Morgunblaðið - 12.04.1990, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRIL 1990
15
AUGLYSING
PARIS
PARIS
Eiffelturninn er nokkurs konar skjaldarmerki Parísarborgar. Eiffel-
turninn var byggður 1889 af Gustave Eiffel fyrir heimssýninguna
það ár. Turninn er 320,75 metrar á hæð. Eiffelturninn er 7000 tonn
að þyngd, settur saman úr 12.000 hlutum og skrúfaður saman með
2.5 milljónum skrúfa. Sjöunda hvert ár er turninn málaður og til
þess þarf 40 tonn af málningu. Flestir, sem heimsækja París, láta
það vera sitt fyrsta verk að skoða Eiffelturninn. Það er hægt að
taka lyftur upp, en einnig er hægt að ganga 1652 tröppur upp á
aðra hæð. í turninum er ágætis veitingahús og lítið safn til minning-
ar um Gustave Eiffel. Á sumrin er Eiffelturninn er opinn almenningi
frá kl.10 til 23. UÓSM.: barnhard valsson texti-. s.b.h.
Ódýr veitinga-
hús í París
í París eru yfir 10.000 vejtingahús og því ættu allir að geta fund-
ið eitthvað við sitt hæfi. í París eru nokkur af bestu veitingahús-
um heims og eins og gefur að skilja kostar það skildinginn að
snæða á þeim. Þessi dýru veitingahús eru mörg hver „heims-
fræg“, þeirra á meðal eru La Tour D’Argent og Maxim’s. í París-
arborg eru einnig fjölmörg Ijómandi góð ódýr veitingahús, sem
gaman er að heimsækja. Mörg þessara veitingahúsa hafa verið
starfrækt í langan tíma, sum hver í yfir 100 ár. Flestir gestanna
eru fastagestir 09 á mörgum þessara veitingastaða eru ferða-
menn sjaldséðir. A þessum ódýru veitingastöðum kynnist gestur-
inn ef til vill betur hinni raunverulegu París.
Hér skulu nú nefndir nokkrir ódýrir
veitingastaðir í París sem bjóða
góðan mat og hlýlegt umhverfi.
L'lncroyable, 26, rue de Richelieu,
1. hverfi. Sími 42.96.24.64.
Þessi staðurer nálægt Louvre safn-
inu og því tilvalið að snæða þar
áður en safnið er skoðað. Við veit-
ingastofuna er lítill garður þar sem
hægt er að snæða úti á sumrin.
Þetta er fallegur veitingastaður
sem er nokkur herbergi og í hverju
herbergi eru 4 borð. Maturinn er
venjulega franskur heimilismatur.
Hægt er að fá 3ja rétta máltíð með
víni á liðlega 500 kr. ísl. Staðurinn
er lokaður á sunnudögum.
Le Petit Saint-Benoit, 4, rue Saint-
Benoit, 5. hverfi. Sími 42.60.27.92.
Þessi veitingastaður hefur verið
starfræktur í 125 ár og eina breyt-
ingin sem orðið hefur er sú að nú
Á hægri bakkcmum
Góður múslími verður að heimsækja hina helgu borg Mekka í það minnsta
einu sinni á lífsleiðinni. Allir fagurkerar, unnendur evrópskrar menningar og
sælkerar verða að heimsækja París. Nú í sumar munu Flugleiðir fljúga allt
að fimm sinnum í viku til Parísar. Óhætt er að fullyrða að samgöngur við
París frá íslandi hafa aldrei verið betri. Það er dásamlegt að dvelja í París
og auðvelt að rata. Borginni er skipt í 20 hverfi ,arrondissements“. Hverfin
eru ólík og er sérstakt andrúmsloft rikjandi í hverju hverfi. Áin Signa rennur
í gegnum borgina og skiptir henni í tvennt, 1 hægri og vinstri bakka. Unnend-
ur Parísar skiptast líka í tvennt - sumir kunna betur við sig á vinstri bakkan-
um og aðrir á hægri bakkanum - og er skrifari þessara lína hægribakkamaður.
Á hægri bakkanum eru mörg merk
minnismerki og byggingar. Líklegast
er Sigurboginn það minnismerki, sem
hvað þekktast er. Sigurboginn, ,L'Arc
de Triomphe", stendur efst á
Champs-Élysées, sem er án efa
glæsilegasta breiðgata í heimi. Napo-
leon ákvað að byggja Sigurbogann
1806 sem minnisvarða um hernaðar-
sigra hans manna. Verkinu lauk ekki
fyrr en 1836. Napoleon hvíldi aðeins
eina nótt undir Sigurboganum í kistu
sinni á leið frá Sankti Helenu til graf-
hvelfingarinnar í Invalidkirkjunni. I dag
er Sigurboginn minnisvarði óþekkta
hermannsins. Þar er daglega tendrað-
ur eldur og allir þjóðhöfðingjar sem
heimsækja Frakkland, leggja blóm-
sveig við minnismerkið. Sigurboginn
er 51 m á hæð og er hægt að fara
með lyftu upp á þak hans en þaðan
er frábært útsýni yfir breiðstrætin 12,
sem ganga út frá honum eins og
stjarna. í París eru mörg torg. Það
merkilegasta er líklegast Concorde
torgið; Concorde þýðir .andardrátt-
ur“. Fyrir 200 árum stóð á torginu
stytta af Lúðvíki XV. Þegar byltingin
braust út 1792 var styttunni steypt
af stalli og torgið skírt „Byltingatorg".
Fallöxi var komið fyrir á torginu og
Lúðvík XVI hálshöggvinn þar ásamt
mörgum öðrum. Nefna mætti Marie
Antoinette, Charlotte Corday og sjálf-
an böðulinn Robespierre. Síöar var
torgið skýrt Concorde. Skammt frá
Concorde torginu er hin gultfallega
Parísarópera. Óperan er ein sú
stærsta í heimi og tekur 2000 manns
i sæti. Það var Napoleon III sem lét
byggja óperuna. Óperubyggingin er
opin ferðamönnum á daginn til að
skoða m.a. hina frægu myndskreyt-
ingu Chagalls í loftinu á salnum. Rétt
við Óperuna eru hin frægu vöruhús
Galeries-Lafayette og Printemps.
Vöruhúsin standa við Bd. Haussman
og þar er einnig enska vöruhúsið
Marks og Spencer. í kringum þessi
vöruhús eru svo margar smáverslanir,
sem aðallega selja fatnað. Óperu-
hverfið er hverfi verslunar og við-
skipta. Þar má samt finna götur, sem
ekkert hafa breyst í aldanna rás. Ein
þeirra er rue de Beaujolais. Við þessa
götu er eitt fallegasta veitingahús
heims, Le Grand Vefour. Veitinga-
staðurinn er í gamalli byggingu við
Palais Royal garðana. Le Grand Vefo-
ur er eitt af bestu veitingahúsum
Parisar. Rue de Beaujolais er kyrrlát
gata og gestir Le Grand Vefour hafa
það á tilfinnirigunni, að þeir séu úti i
sveit en ekki í milljóna stórborg.
Skammt frá Óperunni er Madeleine
kirkjan, sem líkist grísku hofi, með
engum gluggum eða turnum og á
kirkjunni er enginn kross. Kirkjan var
vígð 1842. Við Madeleine torgið er
besta matvöruverslun í heimi auðvit-
að, Fauchon. Yfir 7000 manns koma
í verslunina daglega og kaupa um
25.000 vörueiningar. Það, sem fyrst
og fremst hefur borið hróður Fauchon
um víða veröld, er hið mikla vöruúr-
vat. Sem dæmi má nefna, að boðið
er upp á 50 tegundir af kaffi, 65 teg-
undir af tei og 52 tegundir af marmel-
aði. Hjá Fauchon er einnig hægt að
kaupa tilbúinn mat í miklu úrvali. Yfir
Óperuhverfinu gnæfir svo Montmar-
tre hæðin þar sem hin fagra kirkja
Sacré-Cæur stendur.
Af tröppum kirkjunnar er mjög gott
útsýni yfir París. Rétt við kirkjuna er
Place du Tertre, en þar má sjá hóp
málara að störfum og bjóðast þeir til
að mála myndir af ferðamönnunum.
Já, það er margt að sjá á hægri bakk-
anum. Best er að fara i góða
gönguskó, taka regnhlífina með og
kanna borgina fótgangandi. Auðvelt
er að ferðast um borgina í Metró eða
neðanjarðarlestinni. Ferðamaðurinn
þarf að vita hvað stöðin heitir sem
hann fer frá, og hvað stöðin heitir,
sem er næst þeim stað sem hann
ætlar til og hvað endastöð þeirra línu
heitir.
er staðurinn lýstur upp með raf-
magni. Þessi staður er einn sá ódýr-
asti í París. Maturinn er einfaldur,
franskur heimilismatur. í hádeginu
er nær ómögulegt að fá borð eftir
kl. 12. Þeir, sem vilja kynnast París
eins og hún var, ættu að heim-
sækja Le Petit Saint-Benoit. Stað-
urinn er lokaður á laugardögum og
sunnudögum.
Thoumieux. 79, rue Saint Dom-
inique, 7. hverfi. Sími47.05.49.75.
Þessi staður er skammt frá Eiffel-
turninum. Thoumieux er svokallað
brasseri, en um aldamótin voru
brasseri staðir sem aðallega seldu
bjór og einfalda ódýra rétti. Þróunin
hefur orðið sú, að flest brasseriin
í París hafa orðið „fín“ veitingahús
með dýran mat. Thoumieux er und-
antekningin. Maturinn er vel útilát-
inn franskur sveitamatur. Lokað er
á mánudögum.
Chez Chartier. 7, rue de Faubourg
Montmarte, 9. hverfi. Sími
47.70.86.29.
Chartier opnaði 1896. Veitingasal-
urinn er mjög stór og á veggjunum
eru hillur þar sem fastagestirnir
geymdu munnþurkur sínar, hnífap-
ör og tóbakspunga. Maturinn er
ótrúlega ódýr og hreint ágætur.
Au Limonaire. 88, rue de Charen-
ton, 12. hverfi. Sími 43.43.49.14.
Það er parið Philippe og Machon
sem áður voru götumúsíkantar, er
reka þennan stað. Philippe er í eld-
húsinu og Machon er i salnum.
Enginn fastur matseðill er í gangi
og aðeins er boðið upp á rétti dags-
ins. Á fimmtudagskvöldum er
þröngt á þingi, því þá syngur Mac-
hon fyrir gesti sína franskar vísur
um ástina og lífið. Staðurinn er lok-
aður á sunnudögum.
Kaffihúsin
Eitt af einkennum Parísar eru
kaffihúsin. Segja má að kaffihús-
ið sé annað heimili Parísarbúans.
Þar drekkur hann morgunkaffið
sitt, fær sér jafnvel léttan hádeg-
isverð og hittir vini og kunningja
á kvöldin. Sumir vinna jafnvel á
kaffihúsinu, skrifa bréf, semja
Ijóð eða leggja saman tékkheftið
sitt. Margirfrægu rithöfundanna,
sem dvöldust í París, stunduðu
ritstörfin á kaffihúsinu sínu enda
bjuggu þeir gjarnan í köldum
þakherbergjum án nokkurra
þæginda. Eini griðastaðurinn var
því kaffihúsið. Sumir fengu meira
að segja póstinn sinn sendan á
■'v
kaffihúsið sitt. Við Boulevard du
Montparnasse eru mörg fræg
kaffihús og barir. Eitt af þeim
frægari er Select, en þangað
|sóttu m.a. margir íslenskir lista-
menn sem dvöldu í París upp
*úr 1950. Við Boulevard du Mont-
parnasse er hið fræga veitinga-
hús La Coupole. Meðal fasta-
gesta þar var helsta gáfnaljós
Frakka, heimspekingurinn Jean
Paul Sartre. Annar frægur staður
við Boulevard du Montparnasse
er La Closerie des Lilas. Þar
Ívoru gestir herrar eins og Hem-
ingway, Picasso, Strindberg og
Lenín. Kvöldstund á Boulevard
du Montparnasse erfljót að líða.
Skammt frá Óperunni er Cafe
du la Paix eitt frægasta kaffihús
Parísarborgar. Þar er hægt að
Isrtja dagstund og horfa á „heim-
i|inn“ líða framhjá. Þegar dvalist
er í París er einn þátturinn í heim-
• sókninni að kynnast kaffihúsa-
jtmenningunni, setjast niður á einu
ikaffihúsanna, slaka á og verða
Paríarbúi um stund.
UFSGLEDIN
SEM LISTIN
RIKIR ÞAR
BLÓMSTRAR
Þessi orð eru oft rifjuð upp þegar
rætt er um París. París hefur frá
aldaöðli verið griðastaður lista-
manna hvaðanæfa að úr heiminum,
enda ber borgin þess glögg merki
að hún er alþjóðleg.
Segja má að borgin sjálf sé lista-
verk. Hún er skreytt fjölda lista-
verka, gosbrunna og minnismerkja.
I París eru margir fallegir garðar.
Um 400.000 tré eru meðfram götum
borgarinnar og 90.000 meðfram
gangstéttunum. I París er mikill fjöldi
listasafna og mætti t.d. nefna Lo-
FLUGLEIDIR
Síminn
6 90 300
uvre safnið þar sem skoða má
400.000 listaverk í 225 sölum.
Menningarmiðstöðin Centre Georg-
es Pompidou við Rue Beaubourg er
sérstæð bygging með mörgum
deildum en merkast er þó líklega
nútímalistasafnið. Fyrir framan
bygginguna er mikið og skrautlegt
götulíf. Listamenn sýna listir sýnar
og spákonur spá í spil. Musée
D’órsay við Rue Bellechasse er nýtt
listasafn og af mörgum talið eitt það
besta í heimi. Byggingin var áður
járnbrautarstöð, en hefur nú verið
breytt í þetta stórkostlega listasafn.
Picasso safnið er við Rue de Tho-
rigne. Þar má skoða mörg af fræg-
ustu verkum meistarans. Þá má ekki
gleyma tónleikasölunum, djass-
klúbbunum og leikhúsunum. Engum
ætti að leiðast í París, borg lífsgleð-
innar, enda er sagt að þeim, sem
leiðist í París, leiðist lífið.
Nánari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða,
umboðsmenn um land allt og ferðaskrifstofurnar.