Morgunblaðið - 27.03.1990, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. MARZ 1990
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu . . .
Góð miðdegissaga
Jóhanna B. Wathne, Hellu á
Rangárvöllum, hringdi:
„Eg vil þakka fyrir góða mið-
degissögu sem lesin er í Ríkisút-
varpinu núna, Fátækt fólk eftir
Tryggva Emilsson. Þetta er merk
saga og upplesturinn mjög góður.
Þarna bregður fyrir ótrúlegum
fj'ölda merkra heimilda og í sög-
unni eru vel útfærðar náttúrulýs-
ingar.“
Þakkir
Kjartan hringdi:
„Ég og konan mín viljum færa
starfstóiki Flugleiða á söluskrif-
stofunni að Suðurlandsbraut 2
þakkir fyrir alla þá þjónustu sem
þeir veittu okkur. Þeir útveguðu
okkur íbúðarhótel sem heitir The
Enclave í Orlando og er það stað-
sett á ákjósanlegum stað, stutt í
alla þá skemmtigarða sem eru í
boði (Disney world og Sea world)
og veitingastaðir eru allt í kring.
Aðstaða á hótelinu er til fyrir-
myndar, sundlaug og góð aðstaða
fyrir börn. Við getum mælt með
ferð sem þessari fyrir fólk sem
vill njóta rólegheita og ekki síður
fyrir fólk með börn. Þökk fyrir,
Flugleiðir."
Hætt í miðju kafi
Erik hringdi:
„Ég og bróðir minn vorum að
horfa Bleika pardusinn í Sjónvarp-
inu á fimmtudaginn en þá var
hætt að sýna myndina í miðju
kafi og byijað að sýna auglýs-
ingar fyrir fréttir. Þetta eru ekki
nógu góð vinnubrögð."
Húfa
Svört alpahúfa fannst á bíla-
stæðinu fyrir utan Furugrund
28. Upplýsingar í síma 42848.
Köttur
Svartur köttur með hvíta
bringu og loppur, og hvítan blett
á trýninu hefur verið í óskilum
að Asláksstöðum á Vatnsleysu-
strönd síðan í febrúar. Upplýsing-
ar í síma 46611 í hádeginu.
Veski
Svart veski tapaðist, sennilega
rétt hjá Miðbæ við Háaleitisbraut.
í því voru sænskir peningar og
dollaraseðil auk íslenskra pen-
inga. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 685283.
Fundarlaun.
Segularmbönd o g fordómar
Til Velvakanda.
Um daginn hringdi maður í
Þjóðarsálina á Rás 2 og var mikið
niðri fyrir út af segularmböndum
sem farið er að selja á íslandi.
Hann gerði grín að þessu og taldi
að verið væri að hagnast á trú-
girni fólks. Maðurinn er greinilega
einn úr þeim íjölmenna hópi sem
ekki getur hugsað sér að neitt
lækni mannsins mein annað en
meðöl og uppskurðir. Slæmt var
líka að maðurinn gerði engan
greinarmun á upprunalegu arm-
böndunum frá Mallorka og eft-
irlíkingunum frá. Hollandi sem eru
til sölu í einni búð í Reykjavík.
Ég skil vel tortryggni gagnvart
armböndunum því að ég hugsaði
ekki ólíkt þessu sjálf áður en ég
fyrir tilviljun kynntist manninum
sem fann þau upp. Ég var við nám
á Mallorka fyrri hluta þessa vetrar
og þjáðist af þrálátri vöðvabólgu
sem fylgdi slæmur höfuðverkur.
Mér var sagt að í Palma Nova
væri kírópraktor sem væri hrein-
asti galdramaður að losa fólk við
svona kvilla sem það hefði jafnvel
gengið með til lækna árum saman
án árangurs.
Þannig komst ég í kynni við
Manuel Polo. Hann losaði mig
ekki bara við höfuðverkinn og
vöðvabólguna á örstuttum tíma
heldur breyttist öll líðan mín, við-
horf og tilfinningar þannig að ég
varð öll miklu jákvæðari. Manuel
beitti nuddi, hnykkingum og raf-
eindatækjum auk þess sem hann
gaf mér skriflegar leiðbeiningar
um mataræði en það sagði hann
að væri aðalatriðið. Ég komst að
því að Manuel hefur komið geysi-
lega mörgu fólki til góðrar heilsu
á skömmum tíma og að hann er
allt að því í dýrlingatölu á Mall-
orka svo þakklátt er fólkið honum.
Og þetta er maðurinn sem fann
upp segularmbandið eða lífsegul-
jafnarann eins og þetta er víst
kallað á íslensku.
Þegar ég komst að því að þessi
Bio-Ray armbönd sem ég var búin
að sjá fullt af fólki með á Mall-
orka, voru frá Manuel, þá var ég
ekki lengi að kaupa mér eitt.
Sömuleiðis fjöldinn allur af því
fólki sem. var með mér í skóla.
Auðvitað er erfitt að fullyrða eða
sanna hvað nákvæmlega það er
sem bætir heilsuna. En svo mikið
er víst að síðan ég byijaði að
ganga með armbandið hef ég ekki
fengið höfuðverkinn sem hefur
verið minn tryggasti fylgifiskur í
fjöldamörg ár.
Vinkonur mínar, sem líka ganga
með Bio-Ray armbönd, segja líka
að þær fái sjaldnar eða alls ekki
lengur ýmis óþægindi sem þær
hafi annars haft vanda til að fá.
Mörgum finnst líka að þær séu
betri í skapi og betri á taugum
og ég veit að sumar konur segjast
finna að armböndin lini tíðaverki
ef þau eru borin á vinstri úlnlið
og snúið niður eins og ráðlagt er
í bæklingnum sem fylgir armbönd-
unum.
Ég mundi ráðleggja hinum
meinfyndna viðmælanda Þjóðar-
sálarinnar að fá sér lífseguljafn-
ara. Ef hann bryti odd af oflæti
sínu og prófaði þetta gæti vel svo
farið að hann hætti að láta for-
dóma og þröngsýni stýra gamant-
ungu sinni. Mér heyrist honum
sannarlega ekki veita af að víkka
sjóndeildarhringinn úr því að hann
óskapast svona út af þessum
ágætu armböndum sem ég og
margir aðrir vitum að gera engum
annað en gagn.
Baugalín
ENSKA í ENGLANDI
Concorde International málaskólinn í suðaustur Eng-
landi býður öllum fjölbreytt og skemmtilegt nám í
ensku. Almenn námskeið allt árið, námskeið fyrir
enskukennara, sérstök námskeið fyrir fólk í viðskipta-
lífinu, sumarnámskeið (júlí-september) fyrir 10-20 ára
með tómstundaiðju og kynnisferðum inniföldum.
Panta þarf með góðum fyrirvara.
Upplýsingar í síma 91-74076. Geymið auglýsinguna.
NYTTFRA
LAURA ASHLEY
Mikið úrval af gardínuefni og veggfóðri
frá Laura Ashley.
Bæklingar fyrir 1990 fáanlegir.
Yerð: 330 kr.
%istan
Laugavegi 99, sími 16646
Metsölublad á hverjum degi!