Morgunblaðið - 20.05.1990, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ DAGBOK SUNNUDAGUR 20. MAÍ 1990
T TT Apersunnudagur 20. maí, 5. sd. eftirpáska. Bæna-
1 U ivvJTdagur þjóðkirkjunnar. 140. dagurársins 1990.
Árdegisflóð í Reykjavík kl. 2.09 ogsíðdegisflóð kl. 14.54.
Sólarupprás í Reykjavík kl. 3.58 og sólarlag kl. 22.53. Sólin
er í hádegisstað í Rvík kl. 13.24 og tunglið er í suðri kl.
19.37. (Almanak Háskóla íslands.)_________
Því að hann hefir eigi fyrirlitið né virt að vettugi neyð
hins hrjáða. (Sálm 22, 25.)
ÁRNAÐ HEILLA
ára afinæli. Á morgun,
21. maí, er sjötug frú
Hrefha Sigurðardóttir,
Flúðarseli 88, hér í Rvík.
Hún verður að heiman.
ára afinæli. í dag, 20.
maí, er 85 ára Jónas
Pétursson, Hjarðatúni 2,
Ólafsvík, fyrrum bóndi á
Arnarstapa. Kona hans er
Lydia Kristófersdóttir frá
Skjaldartröð á Hellnum.
Hann er að heiman.
ára afinæli. Á morgun,
21. j_).m., er sextugur
Þórarinn Öskarsson, Eiðis-
torgi 15, Seltjarnarnesi.
Hann er deildarstjóri hjá
vamarliðinu. Kona hans er
frú Sjöfn Haraldsdóttir. Þau
taka á móti gestum í félags-
heimili Seltjarnarness á
morgun, afmælisdaginn kl.
17-20.
FRÉTTIR/MANNAMÓT
ÞENNAN dag árið 1944
hófst þjóðaratkvæðagreiðslan
um lýðveldisstofnuna á Þing-
völlum 17. júní. í dag er
Bænadagur þjóðkirkjunnar.
MANNSHVARF. í nýlegu
Lögbritingablaði er birt tilk.
um mannshvarf. Um er að
ræða franskan mann. Það er
óvenjulegt að sjá slíka tilk.
hér á landi. Tilk. er svohljóð-
andi: Samkvæmt beiðni dag-
settri 21. desember 1989 árit-
aðri af saksóknara franska
lýðveldisins, er þess farið á
leit við yfirrétt Lyon-borgar
(Tribunal de Grande Instance
de Lyon) að hann lýsi yfir
hvarfi Bernhard Journet
sem er fæddur er 9. júní 1946
í Amberieu en Bugey (Ain).
Síðast var B.J. búsettur í
Reykjavík á íslandi. Hefur
hann ekki birst á heimili sínu
né látið frá sér heyra síðan
12. maí 1969. Þessi tilk. er í
Lögbirtingi undirrituð af lög-
manni að nafni Marc Jeantet,
lögmanni á lögmannsstofunni
Docrot Jeanetet og Verriere,
skráðir lögmenn við dómstóla
Lyon-borgar, 90 Rue Presid-
ent Edouard Herriot 69002
Lyon.
NESKIRKJA: Næstkomandi
þriðjudag er „Mömmumorg-
un“. Opið hús fyrir mæður
og börn þeirra kl. 10-12.
STYRKATARFÉLAG lam-
aðra og fatlaðra. Kvenna-
deildin verður í dag með
pönnukökukaffi á boðstólum
í Reykjadal í Mosfellssveit,
kl. 15. Ágóðinn á að renna
til sundlaugarbyggingarinnar
þar.
EINSTEFNA. í dag verður
lögleiddur einstefnuakstur á
Hávallagötu hér í Vestur-
bænum, frá Hofsvallagötu að
Bræðraborgarstíg og í Aust-
urbænum á Vitastig frá
Hverfisgötu að Skúlagötu.
Lögreglustjórinn í Reykjavík
tilk. þetta í Lögbirtingi sem
kom út í síðustu viku.
SAMTÖK um sorg og sorg-
arviðbrögð. Opið hús nk.
þriðjudagskvöld kl. 20-22 í
LÁRÉTT: — 1 öflug, 5
kála, 8 aular, 9 hundur, 11
trítla, 14 ekki marga, 15
skræfa, 16 konu, 17 á húsi,
19 súrefni, 21 mjúka, 22 þátt-
takan, 25 mergð, 26 arinn,
27 handsami.
LÓÐRÉTT: — 2 spil, 3
rönd, 4 þrástaglast á, 5
skrattans, 6 púki, 7 mánuður,
9 þvætting, 10 tilfinningar,
12 tekinn höndum, 13 þvaðr-
aði, 18 slæmt, 20 greinir, 21
rómversk tala, 23 ending, 24
lést.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: - 1 nauts, 5 barti, 8 eklan, 9 damla, 11 unn-
um, 14 lin, 15 lítil, 16 illan, 17 inn, 19 tæla, 21 egni, 22
eldkúla, 25 leg, 26 átu, 27 Rín.
LÓÐRÉTT: — 2 ala, 3 tel, 4 skalli, 5 baunin, 6 ann, 7 tíu,
9 dálítil, 10 mátuleg, 12 nálægar, 13 montinn, 18 nekt, 20
al, 21 el, 23 dá, 24 úu.
Ólína Þorvaröardóttir
Vorhreingerningar
~ ÍborgarstjÓm! ®
v/per
_ ría
í O
--rr/. X
Uss. — Þetta er nú meiri sóðaskapurinn. Oj-bjakk upp um alla veggi.
ÞETTA GERÐIST
20. maí
safnaðarheimili Laugarnes-
kirkju. Á sama tíma er veittar
uppl. m.m. í síma 34516.
FÉLAG eldri borgara. í dag
kl. 14 er opið hús í Goðheim-
um við Sigtúni kl. 14. Frjáls
spilamennska og tafl. Dansað
kl. 20.
LYFJAFRÆÐINGAR. í tilk.
í Lögbirtingi frá heilbrigðis-
°g tryggingamálaráðuneyt-
inu segir að það hafi veitt
þessum lyfjafræðingum
starfsleyfi: Regínu Hall-
grímsdóttur, Páli Snæ-
björnssyni og Guðrúnu
Dóru Gísladóttur.
KVENFÉLAG Seljasóknar
heldur kökubasar og flóa-
markað í dag í kirkjumiðstöð-
inni að lokinni guðsþjónustu.
ÓVEITT prestaköll. Sam-
kvæmt tilk. frá biskupi ís-
lands í Lögbirtingi eru nú laus
til umsóknar 5 prestaköll á
l'indinu og setur biskup um-
sóknarfrest til 5. júní nk.
Þessi prestaköll eru:
Grindavíkurprestakali
(Grindavíkur- og Kirkjuvogs-
sóknir), Kársnesprestakall
(Kópavogi) sem tilheyrir
Reykjavíkurprófastsdæmi
Setbergsprestakall í Snæ-
fellsnes- og Dalaprófasts-
dæmi (Grundarfjörður), Stað-
arprestakall vestur í Súg-
andafirði og Árnesprestakall
á Ströndum. Það tilheyrir
Húnavatnsprófastsdæmi.
HANDAVINNUSÝNING.
Hin árlega handavinnusýning
úr félagsstarfinu á vegum
Reykjavíkurborgar verður á
eftirtöldum stöðum: Bólstað-
arhlíð 43, Gerðubergi,
Hvassaleiti 56-58 og Vestur-,
götu 7. Sýnd verður handa-
vinna frá 9 félagsmiðstöðvum
aldraðra hér i borginni. Sýn-
ingin stendur yfir í dag og á
morgun kl. 13.30-17 báða
dagana. Kaffisala verður á
sýningarstöðunum. Sýning-
arnar eru opnar öllum al-
menningi og er inngangur
ókeypis.
LAUSAGANGA hrossa. í
nýlegum Lögbirtingi tilkynnir
oddviti Kjósarhrepps að
hreppsnefnd Kjósarhrepps
hafi gert samþykkt þess efnis
að lausaganga hrossa í
hreppnum er bönnuð og er
hrossaeigendum og umráða-
mönnum hrossa skylt að hafa
hrossin í öruggri vörslu árið
um kring. Bannið hefur þegar
tekið gildi.
SKIPIN_______________
RE YK JA VÍKURHÖFN:
Á morgun er Brúarfoss
væntanlegur að utan og tog-
arinn Ásbjörn er væntanleg-
ur inn til löndunar og togarinn
Brettingur kemur _þann
sama dag til viðgerðar. I gær
kom hingað danskt skemmti-
ferðaskip Disco frá Alaborg.
Er þetta fyrsta skemmti-
ferðaskipið sem kemur á
sumrinu. Með því voru um
70 farþegar. Það hafði dag-
langa viðdvöl. Á morgun er
færeyska feijan Norröna
væntanleg. Þetta mun vera
sýningarferð. Mun skipið
leggjast að bryggju hér í
gömlu höfninni og vera í eina
tvo daga. Á morgun er einnig
væntanlegt Grænlandsfarið
Magnus Jensen. Það er á
leið til Grænlands og heldur
áfram um kvöldið. Nú um
helgina var skip væntanlegt
sem fer að bryggju Áburðar-
verksmiðjunnar. Það heitir
Ilka.
HAFNARFJARÐAR-
HÖFN: í dag er Hvítanes
væntanlegt af ströndinni. I
gær fóru tveir grænlenskir
togarar sem komu til að landa
rækjuafla, Regina C. og
Ludevig. Þá eru báðir norsku
togararnir sem komu til að
taka veiðarfæri fyrir djúp-
karfamiðin farnir út aftur.
ERLENDIS:
1799:NapoIeon Bonaparte
hættir við umsátrið um Tyrki
í Acre.
1882: ítalir ganga í bandalag
Austurríkismanna og Þjóð-
veija sem verður Þrívelda-
bandalagið.
1920: Carranza forseti í Mex-
íkó ráðinn af dögum.
1927: Charles A. Lindbergh
fer í fyrstu flugferð eins
manns án viðkomu yfir Atl-
antshaf. — Bretar viðurkenna
sjálfstæði Saudi-Arabíu með
Jedda-sáttmálanum.
1943: Bandaríkin og Bretland
staðfesta samning sem af-
nemur réttindi'þeirra í Kína.
1956: Fyrstu bandarísku
vetnissprengjunni varpað á
eyna Bikini.
1971: Níu sovézkir gyðingar
dæmdir í Leningrad.
1978: Tveir sovézkir starfs-
menn SÞ teknir fyrir njósnir.
HÉRLENDIS:
1840: Boðskapur um stofnun
Alþingis.
1870: Jón Ólasson dæmdur
fyrir meiðandi ummæli um
Dani í „íslendingabragi".
1893: Ásmundur Sveinsson
myndhöggvari fæddur.
1918: Siglufjörður fær kaup-
staðarréttindi.
1944: Þjóðaratkvæðagreiðsla
um sambandsslit og stjórnar-
skrá (til 23/5).
ORÐABÓKIIU
AÖ fara til ísraels
ísrael og ísraelsmenn eru
oft nefndir í fjölmiðlum.
Eitt sinn mátti heyra í frétt-
um Ríkisútvarpsins talað
um að fara til Israel og var
það tvítekið, en svo var tal-
að um /srae/sher í sömu
frétt. Virðist það vera að
aukast í ræðu og riti að
failbeygja ekki ýmis landa-
heiti, og er margt af því
bæði í ósamræmi við beyg-
ingarkerfi málsins og eins
forna venju.. ísrael er
hk.orð, sem endar á sam-
hljóða, eins og t.d. Portú-
gal, Japan og Ekvador, en
þau eiga öll að fá s í ef. í
samræmi við það fara menn
til ísraels, tii Portúgals, til
Japans, til Ekvadors, en
ekki til ísrael, Portúgal,
Japan o.s.frv. Hið sama
ætti einnig að gilda um
landaheitin Afganistan,
Alsír, E1 Salvador, Gíbralt-
ar, Hindústan, írak, íran,
Jemen, Líbanon, Nepal og
Pakistan. Menn halda því
til íraks, til írans, til Lfban-
ons, Pakistans o.s.frv., en
ekki til íran, Líbanon eða
Pakistan, svo að dæmi séu
tekin. Nokkuð fast virðist
vera orðið að láta sum ofan-
greindra landaheita og ýmis
önnur haldast óbeygð í
íslenzku, ekki þá sízt þau,
sem sjaldan eru í fréttum í
íslenzkum íjölmiðlum. Þrátt
fyrir það er æskilegt að
‘ halda hér í heiðri íslenzkar
beygingarreglur um þessi
landanöfn og eins mörg
önnur. — JAJ.