Morgunblaðið - 11.03.1990, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 11. MARZ 1990
ATVIN N MMAUGL YSINGAR
Barnaspítali
Hringsins
Eftirfarandi stöðureru lausartil
umsóknar:
Staða 1. aðstoðarlæknis. Ráðning er frá 1.
júní nk. til eins árs. Um er að ræða ábyrgðar-
meiri aðstoðarlæknisstörf og eftirlit með
yngri aðstoðarlæknum. Þátttaka í kennslu
læknanema og ef til vill annarra heilbrigðis-
stétta. Þátttaka í rannsóknastarfsemi. Um
getur verið að ræða námsstöðu í barnalækn-
ingum eða starfsþjálfun til stuðnings í öðrum
sérgreinum. Skilyrði er að umsækjandi hafi
starfað á barnadeild.
Umsóknarfrestur er til 20. apríl nk.
Tvær stöður 2. aðstoðarlæknis. Stöðurnar
verða veittar til 6. mánaða. Önnur staðan
veitist frá 1. júlí og hin frá 1. ágúst nk. Um
er að ræða almenn störf aðstoðarlæknis.
Þátttaka í vöktum samkvæmt fyrirfram gerðri
áætlun. Bundnar vaktir.
Umsóknarfrestur er til 20. apríl nk.
Upplýsingar um ofangreindar stöður gefur
Víkingur H. Arnórsson, forstöðulæknir, í síma
601050.
Umsóknir á umsóknareyðublaði lækna,
ásamt prófskírteini, upplýsingum um starfs-
feril, ásamt staðfestingu yfirmanna, sendist
forstöðulækni.
Reykjavík 11. mars 1990.
Reykjavík
Aðstoðar-
deildarstjóri
Hjúkrunarfræðingar
Aðstoðardeildarstjóri óskast í fullt starf frá
15. maí á heilsugæslu Hrafnistu. Sérnám í
heilsugæslu eða öldrunarhjúkrun æskilegt
og góð starfsreynsla.
Hjúkrunarfræðingar eða hjúkrunarnemar
óskast til sumarafleysinga.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri, ída
Atladóttir, og Jónína Nielsen, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, í síma 35262 eða 689500.
Hjúkrunarfræðingar
Lausar stöður: Fræðslustjóra 50% starf.
Möguleiki á auknu stöðuhlutfalli við hjúkrun.
Aðstoðardeildarstjóra 80-100% starf. Hjúkr-
unarfræðinga, starfshlutfall eftir samkomulagi.
Skjól er nýtt hjúkrunarheimili aldraðra, góð
starfsaðstaða, miklir möguleikar á uppbygg-
ingu hjúkrunar og fræðslu.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
688500.
Starf í
leiðbeiningastöð
Laust er til umsóknar starf í leiðbeiningastöð
rekstrarsviðs.
Helstu verkefni:
Leiðbeiningastöð er miðstöð aðstoðar og
upplýsinga fyrir notendur sívinnslunets
SKÝRR og starfsmenn hennar gegna viða-
miklu hlutverki í rekstri netsins.
Auk aðstoðar við notendur annast starfs-
menn leiðbeiningastöðvar eftirlit með netinu
og hafa forgöngu um fyrirbyggjandi aðgerðir.
Hæfniskröfur:
Hér er um krefjandi starf að ræða og starfs-
maðurinn þarf að eiga auðvelt með mannleg
samskipti hvort heldur er símleiðis eða á
vinnustað. Jafnframt þessu þarf hann að
hafa þjónustuvilja og vera fylgin sér.
Starfsmaðurinn þarf að hafa haldgóða mennt-
un á sviði töluvfræða og/eða fjarskiptatækni
og reynslu af því að vinna við tölvu.
= ★ =
Nánari upplýsingar veitir Viðar Ágústsson,
framkvæmdastjóri rekstrarsviðs.
= ★ =
Umsóknum skal skilað til SKÝRR fyrir 15.
mars 1990 á umsóknareyðublöðum, sem
afhent eru hjá starfsmannastjóra eða í af-
greiðslu.
Skýrsluvélar ríkisins
og Reykjavíkurborgar.
Fjármálastjórnun
Viðskiptafræðingur af endurskoðunarsviði,
lögfræðingur eða aðili (maður eða kona) með
góða reynslu í veðskuldabréfa- og víxla-
vafstri, ásamt skilningi á bókhaldi, óskast til
að sjá um fjárreiður hjá fyrirtæki, sem hætt
hefur beinum daglegum rekstri en er nú
starfrækt sem eignarhaldsfélag.
Vinsamlegast sendið inn upplysingar um fyrri
störf og feril til auglýsingadeildar Mbl. merkt-
ar: „BH-8941“ fyrir 17. mars.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál og öllum verður svarað.
Bókaþekking
- f ramtíðarstörf
Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar hefur í
119 ár þjónað bókaunnendum. Eymundsson
rekur nú fimm bókaverslanir á suðvestur-
horni landsins.
Eymundsson vantar dugmikið og drífandi
verslunarfólk, sem er tilbúið til að gera versl-
unina og þjónustuna enn betri. Um er að
ræða hlutastörf í verslununum við Austur-
stræti og Kringlunni.
Austurstræti: Vinnutími 9.00-14.00 og
13.00-18.00.
Kringlan: Vinnutími 10.00-15.00 og 14.00-
19.00.
Reynsla af verslunarstörfum og þekking á
íslenskum og erlendum bókum æskileg. Laun
eru samkomulagsatriði.
Nánari upplýsingar um störfin gefur starfs-
mannastjóri mánudaginn 12. mars milli kl.
10.00 og 12.00 í síma 25544.
Umsóknir sendist starfsmannastjóra Ey-
mundssonar, Austurstræti 18, 101
Reykjavík, fyrir 14. mars nk.
EYMUNDSSON
HÓKAVERSLUN
MENNTASETUR í MIÐRI B0RG
A
Tónmenntakennarar
Vegna forfalla vantar nú þegar tónmennta-
kennara í heila stöðu við Snælandsskóla í
Kópavogi.
Upplýsingar veittar í skólanum, sími 44911,
hjá skólastjóra, sími 77193 og hjá yfirkenn-
ara, sími 43153.
Skóiastjóri.
Fulltrúastarf
Stórt þjónustufyrirtæki í Reykjavík óskar að
ráða fulltrúa til starfa í eina af þjónustudeild-
um fyrirtækisins. Starfið felst m.a. í fjöl-
þættum samskiptum við viðskiptavini.
Við leitum að starfsmanni á aldrinum 28-40
ára með almenna starfsreynslu úr atvinnulíf-
inu, sem hefur tæknimenntun eða háskóla-
menntun s.s. viðskiptafræði- eða lögfræði-
próf. Viðkomandi þarf að hafa innsýn í tölv-
ur. Gott framtíðarstarf hjá traustu fyrirtæki.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál
sé þess óskað.
Þeir sem hafa áhuga leggi inn á auglýsinga-
deild Mbl. svör fyrir 15. mars merkt:
„Framtíðarstjórnandi - 8074“.
Hjúkrunarfræðingar
- sjúkraliðar
Hjúkrunarfræðingar óskast í fast starf og til
sumarafleysinga. Jafnframt viljum við ráða
til starfa hjúkrunarnema á 3. og 4. ári til
sumarafleysinga. Einnig vantar sjúkraliða,
bæði í fullt starf og hlutastörf.
Laun samkvæmt kjarasamningi opinberra
starfsmanna.
Nánari upplýsingar um störfin veitir hjúkrun-
arforstjóri í síma 96-27930 og starfsmanna-
stjóri Akureyrarbæjar í síma 96-21000.
Umsóknarfrestur er til 23. mars nk.
Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild
Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, Akureyri.
Hjúkrunarheimilið Hlíð.
n
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Siðumúla 39, 108 Reykjavík, sími 678500
Móttaka/ritarar
Starfskrafta vantar nú þegar á eftirtaldar
félags- og þjónustumiðstöðvar aldraðra:
Aflagranda40 s. 622571
Bólstaðarhlíð 43 s. 685052
Hvassaleiti 56-58 s. 39225
Norðurbrún 1 s. 686960
Vesturgötu 7 s. 627077
Hér er um að ræða 100% störf sem eru
fólgin í móttöku, símavörslu og ritarastörf-
um. Æskileg er reynsla af tölvuvinnu/skrán-
ingu.
Nánari upplýsingar veita forstöðumenn á
viðkomandi félags- og þjónustumiðstöðvum.
Laun samkvæmt kjarasamningum Starfs-
mannafélags Reykjavíkurborgar.
Umsóknum, með upplýsingum um menntun
og fyrri störf, skal skila til Starfsmannahalds
Réykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 2. hæð,
á umsóknareyðublöðum sem þar fást.