Morgunblaðið - 11.03.1990, Blaðsíða 10
I í oeei shak .ri HUOAauMiíU8 aia/wianuoHOM
eftir Steingrim Sigurgeirsson
NÝTT PÓLITÍSKT ástarævintýri virðist nú vera í fæðingu
í Reykjavíkurborg. Flest bendir nú til að á næstu dögum,
jafhvel í dag, sunnudag, verði kynnt stofiiun félags, sem
að munu eiga aðild félagar úr Alþýðuflokknum, Birtingu
og óháðir einstaklingar. Enn er ekki ljóst hvort Borgara-
flokkurinn í Reykjavík mun eiga einhverja aðild að þessu
félagi. Markmið þess verður að standa að sameiginlegu
íramboði í borgarsfjórnarkosningunum gegn Sjálfstæðis-
flokknum. Hafa mörg nöfii verið nefiid í þessu sambandi
sem hugsanlega myndu gefa kost á sér í opið prófkjör sem
framboðslisti þessa nýja afls yrði valinn í. Hefði hver sá
rétt á þátttöku í því er myndi styðja stefhumið þessa afls.
Rætt hefur verið við fólk á borð við Ellert B. Schram, rit-
stjóra DV, Ólínu Þorvarðardóttur, fréttamann, Jón Magnús-
son, lögmann, Sigmund Erni Rúnarsson, fréttamann og
Kristínu A. Ólafsdóttur, borgarfúlltrúa Alþýðubandalags-
ins. Þeir Ellert og Sigmundur Ernir hafa neitað þessum
umleitunum. Enn er með öllu óljóst hvort félag þetta mun
þjóna einhverjum öðrum tilgangi en að bjóða fram í borgar-
stjórnarkosningunum í vor. Bjarni P. Magnússon, borgar-
fúlltrúi Alþýðuflokksins, hefúr í samtali við Morgunblaðið
lýst yfir stuðningi við áform af þessu tagi.
að er hins vegar ljóst
að ef af þessu fram-
boði verður munu einn-
ig bjóða fram í kosn-
ingunum þrír aðrir list-
ar minnihlutaflokk
anna, listar Alþýðubandalags,
Framsóknarflokks og Kvennalista.
Er það að heyra á talsmönnum Birt-
ingai' að þeir telji óánægju með
þessa lista vera helstu ástæðu þess
að hugmyndir af þessu tagi fengu
byr undir báða vængi á ný eftir að
félagsfundur í Alþýðubandalags-
félagi Reykjavíkur hafði fellt tillögu
um að ganga til samstarfs við aðra
flokka um sameiginlegt framboð.
Ekkert nafn hefur enn verið ákveð-
ið á hinn nýja lista en meðal þeirra
nafna sem munu vera í umræðunni
er „Nýr vettvangur í Reykjavík“.
Hugmyndin ekki ný
Hugmyndin um sameiningu
stjórnmálaaflanna á vinstri vængn-
um er ekki ný af nálinni, ekki síst
þegar borgarstjórnarkosningar eru
annars vegar. Hafa hugmyndir af
þessu tagi skotið upp kollinum
reglulega í tíð núverandi minnihluta
og hann keppst við það, að rninnsta
kosti framan af, að byggja upp
sambenta ímynd út á við. Má sem
dæmi nefna sameiginlegan tillögu-
flutning í fjölda mála og samstarf
t.d. í sambandi við breytingartillög-
ur við fjárhagsáætlun. Oft hefur
þó minnihlutinn greitt atkvæði sitt
á hvað í borgarstjórn þegar á hefur
reynt og upp úr sauð á síðasta ári
milli Alþýðuflokks og Alþýðubanda-
lags vegna hins svokallaða „Sjafn-
arrnáls". Annað nýlegt dæmi er að
fulltrúar minnihlutans hafa ekki
getað komið sér saman um fulltrúa
í yfirkjörstjórn fyrir borgarstjórnar-
kosningamar og þurfti því að fresta
afgreiðslu þess máls. Mun það vera
einsdæmi í sögu borgarinnar.
Þær umræður sem átt hafa sér
stað á síðustu vikum eru því í raun
einungis hluti af langri þróun. Það
má þó segja að viss kaflaskil hafi
orðið 18. júní á síðasta ári er stjórn-
málasamtökin Birting voru stofnuð
á fundi á Hótel Borg. Hópur yngra
fólks úr Alþýðubandalaginu er var
óánægt með stefnu forystuaflanna
þar á bæ tók sig saman og mynd-
aði samtökin. Strax í upphafi var
ljóst að þau vildu ekki einskorða
sig við' starf innan Alþýðubanda-
lagsins þó að þau stefndu að því
að verða fullgild deild innan þess.
„Það veit enginn hvað framtíðin ber
í skauti sér, hvort þetta er upphaf
klofnings Alþýðubandalagsins,"
sagði einn stofnendna Birtingar í
samtali við Morgunblaðið í júní
1989.
í lögum Birtingar voru markmið
þess skilgreind þannig, að félagið
ætti að vinna að því að efla hreyf-
ingu vinstri manna í íslensku sam-
félagi með því að stuðla að umræðu
um framtíðarverkefni þeirra, auka
samstarf fijálslyndra manna, eins
og komist er að orði og taka þátt
í landsstjórnar- og sveitastjórnar-
málum. Strax á fyrsta stjórnarfundi
bar Hrafn Jökulsson upp tillögu
þess efnis að stefna bæri að því að
ná saman vinstriflokkunum í
Reykjavík fyrir næstu borgarstjórn-
arkosningar. Þessi tillaga var sam-
Félag í undirbúningi sem
vinna á að framboói gegn
Sjálfstæóisfloliknum í
Reykjavik