Morgunblaðið - 08.06.1990, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 08.06.1990, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 1990 17 Lúðrasveit Haftiarflarðar 40 ára “ Tnlene eftir Reyni Guðnason Á þessu ári eru 100 ár liðin frá því að fyrst var stofnuð lúðrasveit í Hafnarfirði en hún starfaði að- eins í nokkur ár. Þann 31. janúar 1950 var gerð fjórða tilraunin til að halda uppi lúðrasveit í bænum og hefur hún starfað óslitið síðan. Fyrsti formaður var Friðþjófur Sigurðsson sem enn er starfandi í sveitinni og fyrsti stjórnandi var Albert Klahn. Á þessum tíma hefur sveitin átt sín góðu ár þegar 40-50 hljóðfæra- leikarar hafa tekið þátt í starfinu og einnig hafá verið nokkur árin sem líf hennar hefur hangið á blá- þræði en með þrautseigju félag- anna og góðum stuðningi bæjar- stjórnar Hafnarfjarðar á hveijum tíma hefur tekist að halda starfinu áfram. Afmælisárið er eitt af erf- iðu árunum en menn horfa með bjartsýni til framtíðarinnar eftir að bæjarstjórnin leysti húsnæðis- vanda sveitarinnar á síðasta ári og allar líkur benda til að innan fárra ára bætist henni liðsstyrkur úr Lúðrasveit Tónlistarskóla Hafn- arfjarðar. Nokkrir stjórnendur hafa leitt lúðrasveitina yfír þetta tímabil en lengst var Hans Ploder stjórnandi eða 25 ár samfellt. Hann lét af því starfi í fyrra og við tók Stefán Ómar Jakobsson tónlistarkennari sem einnig er formaður sveitarinn- ar nú. Af einhveijum ástæðum hafa fjölmiðlar og almenningur ekki sýnt lúðrasveitatónlist mikinn áhuga þrátt fyrir að mikill íjöldi barna, unglinga og fullorðinna, líklega hátt á annað þúsund manns, iðki þessa tónlist í skóla- hljómsveitum og lúðrasveitum um allt land. Þegar íslenskar lúðra- sveitir hafa ferðast til útlanda finna menn glöggt þann mismun á viðhorfi og undirtektum sem þær mæta þar og þeir fá að heyra að íslensk lúðrasveitatónlist er fylli- Fróöleikur og skemmtun fyrir háa sem lága! Fœst f nœstu sportvöruverslun. Lúðrasveit HafnarQarðar árið 1957. lega samanburðarhæf við það sem síðdegistónleika í Hafnarborg kl. gert er erlendis. 15 og mun Hans Ploder stjórna Laugardaginn 9. júní nk. heldur tveimur verkum á tónleikunum Lúðrasveit Hafnarfjarðar stutta sem gestur. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir og er að- gangur ókeypis. Höfundur er ritari Lúðrasveitar Hafnaríjarðar. MERKI UM GÓÐAN ÚTBÚNAÐ NÍÐSTERK ÞUNGAVIGTARLÍNA > * 1990 AMERISKIR BILAR Nú er síðasta tækifærið til að eignast amerískan bíl samkvæmt eldri innflutnings-reglugerðinni BRONCO OG JEEP Ath. Upplýsingar eru ekki veittar í síma. Vinsamlegast sendið nafn og símanúmer og biðjið um upplýsinga í FAX no: 91-84730 eða bara mætið á staðinn þegar keyptum bílum í U.S.A. tillanús- ins fyrir 1. júlí Opnunartími: Föstudag...............................13-22 Laugardag..............................10-19 Sunnudag, sjómannadag..................10-19 I LAUG ARDALSHOLL TIL 10. JUNI Gpípandi málning á gpipandi verði Síöumúla 15, sími 84533

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.