Morgunblaðið - 08.06.1990, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 1990
19
Frá háborði Stórstúkuþings. Sr. Björn Jónsson standandi.
*
Stórstúka Islands:
Unglingaþing og stórstúkuþing
hefur einnig þýtt úr ensku barna-
litabók, „Fávís og fjölvís“. í bókinni
er á nýstárlegan hátt mælt með
bindindi. Unglingareglan hefurgef-
ið bókina út og skólayfirvöld munu
dreifa henni til yngstu nemenda
grunnskólanna.
Kristinn Vilhjálmsson tilkynnti
að hann gæfi ekki kost á sér til
endurkjörs í embætti stórgæslu-
manns eftir að hafa gengt því emb-
ætti í áratug. Fundarmenn risu þá
á fætur og hylltu hann með húrra-
hrópum, lófaklappi og þökkum fyrir
fórnfúst starf i þágu bindindishreyf-
ingarinnar í yfir hálfa öld. Kjör-
nefnd hefur mælt með Mjöll Matt-
híasdóttur í embætti stórgæslu-
manns.
Stórstúkuþingið hófst á fimmtu-
daginn með guðsþjónustu í Hallgr-
ímskirkju. Sr. Ragnar Fjalar Lárus-
son predikaðu og Sr. Björn Jónsson
stórkanslar þjónaði fyrir altari. Eft-
ir hefðbundin þingstörf var kvöld-
verður í Viðeyjarstofu í boði borgar-
stjórnar Reykjavíkur. í dag föstu-
dag verður Byggðasafn Akranes
heimsótt og snæddur hádegisverður
í boði bæjarstjórnar Akraness. Eftir
hádegi verður þingstörfum haldið
áfram í Reykjavík.
UNGLINGAÞING Stórstúku íslands, I.O.G.T, sem er haldið á tveggja
ára lresti, fór fram í Templarahöllinni í Reykjavík miðvikudaginn
6. júní. Þingið sátu gæslumenn og fúlltrúar víðsvegar af landinu.
Stórstúkuþing hófst fimmtudaginn 7. júní og stendur yfir fram á
laugardag.
I skýrslu Kristins Vilhjálmssonar
stórgæslumanns, sem flutt var á
unglingaþinginu, kom fram að rætt
hefur verið við forsvarsmenn
Æskulýðsráðs Reykjavíkur um að
barnastúkurnar annist félagsmála-
fræðslu í skólum. Forsvarsmenn
Æskulýðsráðs munu vera hlynntir
þessari tilhögun án þess að endan-
leg ákvörðun hafi verið tekin af
þeirra hálfu.
Hilmar Jónsson, stórtemplari,
upplýsti að Elísabet Jensdóttir hefði
verið ráðin til erindreksturs. Hún
he|ur þegar komið á fót tveimur
barnastúkum og stýrir þeim. Hún
Frá Stórstúkuþingi
Árbæjarsafn:
Þrjár nýjar sýningar
í Arbæjarsafiii hefúr verið komið fyrir þremur nýjum sýningum.
í Þingholtsstræti geta menn verslað í krambúð frá aldamótunum,
í Miðhúsum heimsótt bókagerðarmann frá því um aldamót og í
Prófessorsbústaðinum virt fyrir sér mannlíf á stríðsárunum á sýn-
ingunni „Og svo kom blessað st
I samtali við Morgunblaðið í
vikunni sagði Margret Hallgríms-
dóttir ,forstöðukona safnsins, að
stefnt yrði að því að hafa lifandi
sýningar á safninu í framtíðinni.
„I Miðhúsum verða t.d. prentarar
að störfum um helgar,“ sagði
Margrét. „Og í krambúðinni verð-
ur hægt að kaupa kaffi, te og
kandsís virka daga og um helg-
ar“. Hún sagði að prentiðnaðar-
sýningunni hefði verið komið upp
í tilefni af 550 ára afmæli prent-
listar á íslandi.
Auk þess sem fólki gefst kostur
á að virða fyrir sér verkstæði og
heimili prentara hefur verið komið
lið“.
upp yfírlitssýningu prentlistar á
íslandi í vélarsal. Þar eru m.a. til
sýnis gamlar prentvélar.
Stærsta sýningin er í aðalsýn-
ingarhúsinu, Prófessorsbústaðin-
um, og nefnist „Og svo kom bless-
að stríðið". Á sýningunni eru m.a.
braggabústaður og kaffihús frá
eftirstírðsárunum. Auk sýning-
anna þriggja má geta þess að nú
vappa íslenskar hænur um á Ár-
bæjarsafni en þar hafa dýr ekki
fyrr átt heima.
Arbæjarsafn verður opið milli
klukkan 10 og 18 alla daga nema
mánudaga í sumar.
É LÍNUR
FRÁ ST. IVES
.• FTTT*
rifcj*.:
■x'MM.i'P'
Y
Metsa5erla
m /
■*r
SERLA GERIR GOTT ÚRfÖLLU
I
Hvort sem þú þarft að þerra tár afj litlum vanga,
þurrka vökva sem hellist niður eða strjúka vætu af
matvælum gerir SERLA eldhúsrúllan gott úr öllu.
Þú gætir hugsanlega fundið einhverja eldhús-
rúllu sem kostar færri krónur en það er ekki þar með
sagt að hún vinni jafn vel.
Gæði pappírsins gera það að verkum að hann
dregur í sig meiri raka en margur annar og nýtist þess
vegna betur, þ.e.a.s. oft dugar eitt blað í stað tveggja
eða þriggja. Þess vegna mæla öll rök með SERLA
eldhúsrúllum.
SERLA Himmelblá, hvílar. 2 eða 4 rúllur í pakka.
SERIA Bella, hvítar með munslri. 2 eða 4 rúllur í pakka.