Morgunblaðið - 12.04.1990, Side 52
mörgúNbíaðíð iÞROTTimmmm« í2. APRÍL 1990
ÍÞRÓTTIR UNGLINGA
Unglingameistaramót íslands á skíðum:
Hildur og Daníel
fjórfaldir meistarar
Ársæll, Kristján, Halldórog Hulda unnu þrenn gullverðlaun
HILDUR Þorsteinsdóttir frá
Akureyri og Daníel Jakobsson
frá ísafirði urðu sigursælust á
. _ Unglingameistaramóti íslands
á skíðum sem fram fór á Selja-
landsdal við ísafirði um síðustu
helgi. Hildur sigraði í svigi,
stórsvigi, alpatvíkeppni og
flokkasvigi og Daníel í 5 og 7
km skíðagöngu, tvíkeppni og
boðgöngu.
Alls tóku 200 unglingar þátt í
mótinu, sem er næstmesti
fjöldi keppenda á skíðamóti hér á
landi. Það er aðeins Andrésar-andar
leikarnir, sem fram fara á Akureyri
um aðra heljfi, sem getur státað
af fleiri keppendum. Mótið á Isafirði.
fór vel fram og var ágætis veður
fWkeppnisdagana þrjá.
Hildur Þorsteinsdóttir frá Akur-
eyri stal senunni í flokki 13-14 ára
í alpagreinum stúlkna. Keppni var
þó jöfn og var munurinn á fyrstu
þremur ekki mikill. Theodóara Mat-
hiesen, Reykjavík, og Margrét
Eiríksdóttir, Dalvík, urðu í öðru og
þriðja sæti í svigi og stórsvigi.
í flokki 15-16 ára voru það Harpa
Hauksdóttir frá Akureyri og Fan-
ney Pálsdóttir frá ísafirði sem
skiptu með sér gullverðlaununum.
Harpa sigraði í stórsviginu og Fan-
ney í sviginu, auk þess sem hún
vann alpatvíkeppnina.
Kristján Kristjánsson, Reykjavík,
vann svigið og stórsvigið í flokki
drengja 13-14 ára. Sveinn Brynj-
ólfsson frá Dalvík yarð ánnar í svig-
inu og þriðji í stórsvigi. .
Ársæll Sigurðsson frá Siglufirði
hafði nokkra yfirbuði í flokki pilta
15-16 ára. Hann var sekúndu á
undan Sigurði Ólafssyni frá Akur-
eyri í sviginu og hálfri sekúndu á
undan honum í stórsviginu.
Skíðaganga
í göngukeppninni voru það Dan-
íel Jakobsson frá ísafirði, Hulda
Magnúsdóttir, Siglufirði og Halldór
Óskarsson frá Ólafsfirði sem voru
í sviðsljósinu.
Daníel hafði mikla yfirbuði í
flokki 15-16 ára pilta. Hann vann
bæði 5 og 7 km göngurnar með
yfirburðum og stýrði boðgöngusveit
Isafjarðar til sigurs í boðgöngunni
eftir hörkukeppni við sveit Siglu-
íjarðar.
Hulda, sem er dóttir Magnúsar
Eiríkssonar _frá Siglufirði sem er
margfaldur íslandsmeistari í skíða-
göngu, hafði sömu yfirburði í
stúlknaflokknum. Hún hefur verið
nær ósigrandi í sínum aldursflokki
undanfarin ár.
Halldór var hálfri mínútu á und-
an keppinautum sinum bæði í 3,5
km göngunni og 5 km göngunni.
Hlynur Guðmundsson frá ísafirði
varð annar í fyrrþ göngunni og
Arnar Pálsson frá ísafirði í síðari
göngunni.
Ekki var keppt í stökki á þessu
móti vegna þess hve fáir keppendur
voru skráðir í þá grein.
Bæjarsjóður ísafjarðar hélt kepp-
endum hóf á sunnudagskvöld og
þar voru veit verðlaun fyrir fyrstu
tvo keppnisdagna.
Morgunblaðið/Úlfar
Daníel Jakobsson frá ísafirði (fyrir miðju) hafði mikla yfirburði í göngu í
flokki pilta 15-16 ára. Til vinstri við hann er Tryggvi Sigurðsson, Ólafsfirði og
til hægri er Gísli Valsson, Siglufirði.
Morgunblaðið/Úlfar
Harpa Hauksdóttir frá Akureyri (með bikarinn) sigraði í
stórsvigi stúlkna 15-16 ára. Fanney Pálsdóttir, ísafírði, (til
vinstri) varð önnur stórsviginu og sigraði í sviginu. Sísý
Malmquist frá Akureyri (til hægri) varð þriðja.
r w Morgunblaðið/Uifar Kristján Kristjánsson frá Hulda Magnúsdóttir frá
J - ^ f f fra Akureyn, fyrir "nðju vann fern gullverðlaun Reykjavík var sigursæll í alpa- Siglufirði hafði mikla yfír-
iflokki 13-14 ara stulkna. Hun er her asamt Theódoru Mathiesen fra greinum drengja 13-14 ára. burði í skíðagöngu stúlkna.
Reykajvik sem varð onnur í sviginu og Margreti Einksdottur, Dalvik, sem
varð þriðja.
Handknattleikur:
íslands-
meistarar
KRí
5. flokki
KR varð íslandsmeistari í 5.
flokki karla 1990. Liðið skipa
eftirtaldir: Efri röð frá vinstri:
Friðrik Halldórsson, liðsstjóri,
Guðjón Ingvarsson, Halldór
Örn Kristjánsson, Kristján
Geir Þorsteinsson, Ágúst Jó-
hannsson, Haraldur Þorvarð-
arson, Vilhjálmur Vilhjálms-
son, Eiríkur Gestsson, Grímur
Sigurðsson, Jóhann Kárason
og Lárus Lárusson, þjálfari.
Neðri röð frá vinstri: Guð-
mundur Friðriksson, Tómas
Sigmundsson, Gylfi Gylfason,
Andri Sigþórsson, Edilon
Hreinsson, Björn Jakobsson,
Sverri Viðarsson og Eiríkur
Lárusson.
Morgunblaðiö/Bjarni Eiríksson
Handbolti:
Litla VÍS-
keppnin
Litla VÍS-keppnin í handknattleik
hefur staðið yfir þessá viku með
þátttöku 59 liða. I dag fara fram
úrslit í Laugardalshöll:
Völlur B:
kl. 09:45,6.fl.ka.B...Leikur um 3.-4. sæti
kl. 10:10, ö.fl.kv.A.Leikurum 11.-12. sæti
kl. 10:35, ð.fl.kv.A..Leikur um 9.-10. sæti
kl. 11:00, ö.fl.kv.A...Leikur um 7.-8. sæti
kl. 11:25, ö.fl.kv.A..Leikur um 5.-6. sæti
kl. 11:50,5.fl.kv.A....Leikur um 3.-4. sæti
Völlur A:
kl. 09:45,6.fl.ka.A...Leikur um 5.-6. sæti
kl. 10:10,0.fl.ka.A..Leikurum 11.-12. sæti
kl. 10:35, 6.fl.ka.A .Leikurum 9.-10. sæti
kl. 11:00,6.fl.ka.A ..Leikurum 7.-8. sæti
kl. 11:25, 6.fl.ka.A..Leikurum 5.-6. sæti
kl. 11:50,5.fl.ka.A....Leikur um 3.-4. sæti
kl. 13:00, 7.fl.ka
kl. 13:40, 6.fl.ka.B
kl. 14:20, ö.fl.kv.A
kl. 15:00'6.fl.ka.A
, H1. ,15:35, Verðlaunaafhending a,llra flokka, ,