Morgunblaðið - 08.06.1990, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.06.1990, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 1990 Aðalfiindur Sambandsins: Skipulagsbreyt- ingarnar líklega samþykktar í dag ALLT benti til þess á 88. aðalfiindi Sambandsins sem hófst í húsakynn- um þess við Kirkjusand kl. 9 í gærmorgun að Sigurður Markússon framkvæmdastjóri Sjávarafúrðadeildar Sambandsins yrði kjörinn stjórnarformaður þess við formannskjör síðdegis í dag. Búist var við, að aðalfúndurinn samþykkti í dag með yfirgnæfandi meirihluta tillögur stjórnar um að Sambandinu verði breytt í sex sjálfstæð hiutafélög. Afgreiðslu á tillögu stjórnarinnar var frestað undir kvöld í gær þar til í dag þar sem hörð gagnrýni kom fram á orðalag og var ákveðið að vinna að breytingum á ályktuninni þar til fúndur hæfist á nýjan leik i dag. Sambandið tapaði 751 milljón í rekstri á sl. ári, eigið fé þess lækk- aði um 28% og var 1169 milljónir króna um sl. áramót en sjóðir og eigið fé samtals 1706 milljónir króna. Skuldir Sambandsins nema nú tæp- lega 10,8 milljörðum króna. Veltufj- árhlutfall ársins 1989 var 0,73 á móti 0,83 árið 1988. Þótt skipulagsbreytingar hafi sætt mikilli gagnrýni á fundinum kom fram að flestir töldu þær einu færu leiðina úr því sem komið væri. Búist hafði vérið við hörðum átökum um stjómarformennskuna á milli stuðn- ingsmanna Sigurðar og Geirs Magn- ússonar, bankastjóra Samvinnu- bankans, og var mikið um fundahöld stuðningsmannanna í gær. En með kvöldinu virtist sem samstaða væri að takast um kjör Sigurðar. Reiknað er með því að stjórnarformaður, sá sem kjörinn verður í dag, verði fyrstu misserin í fullu starfi við að hrinda skipulagsbreytingunum í fram- kvæmd. Sjá fréttir af aðalfúndi Sam- bandsins bls. 18. Morgunblaðið/RAX Morgunblaðið/Björn Blöndal Helgi ogSan Fransisco-ballettinn til landsins Helgi Tómasson listdansstjóri kom til landsins í gær- morgun ásamt hópi dansara frá San Fransisco-ballett- inum, sem setja munu upp sex sýningar í Borgarleik- húsinu, þá fyrstu á morgun. Helgi lét svo um mælt við komuna að honum og dönsurunum þætti ákaflega ánægjulegt að vera komin til íslands. Helgi sést hér við komuna til Keflavíkurflugvallar ásamt konu sinni Marlene (til hægri) og tveimur dansmeyjum. Sjá dagskrá Listahátiðar í miðopnu. Alþjóðastofnun um umhverfísmál og öryggi matvælaframleiðslu: Stefiit að undirbútiings- ráðstefitu hér á landi Á ÞINGI Alþjóðasambands búvöruframleiðenda, sem nú stendur yfir í Þrándheimi í Noregi, hefúr verið samþykkt tillaga norrænna bænda- samtaka um að að haldin verði ráðstefúa og síðan mynduð sérstök alþjóðastofnun til að fylgjast með umhverfismálum og öryggi matvæla- frainleiðslu í heiminum. Að sögn Jónasar Jónssonar, búnaðarmála- stjóra, hefiir Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, lýst áhuga á að ráðstefúan verði haldin hér á landi, og hefúr nýkjörinn formaður Alþjóðasambands búvöruframleiðenda óskað eftir að af því geti orðið næsta haust, en ætlunin er að bændasamtök og ríkisstjórnir standi að henni. Magnús L. Sveinsson, forseti borgarsfjórnar, færði borgarfúlltrúum þakkir fyrir samstarfið á kjörtímabilinu á borgarsljórnarfúndi í gær. Síðasti fundur ft’áfar- andi borgarstjómar SÍÐASTI fúndur þeirrar borgarstjórnar, sem kjörin var 1986, var í gær. Fyrsti fúndur nýkjörinnar borgarsfjórnar verður haldinn fimmtu- daginn 21. júní. Umboð fráfarandi borgarstjórnar og nefnda hennar rennur lögum samkvæmt út þann 10. júní næstkomandi en nýjar nefnd- ir verða ekki kjörnar fyrr en 21. júní. Fundur borgarstjórnar í gær var á kjörtímabilinu og Siguijón Péturs- stuttur. í lok hans þakkaði Magnús son, Alþýðubandalagi, færði forseta L. Sveinsson, forseti borgarstjómar, þakkir borgarfulltrúa fyrir réttláta borgarfulltrúum fyrir gott samstarf og röggsama fundarstjóm. Að sögn Jónasar, sem situr þing Alþjóðasambands búvömframleið- enda, hafa GATT-viðræðurnar og hugmyndir Bandaríkjamanna um að gefa alla verslun með landbúnaðar- vörur frjálsa og afnema allar niður- greiðslur gengið eins og rauður þráð- ur í gegnum allar umræður á þinginu í Þrándheimi. „Meirihluti landanna hér hefur lýst áhyggjum sínum yfir því ef GATT-viðræðurnar leiða til algjörs verslunarfrelsis með landbúnaðar- vömr og afnáms alls stuðnings við landbúnað og allrar framleiðslu- stjómunar. Menn em hræddir um að matvælaöryggi í heiminum versni, verð á landbúnaðarvörum muni stór- hækka, erfiðara verði að stjóma umhverfismálum og landbúnaði, og einnig verði erfitt að sinna byggða- og landbúnaðarmálum, og þar með félagslegu öryggi. Varafram- kvæmdastjóri GATT lýsti því yfír hér á þinginu að ekki hefði verið tekið tillit til umhverfismála í GATT-við- ræðunum, og því em menn hræddir um að þau mál verði úti í umræðun- um. Ástæðan fyrir því að Norður- löndin flytja tillöguna um alþjóðaráð- stefnu um matvælaöryggi og um- hverfismál er því að þau vantreysta GATT um að þar verði tekið tillit til umhverfísmála og matvælaöryggis- mála, og jafnframt vantreysta þau OECD, sem byggir á hugmyndum um að afnema alla tolla og verslunar- hindranir, og að þetta muni leiða til lægra verðlags," sagði Jónas. Áreksturinn á Patreksflóa: Flak trillunnar myndað RANNSÓKN á árekstri Eleseus- ar frá Tálknafirði og trillunnar Sæfúgls frá Patreksfirði er ólok- ið. Sjópróf fóru fram í fyrrakvöld og kom þar fram að stefni Eles- eusar kom á hlið trillunnar, sem brotnaði og sökk fljótlega. Flakið liggur á 30 metra dýpi og stend- Fyrrum iðnaðarráðherra Dana: Efasemdir í Brussel um gildi viðræðna við EFTA ur til að mynda það til að fá sam- anburð við framburð áhafnar Eleseusar í sjóprófúnum. Flak Sæfugls liggur á hafsbotni á stað 65°40’60” n.br. og 24ol7’86” v.l. Yfirvöld biðja sæfar- endur um að halda sig í 500 metra fjarlægð frá staðnum. Að sögn Guðmundar Björnsson- ar, sýslufulltrúa á Patreksfirði, er vonast til að með myndatöku megi fá samanburð við frásögn manna á Eleseusi. Ef mikið misræmi sé á milli frásagnarinnar og ummerkja á trillunni, þurfí væntanlega að rannsaka málið nánar. FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópubandalagsins (EB) og aðildarríki bandalagsins vona, að aðildarlönd Fríverslunarbandalags Evrópu (EFTA) komist að þeirri niðurstöðu, að skynsamlegast sé fyrir þau að sækja um aðild að EB. Þetta sagði Nils Wilhjelm, fyrrum iðnaðar- ráðherra Dana, á ársfúndi Iðnlánasjóðs í gær. Hann taldi EB-ríkin óttast að viðræðurnar við EFTA um evrópskt efnahagssvæði kynnu að teQa fyrir framkvæmd stefnunnar um einn evrópskan heimamark- að innan EB eftir 1992. Nils Wilhjelm, sem nú er for- stjóri Industriens Realkreditfond í Danmörku, ræddi á ársfundinum um þróunina innan Evrópubanda- lagsins og samskiptin við EFTA- ríkin. Hann sagði erfitt að átta sig í raun á stefnu EFTA-ríkjanna. Austurríkismenn hefðu hlaupist undan merkjum með því að sækja um aðild að EB og Svisslendingar myndu aldrei fallast á þá skerðingu á fullveldi sínu sem fælist f því að framselja vald til sameiginlegra stofnana og dómstóls eins og væri óhjákvæmilegt, ef samningar ættu að takast um evrópska efnahags- svæðið. Hann spurði: Hvers vegna skyldu EFTA-ríkin vera að axla sömu kvaðir og þau telja fylgja aðild að EB án þess að njóta allra réttinda sem aðildinni fylgja? Wilhjelm minnti á, að Jacques Delors, forseti framkvæmdastjórn- ar EB, hefði komið EFTA-ríkjunum inn á þá braut sem þau fetuðu nú með ræðu sinni í janúar 1989. Litl- ar líkur væru á því að fínna mætti lausn, þar sem unnt væri að sætta sjónarmið EFTA og EB um sameig- inlegt efnahagssvæði. Hugmyndir Delors yrðu til þess að EFTA-ríkin áttuðu sig á erfiðleikunum við þetta. Mætti líkja þróuninni við það þegar rætt var um að stofna til norræns efnahagssamstarfs, NORDEK, í upphafí áttunda áratugarins. Það hefði aldrei verið framkvæmanlegt og þegar Danir áttuðu sig á því hefðu þeir verið fljótir að sækja um aðild að EB. í máli Wilhjelms kom fram, að ýmis ljón væru á veginum fyrir því að Austurríkismenn gætu gerst aðilar að EB. Taldi hann, að allt öðru máli gegndi um Norðmenn; hefðu þeir áhuga á aðild gætu þeir verið komnir inn í bandalagið fyrir árslok 1993. Um ísland sagði hann, að innan bandalagsins áttuðu menn sig vel á sérstöðunni vegna fískveið- anna og um þær yrði að semja sér- staklega. Hann sagði að Danir teldu að fiskveiðistefna EB væri úr sér gengin og vildu að henni yrði breytt og væri unnið að því á pólitískum vettvangi. Lánasýsla ríkisins: Signrgeir Jónsson forstjóri SIGURGEIR Jónsson hefur verið skipaður forstjóri Lána- sýslu ríkisins, sem sett var á stofti með lögum frá Alþingi í vor. Staðan var auglýst laus til umsóknar í maí og sótti Sigurður Gústafsson, hagfræðingur, um stöðuna auk Sigurgeirs. Lætur Sigurgeir jafnframt af störfum ráðuneytisstjóra í fjármálaráðu- neytinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.