Morgunblaðið - 12.04.1990, Qupperneq 2
f>e<íj jmma :sí ÆUDAGUttwMM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1990
Húsnæðismálastj órn:
4.100 milljónir
til 802 íbúða
SKIPTINGIN á félagslegn ibúðunum, sem Húsnæðismálastjórn hefúr
ákveðið að lána til er þannig, að af 802 ibúðum eru 487 á höfúðborg-
arsvæðinu, 40 á Reykjanesi, 20 á Vesturlandi, 19 á VestQörðum, 20
á Norðurlandi vestra, 111 á Norðurlandi eystra, 54 á Austurlandi
og 51 á Suðurlandi.
Heildarupphæð lánanna til þess-
ara 802 íbúða er 4.100 milljónir
króna og greiðast 1.500 milljónir
út á þessu ári, 2.600 milljónir á
næstu tveimur árum, samkvæmt
fréttatilkynningu frá Húsnæðis-
stofnun ríkisins. Lánað er til 351
íbúðar í verkamannabústöðum, 142
leiguíbúða, 156 félagslegra kaup-
leiguíbúða og 153 almennra kaup-
leiguíbúða.
Pálmi Kristinsson, fulltrúi Vinnu-
veitendasambands íslands, lét bóka
mótmæli við þessari ákvörðun um
lánveitingar. Þar segir hann m.a.,
að tillögurnar feli í sér allt of hátt
hlutfall lánveitinga til bygginga fé-
lagslegra íbúða, þar sem láta muni
nærri að þær byggingar uppfylli
55% af allri íbúðaþörf í landinu.
Alls bárust 80 gildar umsóknir
um 1.511 íbúðir, en í heild voru
umsóknir um 1.688 íbúðir.
Forsvarsmenn Töggs hf, lögmaöur
þess og tveir bankamenn ákærðir:
Sjö sakaðir um skilasvik
á greiðslustöðvunartíma
Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur- fyrrum stjórnar-
formanni Töggs hf, sem hafði umboð fyrir Saab-bifreiðar og var
tekið til gjaldþrotaskipta í júní 1987, tveimur stjórnarmönnum og
starfsmanni fyrirtækisins, lögmanni þess og tveimur forsvarsmönnum
viðskiptabanka þess. Meginefiii ákærunnar, sem varðar milljóna
króna hagsmuni, er skilasvik á greiðslustöðvunartíma félagsins frá
janúar 1987 til dagsins fyrir gjaldþrot þannig að lánardrottnum
hafi verið mismunað með því að greiddar hafi verið skuldir við ban-
kann.
Þá eru stjómarformaður, og
stjómarmenn ákærðir fyrir fjár-
drátt og fjársvik með þátttöku lög-
mannsins sem einnig er ákærður
fyrir brot. Sakadómur Reykjavíkur
hefur fengið málið til meðferðar.
Á vegum þrotabús Töggs hf em
nú rekin fjögur dómsmál fyrir
Hæstarétti, að sögn Skarphéðins
Þórissonar hrl, bústjóra þrotabús-
ins. Tvö em gegn hlutafélagi, sem
er að stærstum hluta í eigu fjöl-
Þjóðleikhúsið;
Útboðsgögn-
ínafhent
BYGGINGARNEFND Þjóð-
leikhússins mun í dag af-
henda væntanlegum verk-
tökum útboðsgögn vegna fyr-
irhugaðra breytinga á hús-
inu. Að undanförnu hefúr
verið tekinn niður búnaður í
húsinu og verður því verki
haldið áfram á næstu dögum.
Samstarfsnefnd um opinber-
ar framkvæmdir gaf heimild til
þess í gær að verkið yrði boðið
út. Nefndin telur að tæknilegur
undirbúningur fyrir útboð sé
fullnægjandi til að gerður sé
marksamningur við væntanleg-
an verktaka. Jafiiframt segir,
að kostnaðaráætlanir hafi verið
reikular og að samkvæmt áætl-
un frá því í byijun apríl, líti
út fyrir að 75 milljónir króna
vanti til að ljúka megi áætluð-
um verkþætti. Verkinu verði
því ekki lokið á árinu miðað við
þær forsendur og þess vegna
hafi nefndin vísað málinu til
ríkisstjómarinnar.
í svari fjármálaráðherra til
nefndarinnar segir, að fram-
kvæmdir hefjist við áfangann
með þeim hætti að ekki verði
eytt umfram áætlun þessa árs
og að verklok verði þar af leið-
andi færð yfir á næsta ár.
Sækja verður því um þær 75
milljónir sem upp á vantar til
ársins 1991. -
skyldu stjómarformannsins, vegna
yfírtöku þess á 14 milljóna úttekt
hans hjá fyrirtækinu hitt vegna
yfirtöku hlutafélagsins á milljón
króna skuld eigenda þess við Tögg.
í hinum málunum tveimur er kraf-
ist greiðslu á hlutafjárloforðum
stjómarformannsins og eiginkonu
hans og þess að ógilt verði greiðsla
á hlutafé daginn fyrri gjaldþrot með
skuldabréfum til langs tíma og á
lágum vöxtum.
Að sögn bústjórans er enn ýmis-
legt óljóst um niðurstöðu gjald-
þrotaskipta Töggs hf. Síðasta áætl-
un gerði ráð fyrir að um það bil
fjórðungur almennra krafna greidd-
ist en vinni búið fyrrgreind dóms-
mál eykst það fé sem til ráðstöfun-
ar er.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Vinnúpallar við Hallgrímskirkju hafa nú verið fjarlægðir.
Viðgerð á tumspíru
HaJlgrímskirkju lokið
VIÐGERÐ á turnspíru Hallgrímskirkju er lokið og hafa vinnupall-
ar verið Qarlægðir. Hermann Þorsteinsson formaður sóknamefnd-
ar Hallgrímskirkju sagði að samkvæmt fyrstu áætlunum um við-
gerð á efstu 24 metrum turnsins átti hún að kosta 7 - 7,5 milþ'ón-
ir króna og átti að taka nokkra mánuði. Raunin varð önnur því
verkið tók tvö ár og kostaði 30 milljónir króna.
Mjög slæmar alkalí- og frost-
skemmdir komu ekki í ljós í steyp-
unni fyrr en eftir að hafist var
handa við viðgerðina. Hermann
sagði að í ljós hafi komið að stuðl-
ar á neðri hluta tumsins eru einnig
sprungnir og verður næsta verkefni
að gera við þá.
„Við erum ánægð með að hafa
ekki guggnað á að ráðast í þessa
viðgerð og vonum að hún hafí tek-
ist vel og að viðgerðin sé til fram-
búðar. Hallgrímskirkja er stórt
steinsteypt hús sem þarfnast mik-
ils viðhalds og við ætlum okkur að
reyna að gæta þess vel,“ sagði
hann.
Aðspurður sagði Hermann að
viðgerðin væri kostuð af tekjum
safnaðarins, en auk þess ætti kirkj-
an vini sem leggðu sitt af mörkum.
Þá samþykkti Alþingi 10 milljóna
króna fjárveitingu til Hallgríms-
kirkju á síðasta ári.
„Við hefðum viljað gera fallegt
í kringum kirkjuna því þar er mik-
ið eftir ógert. En við gerum okkur
vonir um að Reykjavíkurborg verði
samvinnufús við það verkefni,"
sagði Hermann að lokum.
Hóftil heið-
urs forseta
MORGUNBLAÐINU hefur borist
frétt frá forsætisráðuneytinu, þar
sem segir, að ríkisstjórn íslands
efni til síðdegisboðs á Hótel Sögu
laugardaginn 14. apríl 1990 til heið-
urs forseta íslands, frú Vigdísi
Finnbogadóttur, í tilefni af sextugs-
afmæli hennar 15. apríl nk.
Frá kl. 16.00-17.00 er hófið öll-
um opið meðan húsrúm leyfir.
Fiskmarkaðurinn
í Bremerhaven:
40 tonn af
afla Ottós
N. í gúanó
SALA á fiskmarkaðinum í Brem-
erhaven féll saman í gær eftir
verðhrun frá því á mánudag. Sem
dæmi um það má nefiia, að 40
tonn af afla togarans Ottós N.
Þorlákssonar RE seldust ekki og
fóru í gúanó. Meðalverð á seldum
afla togarans var um 71 króna,
en meðalverð fyrir karfa fór upp
i 180 krónur í lok síðustu viku.
Ottó var alls með 239 tonn og
af þeim afla seldust um 200, hitt
fór í gúanó. Heildarverð fyrir land-
aðan afla var 395.500 mörk eða
14,2 milljónir króna. Meðalverð eft-
ir sömu viðmiðun var 59,45 krónur,
en 71 króna, sé miðað við þann
afla, sem seldist.
Jón Rúnar Kristjónsson, Qár-
málastjóri Granda hf, sem gerir
togarann út, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að þetta væri á viss-
an hátt áfall, sem menn tækju eins
og hveiju öðru hundsbiti. Menn leit-
uðu auðvitað skýringa á þessum
ósköpum, sérstaklega í ljósi þess,
að um úrvals fisk hefði verið að
ræða og útflutt magn hefði verið
svipað þetta tímabil og fyrir síðustu
páska. Líklegasta skýringin væri
sú, að kaupmenn hefðu í síðustu
viku keypt of mikið af físki á of
háu verði og því ekki getað meir
nú. Svo væru menn að velta fleiri
ástæðum fyrir sér, svo sem miklum
innflutningi á ódýrum norskum laxi,
en hvort það hefði haft einhver
áhrif, væri erfitt að meta.
Verðlaunarannsóknir á bijóstakrabbameini;
Unnt að finna út hvaða kon-
nr þuría ekki viðbótarmeðferð
Athuganir heflast hérlendis í haust
HIÐ virta vísindarit „New England Journal of Medicine" birtir í
nýju hefti, sem út kemur í dag, grein eftir Helga Sigurðsson krabba-
meinslækni. Grein Helga fjallar um rannsóknir á krabbameini í
bijóstum, einkum hvenær frekari lyQameðferðar er þörf eftir að
æxli hefur verið Qarlægt. Þær athuganir sem greinin byggist á voru
gerðar í Suður-Svíþjóð á árunum 1982-86 og úrvinnsla gagna stend-
ur enn yfir. Einn þáttur rannsóknanna hlaut fyrstu verðlaun á
sænska læknaþinginu í lok síðasta árs. Akveðið hefúr verið að fara út
í svipaðar rannsóknir á brjóstakrabbameini meðal íslenskra kvenna
og Landspítalinn hefúr samið um kaup á tækjum til frumurannsókna
í því skyni.
Helgi Sigurðsson segir grein sína
tengjast mikilli umræðu sem fram
fór vestanhafs í fyrra um lyfjameð-
ferð til að auka lífslíkur kvenna sem
fengið hafa bijóstakrabbamein.
„Horfur eru bestar þegar sjúkdóm-
urinn er staðbundinn við btjóstið
og ekki um eitlameinvörp að ræða,“
segir Heigi. „Konur sem þannig er
ástatt um hafa lengi verið álitnar
læknaðar, en sagan sýnir að um
30% þeirra fá sjúkdóminn aftur
síðar á ævinni.
Ljóst er að viðbótarmeðferð með
krabbameinslyfjum eða hormóna-
lyfjum eykur lífslíkur, eða lifun, um
nokkur ár þegar eitlameinvörp eru
í líkamanum. En þegar svo er ekki,
hefur verið álitamál hvort beita
skuli viðbótarmeðferð. Bandarísk
heilbrigðisyfirvöld hafa þó mælt
með slíkri meðferð fyrir allar konur
sem látið hafa fjarlægja brjósta-
æxli.“
í rannsókn sem Helgi stýrði í
Svíþjóð voru tekin æxlissýni úr 900
konum með bijóstakrabbamein á
öllum stigum. Ekki höfðu fundist
eitlameinvörp í 367 konum og voru
ýmsir þættir í frumum þeirra athug-
aðir sérstaklega. í ljós kom að 67%
þessara kvenna höfðu áþekkar
lífslíkur og sænskar konur al-
mennt, en hjá hinum voru áttfaldar
líkur á að sjúkdómurinn kæmi upp
aftur. Helgi segir að lyfjameðferð
eftir að æxli hefur verið fjarlægt
megi takmarka við seinni hópinn.
Hann sé unnt að þekkja með mæl-
ingum á atriðum eins og litninga-
magni í æxlisfrumum, hlutfalli
frumna í skiptingu, hormónaviðtök-
um og vaxtarþáttum frumna.
Helgi segir að ákveðið hafi verið
að hefja hér á landi rannsókn er
svipar til þeirrar sænsku. Samið
hafi verið um kaup á flæðifrumu-
sjá, „FAC Scan“, og myndgreini,
. „CAS 200“. Tækin eru að sögn
Helga væntanleg í september og
verða í fyrstu notuð til rannsókna
á krabbameini í bijóstum. Þau geta
í sömu andrá kannað allt frá einni
frumu upp í mörg hundruð þúsund,
með tilliti til þess sem frábrugðið
er heilbrigðum vef. Með hjálp litar-
efna má einangra örsmáar eindir í
æxlisfrumum og athuga sérstak-
lega.
„Þetta verður sameiginlegt verk-
efni Rannsóknarstofu Háskólans í
meinafræði og Krabbameinsdeildar
Landspítalans. Við ætlum að byija
á að athuga æxlissýni sem tekin
hafa verið undanfarin ár og von-
umst til að ljúka þeim áfanga upp
úr næstu áramótum,“ segir Helgi
Sigurðsson. Hann mun annast
rannsóknina ásamt Bjarna Agnars-
syni, sérfræðingi í meinafræði.
Rannsókninni tengjast einnig Jó-
hannes Bjömsson, sérfræðingur í
meinafræði, Jónas Hallgrímsson
prófessor og Þórarinn Sveinsson
yfirlæknir.