Morgunblaðið - 12.04.1990, Síða 50
MOKGUNBI.AÐIÐ FLMMTUIIAGUR 12. APRÍL'199t)
50
HVAÐ
ER AÐO
GERASTÍ
SOFN
Listasafn íslands
Sýningin „Uppþot og árekstrar, norræn
list 1960 - 1972." Er um samnorræna
farandsýningu að ræða sem fyrst verð-
ur sýnd í Reykjavík, en síðar í öðrum
höfuðstöðum Norðurlanda. Fulltrúar
íslands á sýningunni eru m. a. Erró,
Jón Gunnar Árnason, Kristján Guð-
mundsson, Sigurður Guðmundsson og
Hreinn Friðfinnsson. Safnið er opið frá
klukkan 12.00 til 18100 alla daga nema
mánudaga.
Kjarvalsstaðir
Sýning á verkum Guðmundu Andrés-
dóttur í vestursalnum. Á sýningunni
eru olíu- og vatnslitamyndir frá árunum
1958 til 1988. Einnig eru Jón Axel og
Sóley Eiríksdóttir með sýningu á olíu-
verkum og skúlptúr í austursal. Sýning-
arnar standa til 15. apríl.
Ásmundarsafn
í Ásmundarsal er sýning á verkum
Ásmundar Sveinssonar.
Listasafn SigurJóns
Ólafssonar
Þar er sýning á málmverkum og að-
föngum listamannsins, m. a. járnmynd-
um hans frá árunum 1960 til 1962 og
gjöfum sem safninu hafa borist undan-
genginár.
Hafnarborg
Sýning á listaverkum úr safni hússins.
Stendursýningin til 16. apríl.
Safn Ásgrims
Jónssonar
Þar stendur yfir sýning á vatnslitamynd-
um eftirÁsgrím Jónsson.
Listasafn Háskóla
íslands
Þar eru til sýnis verk í eigu safnsins.
Árbæjarsafn
Opið eftir samkomulagi, sími 84412.
MYNDLIST
FÍM salurinn
Sýning Arnar Inga á „máluðum mynd-
verkum". Sýningin stendurtil 17. apríl.
Krókur
Cees Visser sýnir myndverk í Krók,
Laugarvegi 37 og er opið á verslun-
artíma.
Gallerí Sævars Karls
Sýning á verkum Helga Þorgils Frið-
jónssonar. Á sýningunni eru málverk,
vatnslitamyndir og skúlptúrar. Sýningin
stendurtil 20. apríl.
Hótel Lind
(veitingasal hótelsins stendur nú yfir
sýning á verkum Önnu Gunnlaugsdótt-
ur og stendur sýningin til 27. mai.
Þetta er nýr vettvangur oa fylgir opnun-
artímaveitingasalarins. '
Nýhöfn
Sýning á málverkum Magnúsar Kjart-
anssonar. Stendur sýningin til 18 apríl.
Eden
ar sýnir Sigurður K. Arnarson pastel-
myndir og lýkur sýningunni á öðrum i
páskum,
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Endurbygging eftir Havel sýnt í Há-
skólabíói á annan í páskum klukkan
20.30.
íslenska Leikhúsið
islenska Leikhúsið sýnir nýtt íslensk
leikrit í húsakynnum Frú Emilíu Skeif-
unni 3c. Er það Hjartatrompet eftir
Kristínu Ómarsdóttur. Sýning i kvöld
klukkan 20.30.
Örleikhúsið
Sýning á Logskeranum eftir Magnús
Dahlströmá Hótel Borg í kvöld klukkan
21.00.
YMISLEGT
Ferðafélag íslands
Skírdagur: Tröllafoss - Hrafnshólar, lagt
af stað frá Umferðarmiðstöðinni klukk-
an 13.00. Skíðaganga á Mosfellsheiði,
lagt af stað á sama tíma. Föstudagur-
inn langi: Gönguferð um Músarnes -
Saurbæ. Laugardagurfyrirpáska: Öku-
ferð, Óseyrarbrú - Stokkseyri - Garð-
yrkjuskólinn. Skíðaganga um Hellis-
heiði til Hveragerðis. Annar í páskum:
Gönguferð Búðasandur - Maríuhöfn.
Skíðaganga, Kjósarskarð- Meðalfells-
vatn. Lagt í allarferðirnar klukkan 13.00
frá Umferðarmiðstöð.
Útivist
14. til 16. apríl, gönguskíðaferð frá
Mekurbrú
inn í Bása. Sömu daga gönguskíðaferð
Þingvellir- Hlöðufell - Haukadalur.
Dagsferðir, skírdagur:Með Núpshlíðar-
hálsi, skíðaganga eða ganga, brottför
klukkan 10.30. Klukkan 13.00
Hraunsvík - Hóp, strandganga. Föstu-
dagurinn langi: Ferð á slóðir Kjalnes-
ingasögu, lagt af stað klukkan 13.00.
Laugardagurfyrirpáskadag: Skíða-
ganga um Svínaskarð, lagt af stað
klukkan 13.00. Páskadagur: Göngu-
ferð um Heiðmörk, lagt af stað klukkar
13.00. Annar í páskum, rútuferð að
Gullfoss, Geysi og Faxa, lagt af stað
klukkan 10.30. Klukkan 13.00:Gengið
um Kirkjustíg í Kjós.
Skiptimarkaður
safnara
Félag frímerkjasafnara, Félag mynt-
safnara og kortasafnararefna á laugar-
daginn til skiptimarkaðar að Síðumúla
17. Markaðurinn stenduryfirfrá klukk-
an 13.30 til klukkan 17.00.
SOLSTOFUR
Sól og gróður allt árið í
EINANGRUÐUM ELITE-SÓLSTOFUM
Framleiddar í stærðum: 9,1-15,4 og 24,3 ferm.
Möguleikar á öðrum stærðum samkv. sérpöntun.
Auðveldar í uppsetningu - Hagstætt verð.
HAFIÐ SAMBAND EF ÞIÐ ÓSKIÐ EFTIR
NÁNARI UPPLÝSINGUM
siwdraAstálhf
Pósthólf 880, Borgartúni 31,105 Reykjavík, slmi: 627222
Fáheyrðri valdníðslu
beitt gegn Fróðár-
hreppi á Snæfellsnesi
eftir Þorgerði
Jónsdóttur
Góðir landsmenn. Vitið þið að
hreppaflutningar tíðkast enn hér á
landi? Hafið þið fylgst með fram-
kvæmd sveitarstjórnarlaganna frá
1986? Ef til vill ætti ég að útskýra
hvað hreppaflutningur var í „gamla
daga“. Þá voru teknir þeir fátækl-
ingar sem ekki gátu framfleytt sér
og sínum og sendir í sína fæðingar-
sveit hvort sem þeir vildu eða ekki.
Nútímahreppaflutningur er ekki al-
veg eins. Þið þurfið ekki endilega
að vera fátæk til að vera flutt nauð-
ug í annað sveitarfélag.
Fróðárhreppur á Snæfellsnesi er
skuldlaus. Ólafsvík er þriðja skuld-
ugasta sveitarfélag landsins árið
1988. Fróðárhreppur skal Jagður
niður og sameinaður Ólafsvík. Ibú-
arnir fá engu ráðið frekar en fátækl-
ingarnir áður fyrr. Og hvað höfum
við svo til saka unnið? Jú, við erum
ekki nógu mörg. Værum við fleiri
en 50 mættum við greiða atkvæði
um hvort við vildum sameiningu eða
ekki. Færri en 50 erum við réttlaus
og félagsmálaráðuneytið ráðstafar
okkur að eigin geðþótta.
Lítum nú aðeins á þessi blessuð
lög.
5. grein:
Lágmarksíbúatala sveitarfélags
er 50 íbúar. Nú hefur íbúafjöldi
sveitarfélags verið lægri en 50 í þijú
ár samfleytt og skal ráðuneytið þá
eiga frumkvæði að því að sameina
það nágrannasveitarfélagi. Einnig
má þá skipta hinu fámenna sveitar-
félagi milli nágrannasveitarfélaga.
Undantekningu frá þessu ákvæði
skal gera ef sérstakar aðstæður
hindra þa'ð að mati ráðuneytisins að
íbúar hins fámenna sveitarfélags
geti myndað félagslega heild með
íbúum nágrannasveitarfélags.
Loks er ítrekað í 107. gr. Heimilt
er ráðuneytinu að fresta sameiningu
sveitarfélaga þar sem svo stendur á
sem segir í 2. mgr. 5. gr.
Hreppsnefnd Fróðárhrepps sótti
um þennan frest. Félagsmálaráðu-
neyti neitaði. Síðan óskaði ráðuneyt-
ið eftir umsögn hreppsnefndar um
sameiningarmálið sem því ber að
gera samkvæmt 107. gr. og 2. gr.
þar sem meðal annars segir:
Engu málefni sem varðar sér-
staklega hagsmuni sveitarfélags
skal ráðið til lykta án umsagnar
sveitarstjórnarinnar.
Fjórir hreppsnefndarmenn af
fimm skrifuðu undir eftirfarandi
umsögn:
Hreppsnefnd Fróðárhrepps getur
ekki sætt sig við að sameinast einu
skuldugasta sveitarfélagi landsins
„íslendingar hafa oft
verið fljótir til að álykta
gegn rangindum sem
aðrar þjóðir beita
þegna sína, en skyldum
við stundum gleyma að
líta okkur nær?“
og þannig látið stjórnvöld velta á
hvern einstakling hundruðum þús-
unda sem skuldabyrði við samein-
ingu. Teljum við þetta næga ástæðu
til að veita okkur frest samkvæmt
5. gr. og skorum á félagsmálaráð-
herra að endurskoða afstöðu sína,
annars verður um hreina nauðungar-
flutninga að ræða.
Svarið barst um hæj: Fróðár-
hreppur er sameinaður Ólafsvíkur-
kaupstað frá og með 1. apríl 1990.
Umsögnin einskis metin. Marklaust
plagg. Hvers vegna er það lögbund-
ið að leita eftir umsögn sveitarstjórn-
ar ef ekki er ætlast tii að hafa hana
til hliðsjónar?
íslendingar hafa oft verið fljótir
til að álykta gegn rangindum sem
aðrar þjóðir beita þegna sína, en
skyldum við stundum gleyma að líta
okkur nær?
Ég og fleiri áttum bágt með að
trúa því að við yrðum beitt slíkri
nauðung af hendi stjórnvalda en
þótti rétt að láta á það reyna.
Síðan virðist slíkt ofurkapp vera
lagt á að ljúka þessu fyrir sveitar-
stjórnarkosningarnar þó ekkert sé í
þessum lögum sem segir til um að
sameiningu skuli lokið fyrir einhvern
vissan tíma.
Nú eru ekki nema tæpir tveir
mánuðir liðnir síðan Húnbogi Þor-
steinsson, skrifstofustjóri, lét' fyrst
til sín taka og má af því ráða að
meira en lítið liggur á framkvæmd-
um þegar hafist er handa.
Ég vil skora á ykkur íbúa þessara
fámennu sveitarfélaga um land allt.
Látið ekki stjórnvöld beita ykkur
slíkum þvingunum þegjandi og
hljóðalaust. Þjóðin þarf að vita af
því óréttlæti sem viðgengst í þessu
landi. Hún má ekki sofna á verðinum
í þeirri trú að svona lagað viðgang-
ist ekki í okkar réttarfari. Þingmenn
þurfa líka að eiga kjark til að breyta
þeim lögum sem reynast ekki eins
og til var stofnað. Ég vil ekki trúa
því að þessi hafi verið megintilgang-
ur sveitarstjórnarlaganna í upphafi.
Lifið heil.
Höfundur býr í Tungu í
Fróðárhreppi á Snæfellsnesi.
Frá skírdagstónleikum félaga úr Sinfóníuliljómsveit íslands í Hafhar-
borg í fyrra.
Tónleikar í Hafiiarborg
Á skírdag, fímmtudaginn 12. tónleika í Hafharborg.
apríl kl. 16, munu nítján málm- Á efnisskrá eru verk eftir Gabri-
blásarar og slagverksmenn úr eli, Bliss, Tcherepnin, Hjálmar H.
Sinfóníuhljómsveit íslands halda Ragnarsson og fleiri.
BRÉFA- 1
BINDIN j
/rá Múlalundi...
... þar eru gögnin á góðum stað. 5
Múlalundur
SlMI: 62 84 50