Morgunblaðið - 08.06.1990, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 1990
Óvenju dauft í
byggingaiðnaði
„MIÐAÐ við árstíma er mun daufara yfir öllu en er að jafiiaði,“ sagði
Guðmundur Ómar Guðmundsson formaður Trésmiðafélags Akur-
eyrar. Enn eru nokkrir trésmiðir á atvinnuleysisskrá og sagði Guð-
-j. mundur Ómar að yfirleitt hreinsaðist út af atvinnuleysisskránni í byij-
un maí, en svo hefði ekki verið nú.
Útlit er fyrir að næg atvinna verði
hjá trésmiðum í sumar, að sögn
Guðmundar Ómars, en þegar fram
á haustið kemur sagði hann að
ástandið yrði verulega alvarlegt.
Fátt benti til að ástæða væri til bjart-
sýni varðandi haustið og veturinn.
Fá stór verkefni eru framundan
í byggingariðnaði á Akureyri, helstu
verkin eru byggingar verkamanna-
bústaða, þá væri fyrirhugað að
byggja við verslun Hagkaups í Norð-
urgötu og í haust yrði steyptur upp
þjónustukjarni við íbúðir aldraðra
við Víðilund. Bifreiðaskoðun íslands
er einnig að byggja skoðunarstöð
við Frostagötu og í byggingu er
verksmiðjuhús hjá K. Jónsson. „Það
er óvenjulítið um útboð og fá verk-
efni sem eitthvað kveður að í gangi
núna. Miðað við árstíma er mjög
dauft yfir og sem dæmi um það þá
eru nokkrir trésmiðir enn á atvinnu-
leysisskrá,“ sagði Guðmundur Ómar.
Nú eru í byggingu alls 120 íbúðir
í fjölbýlishúsum, 41 í raðhúsum og
36 einbýlishús. Þá verður væntan-
lega hafinn bygging á 88 íbúðum í
fjölbýlishúsum í fyrsta áfanga Gilja-
hverfis í sumar og um 60 íbúðum í
raðhúsum.
Framkvæmdaáætlun gatnagerðar:
Stærstu verkin við Ráð-
hústorg og Giljahverfi
GENGIÐ hefur verið frá fram-
kvæmdaáætlun vegna gatnagerð-
ar í sumar, en samtals verður 90
_ .milljónum króna varið til ýmissa
verka, malbikunar gatna og gang-
stétta, nýbyggingar gatna og end-
urbyggingar auk þess sem hefja
á framkvæmdir við nýtt fráveitu-
kerfi.
Borgar-, og Brattasíða. Gangstéttir
sem malbikaðar verða í sumar eru
einkum í Síðuhverfi, en einnig verða
lagðar hellur í Aðalstræti.
Undir liðnum ýmis verk eru m.a.
gerð gangstíga fyrir 2,8 milljónir
króna og reiðleið hjá Hömrum fyrir
2,2 milljónir.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
75 ára afmæli Þórs
íþróttafélagið Þór fagnaði 75 ára afmæli sínu á miðvikudag og í til-
efni dagsins var gestum og gangandi boðið að bragða á ijómatertu
við félagsheimilið Hamar. Þá voru einnig grillaðar pylsur sem yngstu
Þórsararnir gæddu sér óspart á. Farið var í skrúðgöngu frá félagsheim-
ilinu og að Akureyrarvelli þar sem fram fór leikur á milli Þórs og KR
í fyrstu deild í knattspyrnu, en fallhlífastökkvari kom úr háloftunum
með boltann niður á leikvanginn.
Krabbameinsfélagið:
Heilsuhlaup
í fyrsta sinn
á morgun
Hlaupið, gengið
eða hjólað 5 km
vegalengd
Krabbameinsfélag Akureyrar
og nágrennis tekur í fyrsta sinn
þátt í heilsuhlaupinu sem haldið
hefur verið í Reykjavík síðustu
tvö ár, en hlaupið hefst á morg-
un, laugardag kl. 12.00.
Hlaupið hefst í göngugötunni,
Hafnarstræti, og er vegalengdin
sem hlaupin er 5 kílómetrar. Þátt-
takendur geta hvort heldur sem
þeir vilja, hlaupið, gengið eða hjól-
að vegalengdina.
Þeir sem hug hafa á að taka
þátt í heilsuhlaupinu á Akureyri
geta skráð sig á skrifstofu KAON
í Hafnarstræti 95 frá kl. 10-17 í
dag og,á morgun frá 10.30-11.30
í göngugötunni. Ekkert þátttöku-
gjald er, en þátttakendur fá afhent
barmmerki við skráningu og einn-
ig verða seldir bolir með merki
hlaupsins. Þátttökunúmer verða
afhent við rásmark og að loknu
hlaupi verða dregin út tiu númer
og hljóta þau sérstaka viðurkenn-
ingu. Lúðrasveit Akureyrar undir
stjórn Atla Guðlaugssonar leikur
létt lög áður en heilsuhlaupið
hefst, frá kl. 11-12.
Til endurbyggingar gatna verður
varið 15,8 milljónum króna. Stærst-
ur hluti þess, eða 12 milljónir, fer
til framkvæmda á Ráðhústorgi og
2,1 milljón í gerð göngustígs frá
Skipagötu að Hafnarstræti sunnan
Alþýðuhúss. Þá verða gerð bílastæði
við Glerárkirkju.
Gatnagerð í Giljahverfi er stærsti
liðurinn í nýbyggingu gatna, en sam-
tals verður til hennar varið 20 millj-
ónum af rúmlega 25,2 milljóna fjár-
/r \veitingu í allt. Tæplega 2,8 milljónir
fara í gerð þyrpingar við Vestursíðu
og þá verður einnig gerð gata að
Kjarnalundi.
Samtals verður 9,1 milljón króna
varið til malbikunar gatna í sumar,
: malbikuð verður þyrping í Vestur-
síðu, gatan austan VMA og fjórar
götur í Síðuhverfi, Bakka-, Boga-,
Þór o g Kredit-
kort semja
Knattspyrnudeild Þórs á Akur-
eyri og Kreditkort hf. hafa end-
urnýjað auglýsingasamning sinn
Jr frá fyrra ári. Knattspyrnudeildin
mun stuðla að útbreiðslu Euro-
korta innan sem utan félagsins
eins og áður.
„Þetta er mjög ánægjulegur
samningur sem við höfum nú end-
urnýjað við Kreditkort hf. og sér-
staklega í ljósi góðra samskipta á
síðasta ári,“ sagði Sigurður Arnórs-
son formaður knattspyrnudeildar
Þórs.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri:
Starfsemin verulega skert o g margar
deildir sinna einungis bráðaþjónustu
STARFSEMI á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri verður verulega
skert í sumar, vegna þess að framboð á starfsfólki yfir sumartímann
er hvergi nærri nóg og eins þó að svo væri leyfa íjárveilingar sjúkra-
hússins ekki fulla starfsemi allra deilda allt árið. Á tímabilinu fi*á
1. júní til 30. september verður starfsemi ýmissa deilda í lágmarki,
nokkrar deildir verða sameinaðar og sumar munu einungis sinna
bráðaþjónustu. Þá verður einni deild lokað alveg yfir sumarmánuð-
ina, en öðrum verður lokað tímabundið.
Halldór Jónsson framkvæmda- Á tímabilinu 8. júlí til 18. ágúst
stjóri FSA sagði að rík áhersla verður göngudeild og speglanadeild
væri lögð á að beiðnir um rannsókn-
ir og starfsemi utan dagvinnutíma
verði svo fáar sem frekast er kostur
eða í algjöru lágmarki á rannsókn-
ar- og röntgendeild, skurð- og svæf-
ingadeild. Afleysingar verða í lág-
marki á rannsóknardeild og hið
sama má segja um röntgendeildina.
Starfsemi bæði skurðdeildar og
svæfingadeildar verður verulega
skert í sumar, en nýskipuð skurð-
stofunefnd mun úthluta aðgerðar-
dögum miðað við aðstæður hveiju
sinni.
Vegna skorts á starfsfólki verður
starfsemi blóðbanka FSA skert í
sumar og því nauðsynlegt að kaupa
meira blóð annars staðar frá, en
verið hefur, blóðbankinn mun þó
leitast við að þjóna deildum sjúkra-
hússins eins og þörf krefur.
lokað og annarri af tveimur lyf-
lækningadeildum verður lokað frá
15. júlí til 28. ágúst. B-deild, sem
er langlegudeiid, verður lokuð í allt
sumar. Starfsemi handlækninga-
deildar og bæklunardeildar verður
sameinuð og mun starfsemin taka
mið af afkastagetu skurð- og svæf-
ingadeilda, en að mestu verður ein-
ungis um að ræða bráðaþjónustu.
Þá verður einnig einungis um að
ræða bráðþjónustu á barnadeild og
gjörgæslu barnadeildar yegna fyrir-
bura verður að loka. Á kvensjúk-
dómadeild verður veitt bráðaþjón-
usta og á fæðingardeild verður af
fremsta megni reynt að veita þá
þjónustu sem deildinni er ætlað, en
afar erfiðlega hefur gengið að
manna deildina fyrir þá starfsemi
sem fyrirsjáanleg er í sumar.
„Við tóggjum sérstaka áherslu á
mikilvægi þess að aðalstarfsemi
allra deilda sjúkrahússins fari fram
á dagvinnutíma, þá er mönnun
deilda best og líkur minnka á því
að þörf verði fyrir vinnu utan dag-
vinnutímans," sagði Halldór.
Vantar þig
umbodsmann?
Get tekið að mér sölu, þjónustu, markaðssetningu og
kynningar á Norðurlandi.
Tilboð/upplýsingar sendist á auglýsingadeild A/lbl.,
merktar: „U - 96“.
Morgunblaðið/Rúnar þór
Á siglinganámskeiði
Fyrsta siglinganámskeið siglingaklúbbsins Nökkva
á þessu sumri hófst í vikunni. Hvert námskeið stend-
ur í níu daga og kennd eru undirstöðuatriði sigl-
inga, en námið er bæði bóklegt og verklegt. Mark-
miðið er að kenna krökkunum að umgangast hafið
af virðingu. Mikil aðsókn er að námskeiðunum, en
félagið á tíu optimist-báta þannjg að fjöldi þátttak-
enda miðast nokkuð við það. Á myndinni eru frá
vinsti Snorri, Helgi, Einar, Pálmi og Helga Ingvars-
dóttir leiðbeinandi á námskeiðunum.