar-
• læknis, hefur læknavakt í
Reykjavík ekki orðið vör við flensu-
faraldur og þegar haft var samband
við nokkra fjölmennustu skóla
borgarinnar bar mönnum saman
^’Tim að ekki væri óeðlilega mikið um
veikindaforföll síðustu daga.
VESTUR-ÞÝSKUR ríkisborgari, kona búsett í Vestur-Þýskalandi,
hefúr óskað eftir leyfi til að byggja eitt sumarhús í Selárdal i
Súgandafirði. Samkvæmt lögum um eignarétt verða menn að
vera íslenskir ríkisborgarar til að mega eiga fasteign hér á landi,
en heimilt er að veita undanþágu frá lögunum. Sveitarsljórnin á
Suðureyri hefúr tekið jákvætt í málið og Óli Þ. Guðbjartsson,
dómsmálaráðherra, helúr hug á að samþykkja umsóknina. Hann
lagði málið fyrir ríkisstjórnarfúnd í gær, en því var frestað til
föstudags.
Dómsmálaráðherra sagði við
Morgunblaðið í gærkvöldi að um-
sóknin væri að því leyti óvenjuleg
að umrædd kona hefði engin sér-
stök tengsl við ísland. „Ef menn
ætla að eignast hér fasteign, þá
þurfa menn að vera íslenskir ríkis-
borgarar. Undanþágur munu
einkum veittar vegna þriggja
ástæðna; þegar um er að ræða
einhver fjölskyldutengsl, atvinnu-
tengsl viðkomandi aðila eða við-
skiptatengsl. Það sem gerir þessa
umsókn sérstæða mun vera að
engin slík tengsl eru í málinu og
þess vegna fór ég með j>að á ríkis-
stjórnarfund," sagði Oli Þ. Guð-
bjartsson.
„Sveitarstjórnaraðilar vestur í
Súgandafirði eru búnir að sam-
þykkja þetta samhljóða fyrir sitt
leyti. Ég held að menn þar um
slóðir séu jákvæðir gagnvart
þessu og sjálfur tel ég að þetta
sé ekki stórmál og hef hug á að
samþykkja það, ef ekki verða
hörð andmæli hjá ríkisstjórninni,"
bætti dómsmálaráðherra við.
Ragnar Jörundsson, sveitar-
stjóri á Suðureyri, sagðist vera
mjög ánægður með umsóknina.
„Það er vilji hér fyrir að konan
fái þetta og ég vona að svo verði.
Glöggt er gests augað og þetta
verður kannski til þess að íslend-
ingar sjái sjálfir að við eigum
fallegt land — að ekki sé allt fall-
egra í útlöndum," sagði Ragnar.
Konan vill reisa rúmlega 100
fermetra sumarbústað á svæði,
sem skipulagt er fyrir sumarhús.
Þar hafa þegar fjögur verið reist
og eru tvö þeirra í eigu Súgfirð-
ingafélagsins.