Morgunblaðið - 08.06.1990, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 08.06.1990, Blaðsíða 29
2 fh MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 1990 Konráð Jensson ásamt konu sinni Þorbjörgu. ■ ALDARMINNING hjónanna Þorbjargar og Konráðs Jensson- ar, veitingamanns á Isafirði, verð- ur haldin af niðjum þeirra, sem eru á annað hundrað, á Flúðum dagana 8.-10. júní. ■ SKÓGARDAGUR Skógrækt- arfélags Hafnarfjarðar verður á morgun, laugardaginn 9. júní. Safnast verður saman í Gróðrar- stöðinni við Hvaleyrarvatn kl. 13 og plantað úr aspartijám. Síðan verður, meðal annars, gengið um nokkrar landnemaspildur undir leið- sögn landnema og fræðst af þeim um reynslu þeirra í ræktuninni. Skógræktarfólk er beðið að mæta vel og stundvíslega. (Fréttatilkynning) H / NORRÆNA húsinu á morg- un, laugardag kl. 16, verður sýnd kvikmynd sem ijallar um atburði sem gerðust í Valdres í Noregi í apríl 1940. Myndin er sýnd af myndbandi. Frásögnin er byggð á viðtölum við óbreytta borgara í Bagn og vestlendinga, sem tóku þátt í bardögum við Þjóðverja. Bagn er lítið samfélag í Suður- Aurdal í Oppland. Þar er nú mik- ið orkuver sem er byggt 200 metra í fjall. Ttutancv Heílsuvörur nútímafólks ■ NÝR skemmtistaður opnar í dag í hjarta Reykjavíkurborgar, Lækjargötu 2. Skemmtistaðurinn Tunglið var rekinn þar til skamms tíma en nýir aðilar tóku við rekstri hússins þann 1. júní sl. Húsið hefur verið lokað sl. hálfan mánuð vegna breytinga og opnar nú undir nafn- inu Laguna og Café Krókódíll. Jón Magnússon, nemi við Parsons listaskólann í París hefur haft yfir- umsjón með breytingunum. ■ KATRÍNU Sveinsdóttur hefur verið veitt leyfisbréf nr. 1, útgefið af Heilbrigðis- og trygginga- málaráðuneytinu, til að starfa sem hnykkir/kírópraktor hér á landi. Katrín lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1983. Nám í kírópraktík stundaði hún við Anglo European College of Chiropractic, Bournemouth, Englandi frá 1984 til 1988. Að loknu námi í Bournemouth stundaði Katrín 12 tnánaða verknám á kíró- praktorstofu í norður Englandi en kom heim til Islands í ágúst sl. Hún hefur nú opnað sína eigin kírópraktorstofu að Borgartúni 18, Reykjavík. Starfssvið kírópraktora felst aðallega í greiningu og með- ferð á kvillum í stoðkerfi líkamans, svo sem háls-, herða-, höfuð- og mjóbaksverkja. Tveir aðrir kíró- praktorar eru starfandi á landinu, þeir Tryggvi Jónasson og Gunnar Arnarson. Tryggvi hefur starfað hér á landi síðan 1978 samkvæmt leyfi Heilbrigðis- og trygginga- málaráðueytisins um takmarkað lækningaleyfi. Gunnar mun innan skamrns ljúka 12 mánaða verk- námi, sem er skiiyrði leyfisveitingar samkvæmt hinni nýju reglugerð. Tryggvi og Gunnar stunduðu báðir sitt nám við Anglo European Col- lege of Chiropractic. (Fréttatilkynning) Katrín Sveinsdóttir á kíróprakt- orastofú sinni, Borgartúni 18, Reykjavík. ÞAD GENGUR MED Ginge er val hinna vandlátu - gæðanna vegna. Athugaðu að fyrirtækið er flutt úr Kópavogi í Nútíðina, Faxafeni 14, Skeifunni. Ginge P 420 □ Vönduö, létt og lipur □ kraftmikill Briggs & Stratton Quantum mótor □ 42 sm hnífur □ þægileg hæöarstilling í einu handfangi □ grassafnari sem lætur ekki sitt eftir liggja Ginge Park 46 BL drifvél □ Fagmennirnir kalla hana „Rolls Roys“ "V sláttuvélanna □ valsasláttuvél; 46 sm vals, klippir grasflötina listavel □ Briggs & Stratton mótor Góð varahluta- og viðhaldsþjónusta. Sparaðu þér sporin og komdu beint til okkar. Iláiluvéla » markaðurinn G.A. Petursson hf. Nútíðinni Faxafeni 14, sími 68 55 80 SÍMINN ER 689400 BYGGT & BÚIÐ KRINGLUNNI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.