Morgunblaðið - 12.04.1990, Side 30

Morgunblaðið - 12.04.1990, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1990 FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA 11. apríl. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hœsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 78,00 60,00 74,46 7,265 541,079 Þorskur(óst) 86,00 60,00 72,54 8,032 582.674 Ýsa 86,00 50,00 79,75 3,579 285.405 Karfi 33,00 20,00 30,50 5,809 177.153 Ufsi 38,00 34,00 37,67 1,620 61.010 Steinbítur 35,00 35,00 35,00 0,236 8.260 Langa 48,00 48,00 48,00 0,176 8.444 Lúóa 250,00 150,00 174,57 0,185 32.208 Skarkoli 45,00 40,00 42,22 1,238 52.270 Hrogn 160,00 154,00 157,30 1,470 231.302 Keila 24,00 24,00 24,00 0,344 8.256 Smáþorskur 40,00 40,00 40,00 0,064 2.560 Smálúöa 270,00 270,00 270,00 0,007 1.890 Lúða/roðlaus 183,00 183,00 183,00 0,015 2.745 Kinnar/Gellur 297,00 297,00 297,00 0,013 3.713 Gellur 274,00 274,00 274,00 0,015 4.110 Ýsa(ósl) 50,00 50,00 50,00 0,095 4.750 Skata 80,00 80,00 80,00 0,020 1.600 Steinb.(ósl) 30,00 30,00 30,00 j 0,076 2.280 Rauðm./Grásl. 23,00 21,00 21,71 0,208 4.516 Samtals 66,18 30,465 2.016.225 Á þriðjudag verður meðal annars selt úr Víði HF FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur(ósl 88,00 77,00 81,69 6,149 502.306 Þorskur(sl) 110,00 64,00 103,51 11,731 1.214.317 Ýsa 83,00 50,00 74,60 0,814 60.722 Ýsa(ósL) 90,00 86,00 87,46 8,914 779.615 Karfi 39,00 20,00 29,83 1,005 29.977 Ufsi 20,00 20,00 20,00 0,080 1.600 Steinb./Hlýri 35,00 22,00 26,47 0,450 11.910 Langa 49,00 37,00 41,81 0,167 6.983 Lúða 285,00 145,00 182,88 0,472 86.320 Skarkoli 39,00 20,00 22,56 1.763 39.782 Rauðmagi 50,00 35,00 39,61 0,272 10.775 Skötuselur 160,00 160,00 160,00 0,013 2.080 Keila 23,00 23,00 23,00 0,439 10.097 Kinnar 195,00 110,00 142,29 0,129 18.355 Hrogn 210,00 210,00 210,00 0,111 23.310 Blandaö 49,00 28,00 42,30 0,239 10.109 Samtals 85,75 32,748 2.808.258 FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 100,00 44,00 82,19 23,982 1.971.050 Hrogn 155,00 155,00 • 155,00 0,100 15.500 Ýsa 88,00 65,00 75,72 13,206 999.986 Sandkoli 2,00 2,00 2,00 0,550 1.100 Karfi 35,00 21,00 27,17 1,112 30.211 Ufsi 30,00 25,00 29,40 2,157 63.410 Steinbítur 30,00 30,00 30,00 0,093 2.790 Langa 35,00 15,00 30,66 0,129 3.955 Lúða 245,00 245,00 245,00 0,005 1.225 Skarkoli 50,00 50,00 50,00 0,100 5.000 Rauðmagi 28,00 28,00 28,00 0,091 2.548 Hlýri 30,00 30,00 30,00 0,103 3.090 Blandað 58,00 10,00 55,99 0,252 29.394 Samtals 74,24 42,153 3.129.269 Morgunblaðið/Glsli Bogason Sá stærsti síðan 1952 Risalaxinn sem veiddist í net trill- unnar Nakks frá Djúpavogi á sunnudag er engin smásmíði, eins og sést glöggt á myndinni hér að ofan. Blóðgaður vóg fiskurinn, sem er hrygna, 18,420 kíló eða 37 pund og lengd hans mældist 117 senti- metrar og hann er því ívið lengri en bræðurnir á myndinni hér að ofan, þeir Guðni Baldur, 4 ára, og Jóhann, 3 ára, sem brugðu sér í frystihús Búlandstinds ásamt föður sínum, Gísla Bogasyni, til að beija skepnuna augum. Þótt margir veið- imennimir segist hafa misst þá stóra má heita ömggt að fáir Is- lendingar hafi séð jafnstóran lax eigin augum, enda hefur ekki feng- ist staðfest að stærri laxi hafí ver- ið landað hérlendis síðan 1952 þeg- ar 37,5 punda fiskur veiddist á stöng í Hvítá í Amessýslu. Stærsti lax sem sannanlega hefur veiðst við ísland er Grímseyjarlaxinn svo- kallaði, sem veiddist í sjó árið 1937 og vóg 49 pund, 24,5 kíló, og var 132 sentimetra langur. 1946 veidd- ist svo annar risi í Hvítá í Arnes- sýslu og vóg sá 38,5 pund og er að líkindum stærsti lax sem veiðst hefur á stöng hérlendis. Einnig er vitað að 1912 og 1942 hafi veiðst risalaxar í Laxá í Þingeyjarsýslum, sem hvor vóg hátt á fjórða tug punda, að sögn Þórs Guðjónssonar fyrrum veiðimálastjóra. Þá veiddist lax við Eldey sem var um það bil 35 pund og annar áþekkur er kenndur við Gullbergið. Hins vegar sagði Þór að aldrei hefðu fengist staðfestar ýmsar ævagamlar kvik- sögur um risavaxna laxa en þeirra mestur mun hafa verið Flúðatanga- laxinn úr Hvítá í Borgarfirði, sem sagður er hafa veiðst á síðustu öld og vegið 70 pund. Kópavogur: Sjálfstæðis- flokkur fengi meirihluta SAMKVÆMT skoðanakönnun Skáis, sem gerð var fyrir Press- una, fengi Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi 56,1% atkvæða óg sjö fulltrúa ef miðað er við svör þeirra sem tóku afstöðu. Urtakið var 450 manns og svöruðu 68,2%. Af þeim voru 32,2% óákveðnir. Alþýðubandalagið fengi 19,4% og tvo fulltrúa, Alþýðuflokkur 11,6% og einn fulltrúa, Framsóknarflokkur 10,3% og einn fulltrúa og Kvennalist- inn 2,6%. 10,1% sögðust ekki ætla að kjósa og 7,2% svöraðu ekki. Hafriarfjörður: Alþýðuflokk- ur fengi 50% S AMKVÆMT skoðanakönnun Skáis fyrir Pressuna um fylgi stjórnmálaflokka í Hafnarfirði fcngi Alþýðuflokkurinn 50% at- kvæða, ef nú yrði kosið til bæjar- stjórnar. Flokkurinn fengi sex fúll- trúa en hefúr fimm. Úrtak könn- unarinnar voru 700 manns, þar af voru óákveðnir 23,9%. Sjálfstæðisflokkur fengi 40,7% og fimm fulltrúa. Þá fengi Alþýðuband- alagið 4,5%, Framsóknarflokkurinn 3,6% og Kvennalsitinn 1,2%, en þess- ir flokkar fengju enga fulltrúa í bæjarstjórn. Af þeim sem voru spurð- ir sögðust 5,7% ekki ætla að kjósa og 8,5% svöraðu ekki. FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - YTRA VESTUR-ÞÝSKALAND 11. aprfl. Hæsta verð Lægsta verð Meðalverð (kr.) (kr.) (kr.) Þorskur 94,16 75,32 Ýsa 117,33 61,56 Karfi 159,19 61,56 Ufsi 72,43 50,70 GÁMASÖLUR i BRETLANDI 11. aprfl. Þorskur 207,13 151,36 Ýsa 184,84 151,36 Karfi 92,41 63,73 Ufsi 73,29 65,33 Magn (lestir) Heildar- verð (kr.) GENGISSKRÁNING Nr. 71 11. apríl 1990 Kr. Kr. Toa- EJn. KJ. 09.15 Kaup Ssla Gongi Dollan 60.70000 60.86000 61.68000 Sterlp. 99,58100 99.84400 100.02300 Kan. dollari 52,36100 52.49900 52.39300 Dönsk kr. 9.47330 9.49820 9.44930 Norsk kr. 9,30270 9.32720 9.32290 Sænsk kr. 9.95410 9.98030 9.99190 Fi. mark 15,27620 15.31650 15,27300 Fr. franki 10.77290 10.80130 10.69120 Belg. franki 1.75030 1.75490 1.73940 Sv. franki 40.79300 40.90050 40.54430 Holl. gyilini 32.15980 32.24460 31.92960 V-þ. mark 36.21390 36.30940 35.93880 ít. líra 0.04927 0.04940 0.04893 Austurr. sch. 5.14820 5.16180 5.10600 Port. escudo 0,40820 0.40930 0.40790 Sp. peseti 0.56990 0.57140 0.56270 Jap. yen 0.38339 0.38440 0.38877 írskt pund 97.04400 97.30000 96.15000 SDR (Sérst.) 79.20740 79.41620 79.64060 ECU. evr.m. 73.96300 74.15790 73.56270 Tollgengi tyrir aprfl er solugengi 28. mars. Sjálfwkur símsvari gengisskránmgar er 62 32 70. Skoðanakönnun Skáís: Sjálfstæðisflokk- urinn fengi 75,5% Í SKOÐANAKÖNNUN um fylgi stjórnmálaflokkanna, sem Skáís heíúr gert fyrir Pressuna vegna borgarstjórnarkosninganna í vor, fengi Sjálf- stæðisflokkurinn 75,5% atkvæða þeirra sem taka afstöðu og 13 borgar- fulltrúa kjörna. Næst kemur Nýr vettvangur með 12,1% og tvo fúlltrúa. Samkvæmt könnuninni missa Framsóknarflokkur, Kvennalisti og Alþýðubandalag sína fúlltrúa. Svart og sykurlaust Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Bíóborgin Leikstjóri Danny DeVito. Hand- rit Michael Leeson. Aðalleikend- ur Michaei Douglas, Kathieen Turner, Ðanny DeVito, Mar- iannc Ságebrecht. Bandarísk. 20th Century Fox 1989. Dökkleit fyndni, svartar gaman- myndir eru harla fáséðar frá draumaverksmiðjunni Hollywood um þessar mundir, enda ekki verið „inni" um langá hríð þó Evrópu- menn gæli löngum við þessa mynd- gerð, meðfram öðrum. En Kaninn hefur löngum viljað skara að sínum hamingjusamlega endi og luk- kunnar velstandi svona yfir höfyð, svo hin vel heppnaða I blíðu og strfðu kemur skemmtilega á óvart. Þau Douglas og Tumer kynnast ung að árum, hann verðandi lög- fræðingur, hún kæfugerðarkona. par exellence. Hjónabandið og framapotið ganga með miklum ágætum uns, bang!, einn góðan veðurdag vill kerla karlinn út og það hið snarasta, og halda villunni og krakkagrislingunum í ofanálag. Er það mál hjónaskilnaðarlögfræð- ingsins DeVito að reyna hið ómögulega — að ná sáttum í mái- inu sem endar með ósköpum, svo ekki sé meira sagt! Það leynir sér ekki að þessi þrenna, DeVito, Douglas og Tum- er, þekkist vel. Leikurinn er af- burðagóður en enginn betri en sá sem heldur öllum endum saman, leikstjórinn og leikarinn DeVito. Annars eiga allir lof og þakkir skildar fyrir óvenju framlega og vel heppnaða gamanmynd í alla staði. Hér er valinn maður í hveiju rúmi enda framleiðandinn enginn annar en James L. Brooks, einn færasti maður í sinni stétt í Vestur- álfu. Það hriktir í tjaldinu á köflum undir óvenju svæsnum orðaskipt- um og líkamlegum átökum Rose- hjónanna en fyrst og fremst leiftr- ar myndin af óvenju óprúttnu skopskyni og meinhæðni. Feðgin í fallhættu Bíóhöllin: Cookie — „Cookie" Leikstjóri Susan Seidelman. Aðalleikendur Peter Falk, Emely Lloyd, Diane Wiest, Brenda Vaccaro. Bandarisk. MGM 1989. Maður beið eftir þessari með nokkurri forvitni, einkum hvað varðaðí gengi hinnar efnilegu, bresku leikkonu Lloyd á erlendri grand, en eins og margir muna þá sló hún eftirminnilega í gegn í bresku smámyndinni Eg vild’ að þú værir hér, fyrir tveimur árum. Og Lloyd svíkur engann, það gera hinsvegar handritshöfundur og leikstjóri í ríkum mæli. Cookie á að segja frá endur- komu mafíósans Falks á heima- slóðir sínar í New York eftir rösk- lega áratugs setu bak við lás og slá. Hvemig hann nær sér niðri á skrattakollunum, vinum hans, sem komu honum í gijótið en þó fyrst og fremst þeim þætti sem óhemj- an, dóttir hans Lloyd, á í öllu ráða- bragginu. Þá eiga endurkynni feðginanna að vera hvortveggja í senn — bráðfyndin og hjartnæm. Þetta fer alit fyrir ofan garð og neðan hjá Seidelman, sem hefur nú margsannað að myndir hennar eru yfír höfuð lítið forvitnilegar ef undan er skilið byrjunarverkið Smithereens, sem var m.a. sýnd hér á kvikmyndahátíð á sínum tíma. Hún, ásamt lítt fyndnum handritshöfundum, gera fátt fyrir þann ágæta og skemmtilega sam- valda leikhóp sem vafrar um svið- ið, reynandi að gera sér mat úr fimmaurabröndurum. Úrtak könnunarinnar voru 700 manns og svöraðu 76,3%. Af þeim sögðust 45,5% kjósa Sjálfstaeðis- flokkinn, 7,3% Nýjan vettvang, 3% Kvennalistann, 2,6% Framsóknar- flokkinn og 1,7% Alþýðubandalagið. 29,4% vora óákveðnir, 5,8% ætla ekki að kjósa og 4,7% svöraðu ekki. Spurt var: Ef kosið væri til borgar- stjómar Reykjavíkur núna, hvaða flokk eða framboð mundir þú kjósa ? Þeir sem ekki tóku afstöðu voru síðan spurðir: Hvort myndir þú kjósa Sjálfstæðisflokkinn, Nýjan vettvang eða einhvem hinna flokkanna? Af þeim sem voru óákveðnir svöraðu 60% og sögðust 43,2% ætla að kjósa Nýjan vettvang, 36% Sjálfstæðis- flokkinn og rúmlega 29% aðra flokka. Ef tekið er tillit til þeirra sem svara síðari spumingunni fengi Sjálf- stæðisflokkurinn 11 fulltrúa, Nýr vettvangur fengi þrjá og Kvennalist- inn einn miðaða við fyrra fylgi. Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson Nemendur sýndu góðhesta og kynbótahross í nýju reiðkennslustof- unni og lýsti Magnús Lárusson kostum þessara gripa fyrir áhorfendum. Reiðkennslustofa á Hólum Hóhim í Hjaltadal. • REIÐKENNSLUSTOFA var vígð í Bændaskólanum á Hólum fyrir skömmu að viðstöddum landbúnaðarráðherra, Steingrími J. Sigf- ússyni og allmörgum gestum. Við athöfiiina söng Karlakórinn Heimir, ávörp voru flutt og sýndir hestar, en að lokum þágu gestir veitingar í boði skólans. Athöfnin hófst með söng Karla- kórsins Heimis, en síðan flutti sr. Sigurður Guðmundsson vígslubiskup húsblessun. Þá ávarpaði Jón Bjama- son, skólastjóri, ráðherra og gesti. Reiðkennslustofan er um 1.100 fermetrar. Bygging hennar hófst haustið 1988 og var að mestu lokið í október síðastliðnum. Trésmiðjan Borg á Sauðárkróki byggði húsið. Fram kom í ræðu Jóns Bjamason- ar að heildarkostnaður við bygging- una er 14,5 milljónir. Avarp nemenda flutti Lovísa Her- borg Ragnarsdóttir. Að lokum flutti landbúnaðarráðherra ávarp og árn- aði skólanum heilla með nýja húsið. - BB. .

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.