Morgunblaðið - 12.04.1990, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 12.04.1990, Blaðsíða 36
VP 36 oopr irqq/ <?r WWhmmfiinri ajn / j<v/uavcnr MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1990 DAGBÓK Frá Dagbókarsíðu. ÁRIMAÐ HEILLA ára afmæli. Á föstu- OU daginn 19. þ.m., föstu- daginn langa, er sextugur Ketill Axelsson, Ægissíðu 70, hér í vesturbænum. Kona hans er frú Margrét Gunn- laugsdóttir. Þau taka á móti gestum á heimili sínu á af- mælisdaginn kl. 18-20. p- A ára afmæli. Næstkom- OU andi laugardag, _ 14. þ.m., er fimmtugur Árni Gunnarsson alþingismaður, forseti neðri deildar Al- þingis, Ásenda 13, hér í Rvík. Kona hans er frú Hrefna Filippusdóttir. SKIPIN_________________ REYKJAVÍKURHÖFN: í fyrradag kom Helgafell að utan og Mánafoss af strönd- inni og fór hann aftur á strönd í gær. Þá kom Skógafoss að utan. í gær kom Bakkafoss að utan. Af ströndinni komu Arnarfell og Stapafell. Brú- arfoss lagði af stað til útlanda í gærkvöldi. Skógafoss fer væntanlega út nk. laugardag. I gær kom leiguskipið Saga- land að utan. I dag er rækju- togarinn Ocean Prawns sem er danskur væntanlegur og tekur vistir m.m. og þýska eftirlitsskipið Merkatze er væntanlegt. HAFNARFJARÐARHÖFN: í gær komu Ljósafoss og Selfoss. í dag er súrálsskip væntanlegt. KROSSGÁT A MÚSÍKTILRAUNIR Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Nabblastrengir Nabblastrengir koma úr Hafnarfirði líkt og sigursveit síðasta árs og þeir eru Gísli Helgason trommuleikari, Magnús Oddsson gítarleikari, Starri Sigurðsson bassaleikari, Jón Símonarson söngvari og Valdimar Gunnarsson gítarleikari. Nabblastrengir leika rokk í þyngri kantinum og meðalaldur þeirra er rúm sextán ár. §§§§ W&w m ; í f |i| | j í 'm 2- jl/ii v-'. A Við erum menn Við erum menn koma úr Borgarnesi, og eru önnur Borgarnes- sveitin í þessum tilraunum. Sveitina skipa BrandurS. Brandsson gítarleikari, Sigmar P. Egilsson söngvari, Baldvin J. Kristinsson hljómborðsleikari, Jón M. Harðarson trommuleikari og Sigurdór Guðmundsson bassaleikari. Meðalaldur sveitarmanna er tæp sautján ár, en aðspurðir um tónlist sveitarinnar svöruðu þeir „óákveðið“! Frimann Frímann af Akranesi skipa Guðmundur Claxton trommuleikari, Ingþór Þórhallsson bassaleikari, Kári Steinn Reynisson söngv- ari, Erlingur Viðarsson gítarleikari og Valgerður Jónsdóttir söng- kona. Meðalaldur sveitarmeðlima er rúm fimmtán ár og tónlist- in sem sveitin leikur er „einhver nýbylgja". MÚSÍKTILRAUNIRTónabæjarog Rásar2 hófust síðasta fimmtudag og í kvöld verður annað tilrauna- kvöld. í kvöld koma fram fimm hljómsveitir sem hver um sig flytur fjögur f rumsamin lög og eiga allar sveitirn- ar það sammerkt að vera lítið sem ekkert kunnar. Þær koma úrýmsum áttum að vanda, ein úr Hafnarfirði, ein af Akranesi, ein úr Garðinum og athygli vekur að tvær sveitir eru úr Borgarnesi. Má búast við að Borg- nesingar verði fjölmennir á áhorfendapöllum. Gesta- hljómsveit kvöldsins, þ.e. sú hljómsveit sem leikur áður en tilraunirnar hefjast og á meðan atkvæði eru talin, erSykurmolarnir. Samantekt: Árni Matthíasson The Evil Pizza Delivery Boys lllu pizzasendlarnir eru eina sveitin í þessum Músíktilraunum sem ber ekki íslenskt nafn. Þeir eru önnur sveitin sem kemur frá Borgarnesi, en sveitina skipa Gísli Magnússon gítarleikari og söngvari, Guðmundur Sveinsson trommuleikari, Símon Ólafs- son bassaleikari og söngvari og Óskar Viekko gítarleikari. Meðal- aldur sveitarmanna er rúm sextán ár og sveitin leikur fjöl- breytta tónlist sem hæfir öllum. Ljósmynd/Arnór Hrói höttur og munkarnir Hrói höttur og munkarnir koma úr Keflavík og Garði, en sveitina skipa Ellert Rúnarsson bassaleikari, Áki Ásgeirsson píanóleik- ari, Kjartan Ásgeirsson gítarleikari og Már Harðarson trommu- leikari. Meðalaldur sveitarmanna er óráðinn. LÁRÉTT: — 1 álka, 5 kindunum, 6 auðlind, 7 tímabil, 8 ótti, 11 að- gæta, 12 á húsi, 14 (jær, 16 iðnað- armaður. LÓÐRÉTT: — 1 hagkvæmur, 2 óhrein, 3 flana, 4 lítill, 7 púki, 9 þraut, 10 vlfra, 13 eyði, 15 keyr. LAUSN SIÐUSTU KROSSGÁTU: LÁRÉTT: — 1 skepna, 5 lá, 6 aldr- að, 9 púa, 10 si, 11 ir, 12 gan, 13 lafa, 15 ala, 17 tertan. LÓÐRÉTT: - 1 skapillt, 2 elda, 3 pár, 4 arðinn, 7 lúra, 8 asa, 12 galt, 14 far, 16 aa. ■ / HAFNARFJARÐAR- KIRKJU verður vandað til alls tón- listarflutnings komandi bænadaga og páska. Á skírdag við helgistund með altarisgöngu sem hefst kl. 20.30 um kvöldið mun Skólakór Garðabæjar syngja undir stjórn Guðfínnu Dóru Ólafsdóttur. Á föstudaginn langa mun Erna Guð- mundsdóttir, sópran, syngja við guðsþjónustu kl. 14. Á páskadag 15. apríl við hátíðarmessur bæði kl. 8. árdegis og kl. 14 mun Ester Helga Guðmundsdóttir, sópran og kór kirkjunnar flvtia ásamt hliöð- færaleikurum, „Missa Brevis“ í B-dúr (Litlu orgelsólómessuna) eftir Jóseph Hayden undir stjórn Helga Bragasonar. ■ AFMÆLISFUNDUR AA- samtakanna verður haldinn á morgun, föstudaginn langa, 13. apríl kl. 21 í Háskólabíó. Þar koma fram AA félagar og einnig gestur frá Al-anon samtökunum, sem eru samtök aðstandanda alkóhólista. íslensku AA-samtökin voru stofnuð fyrir 36 árum síðan á föstudeginum lanaa. ■ FÉLAG áhugamanna um skrautdúíharækt heldur sýningu um páskana á fuglum sínum í Reið- höllinni. Fyrsti dagur sýningarinn- ar er laugardagurinn 14. apríl og stendur hún yfir í 3 daga. Sýningin er opin frá kl. 10—18. Skrautdúfnasýning verður hald- in í Reiðhöllinni um páskahelg- ina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.