Morgunblaðið - 12.04.1990, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1990
Aldrei verið jafii hætt kominn
- segir Richard Lowell, sem lenti í hrakningum á
kajak í Eyjafirði í ofsaveðri sem gekk yfir í gærdag
■ Andrésar andar-leikarnir
verða haldnir í Hlíðarfjalli í 15.
sinn dagana 18.-22. aprii. Þátttak-
endur á leikunum hafa aldrei verið
jafn margir og nú, en þeir eru 742
og þeim fylgja um 200 fararstjór-
ar. Andrésar andar-leikamir eru
fyrir börn 12 ára og yngri og koma
þau víða af að landinu. Gísli Kr.
Lórenzson formaður Andrésar-
nefndar sagði 'að undirbúningi
væri nú að mestu lokið, en hann
hefði staðið yfir allt frá því síðustu
leikar voru haldnir. „Markmiðið
með leikunum er tvíþætt, þetta er
fyrst og fremst leikur fyrir krakka
12 ára og yngri, en einnig erum
við að leggja grunnin að skíðafólki
framtíðarinnar. Allt okkar besta
skíðafólk á seinni árum hefur stað-
ið upp úr á Andrésar andar-leikun-
um, þannig að við erum að búa til
skíðafólk jafnframt því sem við telj-
um okkur vinna að uppbyggilegu
æskulýðsstarfi," sagði Gísli.
Allir þátttakendur verða leystir
út með gjöfum, Skipadeild Sam-
bandsins gefur verðlaun á leikun-
um, allt sérsmíðaða gripi. Þá gefa
ýmis fyrirtæki á Akureyri öllum
bömunum drykkjarkönnur að gjöf,
einnig fá þau lyklakippur, tau- og
jámmerki. „Það er ekki hægt að
halda Ieikana nema með samstilltu
átaki þeirra sem að þeim standa
og fyrirtækjanna á Akureyri sem
stutt hafa við bakið á okkur frá
upphafi, en þau hafa Iagt fram stór-
ar upphæðir," sagði Gísli.
■ Hörður Jörundsson opnar
málverkasýningu í Gamla Lundi
við Eiðsvöll í dag, skírdag, kl. 14.
Á sýningunni em um 40 myndir,
flestar málaðar á þessu ári. Sýning-
in er fímmta einkasýning Harðar,
en hann hefur einnig tekið þátt í
samsýningum, m.a. með Mynd-
hópnum. Hörður stundaði teikningu
hjá Jónasi Jakobssyni myndhöggv-
ara, hann er lærður málari og lærði
marmara- og viðarlíkingamálningu
í Kaupmannahöfn. Sýningin er opin
daglega frá kl. 14-22 og henni lýk-
ur að kveldi sumardagsins fyrsta,
19. apríl, næstkomandi.
■
Þýski strengjakvartettinn Markl
heldur tónleika á sal Menntaskól-
ans á Akureyri, þriðjudagskvöldið
17. apríl næstkomandi. Tónleikarnir
hefjast kl. 20.30. Kvartettinn er hér
á landi á vegum Tónlistarfélags
Akureyrar, Kammermúsíkklúbbs-
ins og þýska sendiráðsins. Á efnis-
skránni em verk eftirHaydn, Beet-
hoven og Wilhelm Kempf.
Komdu og
vertu með.
Upplýsingar
í síma 96-22280.
FLUGLEIDIR
innanlandsflug
„ÉG HEF aldrei á ævinni verið
jafn hætt kominn,“ sagði Ric-
hard Lowell, bandaríski tann-
læknirinn sem fór á kajak út á
Eyjafíörð í gærmorgun. Þegar
ofsaveðrið skall á eftir hádegið
í gær var Lowell um 20-30 metra
frá landi og komst hann með
naumindum upp að landi að eyr-
inni við norðanverðan Hörgárós,
um 15 kílómetrum norðan Akur-
eyrar.
Richard Lowell fór frá Akureyri
á kajak sínum í gærmorgun og
sást til hans um kl. 11 við Dagverð-
areyrí, en frá þeim tíma spurðist
ekkert til hans þar til hann náði
talsambandi við hafnarverði á Ak-
ureyri laust fyrir kl. hálf fjögur í
gærdag. Ofsaveður gekk yfír Akur-
eyri eftir hádegið og var farið að
grennslast fyrir um hann þar sem
óttast var um afdrif hans.
Sjóbjörgunarsveit slysavamafé-
lagins var kölluð út og lögreglu-
menn á tveimur bflum héldu út að
Gáseyri þegar vitað var um vand-
ræði mannsins. Ráðstafanir voru
gerðar til að fá bát til að ná í
manninn, en áður en til þess kom
náði Lowell að komast af sjálfsdáð-
um úr sjálfheldunni.
„Hann var mjög hætt kominn
og ef hann hefði ekki lent upp á
eyrinni er ég hræddur um að illa
hefði farið, suðvestanáttin hefði
hrakið hann frá landi," sagði Ámi
Magnússon varðstjóri lögreglunnar
á Akureyri.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Kajakinn kominn á þurrt eftir hættufórina. Richard Lowell, sem
er til hægri á myndinni, ætlar ekki að nota hann meira hér við land.
Ámi sagði að lögreglumenn
hefðu rætt við Lowell þegar vitað
var um fyrirætlanir hans um að róa
út fjörðinn í átt til Ólafsfjarðar, en
lögreglu skorti vald til að stöðva
menn í tilfellum sem þessu. Ámi
sagði að maðurinn hefði verið vel
útbúinn og hann hefði ætlað að
halda sig nálægt landi og því ekki
talið að nein hætta væri á ferðum.
Maðurinn hefði hins vegar ekki
haft tök á að fylgjast með veður-
spám og því haldið út.
„Þegar veðrið skall á var ég um
það bil 20-30 metra frá landi og
það var rétt með naumindum að
ég náði að komast að landi eftir
mikinn baming. Ég komst að eyr-
inni norðanvert við árósinn og þar
dró ég bátinn upp að landi, en
stormurinn var svo mikrfr að ekki
var stætt. Ég ákvað því að halda
kyrru fyrir í bátnum og þegar veðr-
ið lægði gat ég róið að syðri hluta
óssins þar sem ég ætlaði að tjalda,“
sagði Richard Lowell. Ekki hefur
hann í hyggju að reyna meira fyrir
sér á kajaknum heldur snúa sér
að gönguskíðum sem hann hafði
með í Islandsförina. Lowell vildi
koma á framfæri þakklæti til allra
þeirra sem aðstoðu hann í vand-
ræðum hans og höfðu af honum
áhyggjur.
erlendis.
Ný Eyjafjarð-
arferja til
heimahaftiar
FERJA sem nota á til siglinga á
Eyjafirði, til Hríseyjar og
Grímseyjar, er væntanleg til
landsins á laugardag, en hún er
keypt í Noregi. Ferjan var afhent
í Bergen í vikunni og sigldi af stað
áleiðis til landsins í fyrradag.
Heimahöfn feijunnar verður í
Hrísey og er búist við að hún
muni sigla inn i höfhina um hádeg-
isbil á laugardaginn kemur.
Fetjan, sem hét Bremnes, var í
siglingum á milli Bergen og Stavan-
ger í Noregi með viðkomu á minni
stöðum. Kaupverð hennar er um 67
milljónir króna. Skipið er smíðað árið
1978 og er rúmir 40 metrar á lengd.
I áhöfninni verða fjórir menn og
skipstjóri verður Örlygur Ingólfsson.
Tekið verður á móti feijunni með
viðhöfn, gestum boðið að skoða hana
og væntanlega verður farið í sigl-
ingu. Feijan mun síðan sigla til
Grímseyjar og þar ætla kvenfélags-
konur að bjóða til kaffísamsætis í
tilefni ferjukomunnar.
Yfír 12 vindstig í mestu hviðunum:
Verulegt tjón varð í lqölfar ofea-
veðurs sem gekk yfir Akureyri
Þakplötur fiiku af flölbýlishúsi og yfir aðalgötu bæjarins
VERULEGT tjón varð í hvass-
viðri sem gekk yfir Akureyri upp
úr kl. 14 í gær. Þakplötur tók
af húsum og fuku þær um bæinn,
þá urðu miklar skemmdir á bif-
reiðum og einnig á húsum. Ekki
er vitað til að meiðsl hafi orðið
á fólki. Almannavarnarnefnd
Akureyrar var í viðbragðsstöðu
og Hjálparsveit skáta, Flugbjörg-
unarsveit og bæjarstarfsmenn
voru kallaðir út vegna óveðurs-
ins. Rafmagn fór af bænum í
klukkustund og símasamband
var mjög slæmt á tímabili.
Það var upp úr kl. 14 sem tók
að hvessa all verulega, en hámarki
náði vindurinn um kl. 15. I mestu
hviðunum mældist vindhraðinn 81
hnútur, eða yfír 12 vindstig. Lægja
tók á fjórða tímanum og um kl. 16
var veðrið dottið niður.
Á fjölbýlishúsinu númer 2-6 við
Skarðshlíð tók þakplötur af og að
sögn varðstjóra lögreglunnar fóru
um tveir þriðju hlutar þakplatnanna
af húsinu. Plötumar fuku yfir Hörg-
árbraut, sem er aðalumferðargata
bæjarins og var henni lokað á með-
an unnið var við að hreinsa þær
burtu. Bæjarstarfsmenn voru kall-
aðir út, sem og einnig Flugbjörgun-
arsveitarmenn og Hjálparsveit
skáta. Þá var Almannavamanefnd
Akureyrar einnig í viðbragðsstöðu.
Þakplata af húsinu fauk yfir
Hörgárbrautina og inn um svefn-
herbergisglugga í húsi við Lyng-
holt. Þar urðu nokkrar skemmdir.
Einnig lentu plötur á bifreiðum og
skemmdust margar þeirra.
Að sögn varðstjóra lögreglunnar
á Akureyri var ekki vitað um meiðsl
á fólki vegna óveðursins sem gekk
yfir og yrði það að teljast krafta-
verk, þar sem mikið var um fok
þakplatna. Hins vegar væri ljóst
að verulegt eignatjón hefði orðið í
kjölfar ofsaveðursins.
Rafmagn fór af bænum og var-
aði rafmagnsleysi í um það bil
klukkustund. Þá var símasamband
mjög slæmt um tíma.
Allir, sem taka þátt í
páskatrimminu, eiga
möguleika á ókeypis
ferð með Flugleiðum
innanlands eða
Morgunblaðið/KGA
Tjón af völdum veðurofsans í gær varð með ýmsu móti. Þakplötur losnuðu og ein þeirra fór inn um rúðu
á íbúðarhúsi og stóð fóst i glugganum. Á innfelldu myndinni sést stór rifa, sem þakplata risti á bílhurð.
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Fjölskyldutrimmið á sunnudegi og
parakeppni verður á laugardag og mánudag.
PÁSKATRIMM N
FLUGLEIÐA
í HLÍÐARFJALLIV/AKUREYRI