Morgunblaðið - 27.03.1990, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1990
5
Suðurnes:
• •
011 númer
tengd staf-
rænni stöð
Keflavík.
SÍMASÓNNINN í síma Suður-
nesjamanna breyttist í aðfaranótt
föstudags, en þá var ný stafræn
símstöð í Keflavík tekin í notkun.
Alls verða tæplega 8 þúsund núm-
er tengd við nýju stöðina og að
sögn Björgvins Lútherssonar sím-
stöðvarstjóra ættu mörg vanda-
mál viðskiptavina Pósts og sima
nú að vera úr sögunni. Suðurnes-
in eru fyrsta svæðið á landinu þar
sem öll númer eru tengd stafrænu
símakerfí. I Grindavík er stöðin
þó enn hálf tölvustýrð en að sögn
Björgvins ‘verður þess vonandi
ekki langt að bíða að símar
Grindvíkinga verði tengdir staf-
rænu stöðinni.
Björgvin Lúthersson sagði að nýja
kerfið væri nánast bylting miðað við
gamla kerfið, það væri miklu hrað-
virkara og nú tæki aðeins'örskot að
ná sambandi t.d. við aðra lands-
hluta. Einnig gætu viðskiptavinir nú
nýtt sér sérþjónustu sem tengdist
stafrænu stöðinni og væri í 11 lið-
um. Leiðbeiningar um þau efni væri
að finna í símaskránni og eins væri
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Tæknimenn Pósts og síma höfðu
í mörg horn að líta á fimmtudags-
kvöldið, á myndinni eru Halldór
Heiðar Agnarsson, Guðlaugur
Helgason, og Krislján Pétursson.
HITAMÆLAR - ÞRÝSTIMÆLAR -
AFGASMÆLAR.
MIKIÐ ÚRVAL FYRIRLIGGJANDI.
VÉLASALAN H.F.
ÁNANAUST 1, REYKJAVÍK. SÍMI 91-26122
Hagstætt verð -
leitið upplýsinga.
hægt að fá leiðbeiningabækling hjá
Pósti og síma.
Björgvin sagði að nýja kerfið nýtt-
ist þó aðeins þeim sem væru með
takkasíma og af þessu tilefni ætlaði
Póstur og sími í Keflavík að bjóða
viðskiptavinum sínum á Suðurnesj-
um 10% afslátt af nýjum símatækj-
um og öðrum búnaði á næstunni.
BB
Hiifeifr
Metsölublað á hverjum degi!
FuUkDmin
amsetning
-felst í þessu litla hylki ^
Rétt bætiefni eru lífsnauðsynleg undirstaða fyrir
alla uppbyggingu líkamans, þrek og góða heilsu.
Ef réttu efnin vantar koma ýmis einkenni í ljós
s.s. slappleiki, þrekleysi, lélegar neglur, þurr
húð, erfitt að vakna á morgnana, þunglyndi og
skortur á einbeitni.
Magnamín er bætiefni sem er sér unnið fyrir
íslendinga og tryggir þess vegna öll nauðsynleg
bætiefni, miðað við íslenskar
fæðuvenjur, á einfaldan,
öruggan og hagkvæman hátt.
■^ssg
Magnamín með morgunmatnum
— einfaldlega réttu bætiefnin.
HÉ8&N0 AUCLÝStNGASTOFA