Morgunblaðið - 12.04.1990, Side 45
MORGWNBLAÐIÐv • FIMMTUDAGUR 12- ABRIL. 1990
45
STJORNUSPA
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Forðastu flottræfílshátt heima
fyrir og deildu ekki um peninga
við vini þína. Iðni og ástundun
færa þér ávinning í starfí þínu.
Naut
(20. apríi - 20. mai)
Efndu öll loforð sem þú gefur
öðru fólki. Lofaðu ekki upp í
ermina. Þú færð góð ráð frá ein-
hveijum sem er nákominn þér.
Hjón skipta með sér ábyrgðinni
í kvöld.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 5»
Þú kannt að verða áskynja um
afbrýðisemi á vinnustað. Haltu
þér utan við deilur og einbeittu
þér að starfmu. Þér er ekki gef-
ið um óumbeðin ráð eða afskipta-
'semi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Forðastu deilur um persónuleg
efni. Hjón njóta útvistar saman
og fara á gamalkunnan stað.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
í stað þess að deila um réttu
aðferðina við að vinna verkið
ættu allir að sameina krafta sína.
Þá tekst að ljúka verkinu snar-
lega. Þú gegnir ábyrgðarstarfi
heima við S kvöld.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) $£
Skapsmunir þínir eru þér ijötur
um fót og draga úr afköstunum.
Gerðu hlutina ekki í of miklum
flýti eða með hálfkæringi. Sinntu
skapandi hugðarefnum og flöl-
skyldunni í kvöld.
vög T
(23. sept. - 22. október)
Hyggðu að forgangsröð þess sem
gera skal. Hafðu taumhald á
hneigð þinni til að bruðla og
kauptu aðeins það sem þú hefur
þörf fyrir. Heimilislífið veitir þér
meiri ánægju en skemmtanir úti
í bæ.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Annaðhvort þú eða einhver í íjöl-
skyldunni getur reiðst illilega
núna. Ekki gengur allt sem
skyldi f vinnunni í dag. Þú verð-
ur einbeittari og afkastameiri í
kvöld.
Bogmadur
(22. nóv. - 21. desember)
Þú átt S einhverri innri baráttu
um þessar mundir. Reiðin leysir
engin vandamál. Þú verður í
betra jafnvægi í kvöld. Heilbrigð-
ir viðskiptahættir reynast ætíð
best þegar allt kemur til alls.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Peningar geta valdið sárindum
milli þín og vinar þíns. Þú hefur
samt gott af félagsskap. í kvöld
getur þú hvílst og notið næðis.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Þú hrekur frá þér þá sem þú
umgengst ef þú ert með stæri-
læti. Það er skynsamlegra að
fara sér hægar því að dropinn
holar steininn.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Þú ert á báðum áttum núna og
getur stokkið upp á nef þér þeg-
ar minnst varir. Þér tekst að ná
áttum áður en dagur er að kveldi
kominn.
AFMÆLISBARNIÐ á einstak-
lega létt með að koma skoðunum
sínum á framfæri. Það hefur
bæði áhuga á ritstörfum og list-
um almennt. Það á auðvelt með
að umgangast annað fólk þó að
það geti einnig verið hálfgerður
einfari annað veifið. Góð mennt-
un getur orðið því að ómetanlegu
gagni og stuðlað að því að kraft-
arnir dreifist ekki um of. Það
ætti að gæta þess vel og dyggi-
lega að dylja tilfinningar sínar
ekki fyrir sínum nánustu.
Stjörnuspána á aó lesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
bygSÍast ekki á traustum grunni
vísindalegra staðrcynda.
DYRAGLENS
£3 l/eeo t//srjÐ FÁ
/va/z sterlk//?/
St/iT/E/O/ /
---Q—-----------
\ i -.__
-\>XVo
*s//-^~
GRETTIR
TOMMI OG JENNI
EN AFSORaA.N|feNAR
^ JAFNVEL ENN LENGOR
FERDINAND
SMAFOLK
Það er sagt, að ef fólk búi nógu lengi saman, fari það
að tala eins.
Hvað áttu við með því, að þú vonir ekki?
LJÓSKA
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páli
Arnarson
Aldur er ekki afgerandi þáttur
hugaríþróttum. I vissum skiln-
ingi eru allir keppendur á besta
aldri, ef heilsan er í lagi á annað
borð. Að vísu skiptir likamlegt
úthald nokkru máli, en það ger-
ir reynslan líka, og hún vex, sem
kunnugt er, með aldrinum. Fyrr-
um landsliðsspilari Banda-
ríkjanna, Sidney Lazard, er 71
árs að aldri. Hann hefur lítið
spilað undanfarin ár, en tók þátt
landstvímenningi nú í vor með
óþekktum spilara, Jack LaNoue. ■
Er skemmst frá því að segja að
ieir unnu með miklum yfirburð-
um.
Suður gefur; AV á hættu.
Norður
♦ G5
¥86
♦ Á109
+ ÁK8432
Vestur Austur
10 ♦ ÁD87642
KDG1054BR ¥ -
75 ♦ KG8642
*D7 ♦-
Suður
♦ K93
¥ Á97
♦ D3
♦ G10965
Vestur Norður Austur Suður
— — 1 lauf
4 hjörtu 5 lauf Pass Pass
Pass
Utspil: hjartakóngur.
Opnun LaNoues á einu laufi
er ekki alveg eftir bókinni, en
hætturnar voru hagstæðar og
ieir Lazard voru í bullandi stuði.
Ákvörðun austurs að passa verð-
ur að teljast mjög yfirveguð,
enda stóðu augu hinna á stilkum
jegar hann kastaði spaða í.
hjártakónginn. Sem benti til að
hann ætti tvær eyður.
LaNöue drap á hjartaás og
tók trompin í tveimur umferðum.
losnað við hjartataparann í
blindum.
Austur er engu bættari með
því að drepa á ás, því tían fellur
og þá má svína fyrir drottning-
una.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á Skákþingi Garðabæjar í ár
kom þessi staða upp í skák þeirra
Jóhanns II. Ragnarssonar
(1.820), sem hafði hvítt og átti
leik, og Alfreðs Haukssonar.
Svartur hafði átt góða stöðu, en
lék síðast 18. - Kg8-g7? Hvítur
tryggði sér nú unnið tafl með
fléttu:
19. Hxh7+! - Kxh7, 20. Hxfö
(Nú er 20. - Rxf8 auðvitað svar-
að með 21. Rf6+ og 20. - dxe4
með 21. Df7+ - Kh6, 22. Hh8+
- Kg5, 23. Bc4 með óstöðvandi
sókn. Hvítur hefur því unnið peð
og er með sterka sókn að auki.
Lokin urðu þannig:) 20. - Kg7,
21. He8! - Kf7, 22. Hh8 - b6,
23. R4c3 - Bb7, 24. Hh7+ -
Kf6, 25. Dc2 - Hg8, 26. Rxd5 -
cxd5, 27. Dxc7 - Bc8, 28. Rf4 -
Kg5, 29. Dd6! - Rf6, 30. De5 -
Bf5, 31. Re6 mát.
BHBHOBNni