Morgunblaðið - 08.06.1990, Síða 23
23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 1990
ingabaráttan hefur ekki þótt ein-
kennast af hörku en síðustu dagana
hefur forystumaður eins þriggja
flokka kristilega sambandsins verið
sakaður um að hafa gegnt hlutverki
uppljóstrara hjá öryggislögreglu
kommúnista.
Kommúnistar, er nú hylla íjöl-
flokkakerfið, hafa verið með frá 9%
upp í 13% fylgi í skoðanakönnunum.
Um síðustu helgi sprakk sprengja í
miðborg Prag og særðust 18 manns.
Margir kenna fyrrum liðsmönnum
öryggislögreglunnar um en allir
flokkar hafa fordæmt tilræðið.-
FELLIHYSI
Fellihýsin (rá Coleman ern að
seliast upn. Þau koma ekki
aftur í sumar
Verð frá kr. 240.000.-
Opnunartími:
Föstudag....................13-22
Laugardag...................10-19
Sunnudag, sjómannadag.....10-19
Reuter
Fyrstu myndirnar afsólkerfínu
Birtar hafa verið fyrstu myndirnar sem teknar eru utan sólkerfisins.
Þessa mynd tók geimfarið Voyager 1 14. febrúar síðastliðinn í 6 millj-
arða km ijarlægð frá jörðu. Lengst til vinstri sést rammi sem gerður
hefúr verið utan um jörðina, þá rammi utan um Venus og lengst til
hægri er sólin. Óvíst er talið að mannkyn eigi þess nokkurn tíma kost
að sjá aðrar myndir teknar af sólkerfinu utan frá.
I LAUG ARD ALSHOLL TIL 10. JUMI
Fyrstu ftjálsu kosningarn-
ar í Tékkóslóvakíu í 44 ár
Prag. Reuter.
ÍBÚAR sambandsríkisins Tékkóslóvakíu ganga í dag og á morgun til
fyrstu frjálsu þingkosninganna sem haldnar hafa verið í landinu í 44
ár. Rúmar 11 milljónir manna eru á kjörskrá og er Borgaravett-
vangi, flokki Vaclavs Havels forseta, og systurflokkum hans spáð
mestu fylgi, rösklega 40 af hundraði. Havel forseti hvatti landa sína
ákaft til að kjósa þar sem kosningarnar væru „fyrsta mikla þolraun
hins nýfengna lýðræðis okkar.“
Samband kristilegra demókrata
er í öðru sæti í skoðanakönnunum
en alls bjóða 22 flokkar og samtök
fram. Valdir verða 300 þingmenn á
sambandsþingið, er skiptist í tvær
jafnstórar deildir, 150 á þing Sló-
vakíska lýðveldisins og loks 200 á
þing Tékkneska lýðveldisins. Búist
er við úrslitum á sunnudagskvöld
en skipting þingsæta verður vart ljós
fyrr en seint í næstu viku vegna flók-
inna kosningareglna. Til að fá sæti
á sambandsþinginu verða flokkar
að fá a.m.k. 5% fylgi í öðru sam-
bandsríkinu. Þingið mun sitja í tvö
ár og undirbúa nýja stjórnarskrá
-ásamt afturhvarfi til markaðsbú-
’ skaj)ar.
A valdatíma kommúnista var
skylda að kjósa en svo er ekki nú;
samt er búist við mikilli kjörsókn
enda virðast landsmenn staðráðnir
í að varpa áratuga kommúnistaein-
ræði á öskuhauga sögunnar. Kosn-
Hryðjuverka-
maður RAF
1990
handtekinn
A-Berlín. Reuter.
VESTUR—ÞÝSK kona, Sus-
anne Albrecht, var handtekin
í Austur-Þýskalandi í gær en
hún er sökuð um aðild að
morðinu á v-þýska banka-
stjóranum Jiirgen Ponto árið
1977.
Albrecht var félagi í hermdar-
verkasveitum Rauðu herdeild-
anna (RAF) er staðið hafa fyrir
sprengjutilræðum og morðum í
Vestur-Þýskalandi, einkum á
áttunda áratugnum. Talið er að
Albrecht, sem er 39 ára gömul,
hafí dvalist árum saman í felum
í Sýrlandi. Árásir RAF náðu
hámarki árið 1977 þegar sam-
tökin myrtu á sex mánaða tíma-
bili formann v-þýska vinnuveit-
endasambandsins og ríkissak-
sóknara landsins. Albrecht var
í vinfengi við fjölskyldu sak-
sóknarans og er talið að hún
hafi veitt upplýsingar sem gerðu
kleift að ijúfa net öryggisgæslu
um saksóknarann og myrða
hann.
LETTOSTAR
þrjár nýjar tegundir á léttu nótunum
MUNDU EFTIR OSTINUM